Tíminn - 24.04.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriöjudagur 24. apríl 1990
Enn blossa upp blóðug átök í Kathmandu, höfuðborg Nepal. Hér hefur múgurínn kveikt í bifreið lögreglunnar
Tveir lögreglumenn og fjórir mótmælendur falla í átökum í Kathmandu:
Blóðug átök ógna
lýðræðinu í Nepal
Lögreglan skaut fjóra mótmælendurtil bana í Kathmandu, höf-
uðborg Nepal, eftir að æstur múgurinn hafði barið að minnsta
kosti tvo lögreglumenn til bana, en sú barsmíð ertalin hefndarað-
gerð fyrir harðneskju lögreglunnar gegn lýðræðissinnum undan-
famar vikur. Útgöngubann hefur verið sett á í Kathmandu og hef-
ur lögreglustjóri borgarínnar gefið fýrirskipun um, að allir þeir,
sem bijóta útgöngubannið, verði skotnir.
FRÉTTAYFIRLIT
WIESBADEN - Banda-
ríkjamaðurinn Robert Polhill,
sem leystur var úr gíslingu í
Líbanon eftir þriggja ára vist
hjá palestínskum mannræn-
ingjum, hélt upp á frelsi sitt
meðal Bandaríkjamanna í
Wiesbaden í Vestur-Þýska-
landi, en þangað var flogið
með hann frá Líbanon.
Bandaríkjamenn telja nú
meiri líkur á, að þeir sjö
bandarisku gíslar, sem eftir
eru í Líbanon, verði sleppt.
Hópur sunníta-múslíma í
Líbanon sögðust ætla að
leysa tvo svissneska starfs-
menn Rauðakrossins úr
haldi, en þeim var rænt fyrr á
þessu ári.
BONN — Ríkisstjórn Vest-
ur- Þýskalands hefur sam-
þykkt þá kröfu Austur-Þjóð-
verja, að Vestur- Þjóðverjar
kaupi sparifé og lifeyri Aust-
ur-Þjóðverja á genginu 1:1.
Seðlabanki Vestur-Þýska-
lands mun hugsanlega
bregðast við þessu með því,
að hækka vexti til að vinna
gegn hugsanlegri uppsveiflu
í verðbólgu vegna þessa.
VILNIUS - Einu olíu-
hreinsunarstöð Lithauga-
lands var lokað fimm dögum
eftir að Sovétmenn hættu að
senda Lithaugum olíu. Ge-
orge Bush forseti Bandaríkj-
anna fagnaði, varfærnislega
þó, yfirlýsingu Sovétmanna
þess efnis, að Sovétríkin
væru ekki að reyna að kné-
setja Lithaugalands með
þvingunum sinum, og sagði
ekki víst, að Bandaríkja-
menn beiti Sovétmönnum
efnahagsþvingunum, ef þeir
hætta þvingunum gegn Lit-
haugum. Þá opnaði Kazmi-
era Prunskiene forsætisráð-
herra Lithaugalands reikning
á banka í Svíþjóð fyrir fram-
lög til stuðnings Lithaugum.
GDANSK — Verkalýðs-
samtökin Samstaða ákváðu
að stofna ekki stjórnmála-
flokk í Póllandi, en hins veg-
ar var ákveðið að frambjóð-
endur á þeirra vegum byðu
áfram fram til þings og til
sveitastjórna.
MOSKVA — Fjórtán þús-
und manns verða fluttir á
brott frá heimkynnum sínum
umhverfis Tsjernóbíl á þessu
ári, en í Ijós hefur komið, að
skaðinn vegna slyssins í
kjarnorkuverinu þar á sínum
tíma er mun meiri en talið
var.
Auk lögreglumannanna tveggja,
sem barðir voru til bana, voru fjórir
lögreglumenn barðir til óbóta.
Múgurinn hafði umhverfi konungs-
hallarinnar í Kathmandu á valdi sinu í
átta klukkustundir, áður en öryggis-
Omar Hassan al-Bashir, sem
komst til valda í Súdan í vopnaðrí
byltingu í fyrrasumar, braut á bak
aftur byltingartilraun, sem gerð
var gegn honum í gærmorgun.
Herflokkar hliðhollir Omari náðu
fljótlega að yfirbuga tvo forsp-
rakka og fylgismenn þeirra, er
freistuðu þess að ná völdum. Full-
yrti Omar, að allir byltingarseg-
gimir hafi verið handteknir.
Leiðtogar byltingartilraunarinnar
voru þeir Abdul-kader al-Kadro fyrr-
um yfirhershöfðingi og Mohammed
Osman Hamcd Karar fyrrum ofursti í
flughemum, en Omar leysti þá frá
störfúm eftir byltinguna i fyrrasumar.
Byltingartilraunin í gær er sögð
tengjast byltingatilraun, sem and-
stæðingar Omars höfðu lagt á ráðin
um í marsmánuði síðastliðnum, en
útsendarar Omars komust að þeim
fyrirætlunum í tíma og voru tuttugu
manns þá handteknir. Einn þeirra var
sonur Sadeqs al-Mahdi, sem var for-
sætisráðherra í Súdan í þrjú ár, áður
en Omar steypti honum af stóli.
