Tíminn - 17.05.1990, Qupperneq 19

Tíminn - 17.05.1990, Qupperneq 19
Fimmtudagur 17. maí 1990 Tíminn 19 Fyrirliðar 8 af þeim 10 liðum sem leika munu í 1. deild knattspyrnunnar, Hörpudeildinni, í sumar. Timamynd Árni Bjarna. Knattspyrna - Hörpudeildin: Topplið síðasta sumars mætast - í 1. umferð Hörpudeildarinnar á laugardag NBA-deildin: Lakers úr leik í annað sinn á þessum áratug leika Los Angeles Lakers ekki tii úrslita í NBA-deildinni í körfuknattleik. Liðið tapaði fimmta leiknum gegn Phoenix Suns í undanúrslitum vest- urdeildarinnar í fyrrinótt, 103-106, á hcimavelli sínum í Forum höilinni. Lakerstapaði viðureigninni því 1-4. Þrátt fyrir stórleik Earwin „Magic" Johnson, sem skoraði 43 stig, náði Lakers ekki að hentja Phoenix liðið sem er í miklum ham þessa dagana. Kevin Johnson átti bestan leik Phoenix manna í leikn- um. Detroit Pistons, meistararnir frá því í fyrra eru komnir í úrslit austur- deildarinnar eftir 95-84 sigur á New York Knicks í fyrrinótt. Detroit vann 4-1. Portland Trail Blazers hefur 3-2 yfir í viðureign sinni gegn San Anto- nio Spurs í undanúrslitum vestur- deildarinnar. Portland sigraði Spurs í fyrrinótt 138-132 í tvíframlengdum æsispennandi leik. Liðið sem fyrr sigrar í fjórum leikjum mætir Phoe- nix í úrslitum vesturdeildarinnar. Mótherjar Detroit í úrslitum aust- urdeildarinnar verða annaðhvort Chicago Bulls eða Philadelphia ’76ers, en Chicago hefur 3-1 yfir í viðureigninni. Hjólreiðar: ítali sigraði á Spáni Marco Giovannetti frá Italíu sigr- aði í „Tour of Spain" hjólreiða- keppninni í fyrradag. Róður: Lithaugar vilja í FISA Lithaugar, sent nýlega lýstu yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum, hafa sótt um aðild að Alþjóða róðrarsam- bandinu, FISA, og vilja fá að taka þátt í heimsmeistarakeppninni sem fram fer í Ástralíu síðar á þessu ári. íshokký: Langur úrslitaleikur Fyrsti leikur Edmonton Oilers og Boston Bruins um Stanley bikarinn, sigurlaunin í n-amerísku íshokký deildinni, fór fram í gærmorgun. Leikurinn var sá lengsti í úrslitum frá upphafi, þríframlengdur, en um síðir stóð Edmonton liðið uppi sem sigurvegari 3-2. Liðið þarf þó að sigra Boston þrisvar enn til þess að hljóta Stanley bikarinn. Enska knattspyrnan: Wright á bekknum? Steve Coppel. framkvæmdastjóri Crystal Palace, ætlar ekki að til- kynna fyrr en á síðustu stundu hvort hetjan frá bikarúrslitaleiknum sl. laugardag, Ian Wright, byrji inn á eða koma inn á sem varamaður. Síðari leikur Crystal Palace og Manchester United verður í kvöld kl. 18.30 á Wembley, en liðin gerðu sem kunnugt er 3-3 jafntefli á laugar- daginn. Alex Dyer verður í hópnum hjá Palace í dag, en hann var ekki nteð á laugardag. Líkurnar á því að Gary Pallister geti leikið með United í dag eru 50%, en hann á við ökklameiðsl að stríða. Siglingar: Ýmismenn sigursælir Vormót siglingamanna var haldið á Fossvoginum sl. laugardag í 2-5 vindstigum og sléttum sjó. Keppt var í tveimur flokkum og urðu úrslit þessi: Opinn flokkur: 1. Óttar Hrafnkelsson á Laser 2. Páll Hreinsson á Laser 3. Guðjón I. Guðjónsson á Laser 4. Sigríður Ólafsdóttir á Europe 5. Benedikt H. Guðmundsson á Europe Optimist flokkur: 1. Ragnar Már Steinsen 2. Guðni Dagur Kristjánsson 3. Bjarki Gústafsson Pessir keppendur voru allir í sigl- ingaklúbbnum Ými. Knattspyrnuvertíðin hefst fyrir al- vöru á laugardag, en þá fara fyrstu þrír leikirnir í Hörpudeildinni fram. Á sunnudag líkur fyrstu umferð með tveimur leikjum. Kl. 14.00 á laugardag hefjast fyrstu leikir mótsins. 1 Eyjum taka nýliðar ÍBV á móti bikarmeisturum Fram, á Akureyri mætast hitt nýja liðið í deildinni, Stjarnan, liinu harð- skeytta liði Pórsara og KR-ingar taka á móti Víkingum og verður sá leikur að öllum líkindum á gervigras- vellinum í Laugardal. Vélsleöamót: Fór fram í góðu veðri á Ólafsfirði Vélsleðamót, sem frestað hafði verið í 2 vikur vegna ófærðar og snjóflóða, fór loks fram á Ólafsfirði sl. laugardag. Keppendur, sem voru víðs vegar af landinu, fengu að þessu sinni gott veður, en úrslit urðu sem hér segir: Brautarkeppni 4.