Tíminn - 12.04.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 12. apríl 1990
„Jólakrítinni“ velt til páska og „páskakrítinni“ fram að sumarleyfi?
Sumarorlofspeningarnir
hverfa í páskakrítina
Stórmarkaðir og fjöldi annarra verslana auglýstu nýtt „korta-
tímabil" í gær. Þar með færðist gjalddagi páskaeggja og ann-
ars páskamunaðar fram í byrjun júní. Þar með eru líkur á að
orlofsuppbótin gangi upp í greiðslur á „páskaeggjakrítinni11 í
staðinn fýrír að fara í sumaríeyfið (sem þá er náttúrlega líka
hægt að kaupa út á kort).
Ástæðu þessa má m.a. rekja til
þess að ýmsir munu ekki meira en
svo komnir út úr ,jólakrítinni“, að
því er ráða má af orðum fram-
kvæmdastjóranna hér fyrir neðan.
„Boltinn" verður því að rúlla áffam.
Tíminn spurði forstjóra stærstu
verslana Reykjavíkur af hveiju þeir
ákváðu að lána fólki páskainnkaupin
ffam að sumarleyfi?
„Fyrst og ffemst er það vegna gíf-
urlega margra óska frá viðskiptavin-
um. Hingað hefúr hringt mikill fjöldi
fólks og spurt og spurt hvort korta-
tímabilinu yrði ekki flýtt“, sagði
Þröstur Olafsson framkvæmdastj.
Miklagarðs og Kaupstaðar.
— Það virðist greinilegt að menn
hafa ofkeyrt greiðslukortin mjög
mikið strax um jólin. Því þá varð
satt best að segja mun meiri verslun
heldur en búist hafði verið við mið-
að við þann samdrátt sem átt hafði
sér stað á undan. Fólk hefur síðan
verið að reyna að komast úr úr
þessu. En þörf fyrir að fá tímabilinu
flýtt var núna greinilega heilmikil,
sagði Þröstur.
Hvað hinsvegar varðar vonir um
aukin viðskipti sagði hann það hljóta
að fara saman. Viðskiptin aukist vit-
anlega kaupi nú einhver páskasteik
sem ella hefði ekki átt fyrir henni.
„Hjá okkur var það svörun við því
DAS húsið vakti alltaf vissan spenning á árum áður. Nú er veglegt einbýlishús aftur orðið aðalvinningur hjá happ-
drætti DAS. DAS húsið stendur við Reykjabyggð 18 í Mosfellsbæ. Verðmæti hússins er 17 miiljónir króna.
Nýtt happdrættisár að hefjast hjá Happ-
drætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna:
DAS-húsið er
komið aftur
„Það er ekkert leyndarmál að
okkar hlutur hefur minnkað síðustu
árin. Samkeppnin á happdrættis-
markaðnum er orðin svo gríðarleg
að við höfum átt undir högg að
sækja. Til að að halda okkar hlut
og auka hann jafnframt höfúm
við nú ákveðið að breyta til,“
sagði Sigurður Ágúst Sigurðsson,
nýráðinn forstjóri Happdrættis
DAS.
Nýtt happdrættisár er nú að hefj-
ast hjá DAS og sagði Sigurður að í
stað þess að halda áfram að vcra
með með 7200 blandaða vinninga
eins og verið hefði um langt skeið,
hefði nú verið ákveðið að fjölga
vinningum um tæplega helming án
þess að stækka upplag útgefinna
miða og koma þannig til móts við
viðskiptavini DAS og auka veru-
lega vinningslíkur þeirra jafhframt
því sem þeir styrki gott og verðugt
málefni. Jafnframt því að fjölga
vinningum verulega er DAS húsið
komið aftur til baka eftir margra
ára fjarveru.
DAS húsið er að þessu sinni veg-
Iegt einbýlishús með tvöföldum
bílskúr að verðmæti 17 milljónir
króna. Húsið stendur við Reykja-
byggð 18 í Mosfellsbæ.
Happdrætti DAS er tólf flokka
happdrætti og er dregið mánaðar-
lega í hverjum flokki fyrir sig og
verður DAS húsið dregið úr tólfta
flokki í lok happdrættisársins. Þótt
húsið sé vissulega glæsilegasti
vinningurinn eru einnig góðir vinn-
ingar i öðrum flokkum.
Þann fjórða maí nk. verður dregið
í fyrsta flokki happdrættisársins.
Stærsti vinningurinn þá verður
Nissan Pathfinder jeppi að verð-
mæti 2,5 milljónir króna. Auk hans
verða dregnir út fjölmargir bif-
reiða—, ferða— og húsbúnaðar-
vinningar. Verðmæti vinninga í
hveijum flokki er um 23 milljónir
króna að meðaltali nema í tólfta
flokki. Þar er heildaverðmæti vinn-
inga tæpar 40 milljónir. Heildar-
verðmæti vinninga í happdrætti
DAS er 288 milljónir og 900 þús-
und kr.
—sá
Timamynd; Pjetur.
Sigurður Ágúst Sigurðsson er nýr
forstjóri Happdrættis DAS við gamla
dráttarhjólið. Nýtt happdrættisár er
hafið hjá DAS og hefúr vinningum
verið fjölgað um tæpan helming frá
fyrra ári en miðaupplag er óbreytt
Tlmamynd; Aml ÐJama
að keppinautar okkar höfðu ákveðið
að færa kortatímabilið fram. Þetta
var því bara spurning um sam-
keppni. Helst hefðum við kosið að
halda kortatímabilinu óbreyttu og
búnir að ákveða að verða ekki fyrstir
til breytinga, en jafnframt að við
mundum heldur ekki sitja eftir ef
aðrir flýttu", sagði Jón Ásbjömsson
forstjóri Hagkaups.
