Tíminn - 29.06.1990, Side 2

Tíminn - 29.06.1990, Side 2
2 Tíminn Föstudagur 29. júní 1990 Þriggja daga viðræðum um nýtt álver, sem fóru ffam í Reykjavík, lauk i gær. Rætt var um hugsanlega staðsetningu nýs álvers og eru aðilar í viðræðunum nú reiðubúnir að staöfesta að aðeins þrír staðir komi nú til greina; þ.e. Eyjafjörður, Keilisnes á Vatnsleysuströnd og Reyðarflörður. Þar með er Ijóst að Straumsvík er ekki lengur inni í myndinni sem stað- urfýrír álveríð. Bæjarráð Haffiarfjarðar hcf'ur sent frá sér mótmæli vegna þessarar ákvörðun- ar og mun leita fulltingis þingmanna til að breyta henni. Einnig samþykkti það á fundi sínum að óska eftir beinum viðræðum við Atlantsáls-aðilana. í yfirlýsingu frá bæjarráði segir að rannsóknir hafi sýnt að Straumsvíkur- svæðið sé hagkvæmari og ódýrari kostur en flestir aðrir staðir sem nefnd- ir hafi verið. I Ijósi þess að ýmsir inn- lendir aðilar hafa viljað staðsetningu nýs álvers út á landi spyr bæjarráðið hver sé hlutdeild innlendra aðila í ákvörðuninni og á hveiju hún sé byggð. Að sögn Jóhannesar Nordal, for- manns álviðræðunefhdar, em það ekki byggðarsjónarmið sem hér ráða ferð- inni. Hann segir ástæðu þess að Straumsvík sé úr sögunni fyrst og fiemst þá að erlendu aðilamir hafi tal- ið að ekki væri grundvöllur fyrir sam- starf við Alusuisse, sem rekur álver í Straumsvík, og því hagkvæmara að reysa álverið annars staðar. Sameiginleg Iokaákvörðun um stað- setningu verður tekin í september. Samningsaðilar hafa lýst ánægju sinni með framvindu samninganna og viðræðumar í Reykjavík. Þar ítrekuðu þeir þann ásetning að ljúka samning- Álviðræðunefnd hefur nú dæmt Straumsnes úr leik. Hafnfirðingar eru ekki ánægðir með það. um um nýtt álver fyrir 20.september. Drög að nokkrum helstu samningum hafa verið gerð og liggja fyrir til um- fjöllunar. Helstu samningamir era að- alsamningur, orkusölusamningur og samkomulag um umhverfismál. I þessum viðræðum fúlltrúa stjóm- valda við fúlltrúa Atlantsáls- aðilanna hefúr verið fjallað um veigamestu þætti samstarfsins, s.s. skattamál, orkumál og umhverfismál auk staðsetningu. „Það er farið rækilega í gegnum alla megin þætti málsins og enn hefúr ekk- ert komið fram sem bendir til annars en að menn séu staðfastir í að ljúka samn- ingum í haust,“ sagði Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra í samtali við Tímann. A fúndinum í Reykjavík var mikið fjallað um orkuverð og orkusamning- inn, bæði hvað varðar tæknilegar og fjárhagslegar stærðir og einnig um skattameðferð. „En það er mest um vert að fá ffam svo skýran vilja á þessum fúndum að hægt sé að fara í undirbúningsfram- kvæmdir vegna virkjunar sem heim- ildir vora veittar til með virkjunarlög- unum í maí s.l. Eg er vongóður um að það verði hægt,“ sagði Jón. GS./hs/eó Viðraeður um nýtt álver eru komnar vel á veg: Straumsvík úr sögunni Deilurnar á Mógilsá blossa upp að nýju í kjölfar yfirlýsingar landbúnaðarráðherra: DEILUEFNIÐ ER LEYNDÓ Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra sendi frá sér yfiríýsingu vegna lausnarbeiðni fráfarandi forstöðu- manns Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá, Jóns Gunnars Ottóssonar, þar sem segir að málið sé ekki flóknara en svo að starfsmaður hafi sagt upp og jafnframt tilgreint að hann treysti sér ekki til að vinna við þær að- stæður sem starfið byði upp á en átök um yfirvinnumál for- stöðumanns og starfsmanna á Mógilsá sé meginefni deil- unnar. Timanum hefur ekki tekist að fá nánari upplýsingar um þetta deilu- efni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Jón Gunnar Ottósson sagði í útvarp- sviðtali á Rás 2 að deilan stæði um faglegt sjálfstæði Rannsóknastöðvar- innar og að þeir hafi verið innan allra fjárheimilda og yfirvinna hafi verið minni þar en annars staðar. i yfirlýsingu landbúnaðarráðherra segir að forstöðumaðurinn á Mógilsá hafi ekki farið eftir reglum um yfir- vinnu sem gilda skyldu fyrir starfs- menn Skógræktarinnar en stofnun- inni var gert að draga úr rekstrarút- gjöldum við afgreiðslu fjárlaga 1989. Virtist hann telja sér það óskylt þar sem Mógilsá væri með sérmerkta íjárveitingu í fjárlögum og staða deildarinnar slík að ekki bæri nauð- syn til að draga úr yfirvinnu. Landbúnaðarráðherra segir enn- ffernur að Jón Gunnar hafi ekki borið neinar fjárskuldbindingar af neinu tagi undir skógræktarstjóra, stjóm stöðvarinnar né landbúnaðarráðu- neytið, heldur hafi hann tekið sér vald eins og hann væri algerlega sjálfstæð- ur og æðsti maður stofnunar. