Tíminn - 31.03.1990, Blaðsíða 15
nninniT fv
r,cc.i ?.i6in . i >' iijosbiBp-.ijJ
Laugardagur 31. mars 1990
Tíminn 27
llllllllllilll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllll
Körfuknattleikur-Úrslitakeppnin:
I Kefl lav í kí í ú rsl t ■ 1 n! 1 1
Frá Margréti Sanders íþróttafréttaritara Tím-
ans á Suðurnesjum:
Keflvíkingar sigruðu Njarðvík-
inga 88-86 í tviframlengdum leik í
úrslitakeppni íslandsmótsins í körfu-
knattleik í Keflavík í gærkvöld fyrir
troöfullu húsi áhorfenda. Eftir
venjulegan leiktíma var staðan jöfn
74-74.
Leikurinn var jafn fram í miðjan
fyrri hálfleik. mikil taugaveiklun var
hjá leikmönnum og mikið um
mistök. Njarðvíkingar spiluðu mjög
vel fram undir lok hálfleiksins og
voru með 11 stiga forskot í hálfleik
27-38.
Keflvíkingar söxuðu smátt og
smátt á forystu Njarðvíkinga og
náðu að jafna 53-53, eftir það var
leikurinn í járnum. Liðin skiptust
íþróttir
helgarinnar
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild-VÍS-keppnin kl. 16.30:
Höllin Akureyri KA-KR
Ásgarður Garðabæ Stjaman-HK
Laugardalshöll Víkingur-FH
Seljaskóli ÍR-Valur
Seltjamames Grótta-ÍBV
1. deild kvenna:
Laugadalsh. kl. 13.30 Fram-
Stjaman
Laugadalsh. kl. 15.00 Víking-
ur-KR
Valsheimili kl. 15.45 Valur-FH
Sunnudagur
1. deild kvenna:
Strandgata kl. 19.15 Haukar-
Grótta
2. deild karla:
Akureyri kl. 20.00 Þór-Valur b
Strandgata kl. 18.00 FH b-ÍBK
[þróttir fatlaðra
íslandsmót fatlaðra í sundi fer
fram í Sundhöllinni í Reykja-
vík í dag. Alls eru 65 íþrótta-
menn skráðir til keppni frá 9
félögum. Mótinu lýkur með
lokahófi í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal kl. 20.00 í kvöld.
Vaxtarrækt
Níunda íslandsmótið í vaxtar-
rækt verður haldið á morgunn
sunnudag 1. apríl á Hótel ís-
landi. Keppt verður í þremur
þyngdarflokkum kvenna og
fjórum þyngdarflokkum karla.
Gert er ráð fyrir að keppendur
verði um 20 talsins. Mótið
hefst með forkeppni kl. 14.00,
borðhald hefst kl. 18.30, en úr-
slitakeppnin kl. 20.00. Kynnir
á mótinu verður enginn annar
en Jón Páll Sigmarsson. B-
hluti íslandsmótsins fór frarn á
Akureyri um síðustu helgi.
Keflvíkingar höfðu betur í baráttunni við Njarðvíkinga í gærkvöldi og leika
því til úrslita gegn KR-ingum. Tímamynd: Pjetur
síðan á um að hafa forystu og þegar
ein og hálf mín. var eftir voru
Keflvíkingar með 5 stiga forystu
70-65. Njarðvíkingar náðu að kom-
ast yfir 71-73. Keflvíkingar fengu þá
dæmda á sig sóknarvillu og þegar 10
sek. voru eftir. Njarðvíkingar völdu
innkast fremur en vítaskot, en Krist-
inn Albertsson dómari neitaði þeim
um það þar sem þeir höfðu ekki
beðið um það tímanlega. ísak skor-
aði úr fyrri vítinu en síðara skotið
geigaði og Keflvíkingar náðu knett-
inum. Guðjón Skúlason fékk þá
knöttinn einn og óvaldaður fyrir
utan þriggja stiga línuna og jafnaði
74-74 og framlenging var staðreynd.
Mikil taugaveiklun var í fyrri
framlengingu og ekkert gekk hjá
liðunum og skoraði hvort lið um sig
aðeins eina körfu. Keflvíkingar byrj-
uðu seinni framlengingu betur og
komust yfir 81-76, Njarðvíkingar
jöfnuðu og náðu að komast yfir
86-87. Nökkvi skoraði síðan 88-86.
Njarðvíkingar voru með knöttinn
þegar 30 sek. voru eftir en náðu ekki
að nýta sér það.
Liðin eru mjög jöfn eins og sést á
þessum leik, Njarðvíkingar voru
betri í fyrri hálfleik en spiluðu slakan
sóknarleik í þeim síðari, en Keflvfk-
ingar náðu ekki að nýta sér það því
varnarleikur Njarðvíkinga var |iað
góður að þeir náðu knettinum hvað
eftir annað af Keflvíkingum.
Bestur hjá Keflavík var Sandy
Anderson, fór á kostum í vörn og
sókn og átti 20 fráköst. Guðjón
Skúlason var góður í sókn og Magn-
ús Guðfinnsson. Nökkvi, sent fær að
spila allt of lítið, stóð sig mjög vel í
framlengingunum. Hjá Njarðvíking-
um stóð Petrik Releford sig vel í
sókn, ísak var góður í vörn og sókn,
Friðrik Ragnarsson var frábær í fyrri
hálfleik, Teitur stóð sig vel í vörn,
en náði sér ekki á strik í sókn og
munar um minna.
