Tíminn - 24.04.1990, Page 9

Tíminn - 24.04.1990, Page 9
8 Tíminn * Þriöjudagur 24. apríl 1990 Þriöjudagur 24. apríl 1990 Tíminn 9 Eftir Agnar Óskarsson Hennar hátign, Elisabet li Bretadrottning og maður hennar, Philip príns koma til islands í opinbera heimsókn í lok júní. Elísabet II Bretadrottning er fyrsti þjóðhöfðingi Bretaveldis, sem kemur í opinbera heimsókn til íslands. — I Elísabet Bretadrottning kemur í opinbera heimsókn til íslands í lok júní: Fyrsta opinbera heimsókn Elísabet Bretadrottning mun koma í op- inbera heimsókn hingað til lands, samt manni sínum Philip prins í endann á júní. Þetta er í fyrsta skipti, sem drottningin kem- ur í opinbera heimsókn hingað til lands og í raun einnig í fyrsta skipti, sem þjóðhöfðingi Breta kemur í opinbera heimsókn til íslands. Philip hefur hins vegar oftsinnis koinið hing- að, bæði á leið sinni yfir hafið til N-Ameríku svo og til laxveiða. Undirbúningur að komu drottningar er nú í fullum gangi hjá aðilum hér á landi, en nákvæmar tímasetningar liggja ekki fyrir opinberlega. Undirbúningur fyrir komu Elísabetar Bretadrottningar síðari hluta júnímánaðar hefur staðið um nokkurt skeið. Fulltrúar drottningar, bæði frá breska utanríkisráðu- neytinu og úr hirð drottningar komu hingað til lands fyrrihluta marsmánaðar til að leggja línumar í samvinnu við þá aðila, sem fara með þessi mál hérlendis. Það eru m.a. utan- ríkisráðuneytið, forsetaskrifstofa, forsætis- ráðuneytið og lögreglustjóraembættið í Reykjavík, en sem von er þarf að mörgu hyggja við komu drottningar. Opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja hingað til lands eru alfarið á vegum íslenskra aðila, hvað skipulagningu varðar, en í sam- ráði við viðkomandi aðila. Ef sérstakar óskir koma frá þjóðhöfóingjanum, er orðið við þeim óskum, svo framarlega sem unnt er. Eins og áður sagði, kemur drotlning hingað til lands seint í júní og mun heimsókn hennar hér á landi vara í tvo til þijá daga, en eflir það heldur hún í opinbera heimsókn til Kanada. Vegna öryggisráðstafana eru tíma- setningar á komu drottningar hingað hvorki gerðar opinberar fyrr en nær dregur heim- sókninni, né heldur uppilátið á hvaða staði hún mun koma. þó er líklegt að henni verði sýndar nokkrar af perlum íslands, s.s. Þing- vellir. Drottning mun koma hingað til lands með flugi, en fastlega er búist við að skipi drottningar, Britannia verði siglt hingað og verði í Reykjavíkurhöfn á meðan á heim- sókn drottningar stendur. Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykja- vík sagði í samtali við Tímann, að lítið væri hægt að segja um komu drottningar á þessu stigi. Málin eru í hefóbundnum undirbún- ingi, eins og Böðvar orðaði það, í samvinnu við öryggisfulltrúa drottningar. „Það er verið að gera drög að því, sem gera þarf. Síðan á eftir að bera þá hluti aftur og betur saman við þá bresku aðila, sem þama koma að máli. Þetta tekur allt sinn vanalega tíma og er í venjulegum farvegi,“ sagði Böðvar. Hann sagði að reynt yrði að halda öllu umstangi. innan hóflegra marka. „Þetta starf hjá okkur gengur allt eðlilega fyrir sig og verður haft á þeim nótum, að viðbúnaður verði látlaus en virðulegur,“ sagði Böðvar. Aðspurður sagði lögreglustjóri, að hon- um væri ekki kunnugt um, að drottning hefði komið fram með sérstakar óskir um fyrir- komulag heimsóknarinnar eða hvaða staði hún heimsækti í komu sinni hingað til lands. „Eg held að þetta sé mjög í hefðbundnu formi, eins og sagt er, fyrir utan það, að allar líkur eru á að skip drottningar komi. Það gæti sett meiri svip á hcimsóknina, en er á mörgum öðrum heimsóknum þjóðhöfó- ingja," sagði Böðvar. Verður efíirlit með erlendum ferðamönn- um hingað til lands eflt vegna þessa? „Það hefur ekkert verið fjallað um það ennþá,“ sagði lögreglustjóri. Aðspurður, hvort kalla þyrfti til aukinn mannafla, t.d. hvort nauðsyn væri á aðstoð hjálparsveita, sagðist Böðvar ekki eiga von á því. Böðvar sagði, að fastlega væri búist við að skip hennar hátignar, Britannia, komi hingað og leggist að bryggju í Reykjavíkur- höfn. Það er því ekki ólíklegt, að hún dvelji um borð á meðan á heimsókninni stendur, en einnig hafa verði pöntnð hcrbergi á Hótel Sögu, ef svo færi að drottning mundi gista þar. Elísabet mun hins vegar sjálf koma fljúgandi til Islands ásamt fylgdarliði, eins og áður sagði. Ekki er gert ráð fyrir að margir verði í op- inberu fylgdarliði drottningar. Gert er ráð fyrir að það telji um tuttugu og fimm manns og má þar meðal annarra nefna einn af vara- utanríkisráðherrum Breta, auk annarra full- trúa frá bresku utanríkisþjónustunni og hirð drottningar. Auk þess telst breski sendiherr- ann hér á landi, Richard Best, til fylgdarliðs drottningar. Varautanríkisráðherrann mun, eins og venja er við komur þjóðhöfðingja hingað til Iands, eiga viðræður við utanríkis- ráðherra Islands og fleiri aðila. Þá má gera ráð fyrir, að tíu til tuttugu blaða- og frétta- menn komi hingað til lands frá Bretlandi, vegna heimsóknar drottningar. Aðra í fylgd- arliði drottningar má þá telja áhöfnina á Brit- anniu svo og áhöfn flugvélar hennar og fleiri. Alp Mehet ræðismaður Breta á Islandi sagðist í samtali við Tímann hlakka nijög mikið til heimsóknar drottningar. „Við erum mjög glöð yfir komu hennar og okkur finnst það heiður, að þjóðhöfðingi okkar heimsæki það land sem við þjónum í,“ sagði Alp. Alp sagði, að þáttur sendiráðsstarfsmannanna yrði einkum í því fólginn að aðstoða við að dagskrá heimsóknarinnar gangi eins snurðu- lausl fyrir sig og mögulegl er. Alp kemur til með að sjá um samskipti milli sendiráðsins og íjölmiðla og aðrir starfsmcnn munu hafa ýmis önnur störf á sinni könnu. Alp sagði, að skipulagning heimsóknar- innar væri að mestu leyti í höndum íslenskra aðila og væri hún mjög ánægð með þær ráð- stafanir sem íslensk stjómvöld hefðu gcrt varðandi heimsókn hennar hingað til lands. Opinber heimsókn Elísabetar Breta- drottningar cr önnur opinber heimsókn hcnnar á þessu ári. Nú þegar hefur hún farið í opinbcra hcimsókn til Nýja-Sjálands og að lokinni hcimsókn lil íslands, heldur drottn- ingin ásamt fylgdarliði til Kanada. Flciri verða opinberar heimsóknir hennar ekki á þessu ári. þjóðhöfðinga Bretaveldis

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.