Tíminn - 24.03.1990, Page 1

Tíminn - 24.03.1990, Page 1
LEGSTAÐUR JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR í fróðlegri og skemmtilegri þátta- röð Bjöms Th. Bjömssonar listffæð- ings í Ríkissjónvarpinu um íslenska sögustaði í Kaupmannahöfh lét hann að því liggja í síðasta þættinum, sunnudaginn 4. febrúar 1990 að sennilega hefði aldrei verið grafið til beina Jónasar Hallgrímssonar á rétt- um stað í Assistentskirkjugarði, og af því leiðir þá að sjálfsögðu, ef rétt væri, að önnur bein en hans hefðu verið flutt heim á sínum tíma. Þetta rifjar upp leið atvik og hvim- leiða umræðu í sambandi við heim- flutning líkamsleifa skáldsins árið 1946. Minningartaflan í Petersstræde Eins og kunnugt er bjó Jónas Hall- grímsson síðustu ævidaga sína í hús- inu nr. 140 við St. Pedersstræde í Kaupmannahöfn, en húsnúmemm hefúr síðan verið breytt og er húsið nú nr. 22. Gatan er ekki langt frá há- skólanum og einnig skammt ffá Ráð- hústorgi. Árið 1928 lét dönsk kona, Ingeborg Stemann cand mag. setja minningartöflu á húsið. Er þar letrað: „Den islandske Digter Jónas Hall- grímsson, födt paa Gaarden Hraun í Öxnadal 16. November 1807, död í Köbenhavn 26. Maj 1845, havde her sin sidste bolig.“ Tildrögin að því að hún lét gera minningartöfluna vom þau að hún nam íslensku hjá Steindóri Stein- dórssyni, síðar skólameistara, sem þá var námsmaður í Kaupmannahöfn. Steindór hafði enga kennslubók handbæra og lét Ingeborg lesa Grasa- ferðina eftir Jónas. Hún varð svo hrifin af skáldskap Jónasar að hún lét síðar setja þetta minningamark á hús- ið. Hús þetta var í Trinitatis — kirkju- sókn og var Jónas því jarðaður í þeim hluta Assistentskirkjugarðs, sem til- heyrði sókninni og var merktur bók- stafnum S. Graffeitur hans var nr. 198. Um það bil fjörutíu ámm eftir andlát skáldsins var merkjum breytt í garðinum og hlaut þá þessi reitur merkið N nr. 1095. Frá þessu er greint í hinni ítarlegu ævisögu Jónas- ar, sem Matthías Þórðarson þjóð- minjavörður tók saman og Isafoldar- prentsmiðja gaf út. Sigurður Ólason, hæstaréttarlög- maður, vakti fyrstur opinberlega máls á því í grein í Tímanum í sept- ember 1938 að flytja bæri jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímsonar heim til íslands. Hann hlutaðist til um þaó 1939 að Stúdentafélag Reykjavíkur eignaðist umráðarétt yfir legstað skáldsins. Hörður Bjamason var þá formaður félagsins. íslenskir stúd- entar í Kaupmannahöfn og Reykja- Birgir Thoriacius tók saman liðin ffá andláti hans árið 1945, og jarðsettar á Þingvöllum. Þetta leyfúm við okkur að tilkynna yður, herra forsætisráðherra. Virðingarfyllst, Jónas Jónsson. H. Guðmundsson. Sigurður Kristjánsson." Þjóðargrafreitur á Þingvöllum Efht haföi verið til þjóðargraffeits á Þingvöllum samkvæmt ákvörðun Þingvallanefndar og Einar skáld Benediktsson jarðsettur þar fyrstur manna 27. janúar 1940, en minning- arathöfn fór ffam í dómkirkjunni í Reykjavík daginn áður. Jónas Jóns- son var mikill áhugamaður um þenn- an graffeit eins og svo margt annað og hentu menn gaman að því að ffægðarmenn óttuðust vegna þessa mikla áhuga