Dómarar voru Kristinn Alberts-
son og Leifur Garðarsson.
Stigin iBK: Guðjón 24, Magnús
15, Anderson 17, Nökkvi 14, Falur
10, Sigurður 6, Ingólfur 2. UMFN:
ísak 20, Releford 18, Friðrik
Ragnars. 18, Teitur 13, Jóhannes 9,
Helgi 4, Kristinn 2 og Ástþór 2.
KR-lBK í úrslit
Pað verða því Keflvíkingar og
KR-ingar sem leika um íslands-
meistaratitilinn í ár eins og í fyrra.
Fyrsti úrslitaleikur liðanna verður á
mánudagskvöld kl. 20.00 í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi. Það lið sem
fyrr sigrar í þremur leikjum verður
íslandsmeistari. Annar leikurinn
verður í Keflavík á þriðjudagskvöld
og á fimmtudagskvöld mætast liðin
á ný á Seltjarnarnesi.
Heim á nýjum bíl
KKÍ stóð fyrir skotkeppni frá
miðju í leikhléi á leiknum og þurftu
þátttakendur að skora tvisvar úr
þremur tilraunum. Dregið var úr
miðum áhorfenda og í verðlaun var
bíll frá Ingvari Helgasyni að verð-
mæti 700 þúsund. Ánna María
Sveinsdóttir íþróttakonan kunna úr
Keflavík var annar áhorfandinn sem
fékk að reyna sig. Hún skoraði úr
tveimur fyrstu tilraununum og hlaut
því bílinn í verðlaun.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa frá
1. maí 1990 eða eftir nánara samkomulagi. Einnig
vantar hjúkrunarfræðinga vegna sumarafleysinga.
Allar nánari upplýsingar veitir húkrunarforstjóri á
staðnum eða í síma 95-35270.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
Eyfirðingar
Konur og sveitarstjórnarmál
Fundur á Hótel KEA laugardaginn 31. mars nk. kl. 15.00.
Frummælendur: Unnur Stefánsdóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður. Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. Guðlaug Björnsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Dalvík. Kolbrún Þormóðsdóttir, varabæjarfulltrúi á Akureyri.
Að framsöguerindum loknum fara fram almennar umræður.
Konur fjölmennum.
Framsóknarkonur við Eyjafjörð
Reykjavík
Létt spjall á laugardegi
Finnur Ingólfsson mun ræða kosningaundirbúninginn
í vor laugardaginn 31. mars n.k. kl. 10.30 í Nóatúni 21
ingóifsson Allir á framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík
mæta á fundinn. Allir velkomnir
Fulltrúaráðið.
Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi.
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla virka daga milli kl. 17 og 19,
laugardaga frá kl. 10 til 13.00. Simi 51819.
Allir velkomnir, alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin
Keflavík
Fundur verður um kosningastarfið laugardaginn 31. mars kl. 11.00 í
Félagsheimilinu, Hafnargötu 62.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Kópavogur - Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð að Hamraborg 5, Kópavogi sunnudag-
inn 1. apríl n.k. kl. 15.00. Góð verðlaun karla og kvenna.
Fyrsti dagur í þriggja daga keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
Tippað á tölvunni í leikviku 13 - 1990 Leikur nr. 4 í beinni útsendingu hjá Sjónvarpinu
Sölukerfið lokar kl. 13:55 FJÖLMIÐLAR GETRAUNIR PC- TIPPARAR SAMTALS TIPPAÐ Rétt
LEIKUR ÞREFALDUR POTTUR . HLUTFALL HLUTFALL hlutfalL HLUTFALL A 144 R. röð
NÚHER HEIHALIÐ - ÚTILIÐ 1 X 2 1 X 2 1 X 2 1 X 2 1 X 2 1X2
1 Arsenal - Everton 100% 0% 0% 60% 25% 15% 57% 35% 8% 72% 20% 8% 1
2 Charlton - Q.P.R. 20% 40% 40% 25% 35% 40% 44% 25% 31% 30% 33% 37% 1 X 2
3 Chelsea - Derby 70% 10% 20% 50% 20% 30% 63% 21% 16% 61% 17% 22% 1
RÚV 4 Liverpool - Southampton 100% 0% 0% 65% 20% 15% 77% 13% 10% 81% 11% 8% 1
5 Han. Utd. - Coventry 80% 10% 10% 45% 30% 25% 69% 21% 10% 65% 20% 15% 1
6 HilIwall - C. Palace 40% 60% 0% 30% 40% 30% 39% 27% 34% 36% 42% 21% 1 X
7 Norwich - Luton 90% 10% 0% 65% 25% 10% 53% 32% 15% 69% 22% 8% 1
8 Nott. For. - Uimbledon 80% 10% 10% 30% 40% 30% 40% 30% 30% 50% 27% 23% 1
9 Sheff. Wed. - Tottenham 30% 20% 50% 60% 20% 20% 33% 34% 33% 41% 25% 34% 1 2
10 Middlesbro - Oldham 40% 10% 50% 40% 30% 30% 39% 24% 37% 40% 21% 39% 1 2
11 Uatford - Blackburn 70% 10% 20% 40% 20% 40% 27% 35% 38% 46% 22% 33% 1 2
12 Uolves - Leeds 30% 40% 30% 30% 20% 50% 32% 37% 31% 31% 32% 37% 1 X 2