Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 9: júní 1990
Tíminn 3
Ballettinn
„Palli og
Palli" á
Listahátíð
íslenski dansflokkurinn fiTimsýnir
14. júní í Islensku Operunni „Palla
og Palla“ nýjan ballett fyrir böm.
Verkið er sprottið af kynnum við hina
þekktu bamasögu „Þegar Palli var
einn í heiminum", sem fjallar um
drauminn þegar Palli vaknar einn dag
og er aleinn í heiminum.
Palli og Palli er fijálsleg túlkun á
þessari sögu og nokkrum atriðum
bætt við til að mæta kröfum dansins
og leikhússins. Allir hlutir sem á vegi
Palla verða lifna við og ímyndunar-
aflinu er gefinn laus taumur. Þannig
túlka dansarar appelsínu, klæðaskáp
og strætisvagn svo eitthvað sé nefnt.
Danshöfundur er Sylvía von Kos-
poth, en hún er Hollendingur og hef-
ur starfað hér á landi í vetur, m.a.
kennt við Listdansskóla Þjóðleik-
hússins og Kramhúsið og samið verk
með danshópnum Pars pro Toto.
Þijár sýningar verða á Palla og Palla
á Listahátíð. Frumsýning er 14. júní
kl. 20:00 og tvær sýningar laugar-
daginn 16. júní kl. 14:30 og 17:00.
Miðaverð er kr. 800. Sýningin tekur
um klukkustund í flutningi. Miðasala
fer ffam í miðasölu Listahátíðar í
Reykjavík. -EÓ
Vigdís fer til
Sovétríkjanna
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, fór áleiðis til Sovétríkjanna í
gær. I Moskvu opnar forseti sýningu
á verkum ungra íslenskra myndlistar-
manna í „All- Russian Decorative
and Folk Art Museum". Þar verða
sýnd verk eftir Huldu Hákonardóttur,
Hrein Friðfinnsson, Kristin G. Harð-
arson, Kristján Guðmundsson og
Rögnu Róbertsdóttur. Forseti sækir
einnig konsert Sigríðar Ellu Magnús-
dóttur óperusöngkonu og Anatolii
Saflullin bassasöngvara í Rakhman-
inoffHall.
I Leningrad opnar forseti samnor-
ræna myndlistarsýningu í Hermitage
safninu. Sýningin er haldin á vegum
norræna ráðherraráðsins. Verður hún
flutt til Moskvu síðar í sumar. Á sýn-
ingunni eru m.a. verk eftir Jóhannes
S. Kjarval og Jón Stefánsson.
I fylgd með forseta íslands verður
Komelíus Sigmundsson forsetaritari.
Aðgengileg
ávöxtunarleið!
Viltu geta gripib til sparnabar meb
litlum fyrirvara? Sparileib 1 er mjög
abgengileg ávöxtunarleib þegar þú
vilt ávaxta sparifé þitt í skamman
tíma, minnst þrjá mánubi. Meb því
ab velja Sparileib 7 tryggirbu þér
greiban abgang ab sparifé þínu.
Á Sparileib 1 geturbu náb 3,25%
vöxtum umfram verbtryggingu.
Leibarvísir liggur frammi á öllum
afgreibslustöbum bankans.
Sparileiðir íslandsbanka - fyrir fólk
sem fer sínar eigin leiðir í sparnaði!
ari
•/
Hvað a að gera þegar aðeins 22 bílastæði
eru við 23 íbúða fjölbýlishús?
FELLA
EINA
fbúar í fjölbýlishúsi við Granda-
veg eru ekki alls kostar ánægðir
með hvemig til hefur tekist við að
skipuleggja bílastæði við húsið. f
því eru 23 íbúðir, en hins vegar
eru aðeins 22 bílastæði við húsið.
fbúamir hafa sent inn kvörtun til
félagsmálaráðuneytisins vegna
þessa máls. Ráðuneytið vísaði
því til embættis byggingafulltrúa í
Reykjavík.
Tíminn spurðist fyrir hjá bygginga-
fulltrúaembættinu hvemig málið yrði
leyst. Þar var fátt um svör, en bent á
að hugsanlega mætti fella niðru- eina
íbúðina svo fjöldi íbúða og bílastæða
standist á. Yfir tvö ár eru liðin frá því
að fyrstu íbúamir fluttu inn í húsið.
Nær útilokað er að kom fyrir einu
bílastæði í viðbót við það. íbúar i
fjölbýlishúsinu segja að iðulega
skapist þar vandræðaástand vegna
skorts á bílastæðum. Þess ber að geta
að skortur á bílastæðum við fjölbýlis-
hús er gamalt vandamál.
Engar reglur eru til um hve mörg
bílastæði skulu vera við fjölbýlishús,
NIÐUR
ÍBÚÐ?
en ljóst er að stefnt var að því að hafa
þau jafnmörg íbúðunum i umræddu
hús. Hins vegar tókst af einhveijum
orsökum ekki að ná þessu markmiði.
Byggingafulltrúinn i Reykjavík hefur
verið mótfallinn því að íbúar í fjöl-
býlishúsum merki sér bílastæði, en
ekki skipt sér af því sé það gert.
-EÓ
EIR
GEFUR
ÞREK-
HJÓL
Lionsklúbburinn Eir færði nýlega
Endurhæfmgarstöð hjarta- og
lungnasjúklinga að gjöf tvö Monark
þrekþjálfunarhjól.
Á myndinni er formaðurinn Jóna
Ólafsdóttir (til vinstri) að afhenda
gjöfina Soffiu Sigurðardóttur yfir-
sjúkraþjálfara, að viðstöddum Bjart-
eyju Friðriksdóttur, Eyrúnu Kjartans-
dóttur og Sigurþóm St. Briem ffá