Tíminn - 17.05.1990, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 17. maí 1990
Tíminn 19
Fyrirliðar 8 af þeim 10 liðum sem leika munu í 1. deild knattspyrnunnar, Hörpudeildinni, í sumar.
Timamynd Árni Bjarna.
Knattspyrna - Hörpudeildin:
Topplið síðasta
sumars mætast
- í 1. umferð Hörpudeildarinnar á laugardag
NBA-deildin:
Lakers úr leik
í annað sinn á þessum áratug leika
Los Angeles Lakers ekki tii úrslita í
NBA-deildinni í körfuknattleik.
Liðið tapaði fimmta leiknum gegn
Phoenix Suns í undanúrslitum vest-
urdeildarinnar í fyrrinótt, 103-106, á
hcimavelli sínum í Forum höilinni.
Lakerstapaði viðureigninni því 1-4.
Þrátt fyrir stórleik Earwin
„Magic" Johnson, sem skoraði 43
stig, náði Lakers ekki að hentja
Phoenix liðið sem er í miklum ham
þessa dagana. Kevin Johnson átti
bestan leik Phoenix manna í leikn-
um.
Detroit Pistons, meistararnir frá
því í fyrra eru komnir í úrslit austur-
deildarinnar eftir 95-84 sigur á New
York Knicks í fyrrinótt. Detroit
vann 4-1.
Portland Trail Blazers hefur 3-2
yfir í viðureign sinni gegn San Anto-
nio Spurs í undanúrslitum vestur-
deildarinnar. Portland sigraði Spurs
í fyrrinótt 138-132 í tvíframlengdum
æsispennandi leik. Liðið sem fyrr
sigrar í fjórum leikjum mætir Phoe-
nix í úrslitum vesturdeildarinnar.
Mótherjar Detroit í úrslitum aust-
urdeildarinnar verða annaðhvort
Chicago Bulls eða Philadelphia
’76ers, en Chicago hefur 3-1 yfir í
viðureigninni.
Hjólreiðar:
ítali sigraði á Spáni
Marco Giovannetti frá Italíu sigr-
aði í „Tour of Spain" hjólreiða-
keppninni í fyrradag.
Róður:
Lithaugar vilja í FISA
Lithaugar, sent nýlega lýstu yfir
sjálfstæði frá Sovétríkjunum, hafa
sótt um aðild að Alþjóða róðrarsam-
bandinu, FISA, og vilja fá að taka
þátt í heimsmeistarakeppninni sem
fram fer í Ástralíu síðar á þessu ári.
íshokký:
Langur úrslitaleikur
Fyrsti leikur Edmonton Oilers og
Boston Bruins um Stanley bikarinn,
sigurlaunin í n-amerísku íshokký
deildinni, fór fram í gærmorgun.
Leikurinn var sá lengsti í úrslitum
frá upphafi, þríframlengdur, en um
síðir stóð Edmonton liðið uppi sem
sigurvegari 3-2. Liðið þarf þó að
sigra Boston þrisvar enn til þess að
hljóta Stanley bikarinn.
Enska knattspyrnan:
Wright á bekknum?
Steve Coppel. framkvæmdastjóri
Crystal Palace, ætlar ekki að til-
kynna fyrr en á síðustu stundu hvort
hetjan frá bikarúrslitaleiknum sl.
laugardag, Ian Wright, byrji inn á
eða koma inn á sem varamaður.
Síðari leikur Crystal Palace og
Manchester United verður í kvöld
kl. 18.30 á Wembley, en liðin gerðu
sem kunnugt er 3-3 jafntefli á laugar-
daginn. Alex Dyer verður í hópnum
hjá Palace í dag, en hann var ekki
nteð á laugardag. Líkurnar á því að
Gary Pallister geti leikið með United
í dag eru 50%, en hann á við
ökklameiðsl að stríða.
