Tíminn - 24.04.1990, Page 5
Þriðjudagur 24. apríl 1990
Tíminn 5
Landbúnaðarráðherra leggur til að sett verði lög um áburðarverð:
Aburðarverðið mun ekki
sprengja kjarasamninga
Steingrímur Sigfússon landbúnaðarráðherra hyggst leggja fram
á Alþingi frumvarp um viðauka við lög um ráðstafanir vegna
kjarasamninga. í frumvarpinu verður gert ráð fýrír, að Alþingi
ákveði, að verð á áburði hækki um 12%. Stjóm Áburðarverk-
smiðjunnarfelldi í gær tillögu frá stjómarformanni hennar, um að
fýrri ákvörðun stjómar um 18% hækkun yrði tekin til baka og far-
ið yrði að tilmælum landbúnaðarráðherra.
„Ég mun leggja til við þingflolcka rík- ákveða verðið, svo sem venja er. Það
isstjómarinnar, að flutt verði tillaga
um áburðarverð. Hér er á ferðinni ráð-
stöfun, sem er nauðsynleg til að
tryggja ffamgang kjarasamninganna
og að allar forsendur haldist. Ríkis-
stjómin ætlar ekki að láta standa upp á
sig í þeim efnum. Ég var búinn að gera
stjóm verksmiðjunnar skýra grein fyr-
ir því. Það em mér því mikil von-
brigði, að menn skyldu ekki fallast á
tilmæli mín, svo að hægt yrði að
hefði verið öllum fyrir bestu. Við mun-
um ekki láta þessa sjálfstæðismenn í
stjóm Aburðarverksmiðju ríkisins
eyðileggja kjarasamninganna,“ sagði
landbúnaðarráðherra.
„Aburðarverksmiðjan telur sig vera í
þeirri stöðu að geta staðið í útistöðum
við bændur landsins og stjómvöld,"
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í samtali við Tímann.
,T>ama ráða sjálfstæðismenn og einn
leppur þeirra úr Borgaraflokknum.
Þama er m.a. Egill Jónsson, sem hefúr
gefið sig út fyrir að vera fúlltrúi
bænda, en bændur hafa einmitt mót-
mælt 18% hækkun mjög harðlega.
Ég hef skoðað þetta mál mjög vand-
lega og get ekki séð, að þörf sé fyrir
svona mikla hækkun. Aburðarverk-
smiðjan er með eigið fé upp á 1200
milljónir, þannig að hún stendur mjög
vel. Það, sem menn vilja er að fjár-
magna byggingu nýja ammoníaks-
tanksins af tekjum þessa árs. Ég tel, að
ekki sé óeðlilegt, að tekið sé lán til
þessarar ffamkvæmdar. Þama er um
að ræða nauðsynlegt viðhaldsverkefni.
Hver verða viðbrögð stjómvalda?
, J>að verður að setja lög til að höggva
á þennan hnút, sem allra fyrst. Ég býst
við, að lagt verði ffam ffumvarp á Al-
þingi í dag.
Annars væri langbest að leita tilboða
erlendis ffá um áburðarkaup. Ég geri
reyndar ráð fyrir, að erfitt verði að
koma því við núna vegna tímaskorts.
Ég held, að það væri eina vitið, þvi að
þessi ríkiseinokunarfyrirtæki em
hættuleg."
Heldur þú að sjálfstæðismenn geri
þetta að undirlagi formanns Sjálfstæð-
isflokksins?
„Ég skal ekkert um það segja. Mér
finnst ólíklegt, að þeir gangi svona í
berhögg við það, sem Stéttarsamband
bænda hefur lagt áherslu á og heil-
brigð skynsemi segir að sé nóg, án
þess að hafa um það samráð í fiokkn-
um. Annars veit ég ekkert um þeirra
vinnubrögð, því að ég á þar ekki irrn-
angegnt,“ sagði forsætisráðherra.
Á fúndi sem landbúnaðarráðherra hélt
með stjóm Áburðarverksmiðjunnar í
gær, var enn einu sinni farið yfir málin.
Ráðherra gerði stjóminni grein fyrir
því, að það beri að túlka samþykkt rík-
isstjómarinnar um verðlagningu á
áburði þannig, að rekstrartapi verði
mastt á fjáraukalögum í haust.