-5. flokkur: 1. Arnar Valsteinsson P. Indy 400 2. Jóhann Eysteinsson P. Indy 400 3. Jóhanncs Kcykjalín A.C.Prowler 6. flokkur: 1. Jón Ingi Svcinsson P. Indy 500 2. Viðar Sigurjónsson P. Indy 500 3. Gunnar Hákonarson P. Indy 500 7. flokkur: 1. Njáll Sigurðsson A.C. Wildcal 2. Gottlieb Konráðsson Ski-Doo M1 3. Halldór Bragason P. Indy 600 Tvímenningskcppni í braut: 1. Gunnar Hákonarson og Marinó Sveinsson P. Indy 500. 2. Jón Ingi Sveinsson og Viðar Sigurjóns- son P. Indy 500. 3. Njáll Sigurðsson og Magnús Þorgeirs- son A.C. Wildcat Spyrnukeppni 1/8 mila: Flokkur AA: 1. Njáll Sigurðsson A.C. Wildcat 2. Viðar Sigurjónsson Ski-Doo M1 3. Arnar Valsteinsson A.C. Wildcat Flokkur A: 1. Magnús Þorgeirsson Kawasaki Int. 2. Halldór Bragason P. Indy 600 Flokkur B: 1. Jón Ingi Sveinsson P. Indy 500 2. Gunnar Hákonarson P. Indy 500 3. Hrciðar Hreiðarsson P. Indy 500 Flokkur C: 1. Jóhann Eysteinsson P. Indy 400 2. Jóhannes Reykjalín A.C. Prowler 3. Sigurður P. Jónsson A.C. Prowler BL Á sunnudag mætast toppliðin frá því í fyrra FH og KA á Kaplakrika- velli k1. 16.00. Leikið verður á æfingagrasvcllinum, þar sem aðal- völlurinn er ekki tilbúinn. FH-ingar urðu sem kunnugt er í 2. sæti í fyrra og KA varð íslandsmeistari. Var það besti árangur beggja félaganna frá upphafi. I. umferðinni lýkur með leik Vals og ÍA á Hlíðarenda kl. 20.00. Leikið verður líklega á æfingagrasi þeirra Valsmanna eins og fyrstu leikirnir í fyrra. Lokastaðan í 1. deild, Hörpu- deildinni í fyrra varð þessi: 1. KA, 2. FH, 3. Fram, 4. Valur, 5. KR, 6. ÍA, 7. Víkingur, 8. Þór, 9. Fylkir, 10. ÍBK. Fjögur lið eru líklegust til þess að blanda sér í baráttuna um titilinn að þessu sinni, íslandsmeistarar KA, FH og Reykjavíkurfélögin KR og Fram. Valsmenn og Skagamenn verða líklega unt ntiðja dcild og botnbaráttan kemur sennilega til með að verða á ntilli Víkinga, Þórs- ara, Eyjamanna og Stjörnumanna. Tíminn spáði KA-mönnum titlin- um þegar nokkrar untferðir voru eftir í fyrra og það gekk eftir. Slíkar spár cru full varfærnislegar og nú ætlar blaðið að taka af skarið og spá því að í ár verði bið KR-inga loks á enda. Þeir komi íslandsbikarnum í knattspyrnu fyrir við hlið íslandsbik- arsins í körfuknattleik í félagsheimili sínu við Frostaskjól í septembcr nk. Að öðru leyti spáir blaðið ekki fyrir um sætaröð liðanna. 2. deild: Keppni í 2. deild hefst ekki fyrr cn 25. ntaí. I. fyrstu umferðinni þann dag leika: UBK-Víðir, Grindavík- Tindastóll, Leiftur-Sclfoss og Kefla- vík-KS. Laugardaginn 26. ntaí leika síðan ÍR og Fylkir. BL Knattspyrna: Eyjólfur verölaunaður Frá Erni Fórarinssyni, frcttaritara Tímans í Skagafirdi Eyjólfur Sverrisson var kjörinn íþróttamaöur Skagafjaröar 1989. Urslit í kjörinu voru kunngcrö á ársþingi Ungmennasambandsins sem haldið var fyrir skömmu. Eyjólf- ur hlaut alls 50 stig í kosningu um hver hreppti þetta sæmdarheiti. Þessi niðurstaða kom ekki á óvart því Eyjólfur átti ntjög gott keppnis- tímabil á síðasta ári bæði í knatt- spyrnu og körfuknattleik. í öðru sæti í kjörinu varð Gunnlaugur Skúlason frjálsíþróttamaður. Þriðji varð Gísli Sigurðsson knattspyrnu- maður. Jóhann Skúlason varð í fjórða sæti og Örn Sölvi Halldórsson í fimmta. Aðrir sem hlutu stig voru Ágúst Andrésson, Ólöf G. Sigfús- dóttir, Atli Örn Guðmundsson og Víðir Sigurðsson. Ö.Þ. J 11 IMMI Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell..........23/5 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga SKIPADEILD pí* SAMBANDSINS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavík, sími 698300 111 Á i 111. IAKN TRAUSJÞA HUTNINGA Laugardagur kl.13: ,25 19. LEIK VIKA 12. maí 1990 m m 121 Leikur 1 Í.B.V. - Fram Leikur 2 Þór Ak. - Stjarnan Leikur 3 K.R. - Víkingur Leikur 4 F.H. - K.A. Leikur 5 Valur - í.A. Leikur 6 Ikast - K.B. Leikur 7 Frem - Sikeborg Leikur 8 B1903 - Helrfclge Leikur 9 Brcnby - Lyngby Leikur 10 Viborg - O.B. Lelkur 11 A.G.F. - Vejle Leikur 12 Næstved ■ A.A.B. Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá: LUKKULINUNNI s. 991002 Þrefí jldur í sprengipottur !

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.