Tíminn - 06.06.1990, Side 2

Tíminn - 06.06.1990, Side 2
2 Tíminri' ' 'Miövikudagúr é.‘júrií 1990 Ný lög um félagslegar íbúðir tóku gildi í gær: Vextir endurskoðaðir á þriggja ára fresti Kaupendur félagslegra íbúða hafa framvegis enga tryggingu fyrir fyrir lágmarksvöxtum af lánum Húsnæð- isstofnunar alian 43ja ára lánstímann, þ.e. ef fjölskyldutekjumar hækka. Samkvæmt nýjum lögum um félags- legar íbúðir sem tóku gildi í gær verða vextimir endurskoðaðir sex ár- um eftir undirskrift kaupsamnings, með tilliti til tekna, og síðan á þriggja ára fresti eftir það. Þá em sömuleiðis hert viðurlög við óleyfilegri útleigu félagslegra íbúða. Leigusamningar verða ógildir hafi ekki verið aflað leyfis frá sveitarstjóm (húsnæðis- nefnd), sem jafnframt hefur þá milli- göngu um leiguna. Þeir sem taka slíkar íbúðir á leigu eiga þá á hættu að leigusamningi þeirra verði rift og þeir bomir út úr íbúðinni. Öðmm breytingum í hinum nýju lögum verður sjálfsagt fagnað af mörgum. Lánshlutfall félagslegra íbúða hefúr verið hækkað úr 85% í 90% og stimpilgjöld af skuldabréfún- um falla niður. Þá hækka tekjumörk sem gilda um rétt til kaupa á slíkum íbúðum um 25% hjá hjónum. Einnig em í lögunum nýmæli um stofnun sérstaks tryggingasjóðs vegna bygg- ingargalla. Hámarksstærð félagslegra íbúða verður framvegis 130 fermetr- ar brúttó. Sveitarfélögum er jafnframt auð- veldað að leggja í byggingu félags- legra eignaríbúða. Þar sem framlög sveitarfélaga verða framvegis í formi skuldabréfaláns í stað óendurkræfs framlags áður, sem nam 10% af láni Byggingarsjóðs ríkisins. Sömuleiðis er kaupskylda sveitarfélaga á félags- legum íbúðum stytt úr 15 niður í 10 ár. I frétt frá félagsmálaráðuneytinu segir að með lögunum sé lögð á það áhersla að aðstoð til húsnæðismála miðist jafnt við eignar- og Ieiguíbúð- ir. Einnig að félagsleg aðstoð í hús- næðismálum miðist við aðstæður einstaklinga hverju sinni en ákvarðist ekki í eitt skipti íyrir öll. -HEI. fsaðar gellur sýnt á Vestflörðum sem eru sögusvið verksins. ísaðar gellur á Vestfjörðum Alþýðuleikhúsið leggur upp í leik- ferð með gamanleikinn Isaðar gellur þann 8. júní næstkomandi. Ferðinni er til að byija með heitið til Vest- fjarða, en þar er einmitt sögusvið verksins. Þá verður leikritið sýnt á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Isaðar gellur voru sýndar á vegum Alþýðuleikhússins í Iðnó á liðnu hausti. Lcikritið segir á gamansaman og hispurslausan hátt frá dvöl þriggja breskra stúlkna við fiskvinnslu í vest- firsku sjávarplássi. Höfúndurinn, Frederick Harrison, byggir verkið að hluta á reynslu kvenna frá Hull sem dvalið hafa hérlendis við fiskvinnslu. Hann fer þó fijálst með efnivið sinn og gerir úr kjamyrtan gamanleik. Leikendur í Isuðum gellum eru þau Ása Hlín Svavarsdóttir, Halldór Bjömsson, Ingrid Jónsdóttir og Ólaf- ía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri er Há- var Sigurjónsson. -hs. Miklar annir hjá lögreglu á Akureyri um helgina: Bæjarstjórn Akureyrar: Gengið hefur verið frá málefna- samningi milli Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks um myndun meiri- hluta í bæjarstjóm Akureyrar fyrir næsta kjörtímabil. Jafnframt hefur verið gengið frá ráðningu Halldórs Jónssonar, ffamkvæmdastjóra Fjórð- ungssjúkrahússins, í embætti bæjar- stjóra. Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur, oddvita Alþýðubandalagsins, var málefnasamningurinn gerður með fyrirvara um samþykki flokksfélag- anna tveggja og var hann lagður fyrir fúndi í gærkvöldi. Hafi flokksfélögin samþykkt málefnasamninginn í gær- kvöldi verður hann lagður fram til kynningar á næstu dögum. Sam- kvæmt samningnum munu flokkamir skiptast á um embætti forseta bæjar- stjómar og formanns bæjarráðs, þannig að fyrsta árið verður sjálf- stæðismaður fonnaður bæjarráðs og alþýðubandalagsmaður forseti bæjar- stjómar. Að ári liðnu verður síðan skipt. Fyrsti fundur