Tíminn - 17.05.1990, Síða 10

Tíminn - 17.05.1990, Síða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 17. maí 1990 Fimmtudagur 17. maí 1990 Tíminn 11 Baráttan fyrir álveri við Eyjafjörð er barátta upp á líf og dauða, segir Sigfús Jónsson bæjarstjóri Eyjafjöröur verður að fá álver Eftir Halldór Inga Ásgeirsson Um 400 manns sóttu fund um „mál mál- anna“, álver við Eyjaíjörð, sem var haldinn í Sjallanum á Akureyri í fyrrakvöld. Fund- urinn var haldinn að tilstuðlan álviðræðu- nefndar sveitarfélaga við Eyjatjörð og Iðn- þróunarfélags Eyjafjarðar hf. Iðnaðarmenn voru fjölmennir á fundinum, og iðnfyrirtæki auglýstu fundinn grimmt. Það er ekki að undra því talið er að á annað hundrað iðnað- armenn muni flytja frá Akureyri með fjöl- skyldur sínar ef ekki verður af byggingu ál- vers, því við þeim blasir ekkert annað en ördeyða á vinnumarkaðnum. Frummælendur á fundinum voru Sigfús Jónsson bæjarstjóri, Sigurður P. Sigmunds- son, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjaljarðar, Andrés Svanbjömsson, yfir- verkfræðingur markaðsskrifstofu iðnaðar- ráðuneytisins, og Þóra Hjaltadóttir, formað- ur Alþýðusambands Norðurlands. Að loknum framsöguræðum steig fjöldi manna í pontu og lét í ljós skoðanir sínar. Dregur til úrslita um staðarvalið „A næstu vikum dregur til úrslita vegna ákvarðana um staðsetningu álvers," sagði Sigfús Jónsson í ræðu sinni. „Þaö er að duga eða drepast fyrir okkur Eyfírðinga að ná ál- veri hingað norður, og við verðum að sam- einast í baráttunni. Eg vek athygli á því að hérerá ferðinni gífurlegt hagsmunamál fyr- ir Eyjaljörð, eins og ástandið er í dag þá er um 3.5% atvinnuleysi á öllu Norður- og Austurlandi að meðaltali. Atvinnuleysi er nærri óþekkt á Vest- fjörðum, og á suðvesturhominu er atvinnu- leysi 1-1,5% eftir sveitarfélögum. Landsm- eðaltal er hins vegar 1,9%. Miðað við hvemig staðan er í dag og ef álver kemur á suðvesturhomið þá mun það hafa gífurlega neikvæð áhrif á byggð á Norðurlandi vegna þess að fólk mun flykkjast suður, þannig að ef við hugsum eingöngu um eyfirska hags- muni, en látum þjóðarhag lönd og Icið, þá má segja að ekkert álver sé betra en að stað- setja það á suðvesturhorninu. Þannig er okkar staða í þessu máli og ég tel að um Iíf og dauða sé að tefla að ná þessu álveri hing- að norður. Hins vegar er ég ckki tilbúinn að kaupa það hvaða verði sem er. Við verðum í slíkum samningum að standa vörð um okk- ar umhverfi, og við verðum að fá greitt gjald fyrir okkar þjónustu. Við eigum mikið fylgi við okkar málstað m.a. í Reykjavík og Ijóst að margir skilja að þetta sé hagsmunamál landsbyggðarinnar. Það er ekki 100% ljóst á þessu stigi hvort það kemur álver inn í land- ið, en eins og málin standa eru sterkar líkur á því. Við verðum því enn um sinn að bíða í óvissu um hvort álver kemur inn í landið, en ef það kemur verðum við að standa saman og ná því norður til Eyjaíjarðar," sagði Sig- fús í ræðu sinni. Málið hefur verið í stöðugri þróun og margt hefur komið fram síðustu vikumar sem brýnir enn frekar að Eyfirðingar nái samstöðu um að fá álver. A næstu vikum dregur til úrslita í þessum málum. Um þetta sagði Sigfús: „I fyrstu áttum við í samkeppni við Straumsvík, en málin hafa þróast þannig að Straumsvík er nánast út úr myndinni, en hins vegar hafa sveitarfélög á suðvestur- hominu lagt áherslu á að fá álver á Keilisnes á Vatnsleysuströnd. Þessa dagana emm við spurðir í þaula um hvað við getum boðið og hvað við emm tilbúnir að gera og hvað við emm tilbúnir að ganga til