„Ég get vissulega skilið, að mönnum
þyki slæmt að taka ákvörðun um verð-
lagningu, sem þýði erfiða rekstrarstöðu
fyrir verksmiðjuna, en ég hef hins veg-
ar gert mönnum það alveg ljóst, að hin
pólitíska ábyrgð af þvi hvílir á herðum
mínum og ríkisstjómarinnar.“
Landbúnaðarráðherra sagði mjög
óskynsamlegt af stjóm verksmiðjunnar
að efha til illinda við stjómvöld nú,
þegar mikil óvissa rikir um framtíð
hennar. -EÓ
Reynt til þrautar að ná samkomulagi
í sjávarútvegsnefnd efri deildar í dag um
frumvarp um stjórnun fiskveiða.
Stefnt að annarri umræðu á morgun:
Látið reyna
á hvort málið
verður fellt?
búasamtök Grafarvogs samþykktu sl. laugardag ályktun, um að Áburðarverksmiðja ríkisins yröi flutt ffá Gufu-
nesi vegna hættu, sem íbúum Grafarvogs væri búin af hennar völdum. Tímamynd; Ámi Bjama.
Borgarstjóri og forsætisráðherra ræddu framtíð Áburðarverksmiðjunnar í gær. Davíð Oddsson:
Afstaða borgarinnar skýr
Davíð Oddsson borgarstjóri og
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra hittust í gær til að ræða mál
Áburðarverksmiðjunnar og hugsan-
legan flutning hennar.
„Ég gerði forsætisráðherra annars
vegar grein fyrir viðhorfúm borgar-
innar og þeim samþykktum, sem
gerðar hafa verið um verksmiðjuna.
Hins vegar gerði ég í örstuttu máli
grein fyrir fúndinum, sem var hald-
inn í Grafarvogi á laugardag og nið-
urstöðum hans,“ sagði Davíð Odds-
son við Tímann.
„Niðurstaða fúndarins með forsæt-
isráðherra, að svo miklu leyti sem
hægt er að tala um niðurstöðu, varð
sú, að forsætisráðherra mun stefha að
því, að setja niður hóp manna á veg-
um ríkisstjómarinnar til þess að fara
yfir alla þætti málsins. I framhaldi af
þeirri vinnu mun hann svara kröfum
borgarinnar. Á meðan verður ekki
fiutt ammoníak til verksmiðjunnar,“
sagði borgarstjóri ennfremur.
Borgarstjóri kvaðst vænta eínislegr-
ar athugunar og efnislegrar niður-
stöðu frá væntanlegum starfshópi.
Áburðarverksmiðjumálið væri stór-
mál, sem þyrfti að ræða og hann
kvaðst hafa gert forsætisráðherra
grein fyrir því, að afstaða borgarinn-
ar lægi fyrir.
„Við áttum ágætan fund og fómm
yfir þetta mál, bæði samþykkt borg-
arinnar og samþykkt ríkisstjómarinn-
ar,“ sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í gær. Hann kvaðst
ekki vilja ræða niðurstöður fundarins
með borgarstjóra, fyrr en hann hefði
gert samráðherrum sínum grein fyrir
þeim.
Á almennum borgarafúndi í Grafar-
vogi sl. laugardag var samþykkt
ályktun, þar sem lýst var stuðningi
við nýlega samþykkt borgarráðs. um
að hætta skuli rekstri Áburðarverk-
smiðjunnar vegna áhættu, sem af
rekstrinum stafi.
I henni segir, að eldurinn, sem
kviknaði á páskadag á ammoníaks-
geymi verksmiðjunnar, hefði kvikn-
að í blóra við áhættumat og greiningu
fæmstu sérfræðinga. Þrátt fyrir nýjan
ammoníaksgeymi geti hið óvænta
allt eins gerst aftur, enda séu þess
dæmi í öðmm löndum. Tafarlaust
verði því að stöðva rekstur verk-
smiðjunnar, enda verði minni hags-
munir að víkja fyrir almannahags-
munum í þessu máli.
Félagsmálaráðherra skipaði starfs-
hóp í febrúar 1988 til að gera tillögur
til úrbóta varðandi ammoníaks-
geymi, sem í kviknaði á páskadag.
Niðurstaða hópsins varð sú, að þegar
nýr og öraggari geymir hefði verið
reistur, yrði rekstur verksmiðjunnar
það öraggur, að ekkert mælti gegn
því, að byggð næði alveg að lóðar-
mörkum verksmiðjunnar.
