Tíminn - 17.05.1990, Blaðsíða 12

Tíminn - 17.05.1990, Blaðsíða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 17. maí 1990 VORÍGARÐINUM HEKK- KLIPPUR BENSIN- OG RAFKNÚNAR R ÁRMÚLA 11 SÍMI 681500 III ' | ^FORVAL Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans i Reykjavík, auglýsir forval vegna fyrirhugaös útboös á undirbyggingu nyöri akbrautar Sæbrautar (Sætúns) frá Kringlumýrarbraut aö Kalkofnsvegi. Valdir veröa 4-5 verktakar til aö bjóða í verkið aö loknu forvali. Heildarlengd gatna er um 2.200 m Gröftur um 40.000 m3 Fyllingar um 40.000 m3 Frárennslislagnir um 1.500 m Verkið skal hefja um miöjan júní og skal lokið eigi síðar en 15. september næstkomandi. Forvalsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Forvalsgögnum skal skilað á sama staö eigi síðar en miövikudaginn 23. maí 1990, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 _ FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Laus er til umsóknar ein staða LÆKNARITARA á Lyflækningadeild. Staðan er laus frá 1/8 n.k. Nánari upplýsingar veitir María Ásgrímsdóttir læknafulltrúi. Umsóknir sendist Vigni Sveinssyni skrifstofustjóra fyrir 1/6 n.k. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100 i Hnr Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa Skrifstofa Framsóknarflokksins aö Hverfisgötu 25 er opin alla virka daga frá kl. 15.00-19.00, laugardaga kl. 10.00-13.00. Auk þess er opiö hús öll kvöld frá mánudegi til föstudags. Símar: 51819 - 653193 - 653194. Lítið inn og takið meö ykkur gesti. Alltaf heitt á könnunni. Framsóknarfélögin llll Sverrir Kjartan Meyvantsson Ásmundsson Reykjavík - Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa B-listans í Reykjavík veröur opin virka daga frá kl. 9-22 og laugardaga kl. 10-16 aö Grensásvegi 44, sími 680962 og 680964. Gestgjafar í dag verða: Sverrir Meyvantsson og Kjartan Ásmundsson. Kosninganefndin. DAGBÓK Kurlakór Reykjavíkur, ásamt stjórnanda, undirleikurum og einsöngvurum Karlakór Reykjavíkur á ferð um Vesturland: Syngur í Stykkishólmi og á Akranesi Karlakór Reykjavíkur heldur tónleika í hinni nýju og glæsilegu kirkju í Stykkis- hólmi laugardaginn 19. maí kl. 14:00 og í Bíóhöllinni á Akranesi kl. 20:30 um kvöldiö. Stjórnandi er Páll Pampichler Pálsson. Undirleik á píanó annast Catherine Williams og Oddur Björnsson á básúnu. Einsöngvarar eru þau Inga J. Backman sópran og Friörik S. Kristinsson tenór. Efnisskráin er fjölþætt, íslensk og er- lend lög, m.a. lög eftir Pál P. Pálsson, Karl Ó. Runólsson, Edvard Grieg og syrpa eftir Stephan C. Foster. Bootlegs spila á Hótel Borg í kvöld Frá Félagi eldri borgara Opið luis í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag fimmtudaginn 17. maí. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska, kl. 19:30 félagsvist og kl. 21:00 er dansað. Göngu-Hrólfar hittast laugard. 19. maí kl. ll:00að Nóatúni 17. Sigríður l'lla Magnúsdóttir vr ein af einsöngvurunum með Sinfóníu-hljóm- svcitinni í kvöld í Háskólabíói Sinfóníuhljómsveit íslands í kvöld í Háskólabíói: M.a. er leikin 9.Sinfónía Beethovens áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveit- ar íslands á eþssu vori veröa í Háskólabíói í kvöld, 17. maí kl. 20:30. Á efnisskrá veröa eingöngu verk eftir Beethoven: Forlcikur úr Leonora nr. 3, aríur úr Fedelio og að lokum Sinfónía nr. 9. Einsöngvarar veröa Ingrid Haubolt, Sig- ríöur Ella Magnúsdóttir, Garöar Cortez og Guöjón Óskarsson auk söngsveitar- innar Fílharmóníu. Kórstjóri er Úlrik Ólafsson, en hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Sinfóníuhljómsveitin hefur flutt alla starfsemi sína í Háskólabíó og fer miða- sala þar fram kl. 13:00-17:00 daglega. JEPPA- HJÓLBARÐAR Hankook hágæðahjól- barðar frá Kóreu á lágu verði. Hraðar hjól- barðaskiptingar 235/75 R15 kr. 6.650. 30/9,5 R15 kr.6.950. 