samninga um. Samningar í málinu verða þríhliða, milli Atlantal, iðnaðarráðuneytisins og heima- manna og því verðum við að ákveða boð okkar og kröfur og hvers konar þjónustu við erum tilbúnir að selja þessum aðilum. T.d. höfnin, vatnsveitan, vegir og lóðir. Við höf- um orðið varir við það upp á síðkastið að bændur í Eyjafirði vilja fá meiri upplýsing- ar, og það er mjög skiljanlegt, auk þess sem þetta er krafa fleiri aðila. Því boðum við m.a. til þessa fundar að birta þær upplýsing- ar sem fyrirliggjandi eru um mengunarvarn- ir. Því miður vantar mciri upplýsingar um mengunarvamir áður en endanleg afstaða verður tekin í málinu." Framkvæmdir gætu hafist í águst1991 Sigurður P. Sigmundsson sagði í ræðu sinni að nú styltist óðum í að nýju 200 þús- und tonna álveri verði valin staðsetning. „Nú er lokaspretturinn hafinn og mikið spáð í stöðuna. Utlendingamir hafa ekki gefið neina ákveðna niðurstöðu. Hag- kvæmnirannsóknum er haldið áfram og von er á sérfræðingum í lok mánaðarins til að skoða staðselningar betur. Þótt stjómvöld og Atlantsál hafi ekki náð samkomulagi um veigamikil atriði, svo sem raforkuverð og skatta, þá stefnir allt í það. Hvað framhaldið varðar mun ákvörðun um staðsetningu liggja fyrrir síðari hluta júnímánaðar. I lok september á öllum samningum að vera lok- ið og samþykki Alþingis mun liggja fyrir í árslok. Framkvæmdir við byggingu álvers gætu síðan hafist í ágúst 1991, og álbræðsla hafist í ágústmánuði 1994,“ sagði Sigurður. Hann sagði að nýtt álver myndi tryggja aukna sölu á raforku, auka ljölbreytni og stöðugleika í atvinnulífinu, skapa íjölmörg ný störf, skapa gjaldeyri og auka verðmæta- sköpun. Fram kom hjá Sigurði að nýverið barst bréf frá Atlantsáli, þar sem greint er frá skil- yrðum fyrir staðsetningu. Þar er komið nýtt atriði sem er að stækkunarmöguleikar upp í 400 þúsund tonn verði að vera fyrir hendi. Önnur atriði eru landrými 70-100 hektarar, hafnarskilyrði, raforkuöflun, umhverfismál og vinnusókn 5-6000 íbúa. „Rekstrarkostnaður skiptir meira máli en stofnkostnaður. Dysnes er heldur dýrari kostur en Keilisnes ef frá eru laldar hafnar- framkvæmdir, en valið virðist helst standa milli þessara staða. Hins vegar er meiri stöðugleiki í vinnuafli hér. Mcngunarvarnir eru hins vegar stærsti punkturinn fyrir okk- ur og mun dýrari í framkvæmd hér þar sem ríkjandi vindátt á Keilisnesi er út á haf. Staðarvalið fer að lokum eflir tvennu, vilja stjómvalda og ákvörðunum Atlantsáls. Vægi þeirra er ekki ljóst, en það er ljóst að stjómvöld geta haft veruleg áhrif. En mest er um vert að samstaða sé meðal heima- manna, því ef hún er ekki fyrir hendi er til einskis barist," sagði Sigurður. Stofnkostnaður við álver af þessari stærð er 48 milljarðar króna og áætlað er að bygg- ingartíminn verði 36 mánuðir og mannafli á byggingartíma 2800 ársverk, sem þýðir að 1200 manns verða við vinnu þegar fram- kvæmdir standa hæst. Starfsmenn í rekstri verða um 600. Rekstrarkostnaður verður um 15 milljarðar á ári. Raforkunotkun lands- manna er um 4000 gígavattstundir á ári, raf- orkuþörf nýs álvers er hins vegar 2900 gwh/ á ári. Álverið hefur áhrif á umhverfið Andrés Svanbjömsson rakti í ræðu sinni Frá fundinum í Sjallanum í fyrrakvöld. Milli 400 og 500 manns sóttu fundinn. umhverfisáhrif áliðju. Helstu þættir sem varða umhverfisáhrif og þá sér í lagi sveit- imar við Eyjafjörð. Hann sagði að álver af þessari stærð gæti raskað landnýtingu vem- lega. Einnig væri hugsanleg röskun á lands- Iagi, náttúmfari og gróðri. Mengun