Tíminn - 09.06.1990, Side 2
2 Tíminn
‘Cáúgardacjur 9: Jún r 1990
Fylfulla hryssan sem talað er um í fréttinni.
Dýraníðingur stöðvaður eftir að hafa horfóðrað og svelt hross til bana um árabil:
Reyndi að koma hrossunum
undan rannsóknarlögreglu
Rannsóknarlögreglan kannar nú mál konu sem hefur ítrekað
veríð kærð fyrir níðingslega meðferð á hrossum. Konan hefur átt
hross í tugatali, en ekki hirt um að afla fóðurs eða haga fyrír þau
sem skyldi og í fyrrahaust horféllu tveir hestar af flórum sem hún
hafði haft í svelti í Mosfellsbæ. Konan hafði hesthús á leigu í
Þoríákshöfn í vetur, þar sem hún geymdi 19 hross í 42 fermetra
húsi og gaf þeim lítið og illt fóður. Hún flutti síðan hluta þeirra í
hús í Hafnarfirði þar sem hún hafði 12 hross á 6 básum.
Að sögn fólks sem á hesta í sama
húsi var það sama upp á teningnum í
Hafnarfirði og hrossunum lítið gefið
annað en það sem miskimnsamir húsfé-
lagar létu af hendi rakna. Kona þessi
heitir Sigríður Stefánsdóttir, en gengur
imdir nafninu „næturdrottningin" af
þeim sem til „hestamennsku" hennar
þekkja. Hún hefúr haff þann sið að
flytja hross sin burt skjóli nætur þegar
henni er ekki lengur vært fyrir kvörtun-
um vegna horfóðrunar. Dýravemdunar-
félagið hefúr ítrekað kærtkonuna og nú
vinnur rannsóknarlögregla í málinu og
vonast er til að „næturdrottningin"
verði svipt leyfi til að eiga hross. Tím-
inn fór í umrætt hesthús í Hafnarfirði í
gær og kvaddi til lögteglu þegar konan
reyndi að koma hrossunum undan.
Dýralæknir hefúr í verið kallaður á
staðinn í tvígang af lögreglu til þess að
skoða hrossin.
Trippin gátu varla
staðið á fætur
Þegar Tíminn kom á staðinn í fylgd
manneskju, sem átti hesta í sömu húsa-
röð, var engin maður þar fyrir. Hrossin,
sem „næturdottningiri* átti, skáru sig
greinilega úr hópnum. Þau voru mjög
horuð og þijú trippi og fylfull meri
sýnilega verst farin. Eitt trippið var svo
máttfarið af hungri og næringarskorti
að það hafði varla krafta til að standa á
fætur og gat trauðla gengið. Fylfúlla
merin var afar illa útlítandi og það sást í
beinagrindina imdir húðinni aftur eftir
öllum belgnum. Hrossin voru í gerði
ásamt öðrum hrossum fyrir utan húsið.
Óimur hross vom út í haga, en þar
höfðu þau beit. Þegar verið var að
mynda þá ljótu sjón, sem við blasti,
kom flutningabíll á staðinn til þess að
sækja hrossin. Rétt á eftir kom eigandi
hrossanna ásamt öðrum manni. Þau
vom á öðrum bíl.
Það var gicinilega ætlun þeirra að fjar-
lægja hrossin og í ljósi þeirrar stað-
reyndar var lögreglan kvödd til. Eftir að
lögreglan hafði verið látin vita var hald-
ið strax aftur til baka og þá vom „nætur-
drottningin“ og fylgisveinn hennar að
handsama hross til þess að láta þau upp
á bílinn. í því kom lögreglan á staðinn
og stöðvaði verknaðinn. Hjúin tóku af-
skiptasemi lögreglunnar illa upp, en eft-
ir hálftíma orðaskak hurfú lögreglan og
eigendur hrossanna á burt og hrossin
urðu eftir. Samkvæmt heimildum Tím-
ans hafði „næturdrottningin" fjarlægt
tvær fylíúllar merar af svasðinu á að-
faranótt miðvikudags.
