Tíminn - 03.04.1990, Qupperneq 9

Tíminn - 03.04.1990, Qupperneq 9
8 Tíminn Vonirnar brugðust og loð- dýrarækt er orðin stærsta vandamál landbúnaðarins: Er viðreisn hugsanleg í loðdvrarækt eða er hún gjaldþrota „Prestafélag Vestljarða hvetur ríkisstjóm Islands til að aflétta þeirri ánauð óvissu og ótta sem íslenskir loðdýrabændur búa nú við. Þær fréttir sem berast þjóðinni af því fólki er á sínum tíma hóf að leita nýrra leiða í íslenskum landbúnaði, hvalt af öllum yfir- völdum, eru sorglegar. Þegar svo er komið að bændur þessir og böm þeirra þurfa jafn- vel að seðjast af fæðu dýra sinna hlýtur hver kristinn maður að vakna til samúðar og Ieit- ast við af fremsta megni að losa meðbræður sína úr þessum viðjum.“ Þetla er ályktun sem Prestafélag Vest- fjarða sendi frá sér fyrir skömmu. Almenn- ingur hefur hingað til reynt að leiða vanda- mál loðdýraræktarinnar hjá sér. Þeir sem ekki þekkja vandamálið nema af afspum hafa öðm hverju hneykslast á því þegar stjómvöld hafa verið að leggja Qármuni í greinina í von um að geta haldið henni á floti. Frásagnir fjölmiðla af persónulegum hörmungum loðdýrabænda hafa þó komið við marga og nú er svo komið kirkjan biður um að óvissunni verði létt af loðdýrabænd- um. Hver ber ábyrgð? í umræðum um loðdýrarækt á umliðnum mánuðum hefur margsinnis verið minnt á ábyrgð þeirra sem hvöttu bændur til að snúa sér að loðdýrarækt. Aróður þeirra sem sögðu loðdýraræktina vera vaxtarbrodd íslensks landbúnaðar var sterkur. Þetta var á þeim tíma þegar erfiðleikar steðjuðu að hefð- bundnum búgreinum og leitað var allra leiða til að finna nýjar atvinnugreinar fyrir bænd- ur. í nýjasta tölublaði búnaðarblaðsins Freys fá forystumenn bænda þunga ádrepu frá Indriða Aðalsteinssyni, bónda á Skjaldfönn við ísafjarðardjúp. Indriði segir m.a.: „Ég held að mér sé óhætt að segja að mikill meirihluti bænda hafi haft megnustu ótrú á þessu „bjargræði" [loðdýraræktinni] og stuðst þar við reynslu fyrri ára, vitaðar markaðssveiflur og auk þess var bent á litla verkmenntun íslendinga á þessu sviði. Þrátt fyrir þetta tókst loðdýratrúboðum í virðing- ar- og valdastöðum í bændasamtökum og landbúnaðarráðuneyti að teyma fjölda tal- hlýðinna og nýjungagjamra bænda út í það fen, sem þeir eru annaðhvort drukknaðir eða dauðvona í. Loðdýraræktin er nú hneykslunarhella al- menningsálitsins á tímum sem bændastéttin má síst við slíku, og milljarðar króna hafa farið í súginn og enn er verið að henda millj- ónatugum í því skyni að draga einhverja að landi eða milda helstríðið. Hver er svo ábyrgur fyrir þessum hörm- ungum öllum saman? Varla fóru loðdýrabændur út á þessa braut í augnabliks bijálsemi, hitt mun sönnu nær, að vonin um fljóttekinn gróða og þau sérkjör sem þeir nutu til uppbyggingarinnar hafi þar mestu ráðið, enda hafa þeir til skamms tíma verið uppáhaldsdýr Stofnlána- deildar og Framleiðnisjóðs. Og þó að loðdýrabændur hljóti auðvitað að vera ábyrgir gerða sinna, em þeir einnig fómardýr þeirra forystu- og trúnaðarmanna bændasamtakanna, sem með fljótfæmi og dómgreindarskorti hafa átt dijúgan þátt í að koma hundruðum bændafjölskyldna á von- arvöl.“ Landbúnaöarráð herr vill ekki gefast upp Þessa dagana spyija menn, hver sé ffam- tíð loðdýraræktarinnar. Hvað ber að gera úr því sem komið er? Steingrímur Sigfússon landbúnaðarráð- herra var spurður hvort staða loðdýraræktar- innar væri orðin það slæm að skynsamlegast væri að segja: Loðdýraræktin var tilraun sem mistókst. Við skulum hætta þessari atvinnu- grein og haga aðgerðum samkvæmt því. „Nei, ég tel að svo sé ekki komið. Ég vil halda í þá von að við getum fleytt lífvænleg- asta hluta greinarinnar yfir þessa erfiðleika. Auðvitað gera allir sér grein fyrir því að svo Þriöjudagur 3. apríi 1990 Þriöjudagur 3. aþríl‘1990 Tíminn 9 ............................... ' 's ' Nú er líka kominn sá tími ársins að ég held að það væri mjög óskynsamlegt að reyna ekki að sjá til með þetta framleiðslu- ár.