Tíminn - 10.03.1990, Síða 17
Laugardagur 10. mars 1990
'1' Ti'rriinh' 29
EU
Jj Orðsending til félagsmanna
LU Mjólkurfélags Reykjavíkur
Aðalfundir félagsdeiid M.R. fyrir árið 1989 verða
haldnir sem hér segir:
Mosfells- og Kjalarnesdeildir
Mánudaginn 12. marskl. 14.00 í Félagsheimilinu Fólkvangi,
Kjalarnesi.
Innri-Akraness-, Skilmanna-, Hvalfjarðarstrandar-,
Leirár- og Melasveitardeildir
Miðvikudaginn 14. mars kl. 14.00 í Félagsheimilinu Fanna-
hlíð.
Kjósardeild
Fimmtudaginn 15. mars kl. 14.00 í Félagsheimilinu Félags-
garði.
Suðurlandsdeild
Föstudaginn 16. mars kl. 14.00 í Veitingahúsinu Inghóli,
Selfossi.
Reykjavíkur-, Bessastaða-, Garða-, Hafnarfjarðar-,
Miðnes-, Gerða- og Vatnsleysustrandardeildir
Laugardaginn 17. mars kl. 14.00 í skrifstofu félagsins
Korngörðum 5.
Aðalfundur félagsráðs
Verður haldinn laugardaginn 24. mars að Hótel sögu og
hefst kl. 12.00 á hádegi.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur.
rbvrvrvosu i Mnr
Virðum líf verndum jörð
Umhverfismálafundur
Landssamband framsóknarkvenna og Samband ungra framsóknar-
manna munu halda fund um umhverfismál fimmtudaginn 15. mars
n.k. kl. 20.00 í Nóatúni 21.
Þar munu Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt og formaður Land-
verndar ræða umhverfismál með spurninguna „Hvað getum við
gert?“ í huga. Jón Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra talar
um umhverfismál almennt. Sif Friðleifsdóttir, fulltrúi í samstarfsnefnd
Norræna félagsins og ÆSÍ mun tala um norrænt umhverfisár og
Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður, ræðir um mengun frá
stóriðju og fiskeldi og einnig um gróðurhúsaáhrif hér á landi.
Síðan verða opnar umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórnir LFK og SUF
Aðalfundur F.F.K.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur aðalfund laugardaginn
17. mars kK‘45J0Q að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Borgarstjórnarkosningarnar
3. önnur mál.
Mætið vel.
Stjórnin.
Námskeið fyrir ungt fólk
á erlendri grund
Samband ungra framsóknarmanna stendur til boða að tilnefna ungt
fólk á aldrinum 18 til 30 ára á námskeið sem haldin eru víðs vegar í
Evrópu. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þennan möguleika eru
beðnir að hafa samband við Egil Heiðar á skrifstofu Framsóknar-
flokksins í síma 91-24480.
Framkvæmdastjórn SUF.
Opinn stjórnarfundur SUF
Samband ungra framsóknarmanna heldur stjórnarfund laugardaginn
17. mars n.k. í húsakynnum Framsóknarflokksins Nóatúni 21 í
Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 10.00 og er opinn öllum ungum
framsóknarmönnum.
Framkvæmdastjórn SUF
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Kjarvalsstofa í París
Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætluð
er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykjavíkurborg,
menntamálaráðuneytið og Seðlabanki Islands lögðu
fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í
Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefnist
Cité Internationale des Arts, og var samningurinn
gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar,
skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu og
gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjórnar
Cité Internationale des Arts, er tekur endanlega ákvörð-
un um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir en
lengst er heimilt að veita listamanni afnot Kjarvalsstofu
í 1 ár.
Þeir sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld, er
ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og
miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnaðar,
sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga
í Parísarborg. Dvalargestir skuldbinda sit til þess að
hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot
af húsnæði og vinnuaðstöðu, og jafnframt skuldbinda
þeir sig til þess að dvöl lokinni að senda stjórn
Kjarvalsstofu stutta greinargerð um störf sín.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvals-
stofu, en stjórnin mun á fundi sínum í apríl fjalla um
afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst 1990 til
31. júlí 1991. Skal stíla umsóknir til stjórnarnefndar
Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til stjórnar-
nefndarinnar í skjalasafni borgarskrifstofanna að Aust-
urstræti 16, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðu-
blöð og afrit af þeim reglum, sem gilda um afnot af
Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til
greina við þessa úthlutun.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 6. apríl n.k.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu.
Laust embætti
sem forseti ísiands veitir
Prófessorsembætti í handlæknisfræöum við læknadeild Háskóla
Islands er laust til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríksins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjanda,
ritsmíöar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráöuneytinu, fyrir 17. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið,
7. mars 1990.
^ Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur óskar
eftir tilboðum í verkið „Borgarholt-Aðveituæð, 1. áfangi".
Um er að ræða byggingu á um 1.000 m af steyptum hitaveitustokki
með 500 og 600 mm stálpípum.
Stokkurinn liggur frá Vesturlandsvegi meðfram Víkurvegi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 3. apríl 1990 kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKÚRBORCAR
Frfkirkjuvtgi 3 — Sími 25800
Til leigu
Einstaklingsíbúð til leigu í eitt ár.
Ódýr leiga en árið fyrirfram.
Upplýsingar í síma 91-679107 yfir helgina.
Au-Pairs - London
Margar fjölskyldur í útborgum Lundúna óska eftir Au-Pairs, er gætu
byrjað í vor eða sumar.
Áhugasamir hringi í The Au-Pair Agency 90-44-1-958-1750,
m'.iudaga-föstudaga kl. 10.00-12.00
Ert þú að hugsa um að
byggja t.d. iðnaðarhúsnæði,
verkstæði,
áhaldahús, gripahús,
bilskur eða eitthvað annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og lang-
bönd eru valsaðir stálbitar og
allt boltað saman á byggingar-
stað. Engin suðuvinna, ekkert
timbur. Allt efni í málmgrind
galvaniserað.
Upplýsingai gefa:
MÁLMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími 91-680640
-
BILALEIGA
með útibú allt i kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl-á einum stað
og skila honum á öðrum
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla erlendis
interRent
Europcar
TÖLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar
þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001