Tíminn - 21.06.1990, Page 19

Tíminn - 21.06.1990, Page 19
Fimmtudagur 21. júhí 1990 TímínrV 19' ÍÞRÓTTIR Knattspyrna -1. deild: SIGURJÓN SENDI ÞÓR Á BOTNINN HM í knattspyrnu: Frá Jóhannesi Bjamasyni íþróttafréttamanni TimansáAkureyri: Þeir áhorfendur, sem lögðu leið sína á Akureyrarvöll sl. þriðjudags- kvöld, fengu heilmikið fýrir aurana sína. Leikmenn Þórs og Vals spil- uðu ágætis knattspymu, þar sem stuttur samleikur og hreyfanleiki allra leikmanna var í fýrirrúmi. Vals- menn voru þó sterkari aðilinn í leiknum og hertu sóknaraðgerðir sínar æ meir eftir því sem leið á leikinn. Þegar upp var staðið höföu Valsmenn skorað tvívegis, en Þórsarar svöruðu fýrir sig með einu marki. Bjami Sveinbjömsson Þórsari átti íyrsta hættulega marktækifæri leiks- ins, en hann skallaði yfir úr ákjósan- legri aðstöðu eftir íyrirgjöf Siguróla Kristjánssonar. Valsmenn áttu vart skot að marki íyrr en á 26. mín. en þá skoraði Sigurjón Kristjánsson íyrsta mark leiksins með glæsilegum skalla, eftir undirbúning Þorgríms Þráinsson- ar. Þórsarar jöfhuðu aðeins fjómm mín. síðar með glæsilegu marki. Luca Kost- ic skoraði beint úr aukaspymu af 25m færi og átti Bjami Sigurðsson mark- vörður Valsara ekki nein tök á að veija. Liðin áttu sitt dauðafærið hvort fyrir hálfleik, en þau misfómst herfilega. Valsmenn komu síðan tvíefldir til leiks í síðari hálfleik og sókn þeirra þyngdist jafht og þétt. Áttu þeir all mörg færi, en þau nýttust ekki fyrr en á 83. mín. Sigurjón skallaði þá aftur í mark heimamanna af stuttu færi. Hann hafði rétt áður verið í sannkölluðu dauðafæri, þannig að sigurmarkið hafði legið í loftinu um hríð. Niðurstaðan var því sigur Valsmanna sem spiluðu vel allan leikinn. Einar Páll Tómasson var mjög ömggur í vöm þeirra og Siguijón mjög ógnandi í ffemstu víglínu. Hjá Þórsurum var Nói Bjömsson sterkur, en athygli má vekja á því að Guðmundur Benedikts- son, sem enn er leikmaður með 3. ald- ursflokki þeirra Þórsara, kom inná í sínum fyrsta 1. deildarleik. Erþarmik- ið efni á ferð, þó ekki hafi mikið borið á honum í þessari fyrstu eldskím hans. Vamarskipulag Þórsara hrundi gjör- samlega í síðari hálfleik eftir að hafa verið mjög vel skipulagt í þeim fyrri. Dómari var Eyjólfur Olafsson og dæmdi hann leikinn vel. JB/BL Svíar úr leik- Costa Ríca áfram -Brasilía vann Skota sem eiga enn veika von um að komast áfram Keppni í C-riðli HM í knattspymu á ftalíu lauk í gær. Brasilíumenn tryggðu sér efsta sætið í riðlinum með 1-0 sigri á Skotum í einum lakasta leik keppninnar til þessa. Á sama tíma tryggðu Costa Ríca menn sér sæti í 16 liða úrslitum keppninnar með 2-1 sigri á Svíum. Þar með er þátttöku Svía í keppninni lokið, þeirurðu í neðsta sætinu í C-riðli með ekkert stig. Það var greinilegt á leik Brasilíu- manna og Skota að bæði liðin gerðu sér jafntefli að góðu, það hefði nægt Skotum til að komast áfram. Það var á 82. mín. að varamaðurinn Muller gerði sigurmark Brasilíumanna. Ro- mario, sem nú lék með liði Brasilíu í 3 mánuði, var nálægt því að skora á 65. mín. en Jim Leighton markvörður Skota sá við honum. Hættulegasta færi sitt í leiknum fengu Skotar á 76. mín. en Brasilíumenn björguðu á línu eftir skalla frá Roy Aitken. Skotar verða að bíða eftir úrslitun- um í E-riðli til að vita hvort þeir komast áfram en það ræðst í dag. Þá mætast Belgar og Spánverjar og S- Kóreumenn og Urúgvaymenn. I dag ráðast úrslit einnig í F-riðli þegar Englendingar mæta Egyptum og Irar mæta Hollendingum. Brasilíumenn fengu fullt hús