Tíminn - 21.06.1990, Page 10

Tíminn - 21.06.1990, Page 10
10 Tíminn Fimmtudagur 21. júní 1990 Fimmtudagur 21. júní 1990 Tíminn 11 innan mótssvæðisins. Miðaverðið lækkar að kvöldi laugardags, um það leyti sem kvöldvaka hefst, en þá kostar miðinn 2500 krónur. Okeypis er fyrir böm yngri en 12 ára og engin gjaldtaka er fyrir tjaldsvæði eða hjólhýsi. Mikill fjöldi hrossa Þórarinn Sólmundsson sagði að skráning á mótið væri mjög góð. „Sérstaklega er skráning í skeiðið góð, enda vegleg verð- laun í boði. Það er ljóst að þama verða öll fljótustu hross landsins saman komin“. Lágmarkstímar til skráningar hafa aldrei verið strangari og alls er keppt í 6 hlaupa- greinum. í A- og B-flokki verða samtals 182 hross og sami fjöldi er í báðum ung- lingaflokkum. Keppnishross og sýningar- hross verða um 750. Ljóst er að um 150 kynbótahross verða dæmd á landsmótinu, auk þeirra hrossa sem ræktunarbú sýna. Kristinn Hugason frá Akureyri er í dómnefndinni sem dæma á kynbótahrossin á landsmótinu. Hann hef- ur ásamt öðmm ferðast um landið og dæmt mikinn Qölda kynbótahrossa. Kristinn sagði að útkoman væri góð, bæði hvað varðar kynbótahross almennt og þau hross sem fara á Iandsmót. „Mér líst mjög vel á þau kynbótahross sem fara á landsmót og vænti afar mikils af þeim sýningum á landsmótinu. Það er sjáanlegur stórárangur í hrossarækt á Islandi“. Kristinn sagði jafh- framt að stóðhestaframboðið yrði glæsilegt eftir landsmót. Ríöandi á landsmót Búist við miklum fjölda ríðandi manna á mótið, bæði sem koma í skipulögðum ferð- um á mótið og frá því. „Við erum búnir Eftir Hermann Svein- bjömsson undir að taka á móti allt að 3000 ferða- hrossum. Til viðbótar verða keppnishross á mótinu nærri 800“, sagði Þórarinn. Keppn- ishross verða í sérhólfúm í landi Vind- heima, sem er næsti bær við mótssvæðið. Þórarinn sagði að sjálft mótssvæðið yrði opnað að morgni föstudagsins 29. júní þannig að keppendur og gestir geti komið hrossum sínum tímanlega fýrir. Þórarinn taldi að þeir væru ekki færri en 400 útlendingamir sem fæm í skipulögð- um hestaferðum á mótið og frá því aftur. Ljóst er að þessir helstu fjallvegir verða orðnir vel færir fyrir mótstímann, þ.e. Kaldidalur, Sprengisandsleið og Kjalveg- ur. Þegar er búið að opna leiðina yfir Kjöl og Sprengisandsleið verður opr.uð um mánaðamótin. „Þreytt og syfjuð höfuð lögð á hnakka hestabit og traðk við fljótsins bakka“ Landsmót hestamanna verður haldið á Vindheimamelum í Skagafírði dagana 3. til 8. júli. Mikill fjöldi fólks mun leggja leið sína að Vindheimamelum þessa viku og áætla mótshaldarar að gestir verði á bilinu 13 til 15 þúsund. Það er Landssamband hestamanna sem heldur mótið, en 13 félög á Norðurlandi bera ábyrgð á framkvæmd þess. Þórarinn Sólmundsson, starfsmaður framkvæmdamefndar mótsins, sagði í samtali við Tímann að tungl verði fjærst jörðu sjálfa landsmótshelgina, sem veit á gott veður í Skagafirði, sól og blíðu eins og hún gerist best. Landsmótið hefst þriðjudaginn 3. júlí og því lýkur sunnudaginn 8. júlí og er því lengra en áður hefur verið. Skipulögð dag- skrá verður alla þessa daga frá morgni til kvölds. Mótið hefst með dómum kynbóta- hrossa og afkvæmahrossa. Þeim dómum verður haldið áfram á miðvikudegi, en þá hefst einnig keppni í B-flokki gæðinga. Dómar kynbótahrossa er fyrirferðarmikið dagskráratriði og verður fímmtudagurinn einnig notaður til þess, en samhliða verður keppt í A-flokki gæðinga og eldri flokki unglinga. Mótið verður sett formlega kl. 9 á fostu- dagsmorgun. Eftir setninguna verða kyn- bótahross sýnd og