Tíminn - 16.06.1990, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.06.1990, Blaðsíða 9
.VLáugardagur 16; júní 1990 ' Tíminn 9 Um 20-50% verðmunur á fiskimjöli og kúafóðurblöndu milli landshluta: TONN10.000 KR. DÝRARA Á HÉRAÐIEN í EYJAFIRÐI Bændur á Héraði þurfa að borga hátt í tíu þúsund krónum meira (22%) fyrir tonn af kúafóðurblöndu (í kögglum) hjá Kaupfélaginu á Egils- stöðum heldur en bændur í Eyjafirði sem skipta við KEA á Akureyri. KEA seldur fóðurblöndu á áberandi lægra verði cn aðrir, en fiskimjöl er á hinn bóginn hvergi dýrara en þar. Þetta eru dæmi um mikinn verðmun (oft 20-50%) sem könnun Verðlags- stofnunar leiðir í Ijós á nokkrum helstu aðfongum til búvörufram- lciðslu. Mikill verðmunur reyndist bæði á fóðurvörum og ekki síður á girðingarefni og timbri. Benda má á að þessi vcrðmunur á „matvælum" kúa virðist miklu meiri heldur en munur á meðalverði matvæla eftir landshlutum. Eftir að hafa samþykkt óbreytt verð á landbúnaðarafurðum til bænda frá febrúar til descmber á þessu ári óskaði Stéttarsamband bænda eftir því að Verðlagsstofnun annaðist verðgæslu með þeim vörum scm bændur nota við framleiðslu sína. í frétt frá stofnuninni scgir að fylgst hafi vcrið með allmörgum aðföngum og verði verð á fleiri vörutegundum birt þegar líöur á sumarið. Þessi könnun var gerð hjá 25 verslunum og fóðursölum og sýnir verð cins og það var um mánaðamótin maí/júní. Verð á tonni af kögglaðri kúafóðurblöndu í sekkjum, án heimscndingar, á hin- um ýmsu stöðum var sem hér segir (hlaupandi á hcilum hundruðum króna): Verð á kúafóðurblöndu kr./tonn Reykjavík 46.500 (3) Borgames 48.600 (5) Búðardalur 50.800 (9) Isafjörður 50.000 (7) Blönduós 51.900 (1) Sauðárkr.(mjöl) 46.400 (2) Akureyri 44.400 (1) Húsavík 47.200 (4) Egilsstaðir 54.100 (2) Höfn Homaf. 51.200 (10) Hvolsvöllur 49.800 (6) KÁ Selfossi 50.600 (8) Hvemig skyldi standa á því hún- vetnskir bændur skuli þurfa að borga 7.500 kr. meira fyrir fóðurtonnið heldur en bændur í Eyjafirði og bændur á Héraði nær 10 þús.kr. meira? (Svigatölumar sýna röðun staðanna eftir verði.) Og þar sem fóðurbætiskaup em einn stærsti kostnaðarliðurinn við mjólkurfram- leiðslu hvaða áhrif hefur þetta fýrir bændur, sem eiga að fá sama verð fýrir hvem mjólkurlítra hvar sem er á landinu? „Þctta þýðir vitanlega mismunandi afkomu hjá bændum eftir landshlut- um. Það er mjög einfalt," sagði Guð- mundur Lámsson, form. Félags kúa- bænda. Nefna má sem dæmi, að talið er eðlilegt að gefa mjólkurkú um 550-600 kg. af fóðurbæti á ári, þ.e. eða um 12-13 tonn á ári fyrir gmnd- vallarbú (22-23 kýr). Fyrir slíkan bónda getur því munað um 120.000 kr. í útgjöldum á ári hvort hann kaup- ir fóðurblöndu af KEA á Akureyri eða Kf. á Egilsstöðum. Guðmundur segir flutningavcgalengdir skýra verðmuninn að nokkm leyti og sömuleis hafi samkeppni milli fóður- sala (sem sums staðar er engin) tölu- vert að segja. Hann segir brýnt að bændur fýlgist vel með verði aðfanga sinna og reikni út hvar heppilegast sé að versla í hveiju tilfelli. Afkomu- möguleikar þeirra byggist á því að reyna að gera hagstæð innkaup. Sjálfúr kaupir Guðmundur (sem býr skammt frá Selfossi) t.d. fóðurbæti beint frá Reykjavík, en þarf þá að greiða um 1.000 kr. á tonn (auk vsk.) í flutningskostnað. Mikill verðmunur er einnig á fiski- mjöli milli staða. Það var hins vegar dýrast á Akureyri, 46.300 kr. tonnið (og litlu ódýrara á Selfossi, Hvol- svelli og Sauðárkróki) sem er um 50% hærra verð en hjá fiskimjöls- verksm. Frosta í Súðavík (30.500 kr.). Faxamjöl í Reykjavík kemur þama mitt á milli (37.400 kr. tonnið). Um þriðjungs verðmunur var einnig á fóðurlýsi (frá 707 kr. til 936 kr. 5 lítra brúsi). Á hinn bóginn eru það Ámesingar og Rangæingar sem fá girðingarefni (net, lykkjur og nagla) hvað ódýrast í kaupfélögunum sínum. Girðingamet var á hæsta verði í BYKO, 34% dýr- ara en á Hvolsvelli. Mótatimbur (1 x6 3,6-4,2 m.) var hins vegar ódýrast á Egilsstöðum (84 kr.), Húsasmiðjunni í Reykjavík (86 kr.) og í Kf.