Sögðust byltingarmenn ætla að end-
urreisa lýðræði í Súdan.
Omar leiðir nú fimmtán manna her-
foringjastjóm í Súdan. Stjómin afn-
am stjómarskrána, leysti upp þing og
sveitir lögreglunnar hóf skothríð á
mannfjöldann og mddi götumar. Auk
skotvopna beitti lögreglan óspart tára-
gasi. Á meðan á átökunum stóð, náði
mannfjöldinn að kveikja í lögreglu-
stöð í miðbænum.
stjómar eftir neyðarlögum. í skjóli
þeirra hefur stjómin haldið fjölda
stjómmálamanna, verkalýðsleiðtoga
og baráttumanna fyrir mannréttind-
um í fangelsi.
Þá hefur stríð stjómarhersins við
skæruliða í suðurhluta landsins hald-
ið áfram af fullum krafti, þrátt fyrir
friðarviðræður í tvígang.
Átökin hófúst, þegar mannfjöldinn
réðst að níu lögreglumönnum, sem
sakaðir vora um að ræna búðir, til þess
að grafa undan bráðabirgðastjóminni,
sem fynum stjómarandstaða myndaði
fyrir fjómm dögum síðan. Sú bráða-
birgðastjóm komst á fót, þegar Bir-
enda konungur landsins lét undan lýð-
ræðissinnum, eftir að lögreglan hafði
skotið nokkra tugi þeirra til bana.
Ekki er ljóst, hver hefúr tögl og hald-
ir í Kathmandu þessa stundina, hin
nýja ríkisstjóm eða yfirmenn lögregl-
unnar. Ríkisstjómin hafði beðið
Milan Kucan leiðtogi umbóta-
sinnaðra kommúnista var kjörinn
forseti Slóveníu í fyrstu frjálsu
mannfjöldann um að hætta ofbeldi,
sem einungis væri til þess fallið að
stofna Iýðræðisþróuninni í Nepal í
hættu, en mannfjöldinn lét bænir
stjómarinnar sem vind um eyru þjóta.
Reyndar bætti múgurinn um betur, tók
innanrikisráðherra landsins höndum
og þvingaði hann til þess að lofa, að
stórlega yrði fækkað í sveitum lög-
reglunnar, áður en honum var sleppt.
Lögreglustjórinn í Kathmandu var
einnig tekinn höndum af múgnum, en
lögreglumenn vopnaðir kylfum og
táragasi náðu að frelsa hann.
kosningunum þar í 42 ár. Hins veg-
ar beið kommúnistaflokkurinn af-
hroð í þingkosningunum, sem fram
fóru samhliða forsetakjörinu.
Sömu örlög hlaut kommúnista-
flokkurinn í Króatíu, en talið er að
75% frambjóðenda kosninga-
bandalags þjóðernissinna hafi hlot-
ið kosningu í fyrri umferð kosning-
anna, sem þar fóru fram á
sunnudaginn.
Þessi kosningaúrslit auka enn lík-
urnar á því, að Júgóslavía liðist í
sundur á næstunni, því þjóðernis-
sinnar í Króatíu hafa aðskilnað á
stefnuskrá sinni og sigurvegarar
þingkosninganna í Slóveníu að-
hyllast stóraukið sjálfræði Slóven-
íu, jafnvel úrsögn úr sambandsrík-
inu Júgóslavíu.
Eftir að kosningaúrslit lágu fyrir,
skilaði Milan Kucan flokksskír-
teini sínu í kommúnistaflokknum
til þess að sýna Slóvönum, að hann
verði forseti fólksins alls. Þá sagði
Kucan það ljóst, að Slóvenía stór-
auki sjálfstæði sitt á næstunni.
Kínverskir múslímar
hefja heilagt stríð
Kínverskir múslímar í norðvestur-
hluta Kína hafa hafið heilagt strið
gegn kommúnistastjóminni í Pek-
ing. Frá þessu skýrði ríkissjónvarp-
ið í Xinjiang héraði, þar sem átök
hafa brotist út á milli lögreglu og
vopnaðra aðskilnaðarsinna músl-
íma.
Múslímamir, sem em af kynþætti
Kirghiza, hafa, samkvæmt fréttum
kínverska ríkissjónvarpsins, stofn-
að sérstakar dauðasveitir, sem
„vinni gegn byltingunni".
Fréttir þessar er fyrsta viðurkenn-
ing kínverskra stjómvalda á átök-
um þeim, er brotist hafa út á milli
múslíma og lögreglu á þessum
slóðum. Hingað til hafa Kínveijar
vísað á bug fregnum af blóðugum
átökum á þessum slóðum fyrr í
þessum mánuði. Þá féllu fimmtán
skæmliðar, sex lögreglumenn og
einn opinber embættismaður.
I kjölfar þeirra átaka bámst fréttir
af morðum öryggissveita kín-
verskra stjómvalda, sem sagðar em
hafa myrt um fimmtíu manns af
Kirghizþjóð.
Byltingartilraun
mistekst í Súdan
Kommúnistaflokkurinn lýtur í lægra haldi í
þingkosningum í Slóveníu og Króatíu:
Endalok Júgóslavíu
sífellt þokast nær