Tíminn - 16.06.1990, Side 4

Tíminn - 16.06.1990, Side 4
4 'TítTÍinn_______ FRÉTTAYFIRLIT BÚKAREST - Þúsundir námamanna yfirgáfu Búkar- est höfuðborg Rúmeníu, með lestum. Þeir höfðu í 38 klukkustundir ætt ium götur borgarinnar til stuðnings Jóni lliescu eftir að ólæti [ borginni kostuðu að minnsta kosti 5 menn lífið. Talsmaður stjórnarinnar sagði að allir námamennirnir hefðu fariö I gærkvöldi. BRUSSELL - NATO hafn- aöi tilboði Sovétmanna um viðræður sem stefndu að því að fjarlægja öll skammdræg kjarnorkuvopn frá Evrópu. Talsmenn NATO I Brussel sögðu þó að leiðtogar aðild- arríkjanna myndu ræða til- boðið á fundi I London I næsta mánuði. MOSKVA - Að sögn Yuri Maslyukov, sem situr I fram- kvæmdastjórn kommúnista- flokksins, hafa Sovétmenn ákveðiö að senda jarðgas til Lithaugalands. Sendingarn- ar eiga að hefjast um helg- ina. PRAG - Vaclav Havel for- seti Tékkóslóvakíu og leið- togar Borgaravettvangs sögðust vera nálægt því að tilnefna nýja ríkisstjórn eftir mikinn kosnigasigur um síð- ustu helgi. GBORPLAY, Líbería - Leiðtogi uppreisnarmanna I Líberíu, Charles Taylor, hót- aði að leggja undir sig höf- uöborgina Monróvíu innan nokkurra klukkustunda ef samningaviðræður við rík- isstjón Samúels Doe færu út um þúfur. COLOMBO - Öryggissveit- ir á Sri Lanka hófu gagnsókn og náðu aftur á sitt vald 5 af þeim 20 lögreglustöðvum sem skæruliðar Tamíla her- tóku I vikunni. WASHINGTON - Verðbólga hjaðnar I Bandaríkjunum og innflutningur til landsins hef- ur minnkað. Þetta hefur orð- ið til þess að dregiö hefur úr viðskiptahalla landsins. Sumir sérfræðingar óttast að kreppa sé í aðsigi ef haldið verður áfram af sama krafti að berjast gegn verbólgu. < ^Cáiigárcfágin©? jöhí11Ö90 Hryðjuverkamönnum smalað saman í A- Þýskalandi: Mordingjar Herrhausens gripnir í A-Þýskalandi í gær handtóku Austur-Þjóðveijar sjö Vestur-Þjóðveija sem taldir eru vera borgarskæruliðar. Vestur- Þjóð- veijar hafa í áratug leitað þeirra og talið þá hafa starfað í Rauðu her- deildinni (RAF). Meðal hinna hand- teknu voru Barbara Meyer, Horst Meyer og Sabiene-Elke Callsen sem handtekin voru á járbrautarstöð í Leipzig í gærmorgun. Alls hafa níu menn úr RAF-hópnum verið hand- teknir í Austur-Þýskalandi á aðeins 10 dögum. Flestir þeirrn eru konur. Lögreglu- menn telja að hjónin Barbara og Horst Meyer hafi stjómað aðgerðum borgarskæruliða í Vestur- Þýskalandi eftir 1980. Meðal annars er talið að þau hafi skipulagt morðið á Alfred Herrhausen í nóvember á síðasta ári en Herrhausen var forstjóri Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, og var eirrn valdamesti bankamaður Þjóðveija. Rauða herdeildin RAF var öflugust í V-Þýskalandi á áttunda ára- tugnum og stóð fyrir sprengingum, bankaránum og morðum á stjóm- málamönnum. I upphafi níunda ára- tugarins vom flestir leiðtogar RAF látnir eða í fangelsum en þá telja lög- reglumenn að Meyer-hjónin hafi haf- ist handa. V-Þjóðverjar telja að um 30 RAF-menn hafi leitað hælis í A- Þýskalandi og að um 20 leiki enn lausum hala eftir handtökumar að undanfomu. Inge Viett sem sökuð er um morð og mannrán var handtekin fyrr í þessari viku og Susanne Al- brecht sem sökuð er um að hafa tekið þátt í morði bankamanns ffá Frank- furt 1977 var fangelsuð nokkrum dögum fýrr. Öll virðast hin ákærðu hafa lifað eðlilegu lífi í A-Þýskalandi. Þau hafa unnið venjuleg störf og lifað eðlilegu fjölskyldulífi. Að sögn vestrænna embættismanna höfðu mörg þeirra fengið ný nöfn og þau nutu vemdar STASI, fyrrverandi öryggislögreglu landsins, á valdatíma kommúnista. Alfred Herríiausen. Hann var vinur Kohls kanslara, leiddi stærsta banka V-Þýskalands og stjómaði stærsta iðnaðarhríngi landsins. Sennilega hefur enginn einn maður veríð jafrí valdamikill á efnahagssviðinu eins og þessi maður. Tákn níunda áratugarins í New York: Thimp samsteypan getur ekki borgað Donald Trump. Hann á afmæli í dag. Frambjóðandi Jeltsins náði ekki kjöri: HÓGVÆR UMBÓTA- MAÐUR KOSINN í gær tilkynntu talsmenn Tmmp- samsteypunnar