Tíminn - 24.04.1990, Page 4

Tíminn - 24.04.1990, Page 4
4 Tíminn Þriöjudagur 24. apríl 1990 Enn blossa upp blóðug átök í Kathmandu, höfuðborg Nepal. Hér hefur múgurínn kveikt í bifreið lögreglunnar Tveir lögreglumenn og fjórir mótmælendur falla í átökum í Kathmandu: Blóðug átök ógna lýðræðinu í Nepal Lögreglan skaut fjóra mótmælendurtil bana í Kathmandu, höf- uðborg Nepal, eftir að æstur múgurinn hafði barið að minnsta kosti tvo lögreglumenn til bana, en sú barsmíð ertalin hefndarað- gerð fyrir harðneskju lögreglunnar gegn lýðræðissinnum undan- famar vikur. Útgöngubann hefur verið sett á í Kathmandu og hef- ur lögreglustjóri borgarínnar gefið fýrirskipun um, að allir þeir, sem bijóta útgöngubannið, verði skotnir. FRÉTTAYFIRLIT WIESBADEN - Banda- ríkjamaðurinn Robert Polhill, sem leystur var úr gíslingu í Líbanon eftir þriggja ára vist hjá palestínskum mannræn- ingjum, hélt upp á frelsi sitt meðal Bandaríkjamanna í Wiesbaden í Vestur-Þýska- landi, en þangað var flogið með hann frá Líbanon. Bandaríkjamenn telja nú meiri líkur á, að þeir sjö bandarisku gíslar, sem eftir eru í Líbanon, verði sleppt. Hópur sunníta-múslíma í Líbanon sögðust ætla að leysa tvo svissneska starfs- menn Rauðakrossins úr haldi, en þeim var rænt fyrr á þessu ári. BONN — Ríkisstjórn Vest- ur- Þýskalands hefur sam- þykkt þá kröfu Austur-Þjóð- verja, að Vestur- Þjóðverjar kaupi sparifé og lifeyri Aust- ur-Þjóðverja á genginu 1:1. Seðlabanki Vestur-Þýska- lands mun hugsanlega bregðast við þessu með því, að hækka vexti til að vinna gegn hugsanlegri uppsveiflu í verðbólgu vegna þessa. VILNIUS - Einu olíu- hreinsunarstöð Lithauga- lands var lokað fimm dögum eftir að Sovétmenn hættu að senda Lithaugum olíu. Ge- orge Bush forseti Bandaríkj- anna fagnaði, varfærnislega þó, yfirlýsingu Sovétmanna þess efnis, að Sovétríkin væru ekki að reyna að kné- setja Lithaugalands með þvingunum sinum, og sagði ekki víst, að Bandaríkja- menn beiti Sovétmönnum efnahagsþvingunum, ef þeir hætta þvingunum gegn Lit- haugum. Þá opnaði Kazmi- era Prunskiene forsætisráð- herra Lithaugalands reikning á banka í Svíþjóð fyrir fram- lög til stuðnings Lithaugum. GDANSK — Verkalýðs- samtökin Samstaða ákváðu að stofna ekki stjórnmála- flokk í Póllandi, en hins veg- ar var ákveðið að frambjóð- endur á þeirra vegum byðu áfram fram til þings og til sveitastjórna. MOSKVA — Fjórtán þús- und manns verða fluttir á brott frá heimkynnum sínum umhverfis Tsjernóbíl á þessu ári, en í Ijós hefur komið, að skaðinn vegna slyssins í kjarnorkuverinu þar á sínum tíma er mun meiri en talið var. Auk lögreglumannanna tveggja, sem barðir voru til bana, voru fjórir lögreglumenn barðir til óbóta. Múgurinn hafði umhverfi konungs- hallarinnar í Kathmandu á valdi sinu í átta klukkustundir, áður en öryggis- Omar Hassan al-Bashir, sem komst til valda í Súdan í vopnaðrí byltingu í fyrrasumar, braut á bak aftur byltingartilraun, sem gerð var gegn honum í gærmorgun. Herflokkar hliðhollir Omari náðu fljótlega að yfirbuga tvo forsp- rakka og fylgismenn þeirra, er freistuðu þess að ná völdum. Full- yrti Omar, að allir byltingarseg- gimir hafi verið handteknir. Leiðtogar byltingartilraunarinnar voru þeir Abdul-kader al-Kadro fyrr- um yfirhershöfðingi og Mohammed Osman Hamcd Karar fyrrum ofursti í flughemum, en Omar leysti þá frá störfúm eftir byltinguna i fyrrasumar. Byltingartilraunin í gær er sögð tengjast byltingatilraun, sem and- stæðingar Omars höfðu lagt á ráðin um í marsmánuði síðastliðnum, en útsendarar Omars komust að þeim fyrirætlunum í tíma og voru tuttugu manns þá handteknir. Einn þeirra var sonur Sadeqs al-Mahdi, sem var for- sætisráðherra í Súdan í þrjú ár, áður en Omar steypti honum af stóli. Sögðust byltingarmenn ætla að