Tíminn - 04.07.1990, Page 5

Tíminn - 04.07.1990, Page 5
'Míðvikudágur 4. júli fð9Ö Tímínn 5 Stöð 2 þarf enn að bíða í viku eftir svari frá borgaryfirvöldum um ábyrgð á 200 milljóna láni. Á meðan fer stöðin halloka í slagnum við Sýn: Tapar nú sýningarrétti, áskrift og auglýsingum Beiðni Stöðvar2 um 200 milljón króna ábyrgð Reykjavíkurborg- ar á láni til stöðvarinnar var ekki tekin fyrir á fundi borgarráðs í gær. Gert er ráð fyrir að beiðnin verði afgreidd á næsta fundi ráðs- ins sem haldinn verður á þriðjudag. Ofan á slæma Qárhagsstöðu Stöðvar 2 berast nú fregnir af ískyggilega versnandi rekstraraf- komu. Skil áskrifiargjalda Stöðvar 2 voru 68% í júní, þetta samsvarar því að 14.500 áskrifendur hafí ekki greitt áskrift í síðasta mánuði. Samkvæmt því vantar 32 milljónir króna upp á að áskriftir skili sér til fulls. Þá voru auglýsingatekjur jafhframt mun minni en gert var ráð fyrir. Samkvæmt heimildum Tímans er þetta í fyrsta skipti í þriggja ára sögu Stöðvar 2, sem skil áskriftargjalda fara niður fyrir 80%. Þegar mun verri rekstrarafkoma en gert var ráð fyrir bætist við gífurlega skuldsetningu Stöðvar 2, velta menn nú fyrir sér hvort gjaldþrot sé það eina sem bíði sjónvarpsstöðvarinnar. Fáist ekki ábyrgð Reykjavíkurborgar á umræddum 200 milljónum króna og komi ekki til nýtt hlutafé inn í reksturinn má telja nær fullvíst að svo verði. Ekki náðist í Jóhann J. Ól- afsson stjómarformann Stöðvar 2 í gær, en hann er ekki á landinu sem stendur. Sömu sögu er að segja af Jóni Ólafssyni í Skífunni, sem er stjómarmaður f stöðinni, hann einnig erlendis. Þá reyndist ekki heldur unnt að ná í Þorvarð Elíasson sjónvarps- stjóra Stöðvar 2, né Harald Haralds- son stjómarmann. Þrátt fyrir að fjárhagserfiðleikar Stöðvar 2 séu stór biti að kyngja ein- ir sér, er fyrirsjáanleg samkeppni hinnar nýju sjónvarpsstöðvar Sýnar jafnvel ennþá alvarlegri ógnun við tilvem stöðvarinnar. Sem stendur em taldar litlar líkur á að Stöð 2 og Sýn gangi í eina sæng, eins og ráðgert var i vetur. Þessar nýjustu ffegnir af versnandi afkomu Stöðvar 2 draga enn úr líkum þess að það gerist. Talsmenn Sýnar segjast ákveðnir í að hefja útsendingar á sjónvarpsefni í nóvember og verði ekki af samein- ingu stöðvanna má búast við hat- rammri baráttu á milli þeirra um áhorfendur. Undanfamar vikur og mánuði hafa þessir aðilar slegist um einkarétt á dagskrárefni frá þekktum erlendum framleiðendum. Svo virð- ist sem Sýnarmenn hafi orðið ofan á í þeim slag, en nýja sjónvarpsstöðin hefur þegar tryggt sér sýningarrétt á um 3.000 klukkutímum af sjónvarps- efni. Þar af em margir af vinsælustu þáttum Stöðvar 2. Nýjasta rósin í hnappagat Sýnar er þriggja ára samn- ingur við Walt Disney um einkarétt á sýningu á þeirra framleiðslu hér á landi. - ÁG Rúsínur og rækjur í pylsuendunum Nýverið var hafin ffamleiðsla á tveimur nýjum tegundum af pylsum hjá Kjötiðnaðarstöð KEA á Akureyri. Annars vegar er um að ræða pylsur með rækjum, og hins vegar pylsur með rúsínum. Að sögn Óla Valdimarssonar er hug- myndin komin ffá Hólmvíkingum og pylsumar sérstaklega lagaðar fyrir stórveislu, sem