í New York að fyrir- tækið myndi ekki borga 20 milljón dollara afborgun af lánum sínum. Þetta kom á óvart og sýndi hve fjár- hagsvandræði milljarðamæringsins Donalds Tmmps em orðin alvarleg. Tmmp verður 44 ára í dag, laugar- dag. Gagnvart íbúum New York- borgar var hann tákn um stíl níunda áratugarins. Hann byggði nýtísku skýjakljúfa í borginni og lifði eins og kvikmyndastjama. A meðal eigna hans em Plaza-hótelið og „Tmmp- Tower“ sem er skýjakljúfur við 5. breiðgötu í New York. Tmmp komst nýlega I fréttir heimspressunnar vegna skilnaðarmáls síns og konu sinar Ivönu en undanfarið hafa birst fféttir um alvarleg fjárhagsvandræði hans. Tmmp er ekki gjaldþrota enn og reynir hann nú að komast að sam- komulagi við banka og skuldunauta um greiðslur af lánum. A- Þýskaland: Eignum skilaö Austur- og Vestur-Þjóðveijar hafa korrúst að samkomulagi um að skila aftur landi og eignum sem komm- únistar tóku eignamámi. Eignunum verður skilað til fyrri eigenda eða til erfingja þeirra. Landi sem opinberir aðilar nota nú verður ekki skilað en greiddar verða bætur. Eignir sem Sovétmenn tóku eignamámi frá lokum seinna stríðs fram að stofnun A-Þýskalands munu haldast í eigu rikisins. Þetta er viðbót við samning ríkj- anna um efnahagssamruna 1. júlí en eftir var að ná samkomlagi um of- angreind atriði. í samningnum er reynt að koma til móts við margvís- lega hagsmuni stjómvalda, fyrri eigenda, núverandi leigjenda og þeirra sem hafa fjárfest í eignum sem á að skila. Þing Rússlands kaus í gær hógvær- an umbótamann í embætti forsætis- ráðherra en hafnaði róttækum stuðn- ingsmanni Boris Jeltsins. Ivan Silayev, 60 ára verkfræðingur, fékk 163 atkvæði af 239 í annarri umferð kosninganna. í fyrri umferð fékk Silayev 119 atkvæði og skorti að- eins eitt atkvæði til að ná 50% at- kvæða og löglegri kosningu. Fram- bjóðandi sem studdi róttækar um- bótatillögur Jeltsins fékk aðeins 86 atkvæði sem var talsverður ósigur fyrir Jeltsin. Jeltsin sýndi samstarfs- vilja sinn með hógværum umbóta- mönnum þegar hann sagðist vilja styðja Silayev fyrir seinni atkvæða- greiðsluna. Silayev sagði, eftir að hann var kjörinn forsætisráðherra, að hann styddi umbætur og að hann væri opinn fyrir öllum hugmyndum um að bæta hag Rússa. „Eg mun sanna það fyrir ykkur að ég er ekki íhaldsmaður“ sagði hann. Mandela segir að vel gangi að tala við ráðamenn: Viöskiptabann haldist áfram Ferðalag Nelsons Mandela um heiminn er nú hálfnað. Hann reynir að fá ríkisstjórnir til að aflétta ekki viðskipta- banni á S-Afriku og sagði Mandela í gær að bonum hefði orðið vel ágengt. Á blaða- mannafundi í Róm sagðist hann ekki óttast að ráðamenn Efnahagsbandalags Evrópu sem hittast 25. júni myndu draga úr viðskiptaþvingunum sínum. ítalir taka við for- mennsku EBE fyrsta júlí og halda henni næstu sex mán- uöi. Mandela sagði að forsæt- isráðhcrra Ítalíu, Giulio Andreotti, vseri algerlega á sama máli og hann um að Evr- ópuríkin ættu ekki að slaka á efnahagsþvingunum sínum fyrst um sinn. Embættismenn ftala sögðu að Androtti hefði heitið Mandela og Þjóðfrelsis- ráði Afríku (ANC) að láta vita um hugsanlegar breytingar á afstöðu Evrópubandalagsins en þeir sögðu að Andreotti hefði ekki heitið ákveðnunt stuðningi víð efnahagsþving- anir. Mandela og aðrir ráða- menn ANC sögðust hafa feng- ið jákvæðar undirtektir í öll- um þeim löndum sem þeir hefðu heímsótt. Þeir hafa heimsótt I-'rakkland, Sviss og V- Þýskalandi en þrátt lyrir góðar móttökur hafa ráða- menn þessara landa ekki skuidbundið sig á neinn hátt til að styðja málstað ANC. Mandela gekk á fund páfans í Róm í gærmorgun. Mandela lét vel af viðræðum sínum við hann en páfinnn hefúr for- dæmt aðskilnaðarstefnuna í S- Afríku harkalega. Þegar Man- dela var spurður hvort páfinn hefði beöið afríska þjóðarráðið um að fordæma notkun of- beldis svaraðí Mandela: „Hans heilaglciki skílur ástandið mun betur en sumir ykkar. Hann fór ekki fram á neitt slikt.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.