Tíminn - 29.06.1990, Síða 15

Tíminn - 29.06.1990, Síða 15
Föstudagur 29. júní 1990 Tíminn 15 IÞROTTIR v,j.. aBttk tÉ Maradona fellur flatur í eitt af þeim 34 skiptum sem á honum hefur ver- ið brotið í HM. HM á Ítalíu: Maradona uppá- halds fórnarlamb varnarmanna Diego Maradona fyrirliði Argen- tíska landsliðsins á HM á Ítalíu er tvímælalaust uppáhalds fómarlamb andstæðinganna á Ítalíu. Hann er efstur á lista yfir þá sem hafa þurft að þola flest brot í keppninni. Alls hefur verið brotið 34 sinnum á Mar- adona eða 13 sinnum oftar en á næsta manni. Næstur í röðinni er Carlos Valdorama frá Kólumbíu en hann hefur 21 sinni verið settur i jörðina. Knattspvma: Mattháus áf ram hjá Inter Milan Vesmr-þýski landsliðsmaðurinn Lothar Matthaus kemur til með að verða áfram næstu þijú árin hjá ítalska stórliðinu Inter Milan, eða til ársins 1993. Þetta er haft eftir for- ráðamönnum félagsins. Þeir segjast hafa náð samningi við miðjumanninn fræga um að framlengja samninginn, sem rennur út í lok næsta keppnis- tímabils, um tvo ár. Forráðamenn Int- er sögðu ennfremur að Mattháus, sem kom til liðsins frá Bayem Mönchen fyrir tveimur ámm, myndi fá eina milljón dollara fyrir þennan tveggja ára samning. Það er nú hægt að lifa á því. AIMS Association of International Marathons Reykjavíkur- maraþon 1990 7 alþjóðlega Reykjavíkur- maraþonið verður haldið 19 ágúst næstkomandi. Keppnis- vegalengdir eru þær sömu og áður, þ.e. skemmtiskokk (7km), hálft tnaraþon (21 km) og maraþon (42km). í síðasta Reykjavíkurmaraþoni voru um 1200 þátttakendur, bæði er- lendir og innlendir. Skráning fer fram á Ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn, Pósthússtræti 13 og Álfabakka 16, skrifstofu Frjálsíþróttasambands íslands og vcrslunum Sportvals á Hlemmi og í Kringlunni. Upp- lýsingar eru veittar í símum 603060 (Úrval- Útsýn) og 68S525. (Frjálsíþróttasam- bandið). HM á Ítalíu: Kamerúnmenn hræðast Lineker og Gascoigne Gary Lineker og Paul Gasgoigne eru þeir tveir leikmenn enska lands- Iiðsins í knattspymu sem Kamerún- menn eru hvað hræddastir við fyrir leik liðanna á Sunnudag að sögn þjálfara Kamerún. „Við erum hræddir við Lineker vegna þess að hingað til hefur stjama hans ekki náð að skína. Þá mun ég einnig ræða vel við leikmenn mína um Gascoigne vegna þess að hann er driffjöðurinn í leik Englendinga," sagði Nepomniachy þjálfari Kame- rún. Hann er ekki ýkja bjartsýnn fyr- ir leikinn og telur hann möguleika liðs síns 40 á móti 60 Englendinga. Ekki er nú víst að þjálfarinn títt- nefndi þurfi mikið að óttast Lineker í leiknum á sunnudag því að enn er ekki víst að hann verði með vegna meiðsla. Það em einhver meiðsli í tá sem hrjá ensku stjömuna. Fyrir síð- ustu tvo leiki Englands hefúr Lineker verið sprautaður niður og hann hefúr ekkert getað æft í nær tvær vikur. Bobby Robson sagði að ef hann gæti ekki æft í dag myndi hann ekki spila. „Eg vil fá að sjá hann á æfingu áður en ég geri upp hug minn,“ sagði Rob- son. Það verður skarð fyrir skildi því Lineker er þeirra besti sóknarmaður og varð hann markahæstur leik- manna í HM í Mexíkó. Þá hafa þeir Steve Hodge, John Bames og Des Walker eitthvað lítið getað æft en það mun ekki vera eins alvarlegt og hjá Lineker. En það er allavega ömggt að þjálfari Kamerún getur rólegur óttast Paul Gascoigne sem er vel