Tíminn - 31.05.1990, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 31. maí 1990
Tískulína Guðrúnar Hrannar er rómantísk, kvenleg lína sem dregur lítillega fram kyn-
þokka. Línan var útfærð í tvær áttir, samkvæmislínu og létta sportlínu
KEPPNI
Tískulína Önnu
Guðrúnar Jóns-
dótturerfijáls
lína þar sem
háríð fellurfram
í andlitið og
mjúkar línur eru
alls ráðandi.
Tískulína Heið-
ar Óttarsdóttur
er nýtískulína
þar sem liturinn
á hárínu er
skerptur og
bartamir dregn-
irfram. Háríð er
síðan perman-
entaö að ofan
Föstudaginn 18. maí síðastliðin
fóru fram á Hótel íslandi úrslit
í Módelkeppni World Class,
FM 957 og tímaritsins Hárs og
fegurðar.
Þátttakendur í úrslitakeppn-
inni voru átta og varð Sonja
Margrét Scott, 17 ára Reykja-
víkurmær, sigurvegarinn.
Einnig voru kynntar vinnings-
greiðslur úr Tískulínukeppni
morgundagsins sem fram fór í
byrjun mars.
Kvöldið hófst með fordrykk
og borðhaldi og síðan var boðið
uppá glæsilega skemmtidag-
skrá þar sem m.a. komu fram
Bubbi Morthens, Dansandi
íjölskylda, Dísa, Bjargey og
Jóna þolfimikennarar í World
Class, Símon Ivarsson gítar-
leikari, Anna Sigurðardóttir
margfaldur íslandsmeistari í
Ungfrú fsland, Ásta Sigríður
Einarsdóttir, ásamt sigurvegara
Módelkeppninnar, Sonju Mar-
gréti Scott
Frístældansi og Icelandic Mod-
els sýndu fatnað frá 7 verslun-
um.
Úrslitin fóru svo fram um
miðnætti og var það ungffú ís-
land, Asta Sigríður Einarsdóttir,
sem tilkynnti úrslitin.
Hér sýnum við nokkrar mynd-
ir ffá keppninni sem sýna vel
hversu glæsileg þessi sýning
hefur verið.
Tískulína Jóns H. Guðmunds-
sonar er snögg og hrein og litur-
inn á hárínu dýpkaður og skerpt-
ur.
Alþjóðlegi tóbaksvamadagurinn:
Tvíhliða þróun til reykleysis
Nú reykja 31% íslendinga á aldrin-
um 18-69 ára daglega, eða um það
bil þrír af hveijum tíu, samanborið
við fjóra af hverjum tíu árið 1985.
Þessi breyting hefúr átt sér stað
jafnt og þétt með hverju ári.
Þetta er meginniðurstaða kannana
sem Hagvangur hefur gert fyrir
Tóbaksvamanefnd þrisvar á ári frá
og með 1985. Tvær hafa þegar ver-
ið gerðar í ár og þeim ber saman um
fyrmefnda tölu.
Raunar ná þessar kannanir nú til
fólks á aldrinum 15-79 ára. Sé mið-
að við þann hóp allan em það 29%
sem reykja daglega. Athyglisvert er
að innan við 20% reykja daglega í
yngsta fimm ára aldursflokknum,
15-19 ára, og í þeim flokki em þeir
langsamlega flestir að tiltölu sem
aldrei hafa reykt, eða hart nær þrir
af hverjum fjómm. í næsta fimm
ára aldursflokki þar fyrir ofan, 20-
24 ára, er það rúmlega helmingur
sem hefúr aldrei reykt en í öllum
öðmm flokkum mun færri.
Niðurstöður þessara kannana Tób-
aksvamanefndar benda til að stöð-
ugt minnkandi reykingar meðal
bama o^ unglinga samkvæmt könn-
unum í grunnskólum og framhalds-
skólum séu farnar að „skila sér“ i
minnkandi reykingum meðal fólks
á þrítugsaldri.
Þar við bætist mikil og stöðug
hreyfing meðal reykingamanna um
það að hætta að reykja en hún virð-
ist ná hámarki um hver áramót og á
reyklausum dögum sem nú em
haldnir árlega. Síðasta könnun Tób-
aksvamanefndar bendir til dæmis
til þess að hátt á annað þúsund
manns hafi hætt að reykja á reyk-
lausa deginum 1. apríl sl.
Þetta tvennt, að æ færri byija að
reykja og æ fleiri hætta að reykja,
stuðlar hvort um sig að þróun til
þess reyklausa samfélags scm að er
stefnt, og hvor þátturinn eflir hinn.
Sérstök athygli skal vakin á því af
tilefhi alþjóðlega tóbaksvamadags-
ins, 31. maí, að þeir sem hætta að
reykja hafa ekki einungis af því
margvíslegan ávinning fyrir sjálfa
sig, heldur em þeir jafnframt að
leggja sitt af mörkum til hagstæðara
umhverfis fyrir ungu kynslóðina og
stuðla að því að hún geti vaxið úr
grasi laus við tóbaksneyslu, þennan
harðskeytta ávana sem hefur orðið
eldri kynslóðum svo ákaflega
skeinuhættur.
(Frétt frá Tóbaksvarnanefnd)
Breytingar á reykingavenjum
íslendinga frá 1985-1990
(18-69 ára)
1985 1986 1987 1988 1989 1990