stiga í riðlinum og leika því áfram í Tórín- óborg. Ekki er enn ljóst hveijir verða mótherjar þeirra í 16 liða úrslitunum. Svíar úr leik Mark gömlu HM hetjunnar Johnny Ekström dugði Svium skammt, því Costa Ríca menn bættu tveimur mörkum við í síðari hálfleik. Vonir Svía um að komast áfram í keppninni vöknuðu við mark Ekströms á 32. mín. Fyrirliði Costa Ríca jafnaði á 75. mín. og sigurmarkið gerði varamað- urinn Hernan Medford þremur mín. fyrir leikslok. Þar með varð Costa Ríca í öðru sæti í riðlinum og mætir Tékkum í 16 liða úrslitunum. BL w * Iþróttahátíð ISI 1990 sett eftir viku: Dagskrain mjog fjolbreytt Íþróttahátíð ÍSf 1990 hefst á fimmtudaginn í næstu viku og stendur til 1. júlí. Þessar mikiu hátíðir eru haidnar á 10 ára fresti og er sú í ár sú þríðja f röðinni. Umfangið er gíhirlegt. Gert er ráð fýrir að alls taki um 30 þús- urtd manns þátt í hátíðinni allri, en vetrarhátíðin var haldin á Ak- ureyri 23. mars -1. apríi si. vetur. Búist er við að um 5 þúsund verölaunapeningar verði verttir auk 400 hundruð bikara. Undirbúningur Undirbúningur hefur staðið í 3 ár eða frá því framkvæmdastjórn ÍSÍ skipaði íþróttahátiðarnefnd 21. maí 1987. Siðan hefur nefndin lialdið 29 fundi. Þá hafa verið haldnir 134 fundir með ýmsum samstarfsaðilum sem tengjast há- tíðinni. TO þess að styrkja fjárhags- grunn hátíðarinnar samdi Iþróttahátíðarnefnd við íslands- banka, Vífilfell og Heilbrigðis- ráðuneytið um að vera styrktar- aðilar hátíðarinnar. Margt annað en beinír íþrótta- viðburðir verða i gangi í tengslum við hátíðina. Sem dæmi má nefna að útvarpsstöð verður starfrækt á meðan á henni stendur og munu kunnir kappar eins og Atli Eð- valdsson og Jakob Pétursson láta móðan mása. Útvarpsstjóri verð- ur Guðntundur Gíslason. Þá verður starfrækt pósthús í and- dyri Laugardalshallar hátiðar- dagana og gefin verða út tvö frí- merld í tilefni hátíðarinnar. Einn- ig verður haldin myndlistasýning í anddyri Hallarinnar í samvinnu við íþróttadeild Sjónvarpsins. Verðlaunaafhendingar verða á hverjum degi kl. 17.30 við útitafl- ið í Lækjargötu í samvinnu við Miðbæjarsamtökin. Dagskráin Dagskrá hátiðarinnar er vægast sagt mjög fjölbreytt og of langt mál yrði að telja aHt upp. Öll sér- sambönd ÍSÍ bjóða uppá viða- mikla dagskrá og í langflestum tilfelium koma hingað til lands er- lendir gestir til þátttöku i hátíð- inni. Þá verður einnig keppt í nokkr- um h'tt þekktum greinum á hátíð- inni svo sem veggtennis, þríþraut, skylmingum, ruðningi (amerísk- um fótbolta), keilu og fallhlífar- stökki. Ýmis sérverkefni verða einnig áberandi á hátiðinni: Æskuhlaupið fyrir krakka á aidrinum 7-14 ára fer fram á Miklatúni sunnudaginn 1. júh kl. 14.00. fþróttir og leikskólina 3-6 ára börn af leikskólum og dagheimil- um af Stór-Reykjavíkursvæðinu taka þátt i íþróttahátíð, minnst 3.500 börn. Þau taka þátt i opnun- arhátiðinni og sérstakri hátíð daginn eftir á Gervigrasvellinum, þar sem efnt verður til hópleik- fimi og leikja. Kvennahlaupið-Ólympíuhlaup- ið. Keppt verður i Garðabæ 30. júní kl. 14.00. Allar konur 8-80 ára eru velkomnar i hlaupið en hlaupnir verða 2 km. og 5 km. Af dagskrá sérsambandanna má nefna eftirtalin atriði, en upptaln- ingin er engan vegin tæmandi: Blak. Haldin verður smáþjóða- keppni í blaki kvenna með þátt- töku Uða frá Luxemborg, Færeyj- um og San Marínó, auk íslands. Auk þess verður unghngamót, öldungamót og meistaraflokks- mót karla og kvenna. Badminton. Haldið verður öflugt unghngamót með þátttöku sterkra