Tíminn - 12.04.1990, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 12. apríl 1990
FRÉTTAYFIRLIT
PEKING — Kínverjar hafa
lokað nokkrum bæjum í
norövesturhluta Kína fyrir út-
lendingum, eftir að fréttir
bárust af blóðugum átökum
Kínverja og minnihluta músl-
íma á þessum slóðum. Tals-
maður héraðsstjórnarinnar í
Xinjiang staöfesti, að bæjun-
um, sem liggja að „Silkiveg-
inum“ hafi veriö lokað. Hins
vegar sagði hann fréttir vest-
rænna fréttastofa, um að
átök hafi brotist út á milli
múslíma og Kínverja í bæj-
um nærri Kashgar í síðustu
viku og að hermenn hafi ver-
ið sendir á staðinn, vera
óstaðfestan orðróm. Sam-
kvæmt fréttum skutu her-
menn fimmtíu manns til
bana.
MOSKVA — Einn leiðtogi
róttækra umbótasinna í sov-
éska kommúnistaflokknum,
Igor Chubais, hefur krafist
þess, að kommúnistaflokk-
unum verði skipt upp í tvo
flokka, en umbótasinnar
hafa orðið fyrir hörðum árás-
um íhaldsmanna að undan-
förnu. Vildi Chubais stofna
nýjan jafnaðarmannaflokk.
Chubais sagði árásirnar á
Lýðræðislegan grundvöll
bera vott um tilraun íhalds-
manna til að ná völdum, og
þar væri Jegor Ligachev í
jfararbroddi pólitískra ofsækj-
enda.
BRUSSEL — Eduard Shé-
vardnadze utanríkisráðherra
Sovétríkjanna segir samein-
að Þýskaland geta átt aðild
að báðum hernaðarbanda-
lögunum.
BELGRAD — Tólf ráðherr-
ar í Kosovo hafa sagt af sér
og viröist allt vera að fara i
kaldakol í þessu fyrrum sjálf-
stjórnarhéraði. Ástæða af-
sagnanna er sú, að albanski
hluti kommúnistaflokksins
greinir á við serbneska hlut-
ann um það, hvernig taka
skuli á þjóðernisólgunni
í héraðinu.
BÚDAPEST — Næsta rík-
isstjórn Ungverjalands, sem
verður ríkisstjórn mið- og
hægriflokka, mun æskja
þess, að Ungverjar gangi úr
Varsjárbandalaginu, en tals-
menn flokkanna segja, að
það verði að gerast með
samningum við Sovétmenn.
KATHMANDU — Stjórn-
arandstaðan í Nepal hótaö
áframhaldandi mótmælum,
ef Birandra konungur gefur
ekki enn meira eftir í lýð-
ræðisátt. Birandra hefur lof-
að ritfrelsi og leyft flokkum
að starfa. En stjórnarand-
staðan vill meira.
VATÍKANIÐ — Móðir
Theresa hefur látið af störf-
um sínum í þágu fátækra og
sjúkra á Indlandi vegna
heilsubrests.
Skæruliðar hrinda árásum stjórnarhers Eþíópíu:
Gífurlegt mannfall
í átökum í Erítreu
Skæruliðar í Erítreu fullyrða, að þeir hafi fellt um sjöþúsund
stjómarhermenn í hörðum bardögum undanfamar tvær vikur.
Segja skæruliðar, að blóðugir bardagar hafi orðið á svæðinu
miili Asmara, höfuðstaðs Erítreu, og hafnarbæjaríns Masawa.
Stjómarherinn heldur Asmara, en fýrir rúmum mánuði náðu
skæruliðar Masawa á sitt vald.
Þjóðfrelsisfylking Erítreu segir, að
5300 stjórnarhermenn hafi fallið í
bardögum, sem urðu við Ginda, en
stjómarherinn reyndi að ná þjóðveg-
inum, sem tengir Asmara og Masa-
wa, aftur á sitt vald á fimmtudegi síð-
ustu viku.
Þá hafi 1500 stjómarhermcnn fallið
við Ginda í fyrradag. Ekki upplýstu
skæmliðar eigið mannfall.
Ginda er í 2000 metra hæð, þar sem
háslétta Eritreu byrjar, en á þeim
slóðum hefur víglínan legið, frá því
að skæruliðar náðu Masawa á sitt
vald í febrúarmánuði.
Talsmaður Þjóðfrelsisfylkingar Er-
ítreu í London sagðist ekki hafa
nægilega góðar upplýsingar um sið-
ustu bardaga, en sagði það ljóst, að
Skæruliðasveitir Þjóðfrelsisfylkingar Erítreu segjast hafa fellt 7000
stjómarhermenn á tveimur vikum.
hermanna, skæruliða og óbreyttra reksturinn eykur hættuna á hungurs-
borgara úthellt, auk þess sem striðs- neyð.
sóknartilraun stjómarhersins hafi
verið brotin á bak aftur og mannfall
hafi orðið mikið.
