Tíminn - 09.06.1990, Síða 4
ð
4 Wrfihft
FRETTAYFIRLIT
TURNBERRY, Skotlandi -
Utanríkisráðherrar NATÓ
luku tveggja daga fundi sín-
um með því að fagna rót-
tækum áformum um breyt-
ingar á Varsjárbandalaginu.
Ráðherrarnir skuldbundu sig
til að halda áfram viðræðum
um meiri niðurskurð her-
gagna í Evrópu. Bandalagið
ítrekaði að sameinað Þýska-
land ætti að vera í NATÓ en
sagði að áhyggjum Sovét-
manna skyldi mætt með
skilningi.
MOSKVA - Forseti Úsbe-
kistan sagði að þjóðernis-
átök hefðu breiðst út frá
Kírgisíu og næðu nú til Ús-
bekistan. Hann bað Moskvu
um hjálp til að stöðva rós-
turnar. A.m.k. 78 menn hafa
dáið og átökin hafa aukist.
MONRÓVÍA - Stjórn Lí-
beríu vill semja um frið við
uppreisnarmenn sem nálg-
ast óðum höfuðborgina. For-
setinn Samúel Doe neitar þó
að ræða við leiötoga upp-
reisnarmanna, Charles Tayl-
or. Stjórnarhermenn virðast
hafa unnið sína fyrstu sigra í
hinum sex mánaða gömlu
átökum.
MOSKVA - Forseti Sovét-
ríkjanna Míkael Gorbatsjof
greindi frá áhyggjum sínum
vegna sameiningar Þýska-
lands og veru þess í NATÓ
þegar hann ræddi við Margr-
éti Thatcher í gær. Thatcher
sagði eftir fund þeirra að
leita yrði leiða til að minnka
áhyggjur Sovétmanna.
GENF - Nelson Mandela
varð að afboða fundi vegna
heilsubrests. Hann sagöi aö
sér liði vel en hann yrði e.t.v.
að stytta ferðalag sitt um
heiminn.
OTTAWA - Forsætisráð-
herra Kanada, Brian Mulron-
ey, hóf aftur viðræður við
héraðstjórnir landsins. Hann
vonast enn til að hægt sé að
ná samkomlagi um stöðu
Quebec (Kanada.
SRINAGAR, Indlandi -
Baráttumenn gegn stjórn
Indverja í Kasmír skutu í
gær til bana frænda innan-
ríkisráðherra Indlands, Mo-
hammad Sayeed. Þetta var
önnur árásin á fjölskyldu
ráðherrans.
Tfáugá7ahgu>’ S90
Jeltsín stígur skref í átt til sjálfstæðis:
Rússnesk stjórnarskrá
æðri lögum Sovétríkja
Sovétlýðveldið Rússland lýsti því yfir á föstudag að stjómar-
skrá landsins væri æðri en lög Sovétríkjanna. Rússneska þing-
ið, samþykkti lagaákvæði með 544 atkvæðum gegn 271, sem
segir að sovésk lög, sem brjóti í bága við rússnesk réttindi, gildi
ekki lengur í Rússlandi. Fréttastofan Tass sagði ennfremur að
um miðja næstu viku verði yfirlýsing um sjálfræði Rússiands bor-
in undir þingheim. Jeltsín, forseti Rússlands, lýsti því yfir þegar
hann var kosinn forseti að hann myndi þrýsta á um að þessi lög
verði sainþykkt
Hann hefiir líka sagt að Rússar
áskyldu sér rétt til að segja skilið við
Sovétríkin en hann sagðist þó ekki
leggja það til. Þegar Eystrasaltsríkin
lýstu yfir sjálfstæði sínu var það
fyrsta verk þeirra að samþykkja sams
konar lög og Rússar hafa nú sett.
Lögin gera það að verkum að rúss-
neska þingið getur hafnað öllum sov-
éskum lögum sem það telur ógna
hagsmunum sínu en Jeltsín hefúr
meðal annars lýst því yfir að hann
vilji hafna nýrri umbótaáætlun Gor-
batsjovs.
Rússneska þingið ræðir nú flókin
lög um sjálfræði Rússlands. Jeltsín
sagði þingheimi í síðustu viku að
lögin myndu gera öll náttúruauðæfi
Rússlands að einkaeign Rússa. Rúss-
ar ættu þá einir olíu-, gas- og kola-
birgðir landsins sem eru grundvöllur
auðlegðar Sovétríkjanna. En þar sem
öll samgöngumannvirki og stjómun
landsins er í höndum Sovétstjómar er
ekki ljóst hvemig Rússar geta fram-
fylgt nýjum lögum sínum.
Landsbergis, forseti Lithauga, fagn-
aði lagasetningu Rússa. Hann sagði
að Lithaugar hefðu gert það sama
fýrir einu ári og að fleiri sovétlýð-
veldi væm að gera svipaða hluti.
Hann nefndi í því sambandi Moldav-
íu, Kákasuslýðveldin og Úkraínu.
Hann sagði að sovéska stjómarskráin
héti öllum 15 lýðveldum Sovétríkj-
anna sjálfræði en hann sagði að það
væri aðeins á pappímum en ekki í
raun. Forseti Sovétríkjanna, Mikael
Gorbatsjof vildi gera sem minnst úr
ákvörðun rússneska þingsins. Hann
sagði að Rússar hefðu ekki gert neitt
sem bryti í bága við stjómarskrá Sov-
étríkjanna og hann gaf í skyn að hann
vildi komast að samkomulagi við
Jeltsín.
