Tíminn - 17.05.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 17. maí 1990
Kjamorkuúrgangur grafinn í Dounreay í Skotlandi:
Mikil ógnun viö líf-
ríki Atlantshafsins
Ráðherra um málefni Skotlands, Malcolm Rifkind, heimilaði í
gær rannsóknir í Dounreay á Norður- Skotlandi með það fýrir
augum að urða þar geislavirkan kjamorkuúrgang. Ákvörðunin er
umdeild og snertir hún fleiri aðila en Breta, því hún gæti ógnað
lífríki Norður-Atlantshafsins.
Breska ríkisstjómin hafði ákveðið
tvo mögulega staði fyrir urðun
geislavirkra efna, þar sem öll úr-
gangsefni frá breskum kjarnorkuver-
um verða grafin. Annars vegar Do-
unreay, hins vegar Sellafield við
Irlandshaf, þar sem rannsóknir hafa
staðið yfir, en beðið var eftir grænu
ljósi frá ráðuneyti Skotlandsmála,
svo að hægt væri að hefjast handa við
Dounreay.
Til að byrja með verða boraðar tvær
holur í jörðina í því skyni að kanna
hvort jarðvegurinn á þessu svæði er
heppilegur fyrir slíka starfsemi.
Rannsóknirnar í Sellafield hafa
reynst breskum kjarnorkuyfirvöldum
óhagstæðar, sem eykur líkur á Do-
unreay sem urðunarstað geislavirkra
efna. Það gæti ógnað öllu lífríki
Norður- Atlantshafsins og hafa ríkis-
stjómir og umhverfissamtök i ná-
grenninu mótmælt þessum áætlunum
harðlega, þar á meðal íslenska ríkis-
stjómin.
Sveitarstjómir á svæðinu kringum
Dounreay em heldur ekki sáttar við
þessa stefnu og er ákvörðunin i gær
tekin í trássi við þær. Gerð var skoð-
anakönnun meðal íbúa í nágrenni
Dounreay og í ljós kom að um 2/3
hlutar íbúanna em á móti þessum
áætlunum. Chris Bunyan, talsmaður
NENIG-hópsins (Northem European
Nuclear Information Group), sagði í
samtali við Tímann í gær að það væri
að mörgu leyti athyglisverð niður-
staða, vegna þess að í Dounreay er
kjamorkuiðnaðurinn stærsti vinnu-
veitandinn. „Það er því táknrænt að
íbúar og yfirvöld hafni hugmyndinni
um eyðingu geislavirks úrgangs á
þessu svæði,“ sagði Chris. Chris
sagði að þrátt fyrir allt kæmi þessi
ákvörðun ráðuneytisins ekki á óvart
vegna þess að ríkisstjómin er frekar
hlynnt kjamorkuiðnaðinum. Yfir-
völd segja að ákvörðunin í gær sé að-
eins spuming um að grafa tvær holur
í tilraunaskyni. „I sjálfú sér er ekkert
athugavert við að bora tvær holur í
jörðina," sagði Chris. „Hvað þær
standa fyrir er hins vegar mjög alvar-
legt umhugsunarefni og áhyggjuefni
fyrir íbúa á þessu svæði. Þessar tvær
holur em nefnilega fyrsta raunvem-
lega skrefið sem stigið er í þá átt að á
Norður-Skotlandi verði geislavirkur
kjarnorkuúrgangur grafinn í jörðu, án
tillits til þeirra afieiðinga sem það
kann að hafa fyrir lífríki í og við
Norður-Atlantshafið,“ sagði Chris að
lokum. -hs.
Bráðabirgðatölur Fiskifélags Islands fyrir aprílmánuð:
SJÁVARAFLI TÆP
78 þÚSUND TONN
Úr revíunni Það sem enginn sér Mynd: ÖÞ.
Tindastóll á Sauðárkróki:
Ný revía eftir
Hilmi Jónsson
Ungmennafélagið Tindastóll á
Sauðárkróki sýndi á dögunum rev-
íuna „Það sem aldrei hefur skeð“.
Höfundur verksins er Hilmir Jó-
hannesson á Sauðárkróki. Hann
hefur oft áður samið leikverk sem
flutt hafa verið við margvísleg tæki-
færi hér nyrðra og hlotið góðar und-
irtektir. Revian var einn liður í
Sæluviku Skagfirðinga.
Það sem aldrei hefúr skeð er eins
og segir í kynningu, „soðið saman
úr eldtraustum heimildum: Slúðri,
draumum, kjaftasögum, skyggni-
lýsingum, gróusögum og fúndar-
gerðum bæjarstjómar.“ Eins og
nærri má geta er þama drepið í létt-
um dúr á fjölmarga þætti í bæjarlíf-
inu á Sauðárkróki, ekki síst væntan-
legar bæjarstjómarkosningar.
Söngur og hljóðfæraleikur er í há-
vegum hafður i þessu verki og em
lögin samin af Geirmundi Valtýs-
syni. Átta leikarar og þrír hljóð-
færaleikarar tóku þátt í sýningunni
og skiluðu allir flytjendur hlutverk-
um sínum með prýði. Verkið er
fyrst og fremst samið til að
skemmta fólki og með líflegum
flutningi er ekki hægt að segja ann-
að en að það hafi hitt í mark.