Eftir að skæruliðar náðu Masawa á
sitt vald í febrúar, er stjómarherinn
umkringdur sveitum skæmliða og ná
einungis tengslum við umheiminn
með flugi.
Hungursneyð er yfirvofandi á þess-
um slóðum, ef ekkert verður að gert.
Hins vegar var bifreiðum með hjálp-
argögnum hleypt í gegnum víglínuna
fyrir hálfum mánuði og var þó nokkr-
um birgðum komið til sveltandi
fólksins.
Þá hefur stjómin í Eþíópíu átt í frið-
arumleitunum við skæmliða í Erítreu
og í Tígerhéraði að undaníomu, en
lítið hefur mjakast. A meðan er blóði
Fangauppreisnirnar í Bretlandi:
Fangavörður gísl
fanga í Glasgow
Enn standa fangauppreisnir í Bret-
landi. í gær gerðu fangar í Shotts,
öryggisfangelsinu í Glasgow, upp-
reisn og halda þeir fangaverði í
gíslingu. í Strangeways fangelsinu
norður af Manchester halda harð-
vígustu fangamir enn út, þótt þrír úr
hópnum hafi gefist upp í fyrrinótt.
Er talið, að fimmtán fangar haldi
enn einni álmunni í Srangeways, en
ellefu dagar era liðnir, frá því þeir
hófu uppreisnina, sem ömgglega
hefur k'ostað nokkur mannslíf.
Fangauppreisnin í Shotts- fangels-
inu braust út í fyrrinótt og taka um
fjörtíu fangar þátt í henni. Hafa þeir
nú eina hæð fangelsisbyggingarinn-
ar á sínu valdi. Ekki er vitað um líð-
an fangavarðarins, sem er gísl fang-
anna, en tveir fangaverðir særðust í
átökunum og vom fluttir á sjúkra-
hús.
Shotts-fangelsið á fátt sameigin-
legt með Strangeways fangelsinu,
hvað aðbúnað snertir. Það var opn-
að fyrir þremur ámm og hafa bresk
stjómvöld bent á það, þegar þau
ræða um úrbætur í fangelsismálum.
Hins vegar er Strangeways-fangels-
ið byggt á 19.öld fyrir um níu-
hundmð fanga, en tæplega fimm-
tánhundmð manns sátu þar inni, er
uppreisnin hófst l.apríl.
Stjórnarkreppa í ísrael:
Stjórn Peresar
sprakk áöur en
hún var mynduð
Ríkisstjóm sú, sem Shimon Peres
formaður Verkamannaflokksins í
ísrael hafði talið sig hafa myndað,
sprakk áður en þingið í Israel hafði
náð að samþykkja hana. Hefur Peres
fengið fimmtán daga frest til að
mynda nýja starfhæfa meirihluta-
stjóm í Israel.
Tveir þingmenn úr flokki strangtrú-
armanna, en sá flokkur hafði lýst yfir
stuðningi við stjóm Peresar, niður-
lægðu Peres með því að hætta stuðn-
ingi við stjómina á síðustu stundu.
Helsti andstæðingur Peresar, Yitzhak
Shamir, er því enn forsætisráðherra
ísraels.
Þingmennimir tveir, sem báðir em
rabbíar, sögðust ekki geta stutt ríkis-
stjóm, sem einnig þurfi að reiða sig á
stuðning tveggja Araba, sem tengsl
hafa við PLO, Frelsissamtök Palest-
ínu. Annar rabbiinn sagði af sér þing-
mennsku, en hinn sagðist ætla að
greiða atkvæði gegn stjóm Peresar.
Sumardagurinn fyrsti
OPIÐ HÚS
Kosningaskrifstofa B-listans í Reykjavík
opnar að Grensásvegi 46 fimmtudaginn 19. apríl kl. 14.30-18.00.
Veitingar á boðstólum fyrir börn og fullorðna.
Guðmundur
G. Þórarinsson
Finnur
Ingólfsson
Sigrun
Magnúsdóttir
Alfreð Hallur
Þorsteinsson Magnússon
Guðmundur
Bjarnason
Frambjóöendur verða á staðnum. Þingmaðurinn og formaður fulltrúaráðs mæta.
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra mætir á staðinn. ALLIR VELKOMNIR.
Foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir með börn sín.
Leikir - Föndur - Blöðrur
Kosninganefndin.