Tíminn - 29.06.1990, Qupperneq 13
Föstudagur 29. júní 1990
Tíminn 13
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
1990
Dregið var í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 29352
2. vinningur nr. 14359
3. vinningur nr. 38822
4. vinningur nr. 8039
5. vinningur nr. 13391
6. vinningur nr. 33369
7. vinningur nr. 14360
8. vinningur nr. 14874
9. vinningur nr. 127
10. vinningur nr. 33064
11. vinningur nr. 2606
12. vinningur nr. 6749
13. vinningur nr. 17642
14. vinningur nr. 29032
15. vinningur nr. 13417
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-21379.
Framsóknarflokkurinn
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og
með 2. júní 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks.
Framsóknarflokkurinn.
Kvennahlaup ÍSÍ/LFK hópurinn
Framsóknarkonur á öllum aldri eru hvattar til að taka þátt í
kvennahlaupi ÍSf næsta laugardag kl. 14.00. Hittumst við íþróttahúsið
í Garðabæ kl. 13.30, þarsem RagnheiðurÓlafsdóttir íþróttafræðingur
verður í fararbroddi. Sýnum samstöðu, mætum allar.
Landssamband framsóknarkvenna
Skattskrá Norður-
landsumdæmis
vestra 1989
Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 verða
skattskrár í Norðurlandsumdæmi vestra ásamt
launaskattskrám fyrir gjaldárið 1989 lagðar fram til
sýnis dagana 29. júní til og með 12. júlí nk.
Skattskrárnar liggja frammi á eftirtöldum stöðum í
umdæminu:
Á skattstofunni, Siglufirði.
Á bæjarskrifstofunni, Sauðárkróki.
í öðrum sveitarfélögum í umdæminu, hjá umboðs-
mönnum skattstjóra.
Á sömu stöðum og tíma liggja frammi til sýnis
sölugjaldsskrár fyrirárið 1988, samkv. 27. gr. laga
nr. 10/1960 um söluskatt, sbr. 6. gr. laga nr.
33/1982.
Athygli er vakin á því að enginn kæruréttur
myndast við framlagningu skattskránna.
Siglufirði 25. júní 1990.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra,
Bogi Sigurbjörnsson.
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Afsláttur ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 efti.r kl. 18.
Geymið auglýsinguna.
PÓSTFAX TÍMANS
Skapa fötin manninn?
Það hlýtur stundum að vera erfitt
að vera frægur út um allar jarðir.
Hvergi ffiður og fólki ieyfist ekki
einu sinni að klæðast því sem það
vill. Bandaríska tímaritið Enquirer
tekur ávallt þekkt fólk fyrir og set-
ur út á klæðaburð þess ef sérstök
ástæða þykir til. Nú fyrir skemmstu
voru þijár þekktar konur teknar
fyrir. Voru það leikkonumar Rachel
Ward (Þymifúglamir),Brigitte Ni-
elsen og Stephanie Mónakóprins-
essa. Kvartaði tímaritið yfir því
hvemig í ósköpunum svona falleg-
ar konur gætu verið með svona
hryllilegan smekk á fötum. Og
hvemig þær gætu bara yfirleitt látið
sjá sig svona til fara. Frægt fólk er
oft tekið til fyrirmyndar en stund-
um er best að láta það vera. Rachel
Ward þykir blanda öllum flíkum
saman og virðist klæðast því sem
hendi er næst hvort sem um gula
bláa eða rauða liti er að ræða. Brig-
itte Nielsen þykir klæðast alltof
litlum fötum og er engu líkara en
hún kaupi föt sín í unglingadeild-
inni. Hún leggur mikla áheyrslu á
að allir viti hversu stór brjóstin á
henni em með því að klæðast svona
þröngum fötum. Stephanie er sögð
gleyma því að hún er prinsessa og
þykir afar drasluleg til fara. Hún
klæðist mikið snjáðum fötum og
leggur mikla áheyrslu á strákalegt
útlit.
En hvort sem fólk er sammála
þessu tímariti eða ekki þá er mikið
til í því að fötin skapi manninn.
Ekki lengur eftir-
sóttur tengdasonur
Rob Lowe hefúr ekki náð sér á
strik aftur eftir hneykslið mikla á
síðasta ári. Upp komst að hann
hafði haft mök við stúlku undir lög-
aldri og ekki var kappanum til bóta
að alllt heila dótið var tekið upp á
myndband. Lowe, sem áður var
draumur allra ungra meyja og eftir-
sóttur tengdasonur, á nú ekki upp á
pallborðið hjá fólki lengur.
Hann hefúr verið kenndur við
marga kvenmenn og var til langs
tíma í sambandi með Melissu Gil-
bert (Húsið á sléttunni) og einnig
var hann með Stephanie Móna-
kóprinsessu.
Hann þótti mjög efnilegur leikari
en nú era framleiðendur hikandi
þegar þeir heyra nafn hans nefnt.
Spaugarar og skemmtikraftar í
Bandaríkjunum gera óspart grín að
kappanum og þykir ansi slæmt að
lenda í klónum á þeim. Lowe hefur
tekið þetta allt mjög nærri sér og
komið fram í mörgum viðtalsþátt-
um og reynt að gera gott úr öllu en
það hefúr ekki gengið sem skyldi.
Bandaríkjamenn ætla víst seint að
fyrirgefa Lowe.
BORINN RANGRISÖK
- en leiðrétt fljótlega
Hér sést pariö saman. Hún er
glæsileg með þessa nýju kollu
Leikarinn Harry Hamlin sem við
þekkjum úr sjónvarpsþáttunum
Lagakrókar ( L.A. Law) lenti al-
deilis í því um daginn. Hann mætti
á skemmtistað með rauðhærðri
glæsipíu sem allir tóku eftir sökum
glæsileikans. Ekki vora þeir sem
þekktu leikarann ánægðir með
þessa sjón því Hamlin var ekki
þama mættur með ástmey sinni,
Nicollette Sheridan, sem hann hef-
ur verið með um árabil. Byrjuðu
svo kjaftasögumar alveg á fúllu og
kvartaði fólk undan því hvemig
Hamlin dirfðist að halda framhjá
kærastu sinni með svona draslu.
Hamlin lét sem ekkert væri og par-
ið fór út í hom í hörku kelerí. Ein af
vinkonum Nicollette var nóg boðið
og vatt sér til hans, skammaði
Hamlin i gríð og erg og kallaði
hann öllum illum nöfnum. Einnig
kallaði hún rauðhærðu stúlkuna
draslu. Rauðhærða stúlkan gerði
sér nú lítið fyrir og tók allt í einu af
sér hárið og kom þá í ljós að hér var
ástmey Hamlins, Nicollette, sjálf
mætt. Hún hafði aðeins viljað
breyta smá til og því notað rauða
hárkollu. Máttu nú margir að von-
um skammast sín fyrir að treysta
Hamlin ekki betur.