að verða kviksettir á Þingvöllum. Engar opinberar reglur giltu um þennan graffeit, en á Al- þingi 1945 fluttu þeir Jónas Jónsson Jónas Hallgrimsson, skáld og náttúrurfræðingur undir úrskurð Alþingis án umræðu. Heimild Alþingis er veitt ef 3/4 hlut- ar þingmanna eða fleiri eru á fundi og 3/4 þeirra samþykkja tillöguna. Þing- vallanefnd skyldi samkvæmt ffum- varpinu sjá um ffamkvæmd greftrana í þjóðargraffeitnum, en rikissjóður greiða kostnað. í ákvæði til bráða- birgða segir: „Rikisstjómin skal gera ráðstafanir til þess að leifar Jónasar Hallgrímssonar skuli fluttar til ís- lands og jarðsettar í þjóðargraffeitn- um á Þingvöllum þegar á þessu ári.“ Frumvarpið var tekið til umræðu í effi deild Alþingis 3. apríl 1945. Jón- as Jónsson mælti fyrir því og gat þess að liðin væru nokkur ár síðan Þing- vallanefhd heföi í samráði við þáver- andi ríkisstjóm látið gera grafreit á Þingvöllum, sem ætlast væri til að hefði svipaða þýðingu og Westminst- er Abbey í Englandi. Það vildi svo vel til fyrir þessa hugmynd, sagði flutningsmaður, að fyrsti maðurinn, sem kom til mála að þama yrði graf- inn, var ekki umdeildur, þannig að ef á annað borð ætti að hafa slíkan graf- reit hér, var Einar Benediktsson sjálf- kjörinnþar. Síðan skáldið varjarðsett á Þingvöllum hefði ekki komið til neinna slíkra ffamkvæmda. En nauð- synlegt væri að setja reglur og þess vegna væri ffumvarpið bonð ffam. I Englandi væri ákveðið strax við and- lát hvort gráfið skyldi í Westminster Abbey. Fmmvarpið gerði ráð fynr í tilefni af nokkurri umræðu nýiega um legstað Jónas- ar Haligrímssonar birtir Helgar — blaóiö í dag og næstu helgi for- vitnilega ritgerð Birgis Thoriacius, fv. ráðuneytis- stjöra, um aðdrag- anda og atvik vík gengust fyrir því á sínum tíma að skáldinu var reistur minnisvarði í Reykjavik á aldarafmælinu. I maímánuði 1943 barst forsætis- ráðherra dr. Bimi Þórðarsyni bréf ffá Þingvallanefhd, dagsett 19. s. m., svofellt: „Á fúndi Þingvallanefhdar 13. apr- íl s.l. var samþykkt: Að benda ríkis- stjóminni á að nefndin telur vel við eiga að stjómin geri ráðstafanir til þess að leifar Jónasar Hallgrímssonar verði fluttar heim þegar er því verður við komið. t. d. þegar hundrað ár em Matthías Þórðarson við legstað Jónasar Hallgrímssonar 1946. (Úr myndasafni Þjóðminjasafrís. Ljósm. ókunnur). Fyrri hluti og Haraldur Guðmundsson í effi deild ffumvarp til laga um þjóðar- graffeit á Þingvöllum. í ffumvarpinu segir að ríkið haldi við og vemdi sér- staklega graffeit á Þingvöllum fyrir íslenska affeksmenn, konur og karla. Engan má, segir í ffumvarpinu, jarð- setja í þjóðargratfeitnum, nema liðin séu 25 ár ffá andláti hans og a. m. k. fimm ár ffá því að síðast var jarðsett í graffeitnum. Tilmæli um að maður verði jarðsettur í graffeitnum skyldu fyrst borin ffam við ríkisstjóm, er leiti álits Þingvallanefndar. Ef nefhd- in mælir með tilmælunum eða rikis- stjómin ákveður að styðja þau. skal tillaga þess efnis send forseta sam- einaðs Alþingís ásamt skriflegri greinargerð. Forseti leggur tillöguna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.