Tíminn - 21.06.1990, Síða 8

Tíminn - 21.06.1990, Síða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 21. júní 1990 Jámbrautarvagnar, hlaönir stríösskaöabótum, streymdu út úr Þýskalandi. Meðal flutningsins vom m.a.s. jámbrautarteinamir! Stríðsskaðabótakröfur á hend- ur Þýskalandi vaktar upp á ný? Helmut Kohl, kanslari V.- Þýskalands, varð loks nauöugur viljugur að viðurkenna Oder-Neisse línuna sem austurlandamæri Þýskalands, án þess að Pólverjar væm til viðtals um þau landsvæði sem vom þýsk til loka síðarí heimsstyrjaldar en tilheyra nú Póllandi. En umræðan varð til þess að Þjóðverjum rann kalt vatn milli skinns og hömnds. Tvisvar á þessarí öld hafa þeir orðið að greiða gífurlegar skaðabætur að töpuðum styrjöldum. Aðgangsharka sigurvegaranna í fýrrí heimsstyijöld, 1914-1918, sem staðfest var með Versalasamning- unum, leiddi þá eymd og fátækt yfir þýsku þjóðina sem varð jarðvegur nasismans og síðarí heimsstyrjaldar. Meiri aðgát var höfð þegar Þýska- land var í rúst í lok síðari heimsstyrj- aldarinnar 1945 og þegar árið 1953 afsöluðu Rússar sér frekari skaða- bótarétti til Austur- Þýskalands. Pól- verjar voru enn stórbrotnari, þeir af- söluðu sér frekari rétti til „Þýska- lands alls“. Sama ár komust Vestur- Þjóðverjar að samkomulagi við vestrænu bandamennina um að fá lækkaðar kröfumar, sem sumar hverjar vom frá því fyrir stríð. En formlegir friðarsamningar hafa aldrei verið gerðir og mörg mál hafa því aldrei fengið endanlega af- greiðslu, þ.á m. skaðabótamál. Þjóð- verjar kæra sig ekkert um að vekja þann draug upp að nýju og kunna þess vegna kanslara sínum litlar þakkir fyrir að vekja athygli erlendra stjómvalda á því að e.t.v. megi fara að huga að þessum málum á ný. Frá þessum áhyggjum er grcint í Der Spi- egel nýlega. Fjölskrúöugar skaðabótahugmyndir Meðal sigurvegararikjanna í síðari heimsstyrjöld, sem áttu kröfu á skaðabótum eftir að hafa komið Þýskalandi Hitlers á kné, var Ástral- ía. Þar fæddist sú hugmynd 1947 að hið sigraða ríki bætti úr meðfæddum ágalla fyrrum sakamannanýlendunn- ar. Frá upphafi var skortur á konum í Ástralíu. I Þýskalandi aftur á móti, þannig var röksemdafærslan, hlyti að vera offramboð af konum þegar tekið væri með í reikninginn þær mörgu milljónir karlmanna sem hefðu fallið, væru stríðsfangar eða í nauðungar- vinnubúðum. Það væri þess vegna vel til fundið að Þjóðverjar sendu 200.000 stúlkur til Ástralíu sem stríðsskaðabætur. Auðvitað mættu þær ekki vera eldri en 12 ára því að annars væri mikil hætta á að þær bæru með sér nasistabakteríuna til fimmtu heimsálfunnar. Öfúgt við aðrar vitlausar skaðabóta- kröfur átti þessi hugmynd um ger- manska kynblöndun hinum megin á hnettinum, sem sjálfur Himmler hefði getað látið sér til hugar koma, aldrei möguleika á að rætast. Aðrar skelfingarhugmyndir, eins og sú sem Henry Morgenthau fjármálaráðherra Bandaríkjanna bar fram að Þýska- land yrði allt gert að einu allsherjar beitilandi var a.m.k. hrundið í fram- kvæmd á áætlunarstiginu. Bretar tóku ekki aðeins í sundur í stórum stil verksmiðjur, skipasmiðj- ur og þungavinnukrana. Þeir fóru líka í ræningjaleiðangur og lögðu í auðn skóga Norður- Þýskalands þar sem að því er Hudson, fýrrverandi