Hólmvikingar efna til í lok júlí í tilefhi af 100 ára verslunar- afmæli staðarins. Hólmvíkingar hafa pantað 1/2 tonn af rækjupylsum og eitthvað álíka af rúsínupylsum. Starfsmenn Kjötiðnaðarstöðvarinnar tóku forskot á sæluna og efhdu til grillveislu þar sem nýju tegundimar vom smakkaðar. Fulltrúar Hólmvík- inga mættu á staðinn, ásamt fulltrúum ffá Raufarhöfh, en Raufarhöfn á stór- afmæli á næsta ári. Að sögn Óla brögðuðust pylsumar mjög vel og mnnu ljúflega niður, að vísu væri ljóst að gífurlegt magn af rúsínum þyrfti í hveija lögun til að tryggja að rúsínur væm i öllum pylsunum. Óli sagði að rækjupylsumar yrðu settar á markað eftir affnæli Hólmavíkur, þar sem þær væm mjög bragðgóðar og hentuðu vel á grillið. Rúsínupylsum- ar verða hins vegar ekki settar á markað af fyrrgreindum ástæðum, en ekkert er því til fyrirstöðu að laga þær fyrir sérstök tækifæri. hiá-akureyri. Avaxtar virðis- aukaskatt bænda Ákveðið hefur verið að bjóða bænd- um, sem leggja afurðir sínar inn hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, upp á þá þjónustu að draga virðisaukaskatt af afúrðainnleggi. Skatturinn verður síðan ávaxtaður á sérstökum bundn- um geymslufjárreikningi hjá inn- lánsdeild, og verður laus til útborg- unar tvisvar á ári í samræmi við greiðsludaga virðisaukaskattsins. Að sögn Ama Magnússonar, fjár- málastjóra KEA, hafa komið nokkrar fyrirspumir ffá bændum um þennan möguleika vegna nýrra laga um virð- isaukaskatt, og því hefði verið ákveðið að reyna þessa þjónustu. Ámi sagði að fyrirkomulagið yrði þannig að þcir bændur, sem vildu notfæra sér þessa þjónustu, settu sig í samband við innlánsdeild og létu vita hve hátt hlutfall þeir vildu láta taka af afurðainnleggi. Virðisaukaskatturinn er 24%, en á móti kemur ýmis kostnaður. Bændur ráða sjálfir hve mikið er geymt. Reikningurinn verður laus til útborg- unar tvo mánuði i senn, febrúar-mars og ágúst-september. Að öðm leyti verður hann bimdinn og ávaxtaður samkvæmt því. Vextir verða reiknað- ir út tvisvar á ári, um mitt ár og í árs- lok, og nemur ársávöxtun um 10.25%. Ámi sagðist vita til þess að fleiri kaupfélög m.a. Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Borg- firðinga hefðu ákveðið að bjóða bændum upp á þessa þjónustu, og í ffamtíðinni mætti reikna með að fleiri kæmu í kjölfarið. hiá-akureyri. „Hraðahrottar“ hægja á sér Samkvæmt upplýsmgum lögreglu virðist svokölluðum „hraðahrottum“ í umferðinni nokkuð vera að fækka. Viðkomandi eru þeir sem valda sjálf- um sér og öðmm stórhættu með allt of hröðum akstri. En undanfarið hefur svo bmgðið við að ökumenn mældir í kerfisbundnu hraðaeflirliti lögreglu hafa í auknum mæli reynst aka innan löglegra hraðatakmarkanna. Umferðarráð sendi lögreglustjórum um allt land bréf nýlega þar sem hvatt var til aukins eftirlits með umferðar- hraða. Viðbrögð hafa verið mjög góð og er vonast til að á þennan hátt megi draga enn úr slysum sem rekja má til of mikils hraða í akstri. jkb Hátíð á Óspakseyri: gær reistu Samtök um byggingu tónlistarhúss skilti á lóð þeirri sem Reykjavíkurborg hefur úthlutaö undir húsiö í