Tíminn - 21.06.1990, Blaðsíða 5
Fifrifhtuddður 211 jiliií‘1990
Tímírtii' 5
Starfsmenn Islenska stálfélagsins vinna að hráefnissöfnun fyrir verksmiðjuna:
SKIP SKORIÐ SUNPUR
OG SENT í BRÆDSLU
Starfsmenn íslenska stálfélagsins vinna nú að því að rífa
niður dall frá Breiðdalsvík, sem setja á í stálbræðsluna. í
framtíðinni getur slíkt veríð liður í því að losna við úrelt
fiskiskip á landi í stað þess að sökkva þeim í sjó. Gert er
ráð fýrír að verksmiðjan hefli stálbræðslu í byrjun septem-
ber.
Stálbræðslan hefur nú eignast
Stakkavík frá Breiðdalsvík, sem er
um 220 tonna bátur. Unnið er að því
að skera bátinn sundur og nota sem
hráefni fyrir stálbræðsluna, en að
sögn Sigurðar Gylfasonar hjá ís-
lenska stálfélaginu er það erfitt verk
og vandasamt. „Það er líka spuming
hvort þetta borgi sig, en við verðum
að finna eitthvað út úr því.“ Víst er að
nokkuð er til af bátum í landinu sem
hægt væri að brjóta niður og bræða,
en ekki öruggt með íjárhagslegan
grundvöll íyrir Stálfélagið. „Við er-
um að vona að það borgi einhver með
þessu, en þó hefúr það ekki verið frá-
gengið."
Ekki verður byijað að bræða stál í
Stálbræðslunni fyrr en í lok ágúst og
nú er unnið við að ganga frá sjálfri
verksmiðjunni. Sigurður sagði að vel
hafí gengið að tæta brotajám frá þvi
tætarinn var ræstur. Pmfúr hafa verð-
ið sendar út til bræðslu, en engar nið-
urstöður komið úr því ennþá.
Reiknað er með að stálbræðslan
framleiði um 20 til 25 þúsund tonn af
stáli á ári. Sigurður sagði að tryggð
hafi verið sala á 20 þúsund tonnum á
ári fyrstu fimm ár verksmiðjunnar og
öll ffamleiðsla umfram það verður
selt á fijálsum markaði. „Verð á
endumnnu stáli hefúr hækkað tölu-
vert undanfarið og eins og staðan er í
dag á að vera lítið mál að selja fram-
leiðslu Stálbræðslunnar."
Sigðurður sagði að nú væri unnið að
því að afla verksmiðjunni nægjanlegt
hráefni til bræðslu. Sérstakur starfs-
maður er á ferð um landið til að leita
eftir samningum til að tryggja Stál-
bræðslunni tilfallandi brotajám. Stál-
bræðslan hefúr fest kaup á pressubíl,
og er meiningin að hann ferðist um
landið og pressi niður bila og annað
brotajám sem verksmiðjan eignast.
Það verður síðan flutt í Hafnarfjörð-
inn með skipum eða landleiðina.
-hs.
Suður-Afríkusamtökin gegn Apartheid:
Innflutningur
ávaxta kærður
Suður-Affíkusamtökin gegn Apart-
heid hafa kært innflutning á niður-
soðnum ávöxtum frá Suður-Afríku til
ríkissaksóknara, og óskað eftir opin-
berri rannsókn á málinu, en lög sem
banna slíkan innflutning hafa verið i
gildi frá 1. janúar 1989.
Talsmenn Suður-Affíkusamtakanna
gegn Apartheid sögðu á blaðamanna-
fundi, sem þeir héldu ásamt Alþýðu-
sambandi Islands, að enn væm vömr
ffamleiddar í Suður- Affíku til sölu í
verslunum. Þá kom ffam á fúndinum
að innflytjendur varanna neituðu því
að uppmnaland þeirra væri Suður-
Affíka þrátt fyrir að vömmar væm
merktar því framleiðslulandi, og að
ffá einum aóila væm límmiðar með
nafni innflytjandans sem hyldu fram-
leiðsluland vömnnar. Einnig var sagt
að nokkrir innflytjendur bæm það við
að enn væri verið að selja gamlar
birgðir, nú einu og hálfú ári eftir að
Iög um innflutningsbann tóku gildi.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar,
forseta ASI, en sambandið er aðili að
Suður-Afríkusamtökunum, er þessi
kæra til ríkissaksóknara ætluð til þess
að knýja á um að þessum lögum verði
ffamfylgt. Lára V. Júlíusdóttir, lög-
ffæðingur ASI, sagði að skv. 3 gr.
