Tíminn - 29.06.1990, Síða 4

Tíminn - 29.06.1990, Síða 4
4 Tíminn Föstudagur 29. júní 1990' FRETTAYFIRLIT MOSKVA - Á þingi sov- éskra kommúnista í næstu viku verður lagt til að stjórn fiokksins verði endurskipu- lögð meðal annars meö því að stjórnarnefnd flokksins „Politburo" verði lögð niður og að embætti flokksritara verði afnumið. Þetta segir í drögum að lögum sem birt hafa verið fyrir setningu þingsins. TOKÝÓ - Japanir og Bandaríkjamenn komust í gær að samkomulagi um leiðir til að draga úr gríðar- legum ójöfnuði í sölu varn- ings milli landanna. Utanrík- isráðherra Japans sagði að samkomulagið myndi leysa deilur sem hafa varaö í 10 ár og valdið ósætti milli ríkis- stjórna landanna. JERUSALEM - Forsætis- ráðherra (sraels, Yitshak Shamir, sagði forseta Bandaríkjanna, Georg Bush, að ríkisstjórn (sraels styddi landnám gyðinga á hertekn- um svæðum Araba og hún myndi aldrei samþykkja að PLO ætti nokkurn hlut í frið- arviðræðum við Palestínu- menn. BÚKAREST - Forsætis- ráðherrann Petre Roman til- nefndi nýja ríkisstjórn sem á að koma á markaðsbúskap og bæta ímynd landsins á Vesturlöndum. Hann skipaði nýjan fjármálaráðherra og utanríkisráðherra en sömu menn eru áfram yfirmenn lögreglumála. VÍN - Austur-Þjóðverjar lögðu til að þýsku ríkin sam- þykktu að takmarka fjölda hermanna sinna og ryddu með því úr vegi viðræðn- anna í Vín enn einni hindrun um minnkun herstyrks í Evr- ópu. (CFE). MOSKVA - Tveir menn reyndu að ræna flugvél með 165 farþegum og beina henni til Tyrklands. Að sögn Tass fréttastofunnar tókst áhöfn vélarinnar að yfirbuga flugræningjana. LUSAKA - Forseti Zambíu, Kenneth Kaúnda, kom opin- berlega fram í miðborg höf- uðborgarinnar Lúsaka og reyndi að róa fólk en 24 menn hafa dáið í mataró- eirðum undanfarna daga. Annars staðar í borginni fóru námsmenn í háværa kröfu- göngu og kröfðust þess að Kaúnda segði af sér. AMSTERDAM — Innbrots- þjófar klifruðu inn um glugga myndlistarsafns í skjóli næt- ur og flúðu með þrjú málverk eftir Vincent van Gogh sem talin eru 300 milljón króna virði. Elísabet fór héðan til Kanada: Drottning Bretlands óvelkomin í Quebec? Um helgina verða hátíðahöld vegna 123 ára afmælis Kanada en landið hefur aldrei áður verið jafn nálægt því að sundrast vegna deilna ensku- og ffönskumælandi íbúa þess. Marg- ir ffanskir íbúar Kanada hafa krafist þess að heimsókn Elísarbetar II til hins ffanska Quebecíylkis verði af- lýst en heimsókn hennar til Kanada hefúr vakið ólíkt meiri athygli fjöl- miðla en nýleg heimsókn drottningar til íslands. Drottningin breska kom á miðvikudag til Calgary í Alberta- fylki. Á sunndag hafði drottningin ætlað sér að fara í stutta heimsókn til Hull til að taka þar þátt í hátíðahöld- um vegna þjóðhátíðardags Kanada. Hull er skammt frá Ottawa en innan landamæra Quebecfylkis þar sem fjandskapur við bresku krúnuna er gamalgróinn. Embættismenn sögðu í gær að drottningin myndi hugsanlega hætta við ferð sína þangað. Að minnsta kosti tvær borgir í Quebec- fylki hafa aflýst hátíðahöldum um helgina og sagði borgarstjóri Que- bec, Jean Paul L’Allier, í blaðaviðtöl- um að Quebecbúar ættu ekkert með að „fagna Iandi sem skellir dyrum sínum á fingur okkar“. í síðustu viku mistókst að samþykkja hin svoköll- uðu „Meech Lake“-lög sem mörgum fannst vera síðasta tækifærið til að gera Quebecfylki að hluta af Kanada. Kanadamenn andsnúnir sundmngu ganga um götur Ottawa. Ibúar í Quebec vilja nú margir að- skilnað frá Kanada vegna þess að Nýfundnaland og Manitóba fengust ekki til að samþykkja „Mech Lake“- lögin sem hefðu viðurkennt franska sérstöðu Quebec-fylkis. 35 RÖSE-lönd semja mannréttindaályktun Fulltrúar 35 landa á ráðstefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, komu sér saman um drög að ályktun um frjálsar kosningar og fjölflokkakerfi. Fjögurra landa nefnd hafði verið falið að koma saman ályktun sem tryggja skyldi lýðræðisumbætur i A-Evrópu og auka réttindi þjóðernisminnihluta. Nefndarmenn lýstu því yfir í gær að þeir væru mjög ánægðir með niður- stöðuna og að hún yrði líklega sam- SVIAR HAFNA BEIÐNIGYÐINGS UM LANDVIST Sovéskir gyðingar fá ekki leng- ur pólitískt hæli í Svíþjóð fyrir það eitt að vera gyðingar og koma frá Rússlandi. Þetta segir Per Eriks Nilsons sem starfar við fólksinnflutningsráð Sví- þjóðar. Vegna bættra skilyrða í