kynnt. Þá hefjast undan- rásir kappreiða og um kvöldið verður al- þjóðleg keppni. Búið er að skrá þátttakend- ur frá 13 þjóðlöndum í þá keppni og fer hún þannig fram, að bestu knapar landanna draga um hesta og etja síðan kapp í nokkr- um greinum. Laugardagurinn byrjar með kynningu á keppendum i A- og B-flokki og unglinga- keppi. Þá verður dómum kynbótahrossa lýst, úrslit kappreiða fara fram og einnig úrslit í alþjóðlegri töltkeppni. Allt gerist á sunnudegi A sunnudegi verður mikið um að vera. Dagskráin þennan lokadag hefst með hóp- reið og helgistund. Frú Vigdís Finnboga- dóttir forseti verður viðstödd og tekur þátt í þessum lið dagskrárinnar. Væntanlega verður Vigdís með í hópreiðinni og eftir hana gróðursetur hún plöntur í tilefni mótsins. Eftir þessa athöfn verður sýnt úr- val kynbótahrossa og sýning ræktunarbúa í beinu framhaldi af því. Mótinu lýkur síðan með úrslitum í A- og B-flokki gæðinga og keppni unglinga í eldri og yngri flokkum. Stefnt er að mótsslitum um kvöldmatar- leytið á sunnudag. Mikið verður um skemmtanir á meðan á mótinu stendur, stiginn verður dans og sungið „meðan dagur í austrinu rís“. Kvöldvaka verður á laugardagskvöldið og dansað við undirleik harmonikku bæði fóstudags- og laugardagskvöld á sérstök- um danspalli sem er á mótssvæðinu. Þá verða einnig dansleikir í Miðgarði og Ár- garði þessa helgi, en þau félagsheimili eru í nágrenni við mótssvæðið. Einnig er fyrir- huguð sérstök dagskrá fyrir unglinga. Aðgangseyrir á mótið verður 4500 krónur og gildir sá miði fyrir allt það sem fram fer ur útvarpsstöð á staðnum og þar verður gerð grein fyrir þvi sem er að gerast á svæðinu. Utvarpið verður beintengt dóm- pöllum og þannig er hægt að fylgjast með j öllu sem fram fer samtímis. Utvarpið verð- ur einnig notað til þess að miðla ýmsum gagnlegum upplýsingum til útlendinga og hugsanlega verður sérstakur útsendingar- : tími á erlendum málum, en einnig verður j mótsskráin með erlendum textum. 30 lögregluþjónar í tengslum viö mótiö Þrettán hestamannafelög sjá um Lands- mót hestamanna að þessu sinni og bera þau öll ábyrgð á því rekstrarlega. Það eru öll félögin á Norðurlandi að eyfirsku félögun- um undanskildum. Búið er að skipuleggja \ vaktavinnu, 950 vaktir verða staðnar yfir mótsdagana sem gera um 74 vaktir á félag. Til viðbótar við það eru um 120 til 130 menn í föstu starfi í sólarhringsvinnu. Björgunarsveitir í Skagafírði annast alla öryggisgæslu ásamt lögreglunni á Sauðár- króki, sem sér um skipulag löggæslu. Þá verða læknar og hjúkrunarfólk á staðnum svo og dýralæknir. Bjöm Mikkaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, sagðist þurfa að fá menn víða að til löggæslustarfa á mótinu. Hann sagði að 30 lögreglumenn þyrfti þá daga sem mótið stæði yfir, sjálfúr hefur Bjöm 13 lögregluþjóna og þarf því 17 annars staðar frá, flestir koma frá Akureyri. Bjöm hefur tekið þátt í skipulagningu umferðar á mót- inu. „Ef það koma 15 þúsund manns á mót- ið, þá má gera ráð fýrir um 5000 ökutækj- um. Það þarf þó nokkuð svæði fýrir svo marga bíla.