í Borgar- nesi (87 kr.), en hins vegar dýrast (95 kr.) hjá KÁ á Selfossi og Kf. á Reyð- arfirði (115 kr. kvistalaust). - HEI Aðferðir, áherslur og árangur Vorþing Kvennalistans verður 22.-24. júní í Garðalundi, Garðabæ. Kvennabarátta á krossgötum? Komið og takið þátt í spennandi umræðu. Skráning í síma 91-13725. Kvennalistinn. Lifandi fortíð á Árbæjarsafni Nýlega vom opnaðar þrjár nýjar sýningar á Árbæjarsafni. Þar hcfur vcrið opnuð krambúð að hætti alda- mótakaupmanns og er þar m.a. á boðstólum nýmalað kaffi, þurrkaðir ávcxtir og kandis. I sama húsi er til sýnis mcrkilegt safn vigta og voga er nýlcga bámst safninu að gjöf. I tilefni 550 ára afmælis prcntlistar á íslandi hefur vcriö opnuð prent- minjasýning. Þar verður í einu safn- húsanna heimili og verkstæði prcnt- ara og bókbindara og munu fagmenn sýna þar handbragð fyrri tíma. Þá verður cin af sumarsýningum safnsins um mannlífið í Reykjavík á stríðsámnum í tilefni þess að 50 ár cm liðin frá því að breskur her steig hér á land. Til sýnis verða munir frá stríðsámnum er tengdust mannlífi Rcykvíkinga, hlutir frá hemi'm og hægt verður að skoða heimili í bragga. Safnið er opið frá 10-18og kaífihús staðarins, Dillonshús, er opið á sama tíma. Þar mun Karl Jónatansson harmonikkuleikari spila á sunnudag, á boðstólum er kaffi og nýbakað meðlæti og hægt cr að upplifa sann- kallaða lifandi fortið. 1 7 E D D U H CJT E L í sumar verða starfrœkt sautján Edduhátel vids vegar um landit). Eitt Edduhótel bcvtist nú vió, á Reykja- nesi vid Isafjaróardjúp. Hótelin veróa rekin meó svipuóu sniói op áóur, bjóóa pistinpu i upphúnum Iterberfyum eóa svefnpokapláss og veitingá- þjónustu allan daginn. Meófylyjundi mynd er frá vorfundi hótelstjóra Edduhótelanna. Til sölu Notaðar búvélar og fleira: MASSEY FERGUSON 3060 án framdr............................Kr. 1.350.000,- LANSING lyftari 7/5.0 árg. 1985...........................Kr. 800.000,- STILL diesellyftari 2,5 t, árg. 1974 SELDUR...............Kr. 260.000,- STILL diesellyftari 2,5 t, árg. 1986......................Kr. 1.100.000.- GRÖFUSKÓFLA 60 cm.........................................Kr. 51.750,- CHLORIDE hleðslutæki......................................Kr. 115.000,- TAARUP DM 1350 sláttutætari...............................Kr. 69.000,- YLO krókur................................................Kr. 14.375,- TAARUP DM 1500 árg. 1981 sláttutætari.....................Kr. 93.026,- NEW HOLLAND 370 bindivél SELD.............................Kr. 276.000,- AEBI votheyshnífur ...................................... Kr. 40.250,- YAMAHA MJ 650T marþota SELD...............................Kr. 287.500,- SKIDOO SAFARI árg. 1988 Rb-313........................... Kr. 300.000,- YAMAHA ET 340 TR árg. 1988 Mb-130 ........................Kr. 437.000,- YAMAHA ET 340 TR ÁRG. 1988 Mb-133.........................Kr. 437.000,- GUNTESTAD 4000 lítra snekkjudreifari, SELDUR..............Kr. 275.000,- KIMADAN mykjudæla, ný upp tekin, SELD.....................Kr. 90.000.- SAMBAND !SLENSKRA SA\n INNUFElADA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.