nýkjörinnar bæj- arstjómar verður haldinn þriðjudag- inn 12. júní og þá verður kosið í helstu embætti nýkjörinnar bæjar- stjómar. Sjálfstæðismenn eiga 4 fulltrúa í bæjarstjóm Akureyrar og Alþýðu- bandalagið á 2. Minnihlutinn er skip- aður 4 fúlltrúum Framsóknarflokks og 1 fulltrúa Alþýðuflokks. hiá-akureyri. Alþýðubandalag og Sjálfstæóisflokkur mynda meirihluta Konur styrktar „Fengum öll afbrigði af rugli og vitleysu“ Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var 1.350 jiúsundum króna veitt til Háskóla Islands til rannsókna í kvennafræðum. Áhugahópur um ís- lenskar kvennarannsóknir, sem starf- að hefur undanfarin 5 ár, tók að sér að úthluta þessu fé í umboði Háskóla Islands. Eftirfarandi umsækjendur hlutu launastyrki: Auður Styrkársdóttir til þess að rannsaka þá málaflokka sem konur á Alþingi hafa beitt sér fyrir frá upp- hafi þingsetu þeirra 1922 og til þessa dags. Dagný Kristjánsdóttir til rann- sókna á skáldsögum Ragnheiðar Jónsdóttur fyrir fullorðna. Hanna María Pétursdóttir til að rannsaka siði og venjur sem tengjast fæðingum og dauða. Jana Kate Schulman til að ljúka rannsókn á réttarstöðu íslenskra kvenna á miðöldum. Kristín Ást- geirsdóttir til þess að rannsaka hlut kvenna í sjálfstæðisbaráttu Islend- inga. Kristín Jónasdóttir til þess að rannsaka þátttöku íslenskra kvenna í verkalýðshreyfingunni. Lilja Gunn- arsdóttir til þess að rannsaka ímynd kvenna í íslenskum leikritum frá aldamótum til dagsins í dag. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir til þess að ljúka rannsókn sinni á hugmyndum íslenskra kvennahreyfinga í félags- legu og menningarlegu samhengi. - EO „Við hölðum hér öll hugsanleg af- brigði af rugli og vitleysu um helg- ina, slagsmál, skemmdarverk, ölv- unarakstur, hraðakstur og fikniefni. Það sést best á því að 31 maður gisti fangageymslumar hér frá því á íostu- dagskvöld og fram á mánudag." Þannig fórust varðstjóra í lögregl- unni á Akureyri orð, aðspurður um atburði helgarinnar. Mikið fyllirí var á Akureyri um helgina. Fjöldi ferðamanna, einkum Sunnlendingar, sótti bæinn heim í blíðviðrinu. Margir gistu á tjald- svæðinu og var róstusamt þar á köfl- um. Engir skemmtistaðir vom opnir á sunnudagskvöldið og þvældist því fólkið um í miðbænuin. Á hvíta- sunnudag var aðeins ein sjoppa opin á Akureyri og samkvæmt upplýsing- um Tímans þurrkaðist lagerinn hreinlega upp. Lögreglan hafði í nógu að snúast og hafði vart undan útköllum. Á laugardaginn var tvíveg- is ekið á vegfarendur. Annars vegar var ekið á gangandi vegfaranda og hins vegar á bam á reiðhjóli. Meiðsl urðu ekki teljandi og fengu báðir að- ilamir að fara heim að lokinni rann- sókn. Bílvelta varð í Öxnadal. Tveir vom í bílnum og var farþeginn fluttur á sjúkrahús og reyndust meiðsli hans ekki alvarleg. Ökumaðurinn slapp ómeiddur, en hann er grunaður um ölvun. Sjö ökumenn vom teknir um helgina gmnaðir um ölvun við akstur og tólf vom teknir fyrir of hraðan akstur. Þá klippti lögreglan númer af nokkmm bílum sem vanrækt hafði verið að færa til skoðunar. Rúður vora brotnar í miðbænum og ýmis minniháttar skemmdarverk unnin. Mikið var um slagsmál og pústra en engin alvarleg meiðsli hlut- ust af því. Menn þurftu að fá útrás á ýmsan hátt og var einn staðinn að verki þar sem hann stóð og var að míga inn í bíl sem á vegi hans varð. Þá komu upp tvö mál sem tengdust fikniefnum. Nokkur ungmenni vom tekin vegna neyslu fíkniefna, og em bæði málin upplýst. hiá-akureyri. NYRFORMAÐUR UMFERÐARRÁÐS Guðmundur Ágústsson alþingis- maður hefúr verið skipaður for- maður Umferðarráðs til næstu þriggja ára og tekur hann við for- Guðmundur Ágústsson. mennsku af Valgarð Briem hrl. Þá hefúr Ólaíúr W. Stefánsson, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, verið skipaður varaformaður ráðs- ins til sama tíma. Átján aðilar til- nefna fúlltrúa í Umferðarráð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.