Tíminn - 27.06.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Forseti Rúss-
lands, Boris Jeltsin, gaf til
kynna í gær að umbótasinn-
ar reyndu nú að fresta mikil--
vægri ráðstefnu sovéska
kommúnistaflokksins sem
átti að halda í næstu viku.
Þeir hafa áhyggjur af árás-
um íhaldsmanna á forystu
flokksins að undanförnu en
íhaldsmenn verða í meiri-
hluta á ráðstefnunni.
LONDON - Irski lýðveldis-
herinn, IFRA, sagðist bera
ábyrgð á sprengingu í einka-
klúbbi í London sem er fjöl-
sóttur af leiðtogum (halds-
flokksins. Fjórir menn særð-
ust í sprengingunni. Tals-
menn ríkisstjórnarinnar
sögðu að árásin gæti boðað
breyttar starfsaðferðir hjá
írskum skæruliðum.
DUBLIN - Leiðtogar Evr-
ópubandalagsins voru sam-
mála um að hjálpa forseta
Sovétríkjanna, Mikael Gor-
batsjov, með því að senda
honum efnahagsaðstoð.
Fundur leiötoganna í Dubiin
samþykkti líka að aflétta ein-
hverjum viðskiptahömlum á
S-Afríku ef stjórn F.W. de
Klerks héldi áfram umbótum
í kynþáttamálum.
NEW YORK - Milljarða-
mæringnum Dónaldi Trump
tókst að fá 20 milljón dala
bankalán til að greiöa af
gjaldföllnum lánum sínum.
Viðræður við bankamenn
um skuldir Trumps hafa
staðið vikum saman.
WASHINGTON - Utanrík-
isráöherra Egyptalands, Es-
mat Abdel-Magud, afhenti
forseta BNA „skilaboð um
frið" frá forseta Egyptalands,
Hosni Mubarak. Hann vill
draga úr vaxandi ofbeldi í
Miðausturlöndum.
KÚWAIT - (rakar neituðu
beiðni frá „Sameinuöu arab-
ísku furstadæmunum“ um
aukin olíuframleiðslukvóta
hjá OPEC-ríkjunum. (rakar
sögðu að OPEC ætti heldur
að stefna að því að hækka
olíuverð um 40%.
BÚDAPEST - Þingmenn
gáfu ríkistjórn landsins fyrir-
mæli um að hefja viöræður
um úrsögn Ungverjalands úr
Varsjárbandalaginu.
BÚKAREST - Rúmenskur
ráðherra sagði að efnahags-
legar refsiaðgerðir myndu
bitna harðast á almenningi.
Vesturlönd ihuga að beita
Rúmena efnahagsþvingun-
um en ritari landbúnaðar-
ráðuneytisins, Victor Surdu,
sagði að allir aðilar bæru
nokkra ábyrgð á blóösúthell-
ingunum 13. og 15. júní.
LUSAKA - Ríkisstjórn
Zambíu setti á útgöngubann
í höfuðborginni Lúsaka. Hún
reynir nú að bæla niður
óeirðir, vegna hækkunar á
mat, sem kostað hafa 14
menn lífið.
MONRÓVÍA - Þúsundir
kristinna manna og múslima
þrömmuðu fram hjá her-
mönnum, veifuðu pálma-
greinum og hvöttu til friðar í
borgarastríðinu. Sumir
kröfðust afsagnar forsetans
Samúels Does.
Miðvikudagur 27. júní 1990
Vaclav Havel, óformlegur en vinsæll forseti, í Þjóðleikhúsinu í febrúar 1990 þar sem hann horfði á leikritið
„Endurbyggingin" eftir sjálfan sig.
Forsetakosingar í Tékkóslóvakíu 5. júlí:
HAVEL MJÖG
STARFSAMUR
Vaclav Havel forseti Tékkó-
slóvakíu heimsótti 12 erlend
ríki, tók sér flögurra daga frí og
skrífaði ekkert leikrít þá sex
mánuði sem hann hefur gegnt
forsetaembætti til bráðabirgða.
„Ég hef ekkert skrifað síðan ég
tók við embætti. Það eina sem
ég skrífaði voru helstu ræður
mínar", sagði leikrítaskáldið og
fýrrverandi andófsmaðurínn
Havel á mánudag en þá hélt
hann síðasta blaðamannafund
sinn fyrirforsetakosningar sem
verða 5. júlí.