31/10.5R15 kr. 7.550. 33/12,5 R15 kr. 9.450. BARÐINN hf. Skútuvogi 2, Reykjavík Símar: 91-30501 og 84844. Afmælistónleikar B00TLEGS á Borginni t kvöld, fimmtud. 17. maí, heldur hljómsveitin Bootlegs upp á fjögurra ára starfsafmæli sitt með tónleikum á vegum Smekkleysu hf og Rokk- klúbbs Geisla, á Hótel Borg. Bootlegs mun spila 16. júní í Laugar- dalshöllinni til styrktar landgræðsluátaki rokkara, sem gengur undir nafninu „Rokköskógurinn". í kvöld munu koma fram ásamt Boot- legs, hljómsveitin Pandóra frá Keflavík, Naflastrengir, sem sigruðu í Músíktil- raunum Tónabæjar í ár og Yesminus Pestus, ný hljómsveit. Gestafundur Kvenfélags Kópavogs Kvenfélag Kópavogs heldur gestafund í kvöld, fimmtud. 17. maí kl. 20:30 í Félagshcimilinu. Skemmtiatriöi, happ- drætti og veitingar. Konur í Kópavogi velkomnar. Frá Húnvetningafélaginu í Reykjavík Félagsvist veröur laugardaginn 19. maí kl. 14:00 í Húnabúð, Skeifunni 17. Þetta er síðasta félagsvist á laugardegi í bili. Næst verður spilað miðvikudaginn 23. maí kl. 20;30 á sama stað. Parakeppni. Allir velkomnir. Ferðafélag íslands: Helgarferð til Vestmannaeyja 18.-20. maí FArið er með Herjólfi báðar leiöir. Gist í svefnpokaplássi. Gönguferðir um Heimaey. Bátssigling kringum eyjuna. Brottför frá BSI, föstudag 18. maí kl. 19:30. Upplýsingar og farmiðar á skrif- stofunni, Oldugötu 3. Helgarferðir 25.-27. maí: Þórsmörk og Eyjafjallajökull - Seljavallalaug. Áfmælisganga F.I. - þriðji áfangi. BÍLALEIGA með útibú alll í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum Reykjavík 91-686915 Akureyri 96-21715 Pöntum bíla erlendis interRent Europcar Farið af stað kl. 10:30 og kl. 13:00 sunnud. 20. maí. Feröafélag íslands Geðhjálp 1. tbl. 5. árg. 1 fyrsta tölublaði Geðhjálpar á þessu ári eru greinar um mörg vandamál geð- sjúkra og aðstandenda þeirra. Má t.d. nefna greinina Áfengismisnotkun, sem skrifuð er af Ævari Árnasyni, deildarsál- fræðingi Geðdeildar Landspítala, Vímu- efnaskor, deild 16 að Vífilstöðum. Far er rætt um hvort áfengismisnotkun sé sjúk- dómur eða ávani og hvort meðferðin skuli vera bindindi eða stjórn. Júlíus Björnsson skrifar um svefn og svefnleysi og Valgerður Jónsdóttir ritar greinina Áhrifamáttur tónlistar og Gunn- ar Kvaran sellóleikari skrifar grein sem hann kallar „Mozart brosti gegnum tárin“. Guðrún Halldórsdóttir, skóla- stjóri Námsflokka Reykjavíkur, skrifar greinina „Kennsla - list augnabliksins". Grein er um vandamál þunglyndra og birt eru svör nokkurra þingmanna við spurningum um geðheilbrigðismál. Þá er greinin: Það er von fyrir börn alkóhólista, þar sem talað er um Al-Alon- og Alateen- samtökin. Útgefandi blaðsins er Geðhjálp, sam- tök fólks með geðræn vandamál, aðstand- enda þeirra og velunnara og ritstjóri er Gísli Theodórsson. Vorið, Ófullgerða hljómkviðan eflir Joh. S. Kjarval Málverkauppboð Gallerí Borgar í dag Um 75 verk verða boðin upp eftir unga sem aldna, þekkta og óþekkta, m.a.: Kristján Davíðsson, Valtý Pétursson, Einar Hákonarson, Erró, Karen Agnete, Eirík Smith, Eyjólf J. Eyfells, Jóhannes Geir og Nínu Sæmundsson. Málverk af Ara Magnússyni ó Ögri og Kristínu Guðbrandsdóttur er boðið upp nú. Pað er merkt: B.Þ. Copi (Brynjólfur Þórðarson, Kópía eða eftirmálun). Einnig stór olíumynd eftir Jóhann Briem, málverk úr Skagafirði eftir Jón Stefánsson, Reykja- víkurmynd eftir Nínu Tryggvadóttur, vatnslitamyndir eftir Jón Engilberts, tvær stórar olíumyndir eftir Jóhannes S. Kjar- val og nokkur minni verk og gömul landslagsmynd eftir Þorvald Skúlason. Uppboðið fer fram í dag, fímmtud. 17. maí kl. 20:30 í Súlnasal Hótel Sögu, en verkin eru sýnd í Gallerí Borc í dac kl. 10:00-18:00. Hægt veröur að bjóða í verkin símleiöis í símum 985-28165 og 985-28167. Einnig geta menn skilið eftir forboð í Gallerí Borg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.