Tíminn - 12.04.1990, Page 32
AUGLÝSINGASÍMAR 1 0 0 0 Cð (D ■ ■ 686300 |
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 ^ginnál eru okKarfm’ VERÐBRÉFAVIBSKII>ri SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688S68 PÓSTFAX TÍMANS 687691 LONDON-NEWYORK-STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888
Tíniinn
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Grófst undan innsiglingarvita í Hornafjarðarósi:
Kanna aðgerðir til
að flýta upphleðslu
Einn af innsiglingarvitum í Homafjarðarósi féll um koll í brim-
róti í fýrrinótt Viti þessi var staðsettur á Suðurfjörutanga og er
sem stendur varhugavert að sigla um ósinn fýrir ókunnuga og
þá sérstaklega í myrkri. Nú er verið að skoða möguleika á að
flýta fyrir upphleðslu Suðurfjörutanga.
„Þetta er hluti af þeim hræringum
sem hafa verið að gerast þama. Und-
anfarið hefur grafið mikið frá hon-
um, þannig að við áttum von á að
þetta gæti gerst,“ sagði Hallgrímur
Guðmundsson, bæjarstjóri á Höíh, í
samtali við Tímann. Á undanfomum
dögum, vikum og jafnvel mánuðum
hafa miklar breytingar átt sér stað í
ósnum. Suðurfjaran, þar sem vitinn
stóð, hefur farið í sundur á um 3 til
400 metra kafla, eða frá vitanum
langleiðina að Hvanney, en Suður-
fjaran ver höfnina fyrir suðvestan átt.
Á sama tíma hefur Austurfjörutangi,
sem gengur þvert á Suðurfjöru,
hlaupið fram og þrengir hann inn-
siglinguna fyrir stærri skip. Þegar
skarðið kom í Suðurfjöru grófst tölu-
vert frá vitanum og hefur hann staðið
strípaður í nokkra daga, sem síðan
leiddi til þess að undan honum grófst
í fyrrinótt.
Á undanfömum vikum og mánuð-
um hefur mikið af sandi borist inn í
ósinn, sem valdið hefur vandræðum
með siglingar um hann. Að sögn
Hallgríms em náttúruöflin þeim affur
FRmnnmB vmtiiKi
i
/
Afþessum jeppa hafa íslend-.
. I ingar mjög mikla og góða
reynslu bæði sem fyrirtaks
- ' fjölskyldu- og ferðabíl og
öflugum vinnuþjark.
• x Nú eiga bændur og rekstrar-.
x aðilar kost á þvíað draga virð-
\ isaukaskattinn frá bílverði.
s* • \ " \ • • \
N Tö kum gamla bílinn upp ínýjan
og semjum um eftirstöðvar.
\ \ I '
— Opið laugardaga frá kl. 10-14.
\ . . \ * . \ \
Verúlisti IHBH
Staðgr.verð
1300 SAFÍR4G.........371.269,-
1500 STATI0N 4G......424.932,-
1500 STATI0N LUX 5G..461.292,-
1600 LUX5G...........454.992,-
* 1500 SAMARA 5G, 3D..490.485,-
‘1500 SAMARA 5G, 5D...518.524,-
1600 SP0RT 4G........661.620,-
1600 SP0RT 5G........723.289,-
*„Metallic“ litir kr. 11.000,-
Ofangreint verð er miðað við að
bifreiðornar séu ryðvarðar og tilbún-
ar til skróningar. Innifalin er einnig
6 óra ryðvarnaróbyrgð samkvæmt
skilmðlum ryðvarnarstöðvar.
T
/
jlMlL/ Ármúla 13 ■ 108 Oayltjavík ■ sími 31236 - 681200
hagstæð þegar árstíminn breytist og
þá grafa fljótin sandinn út á ný.
„Þetta er nú bara náttúrufarið sem
yfirleitt er í jafnvægi, en svo gerist
eitthvað sem enginn maður veit ná-
kvæmlega, þannig að jafnvægið
raskast,“ sagði Hallgrímur. Aðspurð-
ur sagði Hallgrímur að mjög baga-
legt væri að sigla um ósinn eftir að
vitinn fór. „Það gerið það að verkum
að varhugavert og nánast óhugsandi
er að taka skip inn í náttmyrkri,
nema brýn nauðsyn sé. Að degi til
gerir þetta minna til og fyrir heima-
báta skiptir þetta ekki svo verulegu
máli í styttri tíma,“ sagði Hallgrimur.
Vita- og hafnarmál hafa verið að
skoða hvað hægt væri að gera til að
koma í veg fyrir svo miklar breyting-
ar í ósnum. Hallgrímur sagði að
mannshöndin gæti lítið gert nema
vita hvað æðri máttarvöld væru að
aðhafast, þannig að rannsaka yrði
betur hvað væri að gerast. Hallgrím-
ur sagði að búið væri að ákveða það
að fara út í slíka rannsóknaráætlun.
„Miðað við þá atburði sem verið
hafa að gerast hér síðustu vikur þá er
verið að kanna möguleika á því að
flýta rannsóknunum. Á grundvelli
þeirra verður lagt til hvaða varanlegu
framkvæmdir farið verður út í,“
sagði Hallgrímur. Hugmyndir eru
uppi um að koma fyrir varanlegum
vamargörðum, en spumingin er hvar
eiga þeir að. liggja og hvemig eiga
þeir að vera gerðir. Hallgrímur sagði
að nú væri verið að skoða hvort
grípa þyrfti til bráðaaðgerða sem
koma þyrfhi til ÍTamkvæmda á næstu
dögum, vikum eða mánuðum.
Bráðaaðgerðimar sem verið er að
skoða í dag er hvernig flýta megi
fyrir upphleðslu Suðurfjörutanga,
þar sem hann er í sundur. Helst er
talið að nota megi dýpkunarskip sem
taki efni sem komið hefur í rennuna,
sigli með það út fyrir Suðurfjömna
og sleppi efninu þar. Sumaraldan
verði síðan látin sjá um að kasta því
á land og byggja Suðurfjörutangann
upp að nýju. „Þama er verið að veðja
á gott veður. Um leið og vorveður
kemur þá byggist þetta upp, en
spumingin er hversu hratt það geng-
ur. Tanginn þarf að vera kominn í
mjög gott ástand fýrir næsta vetur,
því vetrarveðrið byijar síðan afhir að
brjóta þetta niður," sagði Hallgrimur.
Togari kom til hafhar í fyrradag og
var jafnvel talið, vegna hafrótsins í
fyrrinótt, að hann kæmist ekki út á
ný. Hallgrímur gerði lítið úr því og
sagði að ástand óssins gæti batnað á
jafhskömmum tíma og það versnaði.
„Með heppilegu sjávarfalli og kring-
umstæðum, þá getur ósinn breyst til
hins betra á tveim til þrem dögum,“
sagði Hallgrimur.
—ABÓ
Forseti Islands sextugur 15. apríl:
RÍKISSTJÓRNIN
BÝÐUR í VEISLU
Ríkisstjóm íslands efnir til síð-
degisboðs að Hótel Sögu laugardag-
inn 14. apríl 1990 til heiðurs forseta
Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur,
í tilefni af sextugsafmæli hennar 15.
apríl næstkomandi. Frá klukkan
16:00-17:30 er hófið öllum opið
meðan húsrúm leyfir.