laganna gæti sá aðili, sem gerðist
brotlegur við þau, mátt sæta sektum,
eða allt að þriggja mánaða fangelsi.
Suður-Afríkusamtökin stóðu fyrir
mótmælum á sölu vöm ffá Suður-
Affíku í dcsember á síðasta ári og í
mars á þessu ári, og brást fólk vel við
beiðni þeirra um að kaupa ekki þess-
ar vömr.
Að sögn talsmanna samtakanna
hverfa þessar vörar úr hillum versl-
ana á meðan umræða vegna þeirra
stendur yfir, en birtast jafnan affur er
umfjöllun er hætt. Er það von sam-
takanna að með þessari kæra verði
hægt að koma í veg fýrir að slíkt ger-
ist. —só
Fjarmalaraðherrafundi Norðurlandanna lauk í gær:
Námskeið í velferð
fyrir A-Evrópulönd
Fjármálaráðherrar Norðurlanda ákváðu
á fundi sínum í Osló, sem lauk í gær, að
mælast til þess að fljótlega verði hald-
Beðist vel-
virðingar
í Tímanum í gær var ffétt þar sem
fjallað var um vandræði sem er-
lendar konur hafa mállitlar og
ókunnugar ratað í hérlendis við
það að ganga í hjónaband eða
sambúð með íslenskum karl-
mönnum.
Því miður láðist að geta þess að
við vinnslu fréttarinnar var að
nokkra stuðst við fréttaskýringu -
í brennidepli - í Nýju helgarbiaði
Þjóðviljans föstudaginn 15. júní
sl. Jafnframt var vitnað orðrétt í
umrædda fféttaskýringu án þess
að geta heimildar. Á þessu er beð-
ist velvirðingar. Fréttastj.
inn fundur fjármálaráðherra OECD
ríkjanna og A- Evrópuríkjanna. Á fúndi
þessum verði fjallað almennt um stöðu
efhahagsmála, ástand í A- Evrópuríkj-
unum og áhrif breytinganna þar á þróun
efnahagsmála í Evrópu almennt.
í kjölfar ofannefnds fúndar hyggjast
norrænir fjármálaráðherrar efha til ráð-
stefnu í Kaupmannahöfh með embætt-
ismönnum úr fjármálaráðuneytum Pól-
lands, Tékkóslóvakiu og Ungveijalands
í haust. Á ráðstefnunni hyggjast nor-
rænu ráðherramir koma á ffamfæri við
embættismennina reynslu Norðurland-
anna af markaðskerfi og velferðarþjóð-
félagi.
Þá var á Oslófundinum fjallað um
skýrslu norrænna embættismanna um
aðhald og breytingar á opinberum
rekstri. í henni er greint ffá nauðsyn
þess að hagræða ffekar í rekstri sveitar-
félaga og bent á nauðsyn þess að neyt-
endur beri beint aukinn hluta kostnaðar
vegna opinberrar þjónustu og að efla
skuli markaðsstjómun í opinberum
rekstri. —sá
Hér sjáum við Steindór Guðmundsson frá verkfræðistofu Stanleys Páissonar, Grétar Ingvarsson frá sjálfs-
eignarstofnuninni Réttarholt, Sverri Hermannsson bankastjóra Landsbankans, Eygló S. Stefánsdóttur for-
mann Réttarholts og Kari Hallbjömsson útibústjóra í Miklubrautarútibúi.