Siglingar:
Ýmismenn sigursælir
Vormót siglingamanna var haldið
á Fossvoginum sl. laugardag í 2-5
vindstigum og sléttum sjó. Keppt
var í tveimur flokkum og urðu úrslit
þessi:
Opinn flokkur:
1. Óttar Hrafnkelsson á Laser
2. Páll Hreinsson á Laser
3. Guðjón I. Guðjónsson á Laser
4. Sigríður Ólafsdóttir á Europe
5. Benedikt H. Guðmundsson á
Europe
Optimist flokkur:
1. Ragnar Már Steinsen
2. Guðni Dagur Kristjánsson
3. Bjarki Gústafsson
Pessir keppendur voru allir í sigl-
ingaklúbbnum Ými.
Knattspyrnuvertíðin hefst fyrir al-
vöru á laugardag, en þá fara fyrstu
þrír leikirnir í Hörpudeildinni fram.
Á sunnudag líkur fyrstu umferð með
tveimur leikjum.
Kl. 14.00 á laugardag hefjast
fyrstu leikir mótsins. 1 Eyjum taka
nýliðar ÍBV á móti bikarmeisturum
Fram, á Akureyri mætast hitt nýja
liðið í deildinni, Stjarnan, liinu harð-
skeytta liði Pórsara og KR-ingar
taka á móti Víkingum og verður sá
leikur að öllum líkindum á gervigras-
vellinum í Laugardal.
Vélsleöamót:
Fór fram í góðu
veðri á Ólafsfirði
Vélsleðamót, sem frestað hafði
verið í 2 vikur vegna ófærðar og
snjóflóða, fór loks fram á Ólafsfirði
sl. laugardag. Keppendur, sem voru
víðs vegar af landinu, fengu að þessu
sinni gott veður, en úrslit urðu sem
hér segir:
Brautarkeppni 4.-5. flokkur:
1. Arnar Valsteinsson P. Indy 400
2. Jóhann Eysteinsson P. Indy 400
3. Jóhanncs Kcykjalín A.C.Prowler
6. flokkur:
1. Jón Ingi Svcinsson P. Indy 500
2. Viðar Sigurjónsson P. Indy 500
3. Gunnar Hákonarson P. Indy 500
7. flokkur:
1. Njáll Sigurðsson A.C. Wildcal
2. Gottlieb Konráðsson Ski-Doo M1
3. Halldór Bragason P. Indy 600
Tvímenningskcppni í braut:
1. Gunnar Hákonarson og Marinó
Sveinsson P. Indy 500.
2. Jón Ingi Sveinsson og Viðar Sigurjóns-
son P. Indy 500.
3. Njáll Sigurðsson og Magnús Þorgeirs-
son A.C. Wildcat
Spyrnukeppni 1/8 mila:
Flokkur AA:
1. Njáll Sigurðsson A.C. Wildcat
2. Viðar Sigurjónsson Ski-Doo M1
3. Arnar Valsteinsson A.C. Wildcat
Flokkur A:
1. Magnús Þorgeirsson Kawasaki Int.
2. Halldór Bragason P. Indy 600
Flokkur B:
1. Jón Ingi Sveinsson P. Indy 500
2. Gunnar Hákonarson P. Indy 500
3. Hrciðar Hreiðarsson P. Indy 500
Flokkur C:
1. Jóhann Eysteinsson P. Indy 400
2. Jóhannes Reykjalín A.C. Prowler
3. Sigurður P. Jónsson A.C. Prowler
BL
Á sunnudag mætast toppliðin frá
því í fyrra FH og KA á Kaplakrika-
velli k1. 16.00. Leikið verður á
æfingagrasvcllinum, þar sem aðal-
völlurinn er ekki tilbúinn. FH-ingar
urðu sem kunnugt er í 2. sæti í fyrra
og KA varð íslandsmeistari. Var
það besti árangur beggja félaganna
frá upphafi.