Sovétríkjunum hafa Svíar tekið upp harðari stefnu þegar fjallað er um umsóknir Sovétmanna og í þessum mánuði gerðist það í fyrsta skipti í manna minnum að umsókn frá sovéskum gyðingi um pólitískt hæli var hafnað. Lögfræðingurinn Bo Thoren, sem fer með mál margra gyðinga sem sótt hafa um landvist, segir að um 150 sovéskir gyðingar vilji setjast að í Svíþjóð. Hún sagði við Reuter að margir skjólstæðinga hennar hefðu beðið lengur en ár eftir að fjallað væri um umsókn þeirra en áður voru slíkar umsóknir af- greiddar á nokkrum mánuðum. Hún telur að þótt sovésk stjórnvöld ofsæki ekki gyðinga þá láti þau af- skiptalausar ofsóknir rússneskra þjóðernissinna og það segir hún að jafngildi ofsóknum af hendi ríkis- ins. I gær sagði vinnumálaráðuneyti sænsku ríkisstjómarinnar að fyrir dyrum stæði róttæk endurskoðun á flóttamannalöggjöf landsins. Markmiðið væri að fá önnur iðn- vædd lönd til að spoma sameigin- lega við flótta fátækra manna til ríkra landa meðal annars með því að sfyðja bágstödd lönd efnahags- lega. þykkt á lokadegi ráðstefnunnar. Öll aðildarlönd RÖSE þurfa að vera einhuga um ályktanir ráð- stefnunnar til að hún verði bind- andi. Vel gekk að semja ákvæði um kosningar og fjölflokkakerfí en ákvæði um réttindi þjóðernism- innihluta urðu ekki jafn víðtæk og flestar aðildarþjóðirnar hefðu vilj- að. Frakkar og Grikkir vom mót- fallnir því að þjóðernisminnihlutar mættu nota eigin tungumál í skól- um og í samskiptum við opinbera aðila og þurfti að gera breytingar á ályktuninni til að koma til móts við kröfur þeirra. Frakkar vilja ekki veita Korsíkumönnum og Bretón- um of mikil réttindi og stjórnvöld í Grikklandi vilja ekki auka réttindi Makedónímanna. Ákvæði um rétt . manna til að neita að gegna her- þjónustu nutu hcldur ekki einróma stuðnings. Engu að síður segja þeir sem sam- ið hafa þá ályktun sem nú er til um- íjöllunar að hún sé merkur áfangi sem endurspegli þær róttæku breytingar sem orðið hafi í Evrópu á síðustu mánuðum. RÖSE-ráðstefnunni er ætlað að fylgjast með og efla framkvæmd Helsinkisáttmálans. Öll ríki í Evr- ópu nema Albanía eiga aðild að ráðstefnunni auk Kanada og Bandaríkjanna. Prunskiene: Forsætisráðherra Lithauga- lands, Kazimiera Prunskiene, hvatti þing landsins í gær.til að „frysta“ sjálfstæðisyiirlýsingu landsins og opna raeð því fyrir viðræður við Sovétstjórnina. „Við getum ekki frestað viðræð- um“, sagði hún þingmðnnum. „Með þvi að hefja viðræður setj- um við okkur ekki I meiri hættu en við eru i núna. Samningavið- ræður yrðu ekki skref aftur á bak. Þær myndu verða skref í átt til sjálfstæðis“, sagði hún. Prunskiene og forseti Lithauga, Vytautas Landsbergis, flugu á miðvikudag til Moskvu á fund forseta Sovétríkjanna, Mikaels Gorbatsjovs. Hafit var eftir Landsbergis að Gorbatsjov hefði sagt að engin leiö væri að komast hjá frestun á sjálfstæð- inu og ef báðir málsaðiiar félfust á málamiðlun þyrfti hvorugur að glata virðingu sinni. Prunskl- ene sagði að Gorbatsjov hefði heitið því að bætta öllum refsl- aðgerðum gegn Lithaugum um leið og frestun yrði samþykkt en Sovétstjórn hefur þegar slakað á sumum efnahagsþvingunum sínum. Þingheimur frestaði i gær frek- ari umræðum um þetta mál en þær hefjast aftur í dag. Ekkert hefur verið látið uppi um hvort eða hvenær kemur til atkvæöa- greiðsiu um þetta mái en margir þingfulitrúar tóku til máls á fimmtudag og sögðust vera and- vígir tiUöguni Prunskiene. Auknar ásakanir um að Austur- Evrópuríki hafi stutt hryðjuverk: Ungverjar birta bréf frá Carlosi í gær birti blað í Ungveijaland bréf frá einum frægasta hryðjuverka- manni heims þar sem hann þakkar fyrrverandi leiðtoga kommúnista, Janos Kadar, fyrir að hafa veitt skæruliðum sínum öruggt skjól í landi sínu. Carlos er fæddur í Ve- nesúela. Hann heitir réttu nafni Ilych Ramires Sanches og er frægur fyrir launmorð, gíslatökur og hryðju- verkaárásir víða um heim. Bréfið er dagsett 2. apríl 1980 en opinberir að- ilar hafa enn ekki staðfest hvort það sé ófalsað. Hins vegar sagði innan- ríkisráðherra Ungverjalands, Balazs Horvath, á þingi landsins á þriðjudag að fyrrverandi leiðtogar kommúnista hefðu veitt Carlosi hæli seint á átt- unda áratugnum og vildi hann að þeir sem hefðu verið með í þeim ráðum yrðu handteknir og dregnir fyrir dóm.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.