Havel var í gráum jakkafötum, brosti
og renndi sér hikandi úr skónum
meðan ritari las skýrslu um forscta-
störf hans fyrir fréttamenn. Frá 1.
janúar og til 25. júní fór forsetinn í
tuttugu og eina ferð um Tékkóslóv-
akíu, tók þátt í 34 opinberum móttök-
um og fór í átta ferðlög til 12 landa
sagði forsetaritarinn Michael
Zantovsky. Hann heimsótti V-Þýska-
land tvisvar og kom við í Moskvu,
Washington og Tel-Aviv í opinberum
fcrðum sínum að ógleymdri heim-
sókn hans til Islands í febrúar.
Havcl eyddi (jóru og hálfú ári í
fangelsi á meðan kommúnistar fóru
mcð völd fyrir að skrifa smásögur og
leikrit um frelsi einstaklinga. Fyrir-
rennari Havels í starfi Gústaf Húsak
scm lét af völdum í desember var for-
scti í 14 ár en komst sjaldan í fréttir
erlendis enda hitti hann fáa aðra en
kommúnistaleiðtoga og bandamenn í
Varsjárbandalaginu.
Enn hefur enginn þekktur einstak-
Forseti Bandaríkjanna Georg
Bush sagði á þriðjudag að hækkun
skatta væri nauðsynleg til að draga
úr gríðarlegum fjárlagahalla
Bandaríkjastjómar. 1 kosningabar-
áttunni hét hann því að skattar
yrðu ekki hækkaðir ef hann yrði
kosinn forseti en nú segir hann að
stjómin verði að hækka skatta til
að afla íjár til að mæta útgjöldum
vegna hárra vaxta, stöðnun efna-
lingur gefið kost á sér sem mótfram-
bjóðandi Havels til embættis forseta.
Fréttastofa Tékka, CTK sagði á
mánudag að „Sannleiksflokkurinn“
hefði ákveðið að bjóða fram leiðtoga
sinn til embættis en sá flokkur reynd-
ist vera of smár til að taka þátt í þing-
kosningunum fýrir tveimur vikum.
Havel ætlar að bíða þess að nýtt þing
Norðmenn hafa beðið stjómameínd
Efnahagsbandalags Evrópu um að
íhuga að veita Noregi einhvers konar
aukaaðild að evrópska gjaldmiðils-
kerfinu, EMS (European Monetary
System). Fjármálaráðherra Noregs,
Ame Skauge, lagði fram minnisblað
með spumingum um þátttöku Noregs
á fundi í Bmssel að sögn Henning
Christophcrson, stjómannanns fjá-
máladeildar EBE. „Nefndin mun
skoða málið með jákvæðu hugarfari
sem beinist að því að auka stöðugleika
efnahagsstjómar í löndum utan EBE“
hags og vegna ábyrgða ríkisins á
sparnaði byggingarlánasjóða sem
orðið hafa gjaldþrota. Bush hélt i
gær tveggja klukkustunda fund
með leiðtogum bandaríkjaþings og
í skriflcgri tilkynningu sem birt
var eftir fundinn kom hin breytta
afstaða hans fram. Leiðtogar
Demókrala hafa áður sagt að nauð-
synlegt væri að hækka skatta. Þeir
vilja þó ekki láta kenna sér um
og rikisstjóm taki við völdum í þess-
ari viku áður en hann tilkynnir hvort
hann gefi kost á sér. „Borgaravett-
vangur“ vill tilnefna Havel til for-
setaembættis en kosið verður um það
á þingi í næstu viku. Havel nýtur víð-
tæks stuðnings og hafa jafnvel
kommúnistar sagst munu styðja til-
neftiingu hans.
sagði talsmaður EBE við Reuter. Hann
sagði að ósk Norðmanna jafngilti ekki
formlegri umsókn Noregs að EMS
sem var stofnað 1979 af ríkjum Efna-
hagsbandalagsins sem á endanum
stefna að því að koma upp sameigin-
legum gjaldmiðli. Öll lönd EBE nema
Bretland, Grikkland og Portúgal hafa
skuldbundið sig til að halda gengi
gjaldmiðla sinna innan ákveðinna
marka en enginn lönd em nú aukaaðil-
ar að EMS. Austurrikismenn og Sviss-
lendingar hafa þó lengi látið gjald-
miðla sína fylgja v-þýska markinu.
nýja óvinsæla skatta og George
Mitchell frá Main vildi ekki
hlakka yfír breyttri afstöðu Bushs
heldur sagði aðeins:“ Tilkynning
forsetans talar sínu eigin máli“.
