Tíminn - 03.04.1990, Side 5
Þriöjudagur 3. apríl 1990
Tíminn 5
Verkfallið í álverinu í Straumsvík hefur veruleg áhrif á þjóðarhag.
Gjaldeyristekjur snar dragast saman. Stöðvist álverið alveg þýðir það..:
500 milljónir á
mánuði tapaðar
Samningaviðræður milli ísal og starfsmanna álversins lágu
niðri í gær en fundur hefst í dag hjá sáttasemjara kl. 14. Deilan
var í hörðum hnút í gær og ekki búist við að hún leystist að sinni,
þannig að áfram er haldið við að gíra starfsemi álversins niður.
Fari það svo að rekstur álversins
stöðvist er ljóst að umtalsvert tjón
hlýst af. Ekki aðeins að starfsmenn í
verkfalli verði án launa og ísal tapi,
heldur verður þjóðarbúið af griðar-
miklum gjaldeyristekjum. Arið 1988
nam útflutningur Isal 8.336 milljón-
um króna en innflutningur 2.845
milljónum. Nettó gjaldeyristekjur
urðu því 5.491 milljónir króna á nú-
virði.
Síðasta ár gekk rekstur ísal mjög vel
og stendur deilan nú í raun um hvort
túlka eigi umsamda hagnaðarhlut-
deild sem samið var um í september í
fyrra, sem eingreiðslu eða hvort hún
eigi að standa áfram í nýjum samn-
ingi.
Gylfi Ingvarsson aðaltrúnaðarmað-
ur starfsmanna sagði að ef semja ætti
um svokallaða núllausn eins og aðil-
ar vinnumarkaðarins hafi skuldbund-
ið sig til, þá hljóti umrædd auka-
greiðsla vegna góðrar afkomu að
eiga að standa áffam í ffamlengdum
samningi þar sem hún er tilgreind í
einni grein kjarasamningsins.
Jakob Möller starfsmannastjóri ísals
sagði í gær að ffá sjónarmiði ísals
væri það alveg ótvírætt að í septem-
bersamningunum i fyrra hefði verið
samið um eingreiðslur vegna sérstaks
árangurs á því tiltekna ári.
Þetta góða ár — 1989 nam útflutn-
ingur álversins 10.290 milljónum
króna en innflutningur 3.616 kr.
Nettó gjaldeyristekjur þjóðarbúsins
af starfsemi álversins voru því 6.674
milljónir króna eða rúmar 556 millj-
ónir á mánuði á móti um 458 milljón-
um árið 1988 miðað við núvirði
krónunnar.
Að sögn Jakobs Möller er meðal-
straumnotkun álversins við full af-
köst 105,5 kílóamper. Á laugardag
var straumurinn minnkaður niður í
102, á sunnudag í 100 og í gær niður
í 98 kílóamper. Haldi deilan áffam
verður haldið áffam að draga úr raf-
straumnum stig af stigi með sama
hætti og hægja þannig á ffamleiðsl-
unni þar til hún stöðvast. Leystist
deilan yrði straumurinn aukinn í
svipuðum þrepum og hann er lækk-
aður nú.
Jafnffamt því ffamleiðslutapi sem
verkfallið veldur sagði Jakob að
menn byggjust við verulegu íjárhags-
tjóni Isal vegna skemmda á kerjunum
í álverinu. Kerin væru viðkvæm og
þyldu illa þær hitabreytingar sem
þessi niðurgírun og síðan uppgírun
hefði í för með sér. Hversu miklum
íjárhæðum tjón á keijunum gæti
numið væri erfitt að meta í krónum
enda færi það talsvert eftir því hve
lengi verkfallið stæði. Stöðvaðist
ffamleiðslan alveg vegna þess væri
tæknilega mögulegt að koma ffam-
leiðslunni aftur í fullan gang á um
það bil þrem mánuðum
Jakob sagði að alls væru tvær vikur
til stefnu að ná samningum eða að
kerin væru hreinlega ónýt og ekki
hægt að gangsetja þau meir. Sá tími
rynni út á miðnætti annan fostudag.