“ Þú sagðir á fúndi á Hvanneyri fýrir skömmu að svo gæti farið að menn yrðu að hætta loðdýrarækt ef ekki birti til á næstu ár- um. „Ég held að það sé öllum ljóst að ef verð á skinnum hækkar ekki verður þessu ekki haldið áffam. En það gildir þá ekki um :ís- lendinga eina. Slíkt mundi þýða hrun á állri loðdýrarækt í heiminum. Enn sem komið ér mat allra þeirra sem mest vit hafa á þessum hlutum að yfirgnæfandi líkur séu á þvi að verðið fari að lyfta sér aftur þegar ffamboðið minnkar. Framboð á skinnum hefúr snar- minnkað á síðustu misserum, sérstaklega á refaskinnum. Samkvæmt lögmálum um ffamboð og eftirspum bendir allt til þess að verð á skinnum fari hækkandi svo ffemi sem markaðurinn er ekki alveg hruninn fyrir þessa vöm. Framleiðslan á ári er orðin svo miklu minni en eftirspumin var fyrir fáum ámm. Það eitt og sér ætti að leiða til mikillar verðhækkunar,“ sagði landbúnaðarráðherra. Bændur mundu fagna öllum lausnum Á aðalfundi Félags loðdýrabænda fyrr í vetur lýstu margir bændur því yfir að þeir myndu fagna sérhverri lausn á vanda þeirra, jafnvel þó að lausnin væri að loðdýrarækt yrði hætt í landinu. „Við viljum að einhver taki af skarið og segi það sem segja þarf,“ sagði einn bóndi. Fóðurstöðin á Dalvik er nú lokuð vegna vangreiddra opinberra skulda. Loðdýra- bændur, sem hafa átt í viðskiptum við stöð- ina, segjast ætla að skera dýrin verði ekki búið að finna lausn á vanda stöðvarinnar fyr- ir morgundaginn. Simon Ellertsson, fram- kvæmdastjóri Fóðurstöðvarinnar, var spurð- ur hvemig hann teldi að bændur myndu taka því ef ríkisvaldið ákvæði að hætta loðdýra- rækt á Islandi. ,^Mitt mat er að ef rikisvaldið segði jafn- ffamt við bændur, við skulum hjálpa ykkur við að hætta þessu, þá myndu flestallir fagna þeirri ákvörðun. Núverandi ástand er óþol- andi. Þetta óvissuástand hvílir eins og mara yfir mörgum heimilum. Skuldir bænda hlað- ast hratt upp. Bankamir hafa ákveðið að ganga ekki að mönnum meðan er verið að skoða hlutina, en vextimir hrúgast upp.“ Einar E. Gíslason, bóndi á Syðra- Skörð- ugili og formaður Félags loðdýrabænda, segir loðdýraræktina alls ekki vera gjald- þrota. „Þó að dæmi séu til um menn sem standa mjög illa em einnig, til allrar guðs lukku, til menn sem standa vel. Ég hef trú á að með þeim aðgerðum sem nú er verið að grípa til verði staða allflestra viðunandi.“ Skuldirnar aukast stöðugt Em skuldir bænda orðnar það miklar að verðhækkun á skinnum dugi ekki til að koma fjármálum þeirra i viðunandi horf? „Það þarf ömgglega mörg góð ár til að bændur geti komist út úr núverandi vanda,“ sagði Símon Ellertsson. „En það hljóta allir að skilja að vonir bænda doffia þegar menn sjá engan árangur eftir margra ára erfiði. Menn horfa einkum á það núna að ffam- leiðsla á refaskinnum er orðin minni en eftir- spumin. Hvenær verðhækkunin kemur og hversu mikil hún verður veit maður ekki.