Tímamótasamningur um byggingu húsnæðis fyrir aldraða:
Samvinna aldraðra
og Landsbankans
Sjálfeignastofnunin Réttarholt, sem
er félag eldri borgara í Bústaðasókn í
Reykjavík, hefur samið við Lands-
banka íslands um fjánnögnun og ráð-
gjöf fyrir byggingu íbúða fyrir félags-
menn og er þetta fyrsti samningur
sinnar tegundar hérlendis. Bygging-
arfélagið Ármannsfell hf. sér um
framkvæmd verksins sem Lands-
bankinn fjármagnar. Verkfræðistofa
Stanleys Pálssonar hf. sér um bygg-
inga- og kostnaðareftirlit. Með því
vinnst tvennt: Félagsmenn fá góðan
tíma til að selja íbúðir sínar eða losa
um annað fé og hagstæðir samningar
náðust við verktaka þegar traustur að-
ili hafði tekið að sér að tryggja fjár-
Séra Bjöm Jónsson prestur á Akra-
nesi var kjörinn stórtemplari Stór-
stúku íslands á þingi hennar, sem
haldið var nýlega. Sr. Bjöm var kjör-
inn til þessa æðsta embættis íslenskra
templara í stað Hilmars Jónssonar
sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
Kristinn Vilhjálmsson, sem verið
mögnun.
Samningar Landsbankans og Réttar-
holts vom undirritaðir í gær, 20. júní,
og em byggingarframkvæmdir þegar
hafnar. Húsið verður reist á lóðunum
nr. 33 og 35 við Hæðargarð í Reykja-
vík sem er við hom Réttarholtsvegar.
Arkitektar em Rúnar Gunnarsson og
Gunnar Guðnason. Hér er um að
ræða fimm hæða hús með 41 íbúð,
húsvarðaríbúð og bílastæðum í bíla-
geymslu. Gert er ráð fýrir að húsið
verði tilbúið í desember á næsta ári.
Reykjavíkurborg mun innrétta þjón-
ustumiðstöð fýrir aldraða í endur-
byggðu Víkingsheimili og er fyrir-
hugað að tengja byggingamar með
hefur stórgæslumaður Unglingaregl-
unnar undanfarinn áratug, gaf hcldur
ekki kost á sér til endurkjörs. I stað
hans var kjörin MjöII Matthíasdóttir á
Akureyri, en Mjöll situr einnig í
stjóm Norræna ungtemplarasam-
bandsins.
—sá
gangi við þjónustumiðstöðina.
Aðdragandi þessa samnings Réttar-
holts og Landsbankans var sá að í lok
apríl rituðu forráðamenn Réttarholts
fjómm lánastofnunum og óskuðu eft-
ir viðbrögðum við hugmynd um að
þær útveguðu skammtímalán til
bygginga íbúða fýrir félagsmenn
sína. Stjóm Landsbankans tók já-
kvætt í hugmyndina og í framhaldi af
því hófust formlegar viðræður. Þcss-
um viðræðum er nú lokið með undir-
skrift samningsins í gær.
Félagsmenn Réttarholts em nú nærri
200 og hafa 80 þeirra látið í Ijós
áhuga á íbúðakaupum. I samningi
Réttarholts og Landsbankans er gert
ráð fýrir að þegar Réttarholt hefur
fyrir sitt leyti samþykkt kaup félags-
manns á íbúð kannar Landsbankinn
fjárhagsstöðu og greiðslugetu og þarf
samþykki hans til að af kaupum geti
orðið. Falli kaupandi frá íbúðakaup-
um á byggingartíma hefur annar fé-
lagsmaður forkaupsrétt og tryggir
Landsbankinn endurgreiðslu á því
sem þegar hefúr verið greitt. Heildar-
byggingarkostnaður er 276 milljónir
króna á verðlagi í apríl sl. íbúðimar
em í fimm stærðum, frá 50 og upp í
rúma 100 fermetra. Sem dæmi um
verð má nefna að 105 fermetra íbúð
kostar rúmar 8,3, 93 fermetra íbúð
kostar 7,5 millj. kr. og 65 fermetra
íbúð rúmar 5,7 milljónir. Fyrir stæði í
bílageymslu þarf að greiða rúmar 930
þúsund krónur. -KMH
Ný stjórn Stórstúku íslands:
BJÖRNJÓNSSON
STÓRTEMPLARI