akur- yrkjuráðherra, sagði: „Þýskaramir hafa komið sér laglega hjá því að af- henda það sem við þörfnumst til end- uruppbyggingarinnar okkar“ — og bætti við: „Þess vegna fellum við þýsk tré tillitslaust." í Suðvestur-Þýskalandi stunduðu Frakkar skógarhögg og lögðu hald á tæki klukkusmiða í Schwaben sem verkfæri til „hættulegs iðnaðar" þar sem með þeim mátti gera tíma- sprengjur. Rússar, sem í febrúarmán- uði 1947 einum sendu í austurveg frá jámbrautarstöðinni í Frankfurt an der Oder 11.000 vöruflutningavagna fulla af skaðabótavamingi, minnk- uðu ríkisjámbrautimar á hemáms- svæði sínu í einspora jámbrautar- teina. Teinana sem þá losnuðu fluttu þeir líka austur á bóginn með flutn- ingalestunum. Það olli mikilli beiskju í allri eymdinni að til ársloka 1946 vom fiuttir frá Magdeburg 133.000 hektólítrar af hráspritti til Sovétríkjanna og varð tilefni ótelj- andi skrípasagna um „Ivan“. Allslausir Þjóðverjar eftir stríð Hitl- ers gátu ekki hlegið lengur að því að alls kyns skrautlegir meðlimir í 53ja sigurvegarablokkinni settu fram kröfur. Guatemala t.d. reiknaði sínar skaðabótakröfúr upp í 85 milljónir dollara, þó að Guatemalamenn hafi ekkert haft með Þjóðverja að gera all- an stríðstímann. En forsendan fyrir kröfúgerð mið-ameríska sigurvegar- ans var sú að þeir hefðu orðið að ryðja hemaðarlega mikilvægar leiðir um framskóginn! Júgóslavar, undir stjóm Títós, kom- ust að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu misst 1,7 milljón manna af völdum stríðsins — svo margir komu fram í hagtölunum sem „lýðfræðilegur missir", og vora þar meðtaldir menn af þýsku bergi brotnir sem Júgóslav- ar frömdu á fjöldamorð. Fyrir þennan gífurlega skaða lögðu Júgóslavar fram bótakröfur 1947 um 46,9 millj- arða gulldollara, mynt sem löngu var farin úr umferð. Jafnframt lagði ríki Títós, sem lof- aði þegnum sínum „eilíffi velferð án skatta", fram kröfu til þeirrar stofn- unar bandamanna, sem útdeildi skaðabótunum, um að hinum gersigr- uðu Þjóðverjum yrði gert að greiða þau 300 milljarða dollara útgjöld sem safnast höfðu saman á bókum þeirra innan eins árs eftir stofnun ríkisins 1946. Bandamenn höfðu þó í Jalta komist að þeirri niðurstöðu að Þjóð- verjum bæri „aðeins“ að greiða 20 milljarða dollara, og þar af fengju Sovétríkin helminginn. Endanlegt uppgjör viö gerö friðarsamninga Komið er ffam á árið 1953. Þýska- landi hefúr löngu verið skipt og hlut- amir orðnir mikilvægur burðarás í því kalda stríði sem fyrrverandi bandamenn stunduðu nú af kappi. Þetta ár afsöluðu sigurvegaramir sér frekari skaðabótum, með fyrirvara um endanlegt uppgjör við gerð frið- arsamninga. Sumarið 1953 losuðu yfirvöld t Moskvu Austur-Þýskaland undan ffekari skuldbindingum, eftir að þau höfðu til þess tíma kreist yfir 66 milljarða marka verðmæti út úr her- námssvæði sínu. Pólverjar fylgdu í kjölfarið og þeirra niðurfelling á skaðabótakröfúm náði til „alls Þýskalands", sem núverandi pólsk yfirvöld líta á sem ófyrirgefanleg mistök hjá óffjálsri leppstjóm. Vestrænu bandamennimir gerðu samkomulag við Sambandslýðveldið í febrúar 1953, hið svokallaða Lund- únaskuldasamkomulag, þar sem samningamanni Adenauers, Her- mann Josef Abs tókst að semja um rúmlega 14 milljarða marka