Hvað varðar þörf fólks að fresta
„páskakrítinni" fram á sumar hafði
Jón sömu sögu að segja og Þröstur,
þ.e. að frá því fyrir helgi hafi tölu-
vert verið um hringingar frá fólki
sem spurði um hugsanlega breytingu
á kortatímabilinu.
En hefur þetta mikil áhrif á við-
skiptin?
— Ef við hefðum staðið einir eftir
með óbreytt kortatímabil hefði það
bitnað á okkur. Þegar hins vegar allir
færa tímabilið fram eykur það ekki
sölu einstakra aðila, sagði Jón.
Þannig að páskainnkaupin í heild
aukist ekki sem slík?
— Jú, það má vel vera að fólk eitt-
hvað aðeins meira fyrir páskana fýrir
bragðið, en þar á móti dregur þá
bara úr kaupum einhvemtíma seinna
í staðinn. Þessi reikningur verður á
gjalddaga í byijunjúní. - HEI
Minnihlutaflokkarnir í Mosfellsbæ með sameiginlegt
framboð. Gylfi Guðjónsson segir húsnæðismálin í ólestri:
íhaldið hefur
ekki mótmælt
urðun sorps
Allar horfur em á að einungis tveir
listar verði í ffamboði í Mosfellsbæ,
listi Sjálfstæðisflokks og listi Ein-
ingar sem er framboð minnihluta-
flokkanna í bænum. Við síðustu
kosningar fékk Alþýðuflokkur og
Alþýðubandalag sinn hvom bæjar-
fulltrúann og Sjálfstæðisflokkurinn
fimm fulltrúa. Framsóknarflokkur-
inn tapaði hins vegar naumlega sín-
um fúlltrúa. Gylfi Guðjónsson, þriðji
maður á lista Einingar segir atvinnu-
mál og urðun sorps í Álfsnesi meðal
þeirra mála sem nýja framboðið ætl-
ar að taka á.
„Eining ætlar að vinna kröfhiglega
gegn urðun sorps I Álfsnesi. Komið
hefur í ljós að í Gufunessorpinu er
meiri mengun en búist var við og
margt bendir til að það sama verði
upp á teningnum í Álfsnesi. Þetta er
náttúrulega undirlægjuháttur af
meirihluta bæjarstjórnar Mosfells-
bæjar að vinna ekki betur gegn
þessu en gert hefúr verið. Mengunin
á eftir að leggja beint upp í nefið á
fólki í fjölmennri neðri byggð Mos-
fellsbæjar. Dæmi um undirlægjuhátt-
inn er að sameiginleg heilbrigðis-
nefnd Mosfellsbæjar, Seltjamamess,
Kjósar- og Kjalarneshrepps hefur
ekkert ályktað um þetta mál.
Mikið vantar á að húsnæðismálin
séu með þeim hætti að viðunandi
geti talist. Unga fólkið fær ekki þau
tækifæri sem það þyrfti að hafa til
að reisa sín heimili í Mosfellsbæ og
verður því að leita annað. Segja má
að í húsnæðismálum ríki nú stöðnun.
Að sjálfsögðu hefur verið byggt í
sveitarfélaginu á síðustu ámm, en
framkvæmdir hafa ekki fylgt þeirri
fólksfjölgun sem verið hefur á höf-
uðborgarsvæðinu. Aðalskipulagið
frá 1983 er úrelt og það verður að
endurskoða."
Gylfi sagði að eitthvað þyrfti að
gera í atvinnumálum og koma þyrfti
upp skóla í Reykjabyggðinni. Gylfi
sagði að heyrst hefði að meirihluti
bæjarstjómar ætli að ráðast í bygg-
Gylfi Guðjónsson ökukennari
ingu ráðhúss í Mosfellsbæ, en það
mun þýða mikið álag á bæjarsjóð
samfara örri uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja.
Gylfi sagði Framsóknarmenn í
Mosfellssveit ætla að berjast af
hörku fyrir því að komast til áhrifa
innan bæjarstjómar Mosfellsbæjar.
Listi Einingar er þannig skipaður:
1. Halla Jörundardóttir fóstra
2. Oddur Gústafsson deildarstjóri
3. Gylfi Guðjónsson ökukennari
4. Kristín Sigurðardóttir skrifstofu-
kona
5. Jónas Sigurðsson húsasmiður
6. Ólafúr H. Einarsson húsasmíða-
meistari
7. Sveingerður Hjartardóttir bókari
8. Áslaug Höskuldsdóttir leirlista-
kona
9. Pétur Hauksson læknir
10. Ríkharð Öm Jónsson bílamálari
11. Ævar Sigdórsson bifvélavirki
12. Dóra Hlín Ingólfsdóttir rann-
sóknarlögreglukona
13. Soffra Guðmundsdóttir hjúkrnn-
arfræðingur
14. Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona
Efsti maður listans er Alþýðu-
bandalagsmaður, annar Alþýðu-
flokksmaður, þriðji Framsóknarmað-
ur og fjórði Kvennalistakona.
-EÓ