spilari frá Evrópu. Borðtennis. Haldið verður ald- ursflokkamót með 120-150 kepp- endum. Einnig verða haidnar sýningar í tengslum við aðra íþróttaviðburói. Tveir heims- þekktir japanskir keppendur munu þar sýna snflli sína. Friálsar iþróttir. Keppt verður við Ira og Skota, iandskeppni i karlagreinum en einungis verður keppt við íra í kvennagreinum. Að auki verður barnamót 12 ára og yngri og tugþrautarkeppni milh Norðurlands og Suðurlands. Fimleikar. Meðal fimieikaatriða á hátíðinni má nefna sýningu rússneskra og a-þýskra fimleika- manna og landskeppni við Skota. Glíma. Ghmumenn verða mjög alþjóðlegir á hátíðinni og þeir fá marga erlenda gesti í heimsókn. Keppt veður á Gouren og axlar- tökum auk ísiensku glímunnar. Golf. Föstudaginn 29. júní verð- ur keppt samtímís hjá öflum 33 golfklúbbum landsins. Þá verður haldið hér á landi Evrópumeist- aramót unghnga dagana 14.-15. júní og verður mótið hluti Iþróttahátiðar. Mótið fer fram á GrafarhoItsveUi í umsjá GR. HandknatUeikur. Fjögurra ianda mót með þátttöku Dana, Norð- manna og Kúwaitmanna auk ís- lendinga. 0°^ íþróttir fatlaðra. ÍFR fær crlenda gesti í heimsókn þar á meðal dan- spar sem sýna mun rokkdans í hjólastól. Keppt verður i bogfimi, sundi, boccia og borðtennis og farið verður í hópgöngu. Júdó. Sex bestu júdómenn lands- ins í hverjum þyngdarflokki munu etja kappi, áætlaður fjðldi keppenda er 120. Körfuknattleikur. Körfuknatt- leiksbúðir fyrir börn og unglinga 9-17 ára með þátttöku erlends þjálfara. Auk þess verður haldið hér á landi Evrópumót í minni- bolta í ágúst sem hluti af hátíð- inni. Knattspyma. Viðamestu knatt- spyrnuviðburðirnir á hátíöinni eru Tommamótið í Vestmanna- eyjum, Essómót KA á Akureyri TKAN & ÍÞROTTiR í. mm im ÍÞRÓTTAHÁTlÐ 1990 Veggspjald Íþróttahátíöar 1990. og GuII- og Silfurmót fyrir stúlk- ur á vegum UBK. Auk þess verð- ur méistaraflokksleikur Reykja- vík-Landið og landshlutakeppni í 4. og 5. flokki. Lyftingar. Lyftingamenn gangast fyrir unglingamóti og kynningu á íþróttinni og keppni þeirra eldri. Karate. 150 karatemenn sýna á opnunarhátíðinnl, en auk þess verður haldið karetemót með þátttöku sænskra keppenda. Siglingar. Gert er ráð um 200 keppendum í þremur mótum sigl- ingamanna, kænumóti, segl- brettamóti og kjölbátamóti. Skotíþróttin. Skotmenn verða með ýmis atriði á hátiðinni, svo sem hagiabyssuskotfimi, staðlaða skammbyssukeppni og svokall- aða enska keppni. Sund. Aldursflokkamótið i sundi, sem fram fer í Keflavík, verður einn af stærstu dagskrár- hðunum á íþróttahátíðinni. Kepp- endur verða líklega um 500 og starfsmenn um 100. Þá halda Æg- ismenn alþjóðiegt sundmót með þátttöku erlendra keppenda. Tennis. Út um landsbyggðina, á Akureyri, Stöðvarfirði og Ólafs- firði verða haldin tennismót og sigurvegarar á þessum mótum koma síðan til Reykjavíkur og keppa á Íþróttahátíðarmótinu. Hestaíþróttir. Hópreið 120 hesta- manna verður á dagskrá opnun- arhátiðarinnar. Þá verða iþrótta- sýningar á félagssvæði Fáks. Mót verða ekld haldin, þar sem lands- mót hestamanna fer fram í vik- unni eftir Íþróttahátíðina. Keila. Keilunefnd ÍSÍ gengst fyr- ir 4 daga keilumóti, þar sem keppt verður í 5 aldursflokkum drengja og stúlkna og karla og kvenna. Aó lokum Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu verður mikið um að vera á Íþróttahátíðinni. Allir ættu að finna eitthvað viö sitt hæfi, cn mestu máli skiptir er að vera með. Glcðilcga hátið og góða skcmmt- un. BL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.