sjávar og gmnnvatns væri einnig hugsanleg. „Eyjafjarðarsvæðið hefur verið kannað ítarlega hvað þetta varðar, en hins vegar liggja niðurstöður nýjustu mengunarvama- skýrslna ekki fyrir. Samkvæmt niðurstöðum Hollustuvemdar ríkisins er Eyjatjarðar- svæðið mjög viðkvæmt fyrir mengunar- áhrifum, og því þyrfti álver hér að vera búið bæði þurrhreinsi- og blauthreinsibúnaði til þess að losna við brennisteinstvísýring. Varasöm efni sem myndast við brennslu í keijum em koltvísýringur, flúor, ryk og brennisteinstvísýringur og kerbrot. I góðum hreinsibúnaði er hægt að ná fram um 98% hreinsun. Hins vegar er ekki hægt að komast hjá því að eitthvað af efnum og lofttegund- um fari út í andrúmsloftið.“ Andrés sagði að áhrifa þessara efna gætti í ákveðnum radíus kringum verk- smiðjuna, á svonefndu þynningarsvæði. Ut- an þess svæðis væm áhrifin hverfandi. Hins vegar yrði að gæta þess að setja mjög strangar reglur varðandi hreinsibúnað. Andrés lagði áherslu á að hreinlæti og að- búnaður hefði batnað í áliðjum hvarvetna í heiminum og sýndi máli sínu til stuðnings myndir af álverum erlendis, þar sem m.a. kýr vom á beit rétt við húsvegginn á stóm álveri. Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusam- bands Norðurlands, sagði að ef álveri yrði valinn staður á suðvesturhominu hefði það í för með sér meiri byggðaröskun en nokk- um hefði órað fyrir. „Atvinnuleysi á Akur- eyri er nú 3,57% vinnufærra manna og em það hæstu tölur sem þekkst hafa á Akureyri um langt árabil," sagði Þóra. „Mikill óró- leiki er í fólki vegna þessa ástands og ljóst að mjög margar fjölskyldur munu flytja bú- ferlum suður yfir heiðar ef stóriðju verður valinn staður á suðvesturhominu. Ef, sem vonandi verður ekki, að fólksflótti verði héðan mun fólk ekki setja fyrir sig þótt það geti ekki selt húseignir sínar að svo komnu máli. Því von um trausta afkomu og at- vinnuöryggi sér og sínum til handa er átt- I----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------:-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1 ...................................................................................................................... ................. i ................................... . ..... —..........—■ .......- , ....... - , ---------------------- --------------------------------I______________________I_________________j_______ Ljósmyrtd: Krístján Logason hagaást og eignastöðu yfirsterkari. Slíkir búferlaflutningar yrðu mikil blóðtaka fyrir Akureyri og nágrenni og umræða um bú- ferlafluninga er mikil. Slík umræða er eðli- leg þar sem fólk er vonlítið um að stjóm- völd og sveitarstjómir hafi dug í sér og samstöðu til að stóriðjunni verði valinn staður hér. Ekki að ástæðulausu því sumir háttvirtir alþingismenn fara eins og kettir í kringum heitan graut þegar minnst er á staðarval og vilja ekkert láta frá sér fara. Þó reyna þingmenn að hygla sínum kjördæm- um, og sagði m.a. einn pólilíkus á fundi hér fyrir skömmu að Reyknesingar yrðu að fá ný atvinnutækifæri þar sem herinn væri á fömm þótt ekkert sé ljóst í þeim efnum enn- þá. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ládeyða er í atvinnulífi hér. Yfirleitt hefur það tengst samdrætti í sjávarafla, en engar uppsveiflur em væntanlegar í þeim málum vegna stýr- ingar fiskveiða. Því þurfa að koma til ný at- vinnutækifæri sem skapa mörgum mönnum vinnu.“ Að afloknum erindum framsögumanna var mælendaskrá opnuð og tók fjöldi manna til máls.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.