end- urreisa lýðræði í Súdan. Omar leiðir nú fimmtán manna her- foringjastjóm í Súdan. Stjómin afn- am stjómarskrána, leysti upp þing og sveitir lögreglunnar hóf skothríð á mannfjöldann og mddi götumar. Auk skotvopna beitti lögreglan óspart tára- gasi. Á meðan á átökunum stóð, náði mannfjöldinn að kveikja í lögreglu- stöð í miðbænum. stjómar eftir neyðarlögum. í skjóli þeirra hefur stjómin haldið fjölda stjómmálamanna, verkalýðsleiðtoga og baráttumanna fyrir mannréttind- um í fangelsi. Þá hefur stríð stjómarhersins við skæruliða í suðurhluta landsins hald- ið áfram af fullum krafti, þrátt fyrir friðarviðræður í tvígang. Átökin hófúst, þegar mannfjöldinn réðst að níu lögreglumönnum, sem sakaðir vora um að ræna búðir, til þess að grafa undan bráðabirgðastjóminni, sem fynum stjómarandstaða myndaði fyrir fjómm dögum síðan. Sú bráða- birgðastjóm komst á fót, þegar Bir- enda konungur landsins lét undan lýð- ræðissinnum, eftir að lögreglan hafði skotið nokkra tugi þeirra til bana. Ekki er ljóst, hver hefúr tögl og hald- ir í Kathmandu þessa stundina, hin nýja ríkisstjóm eða yfirmenn lögregl- unnar. Ríkisstjómin hafði beðið Milan Kucan leiðtogi umbóta- sinnaðra kommúnista var kjörinn forseti Slóveníu í fyrstu frjálsu mannfjöldann um að hætta ofbeldi, sem einungis væri til þess fallið að stofna Iýðræðisþróuninni í Nepal í hættu, en mannfjöldinn lét bænir stjómarinnar sem vind um eyru þjóta. Reyndar bætti múgurinn um betur, tók innanrikisráðherra landsins höndum og þvingaði hann til þess að lofa, að stórlega yrði fækkað í sveitum lög- reglunnar, áður en honum var sleppt. Lögreglustjórinn í Kathmandu var einnig tekinn höndum af múgnum, en lögreglumenn vopnaðir kylfum og táragasi náðu að frelsa hann. kosningunum þar í 42 ár. Hins veg- ar beið kommúnistaflokkurinn af- hroð í þingkosningunum, sem fram fóru samhliða forsetakjörinu. Sömu örlög hlaut kommúnista- flokkurinn í Króatíu, en talið er að 75% frambjóðenda kosninga- bandalags þjóðernissinna hafi hlot- ið kosningu í fyrri umferð kosning- anna, sem þar fóru fram á sunnudaginn. Þessi kosningaúrslit auka enn lík- urnar á því, að Júgóslavía liðist í sundur á næstunni, því þjóðernis- sinnar í Króatíu hafa aðskilnað á stefnuskrá sinni og sigurvegarar þingkosninganna í Slóveníu að- hyllast stóraukið sjálfræði Slóven- íu, jafnvel úrsögn úr sambandsrík- inu Júgóslavíu. Eftir að kosningaúrslit lágu fyrir, skilaði Milan Kucan flokksskír- teini sínu í kommúnistaflokknum til þess að sýna Slóvönum, að hann verði forseti fólksins alls. Þá sagði Kucan það ljóst, að Slóvenía stór- auki sjálfstæði sitt á næstunni. Kínverskir múslímar hefja heilagt stríð Kínverskir múslímar í norðvestur- hluta Kína hafa hafið heilagt strið gegn kommúnistastjóminni í Pek- ing. Frá þessu skýrði ríkissjónvarp- ið í Xinjiang héraði, þar sem átök hafa brotist út á milli lögreglu og vopnaðra aðskilnaðarsinna músl- íma. Múslímamir, sem em af kynþætti Kirghiza, hafa, samkvæmt fréttum kínverska ríkissjónvarpsins, stofn- að sérstakar dauðasveitir, sem „vinni gegn byltingunni". Fréttir þessar er fyrsta viðurkenn- ing kínverskra stjómvalda á átök- um þeim, er brotist hafa út á milli múslíma og lögreglu á þessum slóðum. Hingað til hafa Kínveijar vísað á bug fregnum af blóðugum átökum á þessum slóðum fyrr í þessum mánuði. Þá féllu fimmtán skæmliðar, sex lögreglumenn og einn opinber embættismaður. I kjölfar þeirra átaka bámst fréttir af morðum öryggissveita kín- verskra stjómvalda, sem sagðar em hafa myrt um fimmtíu manns af Kirghizþjóð. Byltingartilraun mistekst í Súdan Kommúnistaflokkurinn lýtur í lægra haldi í þingkosningum í Slóveníu og Króatíu: Endalok Júgóslavíu sífellt þokast nær

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.