friskur og í fullu fjöri. HM á Ítalíu: 16 dómarar dæma áfram Búið er að velja þá sextán dómara sem dæma lokaáfangann í Heims- meistarakeppninni á Italíu. Það þýðir það að 20 tuttugu dómarar hafa verið sendir heim. Það vekur athygli að í hópi þeirra dómara, sem sendir hafa verið heim, em menn sem hafa dæmt einna best í keppninni, s.s. Petrovic frá Júgóslavíu, Loustou frá Argentínu, Courtney frá Englandi og Lanese frá Italíu, en þeir fara vegna þess að lið frá löndum þeirra em komnir áftarn í átta liða úrslit. Þeir 16 dómarar sem halda áfram em: Roethlisberger (Sviss), Silva Valente (Portugal), Helmut Kohl (Austurriki), Codesal (Mexíkó), Cuiniou (Frakk- landi), Voutrot (Frakklandi), Wright (Brasilíu), Morera (Costa Rica), Hoy- os (Kólumbíu), Listkiewicz (Pól- landi), Mikkelsen (Danmörku), Mauro (USA), Abdul Rahman og Takadaia. Dómumm sem dæma þennan loka- áfanga verða greiddar sem svara til um 210.000 kr á mann. Talsmaður Dóm- aranefndar FIFA segir að þetta sé fyrsta skrefið í átt að atvinnumennsku hjá dómarastétt. *■...> \ Hörpudeildin í knattspvrnu: Valsmenn á toppinn Valsmenn skutust heldur betur óvænt á topp Hörpudeildarinn- ar í knattspyrnu á miðvikudags- kvöld með góðum sigri á KR, 2- 1, að Hlíðarenda. Valsmenn byrjuðu Icikinn af krafti og skor- aði Ingvar Guðmundsson, sem kominn er inn i liðið eftir tveggja mánaða dvöl á sjúkralista, fyrsta markið eftir aóeins fimmtán mfnútna leik. Hann bættí síðan öðru marki við á 40. mín. Það var síðan Pétur Pétursson sem náði að klóra í bakkann er um 10 mín. voru til leiksfoka og skoraði hann eina mark KR úr víti. Framarar bið ósanngjarnan ósigur gegn FH i Krikanum, 2-1. Frarn byrjaði af krafti og kom Pétur Arnþórsson þeim yfir á 15 mín. með góðu marki, en FH- ingar náðu að jafna á fyrir hálf- leik og var þar Hörður Magnús- son að verki. Það var síðan Pálmi Jónsson sem tryggði stigin í þrjú f Fjörðinn. Á Akurevri gerðu lið KA og ÍBV jafntefii 1-1. Ingi Sigurðs- son kom Vestmannaeyingum yf- ir með glæsilegu marki, en Orm- ar Örlygsson jafnaði skömmu síðar úr vítaspyrnu. Á Akranesi sigruðu heimamenn lið Þórs i botnslagnum, 3-1. Mörk Skagamanna gerðu þeir Guðbjörn Tryggvason, Bjarki Pétursson og Haraldur Ingólfs- son. Fyrir Þór skoraði Bjarni Sveinbjörnsson. Staðan í 1. deiid Valur.....7 5 1 1 13- 6 16 Fram......7 4 1 2 14- 3 13 ÍBV ......7 4 1 2 9-11 13 KR .......7 4 0 3 11- 912 FH.......„7 3 0 4 11-10 9 Víkingur..6 2 2 2 7- 7 8 ÍA........7 2 2 3 8-11 8 Stjarnan .6 2 1 3 7-12 7 KA........7 2 1 4 7-11 7 Þór 1 5 4-11 4 | AUGLÝSING UMINNLAUSNARVEFÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1977-2 fl. 10.09.90-10.09.91 kr. 7.940,24 1978-2 fl. 10.09.90-10.09.91 kr. 5.072,81 1979-2 fl. 15.09.90-15.09.91 kr. 3.307,03 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00 1985-1. fl.A 1985- 1. fl.B 1986- 1.fl.A3ár 1986-1.fl.A4ár 1986-1. fl.B 1986- 2.fl.A4ár 1987- 1.fl.A2ár 10.07.90-10.01.91 10.07.90-10.01.91 10.07.90-10.01.91 10.07.90-10.01.91 10.07.90-10.01.91 01.07.90-01.01.91 10.07.90-10.01.91 kr. 41.894,69 kr. 28.876,75** kr. 28.877,45 kr. 30.744,38 kr. 21.297,65** kr. 26.517,71 kr. 23.139,58 *lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. **Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðarspariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.