Búist er við að íjárlagahalli
Bandaríkjastjómar verði 160 millj-
arðar dollara á þessu ári en hann
gæti náð 230 milljörðum ef reiknað
er með kostnaði við að bjarga
gjaldþrota byggingarlánasjóðum.
Jarðskjálftinn í íran:
■ ■
Flem
finnast
tæplega
á lífi
Björgunnrmenn hafa nú náð að
komast tií síðasta þorpsins í norð-
vestur-Íran sem hrundi í hörðum
jarðskjálfta á fimnitudag. Þótt
menn geri ckki róð fyrir að finna
ileiri á ÍIS f rústunum mun áfram
verða Jeitað að minnsta kosti í
viku að sögn starfsmanns Rauða
háifmánans i íran. Nokkur þorp
hafa verið einangruð döguni sam-
an eftir jarðskjálftann sem nú er
taiinn aö hafi orðið 50.000 mönn-
um að bana. Hættulegt er að fara
um vegi til Roudbar og Manjol
sem eru verst leiknu þorpin í GQ-
an-héraðL Vegna smærri skjálfta
i kjölfar aðaiskjáiftans
er hætta á skriðufollum úr fjalls-
hlíðum en þau hafa gert björgun-
arntönnuni erfitt um vik að kom-
ast um jarðskjálftasvæðiö.
Þúsundir björgunarmanna hafa
unnið nótt sem dag við leit að lif-
andi fóiki í rústurn meira en 300
þorpa ðg kaupstaða í Gilan og i
Zanjan-héraði sem eru um 200
kflómctra norðvcstur af Tchcran.
Orðrómur var í gær á sveimi um
höfuðborgjna Teheran om að
fólki hcföi verið bjargað en ekki
tókst að fá hann staðfestann.
Um hálf milljón írana er heimii-
islaus og þyriur í flugher iandsins
hafa kastað niður neyðarbirgðum
og tjöldum hjá þorpum sem ein-
angrast hafa vcgna skriðufaila.
Nærri 40 flugvélar ientu í Teher-
an i gær mcö hluta af þeirri grið-
arlegu neyðarhjálp sem erlendar
ríkisstjórnir hafa scnt til landsins.
Þótt ríkisstjórnir hafi verið öriát-
ar verður það saraa ekki sagt um
almenning á Vesturlöndum. Þeg-
ar jarðskjálfti varð í Armeníu
1988 söfnuðust meiri fjárhæðir
meðai almennings beldur en nú
þótt sá jarðskjálfti hafi verið
minni og færri hafi látist Svíar
eru þar undantckning cn þelr
hafa verið rausnariegri við írani
en þcir voru við Armcna, Tals-
menn v-þýska Rauða krossins
sögðu að ástandið á neyðarsvæð-
um í íran væri strax orðið skárra
en það var í Armeníu mörgum
vikum eftir skjálftann. Þeir sögðu
að skipulagning væri góð og
dreifing hjáipargagna gengi vel.
Margir hefðbundnir óvinir írana
hafa boðið fram hjáip sína. Þar i
hópi eru Bandaríkjamcnn, írak-
ar og Saudi- Arabar. Salman
Rushdie, höfundur „Sálma Sat-
ans“ sem á yfir höfði sér dauða-
dóm klcrkastjórnarinnar, er
mcða) þeirra sem hafa látið af
hendi fé til styrktar nauðstödd-
um. Margir ráðamcnn trana hafa
þó sagt að þessi óvænti velvilji
muni ekki breyta utanríkisstefnu
þeirra og að dauðadómurínn yfir
Rushdie standi enn.
Salman Rushdle sendl 5000 steri-
Ingspund til hjáipar frönum en
dauðadómurinn stendur enn segir
þingmaðurinn Ayatollah Sadeq
Khalkhríi.
Fjálagahalli Bandaríkjanna neyðir forsetann til að svíkja kosningaloforð:
SKATTAR HfEKKA
íhuga aukaaðild:
Norðmenn vilja
tengjast gjald-
miðilskerfi EBE