Að sögn Rannsóknarlögreglunnar í
Hafharfirði komu umrædd hross á hús í
Hafnarfirði í mars í vetur. Ekki hefúr
enn verið ákveðið hvað verður gert við
hrossin, en málið er hjá fógeta í Hafnar-
firði. .d’að verður reynt að stoppa þetta
og sjá til þess að þessi manneskja hafi
ekki dýr undir höndum", sagði rann-
sóknarlögreglan í samtali við Tímann í
gær.
Konan hefur ítrekað
verið kærð
Dýravemdunarfélag Islands hefúr um
árabil verið á höttunum eftir umræddri
„næturdrottningu", Sigriði Stefánsdótt-
ur, og margsinnis kært hana til yfirvalda
fyrir illa meðferð á dýrum. Félagið hef-
ur farið fram á að „næturdrottningin"
verði svipt leyfi til þess að hafa skepnur.
Fyrir ári síðan kærði Dýravemdunarfé-
lagið hana til Rannsóknarlögreglunnar
fyrir illa meðferð á sjefferhundum, sem
hún hafði innilokaða í hesthúsi við
Norðlingabraut. Fullyrt var af Dýra-
vemdunarfélaginu að hundamir væm í
gluggalausri stíu og fengju sjaldan eða
aldrei að fara út.
Tvö hross drápust eftir
svelti í fyrrasumar
í janúar á þessu ári kærði Dýravemd-
unarfélagði Sigríði fyrir illa meðferð á
hrossum, sem hún hafði í girðingu í
Mosfellsbæ nálægt Skyggni í fyrra-
sumar. Hestamir fúndust um haustið og
vom þá tveir þeirra mjög illa famir sök-
um hungurs og vannæringar. Annar
þeirra drapst fljótlega eftir fúndinn en
hinn síðar. í byijun síðasta vetrar er
hermt að Sigríður hafi átt alls um 30
hross. Eftir að tvö af hennar hrossum
horféllu í hólfinu við Skyggni, þar sem
m.a. yfirdýralæknir þurfti að hafa af-
skipti af málinu, var fúllyrt að hrossin
hefðu verið tekin af henni og væm í
góðum höndum annars staðar.
Annað kom á daginn þegar Dýra-
vemdunarfélagið fór að kanna málið í
vetur. „Næturdrottningiri' var þá með
19 hross í 42 fermetra húsi í Þorláks-
höfn, en afgangnum hafði hún komið
fyrir í haustbeit á Hvitárbakka í Bisk-
upstungum. í janúar vom þeir þar enn
og þá í mjög slæmu ásigkomulagi eftir
því sem Dýravemdunarfélaginu var
tjáð. Þegar Sigriður sótti ekki hrossin,
leitaði maðurinn sem hafði tekið þau í
hagagöngu til hreppsnefndarinnar á
staðnum, sem á samkvasmt forðagæslu-
lögum að taka málið í sínar hendur. Sig-
riður var sögð eiga lítil sem engin hey í
Þorlákshöfn, en „snapa“ í þau hér og
þar. Það hey sem Dýravemdunarfélag-
inu var tjáð að hún gæfi, var næringar-
lítill mddi, sem hafði brunnið í Þorláks-
höfn og ekki verið talið skepnum
bjóðandi. Þetta mál var kært til Rann-
sóknarlögreglunnar og sýslumanns, en
áður en það var til lykta leitt hafði hún
fjarlægt hrossrn þaðan.
Að sögn Jórunnar Sörensen, formanns
Dýravemdunarfélags íslands, hefúr
fjöldinn allur af fólki haft djúpar
áhyggjur af níðingsskap Sigriðar í garð
hesta sinna. Jórunn sagðist vera orðin
mjög langþreytt á seúiagangi yfirvalda í
málum Sigríðar. 111 meðferð hennar á
dýrum hefði viðgengist allt of lengi og
fyrir löngu mál að þessu linnti.
-ÁG
Hafnarfjarðarlögreglan mætt á staðinn eftir að Ijóst var að „næturdrottningin" og fylgisveinn hennar ætluðu að
flytja hrossin burt á laun. Konan gengur í burt í fylgd rannsóknarfögreglumanns. Tímamyndir. Pétur.