Þá verður búið að lækka strauminn
niður í lágmark og kerin taka að leita
nýs varmajafnvægis. Hversu lengi
væri hægt að halda kerjunum gang-
andi eftir þann tíma væri ekki fylli-
lega vitað. Ljóst væri að allar hita-
breytingar hefðu mjög óheppileg
áhrif á kerin og tjón á þeim yrði því
meir, þeim mun lengur sem verkfall-
ið stæði. —sá
Nýr listi í
Garðabæ
Kosningabandalag sem kallar sig
Einingu, mun bjóða ffam við bæjar-
stjómakosningar í Garðabæ nú í vor.
Þetta er bandalag fólks og félagasam-
taka, sem vilja nýjar áherslur í bæjar-
málum.
Listann skipa:
1. Valgerður Jónsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur, Ægisgrund 14.
2. Hilmar Ingólfsson, skólastjóri,
Hrismóum 13.
3. Ella Kristín Karlsdóttir, húsmóð-
ir, Holtsbúð 41.
4. Hilmar Bjartmarz, sölustjóri,
Smáraflöt 4
5. Sigurður Björgvinsson, kennari,
Dalsbyggð 7.
6. Hafdís Bára Kristmundsdóttir,
kennari, Löngumýri 24.
7. Eyjólfúr V. Valtýsson, vélífæðing-
ur, Brekkubyggð 27.
8. Helga Guðjónsdóttir, fóstra, Faxa-
túni 24.
9. Guðmundur H. Guðmundsson.
skrifstofumaður, Hrismóum 1.
10. Ingibjörg Bragadóttir, kennari,
Löngumýri 26.
11. Soffia Guðmundsdóttir, húsmóð-
ir, Grenilundi 10.
12. Vilhjálmur Ólafsson, húsasmíða-
meistari, Marargrund 2.
13. Albína Thordarson, arkitekt,
Reynilundi 17.
14. Einar Geir Þorsteinsson, fúlltrúi,
Móaflöt 45.
Að listanum standa alþýðubanda-
lagsmenn, ffamsóknarmenn og
kvennalistakonur, auk margra ann-
arra Garðbæinga sem vilja markviss-
ari og metnaðarfyllri stjómun bæjar-
mála.
Fréttatilkynning
Flugleiðir flugu til Amsterdam fyrir Amarflug
um helgina á eigin flugnúmeri:
Leiguflug á
áætlunarleið
Amarflug fékk enga flugvél um síð-
ustu helgi en Loftferðaeftirlitið vildi
ekki veita Boeing 707 vél sem Am-
arflug hafði fengið vilyrði um, starfs-
leyfi. Amarflug fékk því Flugleiðir
til að fljúga með farþega sína beint til
Amsterdam sl. laugardag.
„Við fengum sérstaka heimild bæði
islenskra og hollenskra yfirvalda til
að fljúga á eigin flugnúmeri í leigu-
flugi til Amsterdam í þetta eina
sinn,“ sagði Einar Sigurðsson blaða-
fúlltrúi Flugleiða.
Flugleiðir munu ekki hafa treyst sér
til að fljúga á flugnúmeri Amarflugs
til Amsterdam af ótta við að vél fé-
lagsins yrði kyrrsett vegna skulda
Amarflugs í Hollandi.
I gær hafði verið gengið frá því að
farþegar Amarflugs til Amsterdam,
sem áttu bókað far í dag, fæm með
flugvélum Flugleiða til Kaupmanna-
hafhar eða Glasgow og þaðan ætlaði
Amarflug að sjá þeim íyrir áffam-
haldandi flugi til Ámsterdam. í sam-
tali við Einar Sigurðsson blaðafull-
trúa Flugleiða kom ffam að ekki hef-
ur verið gengið ffá samningum við
Flugleiðir um morgundaginn og
virðist sem Amarflug bjargi sér ffá
degi dags.