I. umferðinni lýkur með leik Vals
og ÍA á Hlíðarenda kl. 20.00. Leikið
verður líklega á æfingagrasi þeirra
Valsmanna eins og fyrstu leikirnir í
fyrra.
Lokastaðan í 1. deild, Hörpu-
deildinni í fyrra varð þessi:
1. KA, 2. FH, 3. Fram, 4. Valur, 5.
KR, 6. ÍA, 7. Víkingur, 8. Þór, 9.
Fylkir, 10. ÍBK.
Fjögur lið eru líklegust til þess að
blanda sér í baráttuna um titilinn að
þessu sinni, íslandsmeistarar KA,
FH og Reykjavíkurfélögin KR og
Fram. Valsmenn og Skagamenn
verða líklega unt ntiðja dcild og
botnbaráttan kemur sennilega til
með að verða á ntilli Víkinga, Þórs-
ara, Eyjamanna og Stjörnumanna.
Tíminn spáði KA-mönnum titlin-
um þegar nokkrar untferðir voru
eftir í fyrra og það gekk eftir. Slíkar
spár cru full varfærnislegar og nú
ætlar blaðið að taka af skarið og spá
því að í ár verði bið KR-inga loks á
enda. Þeir komi íslandsbikarnum í
knattspyrnu fyrir við hlið íslandsbik-
arsins í körfuknattleik í félagsheimili
sínu við Frostaskjól í septembcr nk.
Að öðru leyti spáir blaðið ekki fyrir
um sætaröð liðanna.
2. deild:
Keppni í 2. deild hefst ekki fyrr cn
25. ntaí. I. fyrstu umferðinni þann
dag leika: UBK-Víðir, Grindavík-
Tindastóll, Leiftur-Sclfoss og Kefla-
vík-KS. Laugardaginn 26. ntaí leika
síðan ÍR og Fylkir. BL
Knattspyrna:
Eyjólfur verölaunaður
Frá Erni Fórarinssyni, frcttaritara Tímans
í Skagafirdi
Eyjólfur Sverrisson var kjörinn
íþróttamaöur Skagafjaröar 1989.
Urslit í kjörinu voru kunngcrö á
ársþingi Ungmennasambandsins
sem haldið var fyrir skömmu. Eyjólf-
ur hlaut alls 50 stig í kosningu um
hver hreppti þetta sæmdarheiti.
Þessi niðurstaða kom ekki á óvart
því Eyjólfur átti ntjög gott keppnis-
tímabil á síðasta ári bæði í knatt-
spyrnu og körfuknattleik. í öðru
sæti í kjörinu varð Gunnlaugur
Skúlason frjálsíþróttamaður. Þriðji
varð Gísli Sigurðsson knattspyrnu-
maður. Jóhann Skúlason varð í
fjórða sæti og Örn Sölvi Halldórsson
í fimmta. Aðrir sem hlutu stig voru
Ágúst Andrésson, Ólöf G. Sigfús-
dóttir, Atli Örn Guðmundsson og
Víðir Sigurðsson. Ö.Þ.
J
11 IMMI
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell..........23/5
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKIPADEILD
pí* SAMBANDSINS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi
105, Reykjavík, sími 698300
111 Á i 111.
IAKN TRAUSJÞA HUTNINGA
Laugardagur kl.13: ,25
19. LEIK VIKA 12. maí 1990 m m 121
Leikur 1 Í.B.V. - Fram
Leikur 2 Þór Ak. - Stjarnan
Leikur 3 K.R. - Víkingur
Leikur 4 F.H. - K.A.
Leikur 5 Valur - í.A.
Leikur 6 Ikast - K.B.
Leikur 7 Frem - Sikeborg
Leikur 8 B1903 - Helrfclge
Leikur 9 Brcnby - Lyngby
Leikur 10 Viborg - O.B.
Lelkur 11 A.G.F. - Vejle
Leikur 12 Næstved ■ A.A.B.
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá:
LUKKULINUNNI s. 991002
Þrefí jldur í sprengipottur !