lækkun á kröfum kröfulandanna 19, en að hluta til vora kröfúmar dagsettar ffá því fyrir stríð. Opinberlega hafði Sambandslýð- veldið til þess tíma greitt skv. bók- haldi bandamanna um þriggja millj- arða marka bætur. Að mati Þjóðveija var verðgildi niðurrifsins, nauðung- arvinnu, brottfiutnings vísindamanna og ráns á þýskum einkaleyfúm marg- falt meira. Forsendan fýrir Lundúnasamkomu- laginu, sem vestur- þýsk stjómvöld líta á sem endanlegt uppgjör, var raunar samkomulag við Israel til að bæta fyrir meðferð nasista á Gyðing- um. Skv. því greiddu Vestur-Þjóð- verjar eina heildarupphæð, meira en þrjá milljarða marka, til að auðvelda gyðinglegum fióttamönnum og fóm- arlömbum helfararinnar, að renna inn í samfélagið í Israel. Auk þessarar heildarapphæðar vora greiddar skaðabætur til einstaklinga, til jöfn- unar byrðanna, endurbyggingar- greiðslur til þeirra sem höfðu skaðast vegna niðurrifs, afreka á sviði mann- legrar íhugunar, sem enn þann dag í dag era greiddar og hafa í för með sér skuldbindingar fram yfir árið 2000. Allt í allt hafa báðir hlutar Þýska- lands til dagsins í dag reitt fram við- gerðar-, skaðabóta- og byrðajöfnun- argreiðslur sem fara langt fram úr 300 milljörðum marka og virðist þar vcra botnlaus hít. Helmut Kohl hefur orðið á margur klaufaskapurinn en sá er ekki sístur að fara að karpa um Oder-Neisse landamærin. Nú koma fram gagnvart því sem brátt verður sameinað Þýskaland nýjar hugarflugskröfúr upp á þriggja stafa milljarða upphæð- ir, sem ekki verður svo auðvelt að verjast vegna ótalmargra fordæmis- tilfella. Allt frá Albaníu, sem hefur reiknað sér tveggja milljarða dollara bætur, til Finnlands, sem m.a. vill fá bætur fyrir 24.000 hreindýr sem þýska her- liðið skaut á undanhaldinu yfir Lapp- land 1944, til margra milljóna nauð- ungarverkamanna og erfingja þeirra, en kröfúr þeirra verða samtals mörg hundrað milljarðar marka. Allir vilja komast í hið gífúrlega ríkidæmi hinna auðugu Þjóðverja, sem brátt verða enn ríkari. Frakkar áttu harma að hefna Það hefúr alltaf tíðkast að sigurveg- arinn í stríði hefúr sölsað undir sig fjármuni hins sigraða. Fyrsta efna- hagsundur Þýska ríkisins — við stoínun þess — greiddu sigraðir Frakkar fýrir, þegar Bismarck lét þá borga yfir fimm milljarða gullfranka og hæddi í þokkabót. „Eins hófsamur sigurvegari og hinn kristni Þjóðverji er ekki lengur til í veröldinni“. Frakkar hefhdu sín 1919 á sama stað, í Versölum. Það var fýrst og fremst vegna þrýstings þeirra að á Þjóðverja, sem tapað höfðu í heims- styrjöldinni, vora lagðar slíkar stríðs- skaðabætur að þær leiddu til óða- verðbólgu, efnahagskreppu, Hitlers og að lokum beinustu leið til skelfi- legrar nýrrar heimsstyrjaldar. Versalasamningamir sýndu ekki bará að taumlaus hefnigimi sigurveg- arans særir óhjákvæmilega fram næstu eyðileggingu. Bótahringekjan á þriðja áratugnum sýndi jafnframt að aldrei væri hægt að komast í ná- munda við samkomulag um hversu mikið ætti að greiða eða hefði verið greitt. Allar kröfumar sem lagðar vora fram gegn gersigraðu keisararíkinu eftir Versalasamningana námu stjam- fræðilegum upphæðum. Þegar Þjóð- verjar höfðu gengist inn á skuldbind-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.