—sá
B-USTINN
Selfossi
Framboðslisti Framsóknarflokksins á Selfossi í komandi bæj-
arstjómarkosningum verður skipaður eftirtöldum mönnum:
1. Guðmundur Kr. Jónsson
ffamkvæmdastjóri
2. Kristján Einarsson
húsa- og húsgagnasmiður
3. Ása Líney Sigurðardóttir
húsmóðir
4. Guðmundur Búason
fjánnálastjóri KÁ
5. Kristin Fjólmundsdóttir
skrifstofumaður og húsmóðir
6. Sólrún Guðjónsdóttir
fúlltrúi
7. Vilborg Helgadóttir
ffamhaldsskólakennari
8. Gylfi Guðmundsson
húsasmiður
9. Páll Guðmundsson
landpóstur
10. Bergur Pálsson
vélvirki
11. Svanur Kristinsson
lögregluþjónn
12. Ingibjörg Stefánsdóttir
fóstra
13. Jón Ó. Vilhjálmsson
verkstjóri
14. Jón G. Bergsson
ff amkvæmdastj óri
15. Hákon Halldórsson
trésmiður
16. Guðbjörg Haraldsdóttir
húsmóðir
17. Þorvaldur Guðmundsson
ffamhaldsskólakennari
18. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir
fóstra
Islandsmeistarar krýndir
íslandsmeistarar i vaxtarrækt voru
krýndir á Hótel Islandi á sunnu-
dagskvöld. Sigurvegari í opnum
flokki karla varð Guðmundur
Bragason, sem sést hér að ofan.
Sigurvegar í opnum flokki kvenna
varð unnusta hans, Inga S. Stein-
grímsdóttir. í öðru sæti í karla
flokknum varð ívar Hauksson og
þriðji varð Hreinn Vilhjálmsson. I
öðru sæti í opnum flokki kvenna
varð Auður Hjaltadóttir og þriðja
sætið vermdi Þórdís Anna Péturs-
dóttir. Sigurvegaramir sjást hér
hrósa sigri, eftir jafha og spennandi
keppni.
Tímamynd Laufey
STEINBÍTSVEIÐI
TREG TIL ÞESSA
Frá Einari Harðarsyni Flateyri
Loksins þegar gefúr á sjó eftir nær
tveggja vikna landlegu vegna veðurs,
lætur landsins fomi fjandi á sér kræla
og minnir okkur óþyrmilega á hvar á
jarðarkringlunni við búum. Undan-
fama daga hefur ís verið útaf ísa-
fjarðardjúpi og lokað eða torveldað
siglingaleið. Aðfaranótt laugardags
þurftu bátar ffá Isafirði að landa hér á
Flateyri vegna þess að þeir komust
ekki inn tii Isafjarðar. Áflanum var
ekið þangað.
Ekki hafði verið opið yfir Breiða-
dalsheiði í um hálfan mánuð, en áætl-
un kveður á um að heiðin skuli opnuð
þrisvar í viku, sé hún teppt. Þegar
Isafjarðarbátar þurftu á opnun að
halda var opnað, en það hafði ekki
verið á áætlun þann daginn. Það veit-
ir okkur ánægju og öryggiskennd að
vita af því að hægt sé að opna heiðina
þegar mikið liggur við. Bátar þurfa
að sækja alla leið suður undir Látra-
röst eða vestur á Blakk til að forðast
ísinn, en jafnffamt virðist steinbítur-
inn ekki vera kominn norðar.
Afli hefúr verið þokkalegur þegar
gefið hefur á sjó, en enn vantar allan
kraft í steinbítsvertíðina segja skip-
stjórar. Að sögn Einars Magnússonar
skipstjóra á Vísu, sem er 80 tonna
bátur héðan ffá Flateyri og var 1 gær
staddur um 11 mílur vestur af Látra-
bjargi, er afli þolckalegur eða 200-
250 kiló á balla.