ÖÞ
Heildarafli í apríl nam 77.919 tonnum, en það er um 47 þúsund
tonnum minni afli en í apríl í fýrra. Þessi munur skýrist einkum af
loðnuafla í apríl í fýrra en þá veiddust rúm 33 þúsund tonn, en í
ár var loðnuafli í apríl enginn. Heildarsjávarafli frá áramótum,
fýrstu fjóra mánuðina er samtals um 858 þúsund tonn, en var
fýrstu fjóra mánuðina í fyrra tæp 869 þúsund tonn.
Samvinnufyrirtækin í A - Húnavatnssýslu:
Batnandi rekstur
þrátt fyrir tap
Afii togara í apríl var4l.800 tonn og
skiptist hann þannig að af þorski
voru 15.700 tonn, af ýsu 5 þúsund
tonn, af ufsa 7 þúsund tonn og af
karfa 8.500 tonn. Af grálúðu veidd-
ust 4.330 tonn, en af öðrum tegund-
um minna. Afii báta sama mánuð var
rúm 30 þúsund tonn. Þar af var
þorskur 18.800 tonn, rúm 3000 tonn
veiddust af ýsu, rúm 2000 tonn
veiddust af karfa og rúm 2000 tonn
af steinbít. Þá var rækjuafii báta 1233
tonn, en aðrar tegundir veiddust í
minna mæli. Smábátar komu að landi
með 5700 tonn og var hlutur þorsks
4700 tonn. Af örðum tegundum
veiddust 149 tonn af ýsu, 182 tonn af
ufsa, 586 tonn af steinbít, en minna
af öðrum tegundum.
1 mánuðinum kom mestur afii á land
í Vestmannaeyjum eða rúm 7500
tonn, í öðru sæti kemur Þorlákshöfn,
en þar var landað 6700 tonnum og í
Hafnarfirði komu rúm 6500 tonn á
land. Flutt voru út 4700 tonn. Mestur
þorskafli kom að landi í Þorlákshöfn
4700 tonn, í Vestmannaeyjum var
3000 tonnum af þorski landað og í
Grindavík og Hafnarfirði var á hvor-
um stað landað um 2800 tonnum.
—ABÓ
Rekstur Samvinnulyrirtækjanna í A-
Húnavatnssýslu gekk mun betur á
síðasta ári en árið 1988. Hjá kaupfé-
laginu varð þó verulegt tap, eða 18
millj. króna, tapið árið á undan var
hins vegar 26,8 millj. króna. Mikil
umskipti til hins betra urðu hjá Sölu-
félaginu sem nú var gert upp með 8,3
millj. hagnaði á móti 13 milljóna tapi
1988. Að sögn Guðsteins Einarsson-
ar, kaupfélagsstjóra á Blönduósi, eru
margar ástæður íyrir þessari miklu
sveifiu í rekstri Sölufélagsins. Þar má
m.a. nefna að rekstur mjólkursam-
lagsins gekk vel og skilaði dálitlum
hagnaði, gripið var til aðgerða til að
lækka kostnað við slátrun og skiluðu
þær verulegum árangri, einnig tókst
að snúa rekstri kjötvinnslu til tæplega
tveggja milljóna hagnaðar og síðast
en ekki síst lækkaði Qármagnskostn-
aður Sölufélagsins talsvert í krónu-
tölu miðað við árið á undan. Guð-
steinn sagði að þar hefði traust
íjárhagsstaða félagsins vegið þyngst
en einnig hefðu harðar aðhaldsað-
gerðir sem að hluta til var gripið til
árið 1988 skilað árangri. Hvað rekst-
ur Kaupfélagsins varðaði sagði Guð-
steinn að ljóst væri að dreifbýlisversl-
unin ætti og hefði átt í miklum
erfiðleikum. Þrátt fyrir að reyndar
hefðu verið margvíslegar leiðir til
spamaðar og hagræðingar hefði sjálf-
ur reksturinn aðeins komist niður í
300 þús. króna tap, íjármagnskostn-
aðurinn nam hins vegar tæpum 18
millj. Guðsteinn sagði að enn væru í
bígerð aðgerðir til að reyna að létta
reksturinn, m.a. er fyrirhugað að
Kaupfélagið hætti rekstri Vélsmiðj-
unnar sem verið hefur félaginu tals-
vert kostnaðarsamur undanfarin ár.
Fyrirhugað er að stofna hlutafélag um
Vélsmiðjuna og að hún verði rekin
sem sjálfstætt fyrirtæki eftirleiðis.
ÖÞ
VESTLENDINGAR
í REYKJAVÍK
Sigrún Magnúsdóttir Alfreð Þorsteinsson Hallur Magnúson Alexander Stefánsson
Efstu menn á B-listanum í Reykjavík og alþingismaður Vesturlands
bjóða Vestlendingum, sem búsettir eru í Reykjavík, í kaffispjall
fimmtudaginn 17. maí nk. kl. 20.30 að Grensásvegi 44.
B-listinn í Reykjavík