“ Sérstök bamagæsla verður síðustu þrjá mótsdagana. Þetta er hugsað þannig að fólk geti sett böm sín í pössun í nokkrar klukkustundir á dag. Þá sagði Þórarinn að komið yrði fýrir Ieiklækjum víðar. Gistirými pantaö meö árs fyrirvara Allt gistirými í nágrenni Vindheimamela er löngu upppantað, en ljóst er að útlend- ingar verða ekki færri en 3000. Samkvæmt upplýsingum frá Flugleiðum er reiknað með nærri 4000 útlendingum gagngert á landsmótið. Á hótelinu í Varmahlíð var allt gistirými þar pantað með árs fyrirvara og svo var einnig í Steinstaðaskóla. Nokkrir bæir em með ferðaþjónustu bænda og þar í var svipaða sögu að segja, allt upp pantað með löngum fýrirvara. Sögur hafa borist af því að svimandi háar upphæðir hafi verið boðnar fýrir laust húsnæði nálægt móts- svæðinu. Tungl fjærst frá jöröu „Við höfúm leitað veðurfregna hjá veður- stofum erlendis og útlitið fýrir landsmóts- helgina er mjög gott. Þeir segja að tungl sé fjærst frá jörðu og það þýði sól í Skaga- firði. Við trúum því bara“, sagði Þórarinn að lokum. Sveinbjöm Sævar Ragnarsson, hestamaður, á Gáska. Einar Bollason hjá íshestum sagði að um 250 ferðamenn fæm ríðandi áleiðis á landsmót á vegum fýrirtækisins, ýmist fýr- ir eða eftir. Hann sagði að fýrstu pantanir hefðu farið að berast í þessar ferðir í mars í fyrra og fýrsta Kjalarferðin seldist upp í maí fýrir rúmu ári. Einar óttaðist ekki of mikla umferð ríð- andi manna yfir hálendið á þessum tíma. Hann greindi frá því að í vetur hafi Náttúr- vemdarráð, Landgræðslan, Landssamband hestamanna og Ishestar sett nefnd á lagg- imar til þess að skipuleggja hestaferðir um hálendið og koma á fót nauðsynlegri þjón- ustu. Nú fyrir landsmótið hefur nefndjn náð samkomulagi við aðila, sem ráða mannvirkjum og löndum á þessum Ieiðum, um að vera með fóðursölu og leigja út að- stöðu til gistingar og vörslu hrossa. Búið er að kortleggja leiðina yfir Kjöl og Kaldadal með tilliti til þarfa hestamanna og heysala á þessum leiðum verður stóraukin. Hagagjöld fýrir ferðahross á landsmóts- svæðinu em 100 krónur á hestinn á sólar- hring. Þórarinn Sólmundsson sagðist ekki hafa áhyggjur af því að það væsi um ferða- hrossin. „Við emm búnir að taka á leigu velgróið land af Lýtingsstaðahreppi þar sem þau verða geymd yfir mótið“. Stærsti veitingasalur noröan Alpafjalla Mikill undirbúningur hefur átt sér stað á Vindheimamelum, enda að mörgu að hyggja þegar búist er við öllum þeim fjölda gesta sem um er rætt. Hreinlætisaðstaða hefúr verið stórefld frá því sem verið hefúr. Vatnssalemum verður fjölgað mjög mikið, bæði á mótssvæðinu og á tjaldsvæði. Þór- arinn sagði að unnið væri að því að koma rennandi vatni á öll tjaldsvæði, ásamt því að skipuleggja þau. „Við emm sennilega komin með stærsta veitingahús norðan AlpaQalla", sagði Þór- arinn, en veitingasalurinn á Vindheima- melum hefúr verið stækkaður og nú er hægt að taka í mat í senn um 450 manns. Þá hafa áhorfendabrekkur verið stækkaðar vemlega og er aðstaða fýrir áhorfendur góð að mati Þórarins. Á mótsstaðnum verður rekin umfangs- mikil nýlenduvömverslun á vegum Kaup- félags Skagfirðinga, þar sem seldar verða vömr með tilliti til þarfa tjaldbúðafólks. Einnig verður útibú frá Búnaðarbankanum og margir aðilar verða með kynningu á sínu starfi eða vömm. Framleiddir hafa verið plattar, könnur og fleiri minjagripir sem verða til sölu. „Öll þessi þjónusta Timamynd; Gunnar verður í einu stóm tjaldi, sem er u.þ.b. 150 fermetrar að stærð. Einnig verða minni verslanir víða, sem selja pylsur og gos og svoleiðis", sagði Þórarinn. Búið er að byggja nýtt stóðhestahús, þannig að nú er hægt að taka um 50 stóð- hesta á hús. Þá er búið að laga hlaupabraut- ir og byggja nýjan völl fýrir kynbótasýn- ingamar, sem er staðsettur á melunum fyr- ir norðan aðalsýningarsvæðið. Yfir mótsdagana verður mjög öflug fréttaþjónusta. Gefið verður út fréttabréf, þar sem gerð verður grein fýrir öllum þeim úrslitum sem liggja fýrir, ásamt gagnlegum upplýsingum fýrir mótsgesti. Einnig verð-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.