Ríkisstjómin heimilaði síðan 21.
júní 1988 Áburðarverksmiðjunni að
byggja nýjan geymi. Sótt var um
byggingaleyfi til bygginganefndar
borgarinnar vegna geymisins og
borgarstjóm samþykkti 7. júlí 1988,
að leyfið yrði veitt.
Þann 29. sept. 1989 framlengdi
Reykjavíkurborg lóðaleigusamning
verksmiðjunnar til ársins 2019. 1
fréttatilkynningu frá landbúnaðar-
ráðuneytinu og Áburðarverksmiðj-
unni segir, að af þessu megi álykta að
Reykjavíkurborg hafi verið samþykk
rekstri verksmiðjunnar a.m.k. næstu
30 árin. Því komi það á óvart, að nú
skuli skyndilega vera gerðar kröfur,
um að hætt verði að reka verksmiðj-
una í Gufúnesi á sama tíma og verið
sé að taka í notkun nýjan kældan og
þar með miklu öraggari ammoníaks-
geymi.
—sá
Stefán Guðmundsson, formaður
sjávarútvegsnefndar efri deildar, seg-
ist stefna að því að afgreiða framvarp
um stjómun fiskveiða út úr nefndinni
til annarrar umræðu í efri deild Al-
þingis i dag. Samkvæmt heimildum
Tímans mun ekki enn vera sam-
komulag um framgang málsins með-
al stjómarliða í nefndinni, en tveir
fundir era boðaðir í henni fyrir há-
degi í dag.
„Það er verið að vinna í málinu,
fúndir í sjávarútvegsnefndinni í
fyrramálið og vonandi verður það
tekið út á morgun," sagði Stefán
Guðmundsson í samtali við Tímann í
gær. Verði frumvarpið afgreitt frá
nefndinni í dag, eins og stefnt er að,
verður það á dagskrá í deildinni á
miðvikudag.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra vildi lítið tjá sig um málið,
en sagði, að verið væri að vinna að
því að Ijúka því á þessu þingi og nið-
urstaða þyrfti að fást fijótlega. Varð-
andi niðurstöður skoðanakönnunar
Fiskifrétta um stjómun fiskveiða,
sagði ráðherrann, að þær leiddu í
Ijós, að menn vildu byggja áfram á
þeim granni, sem lagður heíði verið
á undanftjmum áram.
„Ég lít á þetta sem stuðningsyfirlýs-
ingu við það, sem verið er að vinna
að,“ sagði Halldór.
Breytingartillögur frá hugsanlegum
meirihluta í sjávarútvegsnefnd vora
ræddar í þingflokkum í gær. Ekki er
Stefán Guömundsson, form.
sjávarútvegsnefndar efrí deildar.
ljóst, hvort meirihluti næst innan
nefndarinnar um tillögumar, en auk
Stefáns Guðmundssonar, eiga sæti í
henni Jóhann Einvarðsson og Hall-
dór Blöndal, sem eru fylgjandi stefnu
sjávarútvegsráðherra. Skúli Alex-
andersson og Karvel Pálmason, fúll-
trúar Alþýðubandalags og Alþýðu-
fiokks, vilja ekki samþykkja íiram-
varpið með þeim breytingum, sem
fyrir liggja og ef ekki næst sam-
komulag við þá í dag, verður að öll-
um líkindum látið á það reyna í at-
kvæðagreiðslu í deildinni, hvort þeir
vilja fella frumvarpið eða ekki.
- ÁG
Borgarar bjóða ekki fram
Borgaraflokkurinn í Reykjavík mun
ekki bjóða fram lista í boigarstjómar-
kosningum í vor. Þetta var ákveðið á
fúndi hjá Boigarafiokksfélagi Reykja-
víkur í gær. Jafnframt var felld tillaga,
sem lá fyrir fundinum, um að Boigara-
flokkurinn lýsti formlega yfir stuðningi
við framboð Nýs vettvangs í Reykja-
vík, en sem kunnugt er, er Ásgeir Hann-
es Eiriksson þingmaður Boigaraflokks i
6. sæti á lista Nýs vettvangs.
Júlíus Sólnes formaður Boigarafiokks-
ins var helsti andstæðingur þess innan
flokksins, að lýst yrði yfir stuðningi við
Nýjan vettvang.