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FL.B1986 Hinn 10. júlí 1990 erníundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 9 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: ___________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 4.259,55_ Ofangreind fjárhæð ervextiraf höfuðstól spariskírteinannafyrirtímabilið 10. janúar 1990 til 10. júl í 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 2905 hinn 1. júlí nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 9 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1990. Reykjavík, 29. júní 1990 SEÐLAB ANKIÍSLANDS Einnig segir hann í yfirlýsingunni að Jón Gunnar hafi gengið æ lengra í því að afneita með öllu tilvist skóg- ræktarstjóra sem yfirmanns síns og eru bréfskriftir þeirra í milli frá febrúar til apríl sagðar vitna um þetta, „auk þess sem sem þar er á köflum orðalag að finna sem telja verður með fádæmum í samskiptum undirmanns við yfirmann sinn,“ eins og segir orðrétt. Jón Gunnar sagði í útvarpsviðtaiinu að Rannsóknastöðin að Mógilsá hafi verið innan allra Ijárheimilda og starfsmenn hafi unnið meira en þeir fengu greitt fyrir. Hann sagði að í byrjun hvers árs hafi hann gert íjár- hags- og starfsáætlanir sem stjóm stöðvarinnar fór yfir ásamt skógrækt- arstjóra og þær síðan sendar í land- búnaðarráðuneytið. Eftir þeim hafi síðan verið starfað. Jón Gunnar sagði ennfremur að hann hefði fengið allar greiðslur, sem hann hefði haft til um- ráða, frá fjármálaráðuneyti í gegnum landbúnaðaráðuneyti og að fjármála- stjórar ráðuneytanna hafi getað fylgst nákvæmlega með greiðslum til stöðvarinnar. Því hafi ekki verið um það að ræða að hann tæki sér eitthvað vald. Jón Gunnar sagðist að eftir að hann hafði frétt af greinargerð landbúnað- arráðherra hafi hann talað við fjár- laga- og hagsýslustjóra og ríkisend- urskoðun og beðið þessa aðila að taka saman að taka saman reglur sem giltu um stöðina í heild og um þær greiðslur sem hafa verið á Rann- sóknastöðinni til að fá hið rétta fram í þessu máli. Tíminn reyndi ítrekað að fá upplýs- ingar í gær um hve mikið starfsmenn Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá hafi farið fram úr áætluðum yfir- vinnustundum og um greiðslur vegna þeirra en landbúnaðaráðuneytið og ríkisendurskoðandi neituðu að láta það uppi. —só Þjóðarþotan gæti farið að hreyfast á næstunni: Hluti gagna fundinn „Það era menn á Keflavíkurflugvclli í dag að kanna vélina og undirbúa hana undir frekari viðgerð sem þarf að setja hana í.“ Þetta sagði Amgrim- ur Jóhannsson forstjóri Atlanta flug- félagsins sem keypti vélina af ríkinu fyrr í vetur en vegna þess að upplýs- ingar um viðgerðarsögu vélarinnar hefúr vantað þá hefúr ekki verið hægt að ganga frá kaupunum. Nú er lausn málsins hins vegar í sjónmáli og hægt að greiða „Staðgreiðsluþot- una“. Amgrímur sagði að vélin hafi ekki verið veðhæf án upplýsinga um sögu vélarinnar. Þær upplýsingar virðast hins vegar vera á leiðinni og Am- grímur sagðist vonast til að sjá fyrir endann á því fljótlega. „Eg er búinn að fá yfirlýsingu frá mönnum í lofl- ferðaeftirlitinu og mönnum frá Am- arflugi sem sóttu pappírana sem vantaði" sagði Amgrímur þegar hann var spurður um hvort hann hefði fengið gögnin í hendur. „Við höfum haft tékkann í vasanum lengi en eram aðeins búnir að bíða eftir þessum gögnum." Það er hlutskipti ríkisins, sem selj- anda vélarinnar, að útvega tilskilin gögn sem eiga að fylgja vélinni. Mörður Amason hjá Fjármálaráðu- neytinu staðfesti að þessi gögn hefðu borist en sagði þó aðeins að um hluta þeirra væri að ræða. „Fyrri hlutinn er fundinn, og fjallar um þegar vélin var í viðgerðarþjónustu á Irlandi, en ekki allur pakkinn." Mörður sagði að mál- ið væri ekki þar með leyst en hins vegar væru góðar líkur á þokkalegri lausn í þessu pappíramáli. Hann taldi of snemmt að kveða úr um hvort þessi fyrri hluti sögu vélarinnar nægði til lausnar málsins. „Það er hins vegar léttara yfir mönnum að hafa þó fundið eitthvað" -hs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.