Laugardal. Með þess- um viðburði vilja samtökin minna á það að tónlistarhús muni rísa, þrátt fýrír að hægt hafi miðað. Stefrít er að þvi að húsið verði byggt fyrir 50 ára afmæli lýðveldisins 1994. Við athöfnina í gær spiluðu Sig- urður Flosason, saxófónleikarí og félagar hans nokkur lög. GS. skóla Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út er eldur varð laus í Hjallaskóla i Kópavogi seint að kvöldi mánudags. Eldurinn kom upp í ruslatunnu sem stóð upp við timburvegg skólans. Hann læsti sig i vegginn og hafði náð nokkurri útbreiðslu þegar slökkvilið kom á staðinn. Bijóta varð niður hluta af þaki skólans til að auðvelda slökkvistarf. Talsverðar skemmdir urðu á húsinu, þá sérstaklega einni kennslustofu. Eldsupptök eru ekki kunn, en grun- ur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. GS. Fimmtíu ára vígslu- afmæli kirkjunnar Sunnudaginn 1. júlí sl. var þess minnst að 50 ár voru liðin frá vígslu Óspakseyrar- kirkju á Ströndum. í tilefni af vígsluafmælinu var efnt til hátíðarmessu í kirkjunni og að messu lokinni bauð sókn- amefnd kirkjugestum til kaffi- samsætis að Ospakseyri. Biskup Islands, herra Ólafur Skúlason, prédikaði við hátíðar- messuna á Óspakseyri, en prestur sóknarinnar, sr. Ágúst Sigurðsson á Prestbakka, og sr. Kristján Bjöms- son í Breiðabólstaðarprestakalli þjónuðu fyrir altari. Auk þeirra tóku þátt í messunni sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur á Melstað, og sr. Baldur Rafn Sigurðsson, sóknar- prestur á Hólmavík. Við vígslu Óspakseyrarkirkju fyr- ir hálfri öld voru einnig 5 prest- vígðir menn. Á þeim tíma þjónaði Kollafjarðarnesklerkur Óspakseyr- arsókn og var sr. Jón Brandsson sóknarprestur á þeim tíma. Enginn þessara presta var viðstaddur 50 ára vígsluhátíðina. Meðal gesta á af- mælishátiðinni var hins vegar kirkjusmiðurinn, Gisli Gíslason i Gröf i Bitru. Kirkjukór Óspakseyrar söng við athöfnina. Meðal söngmanna i kórnum var Jóns Sigmundsson á Einfætingsgili en hann var einnig í kómum sem söng við vigslu kirkj- unnar fyrir hálfri öld. Meðal ann- arra söngmanna nú vom 4 synir Jóns, en tveir þeirra, Sigmundur og Gunnar, hafa getið sér gott orð sem einsöngvarar. Núverandi organisti Óspakseyrar- kirkju er Guðrún Kristjánsdóttir á Reykjaskóla. Auk hennar voru 3 fyrrverandi organistar viðstaddir afmælishátíðina, þau Ólafia Jóns- dóttir, Kjartan Ólafsson og Þor- bjöm Bjamason. Fyrsti organisti kirkjunnar var hins vegar Guð- mundur Einarsson í Gröf, en hann er látinn fyrir allmörgum árum. Óspakseyrarkirkja hefúr tilheyrt Prestbakkaprestakalli frá árinu 1951. Á þeim tíma hafa 3 prestar þjónað kirkjunni, þeir sr. Ingvi Þór- ir Ámason, sr. Bjami Th. Rögn- valdsson og núverandi sóknarprest- ur, sr. Ágúst Sigurðsson. Tveir þeir fyrmefndu áttu þess ekki kost að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni vígsluafmælisins. Óspakseyrarkirkja er steinsteypt með bogadregnum gluggum og hurðum. Altaristaflan í kirkjunni er eftir Jóhann Briem listmálara og sýnir innreið Jesús í Jerúsalem. Stefán Gíslason

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.