“ Heldur þú að margir bændur hætti loð- dýrarækt í haust? „Ég veit að það hafa tveir lögfræðingar á vegum bændasamtakanna verið á ferð um landið í þeim tilgangi að aðstoða bændur í sambandi við skuldbreytingar. Þeir hafa ráð- lagt sumum að hætta loðdýrarækt. Bændur standa hins vegar ffammi fyrir því að þegar þeir hætta em þeir sumir hverjir með millj- ónatugi króna á bakinu. Sumir hafa líka fengið veð hjá sínum nánustu. Það sem þarf að gera er fyrir það fyrsta, að ákveða hvort menn vilja halda þessari at- vinnugrein áfram eða ekki og síðan þarf að gera ákveðnar ráðstafanir í samræmi við þá stefnumörkun. Menn em endalaust að gera getur farið að menn verði að gefast upp fyrir ofureflinu, en ég vil ekki gera það á þessu stigi. Mér finnst að i þessu sambandi verði fólk að hafa í huga hve mikið menn em búnir að leggja á sig, bæði þessir einstaklingar sem em í greininni og hafa fært gríðarlegar fóm- ir, og stjómvöld sem hafa sett mikla fjármuni í greinina. Það má endalaust deila um hversu langt ríkissjóður heföi átt að ganga í þá átt að styðja við greinina. Á síðasta ári fór í loð- dýrarækt með einum eða öðrum hætti um 160 milljónir og vemlegar skuldbindingar em ákveðnar á þessu ári, m.a. ríkisábyrgð á skuldbreytingum upp á 300 milljónir. Þá hafa aðrir aðilar lagt mikið í þetta, sérstak- lega Framleiðnisjóður. Það væri afar slæmt ef það þyrfti að afskrifa allt þetta. undir höndum og vitum hvemig ástandið er orðið hjá mjög mörgum. Við vitum ósköp vel að það em þama einstaklingar sem því miður hafa nánast misst aleiguna og standa nú uppi eignalausir og atvinnulausir. Slíkt gerist reyndar því miður víðar í okkar þjóð- félagi. Þá er sem betur fer séð fyrir þvi í okk- ar velferðarkerfi að menn svelti ekki. Fjárhagsstaða loðdýrabænda er breytileg, en hjá stómm hópi manna er staðan afar slæm. Maður hefúr m.a. notað það sem vopn í baráttunni við að knýja fram aðgerðir og stuðning við greinina, að i henni háttar þann- ig til að þetta em fjölskyldur en ekki fyrir- tæki sem em að fara á höfúðið. I mörgum til- fellum þýðir gjaldþrot allsheijargjaldþrot viðkomandi fjölskyldu og vegna uppáskrifta vina og vandamanna geta fleiri fjölskyldur lent í erfiðleikum. Ég verð þó að segja, vegna þeirra frétta sem verið hafa í fjölmiðlum síðustu daga, að það er sérkennilegt að það skuli vera sömu fjölmiðlar sem greina frá hörmungum þess- ara einstaklinga, sem hafa á undanfömum missemm hneykslast hvað mest á tilraunum mínum til að fá menn til að styðja við loð- dýraræktina. Núna gera þessir sömu fjöl- miðlar sér veislu úr ófömm þessara einstak- linga og em þá að sjálfsögðu fullir af heilagri vandlætingu yfir því hvað stjómvöld dragi mikið lappimar við að styðja við bakið á þessu fólki.“ einhverjar skammtimaraðstafamr sem oftar en ekki koma of seint. Fólk heldur að það sé verið að ausa i þetta peningum, en það er ekki. rétt. Þeir skila sér a.m.k. ekki til bænda.“ Velferðarkerfið á að sjá um að fólk svelti ekki Fjölmiðlar hafa að undanfömu verið að segja frá skelfilegum dæmum um fólk sem rambar nú á barmi gjaldþrots. Verða stjóm- völd ekki að taka á máli þessara einstaklinga með einhveiju móti? „Ég hef nú reynt að komast hjá því að draga hörmungar einstaklinga, sem em illa á sig komnir, inn í þessa umræðu,“ sagði Steingrímur landbúnaðarráðherra. „Það vita sennilega fáir betur um það en einmitt ég, hvemig ástandið er hjá þessum einstakling- um. Að sjálfsögðu höfum við og emm með það í huga að liðsinna þessum fjölskyldum og tryggja að þær hafi framfærslu. Ut af fyrir sig má segja að þegar málin em komin á það stig að það varðar orðið framfærslulöggjöfma, þá er það viðfangsefni sveitarfélaganna og félagsmálaráðuneytis að taka á vandamálinu. Það mæðir hins vegar mest á okkur i landbúnaðarráðuneytinu vegna þess að við höfum upplýsingamar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.