Jeltsín vígreifur. Hann vill að
Rússland og Sovétríkin séu ekki
eitt og það sama.
Shamir myndar stjórn
með trúarofstækisflokkum:
Hægri öfgastjórn
mynduð í ísrael
Yitzhak Shamir myndaði í gær
stjóm, sem er sú hægrisinnaðasta í
sögu ísraels, og sagði að forgangs-
verkefni hennar yrði að sinna inn-
flutningi Gyðinga frá Sovétríkjunum.
Þrír sjálfstæðir þingmenn og sjö öfga-
fúllir trúar- og hægriflokkar undirrit-
uðu samning um samsteypustjóm. Nú
eru 12 vikur liðnar ffá því að ríkistjóm
Israels var felld vegna ágreinings um
ffiðartillögur Bandaríkjamanna sem
Verkamannaflokkurinn vildi sam-
þykkja en Shamir og flokkur hans,
Líkúd- bandalagið hefúr hafnað.
Stjómmálaskýrendur telja að hin nýja
ríkisstjóm muni líklega lenda saman
við Bandaríkjastjóm vegna ósáttfýsi í
deilum Palestínumanna og Gyðinga.
Utanríkisráðherra stjómarinnar verð-
ur David Levy sem nýlega reitti
Bandaríkjastjóm til reiði með því að
fjármagna i laumi búsetu Gyðinga í
kristna hverfi Jerúsalemborgar. Meðal
stuðningsflokka hinnar nýju stjómar í
Israel em flokkamir Tehiya og Tso-
met sem vilja að herteknu svæðin
verði innlimuð í Israel og flokkurinn
Moledet sem vill að Arabar í landinu
verði fluttir nauðugir til Jórdan. Ráð-
herrar stjómarinnar era líklegir til að
styðja aukna búsetu Gyðinga á her-
teknum svæðum landsins sem hefúr
verið mjög umdeild. Ráðamaður
Efnahagsbandalags Evrópu lýsti því
yfir í gær að innflutningur sovéskra
gyðinga til Vesturbakka Jórdanar væri
ólöglegur og hann væri hindrun í vegi
ffiðar í Miðausturlöndum. Forsæti
Evrópubandalagsins er nú í höndum
íra og utanríkisráðherra írlands, Gerry
Collins, sagði þetta við gesti ráðsteffiu
í Dyflinni. Evrópubandalagið reynir
nú að endurvekja viðræður milli sín
og Araba en þær hófúst 1974. Collins
sagði meðal annars að Evrópubanda-
lagið skyldi hve alvarlegt ástandið
væri á herteknu svæðunum og sagði
að það myndi reyna að þrýsta á ísra-
elsstjóm að virða mannréttindi íbú-
anna.
FjöiskykJa nýkomin ffá Sovétríkjunum sest að í Aríei á Vesturbakkanum.
0 Ungverjaland:
Ur Varsjáibandalagi
fyrir árslok 1991
Varnarmálaráðherra Ungverja- menn bandalagsins í hermálum í
lands, Lajos Fur, sagði í gær að gær. Ungverjar hafa ekki áður
Ungverjar myndu ekki taka þátt í nefnt neina dagsetningu þegar
heræfingum Varsjárbandaiags- þeir hafa talað um úrsögn. Þessi
ins á þessu ári og að þeir vildu yflrlýsing nú kemur nokkuð á
segja sig úr bandaiaginu í lok óvart þar sem á fundinum á
næsta árs. Fur sagði þetta í fimmtudag var talað um breytt
Moskvu í viðtali við fréttastofu hlutverk Varsjárbandalagsins
Ungverjalands MTI, sem útvarp- sem gera átti aðild að því auð-
að var til Búdapest. Hann tók veldari fyrir lýðræðisriki í A-
þátt í fundi Varsjárbandalagsins Evrópu.
á fimmtudag og hitti embættis-
Kosningar í Tékkóslóvakíu og Búlgaríu:
Flokkur Havels
sigurstranglegur
Borgaravettvangur, flokkur Havels
forseta, er líklegur til að vinna stór-
sigur í kosningum í Tékkóslóvakíu
um helgina. Kjörstaðir vora opnaðir
á fostudag og verður kosið áffam í
dag, en á sunndudag er búist við
fyrstu tölum. Samkvæmt óformlegri
skoðanakönnun, sem fréttamenn
Reuters stóðu fýrir í 17 borgum
Tékkóslóavakiu, fær Borgaravett-
vangur hreinan meirihluta á tékk-
neska þinginu. Skoðanakönnunin
náði ekki til sveitahéraða þar sem bú-
ist er við að kristilegir demókratar
njóti meira fýlgis.
Kosningamar era fýrstu fijálsu
kosningamar í rúm 40 ár. Fjöldi er-
lendra eftirlitsmanna fýlgist með því
að þær fari heiðarlega fram. Meðal
þeirra era Garret Fitzgerald fýrrver-
andi forsætisráðherra írlands og
söngvarinn Paul Simon.
Kosningar verða einnig í Búlgaríu
um helgina. Meðal erlendra eftirlits-
manna verður Steingrímur Her-
mannsson. Kosning hefst á sunnudag
og verða Búlgarir síðasta A-Evrópu-
þjóðin til að halda frjálsar kosningar
eftir hran kommúnismans. Stjómar-
andstæðingar vora í gær sigurvissir
eftir góða þáttöku landsmanna í fúnd-
um þeirra en skoðanakannanir bentu
hins vegar til að sósíalistaflokkurinn,
arftaki kommúnistaflokksins fengi
flest atkvæði.