Tíminn - 04.07.1990, Qupperneq 5
'Míðvikudágur 4. júli fð9Ö
Tímínn 5
Stöð 2 þarf enn að bíða í viku eftir svari frá borgaryfirvöldum um ábyrgð
á 200 milljóna láni. Á meðan fer stöðin halloka í slagnum við Sýn:
Tapar nú sýningarrétti,
áskrift og auglýsingum
Beiðni Stöðvar2 um 200 milljón króna ábyrgð Reykjavíkurborg-
ar á láni til stöðvarinnar var ekki tekin fyrir á fundi borgarráðs í
gær. Gert er ráð fyrir að beiðnin verði afgreidd á næsta fundi ráðs-
ins sem haldinn verður á þriðjudag. Ofan á slæma Qárhagsstöðu
Stöðvar 2 berast nú fregnir af ískyggilega versnandi rekstraraf-
komu.
Skil áskrifiargjalda Stöðvar 2 voru
68% í júní, þetta samsvarar því að
14.500 áskrifendur hafí ekki greitt
áskrift í síðasta mánuði. Samkvæmt
því vantar 32 milljónir króna upp á
að áskriftir skili sér til fulls. Þá voru
auglýsingatekjur jafhframt mun
minni en gert var ráð fyrir.
Samkvæmt heimildum Tímans er
þetta í fyrsta skipti í þriggja ára sögu
Stöðvar 2, sem skil áskriftargjalda
fara niður fyrir 80%.
Þegar mun verri rekstrarafkoma en
gert var ráð fyrir bætist við gífurlega
skuldsetningu Stöðvar 2, velta menn
nú fyrir sér hvort gjaldþrot sé það
eina sem bíði sjónvarpsstöðvarinnar.
Fáist ekki ábyrgð Reykjavíkurborgar
á umræddum 200 milljónum króna
og komi ekki til nýtt hlutafé inn í
reksturinn má telja nær fullvíst að
svo verði. Ekki náðist í Jóhann J. Ól-
afsson stjómarformann Stöðvar 2 í
gær, en hann er ekki á landinu sem
stendur. Sömu sögu er að segja af
Jóni Ólafssyni í Skífunni, sem er
stjómarmaður f stöðinni, hann einnig
erlendis. Þá reyndist ekki heldur unnt
að ná í Þorvarð Elíasson sjónvarps-
stjóra Stöðvar 2, né Harald Haralds-
son stjómarmann.
Þrátt fyrir að fjárhagserfiðleikar
Stöðvar 2 séu stór biti að kyngja ein-
ir sér, er fyrirsjáanleg samkeppni
hinnar nýju sjónvarpsstöðvar Sýnar
jafnvel ennþá alvarlegri ógnun við
tilvem stöðvarinnar. Sem stendur em
taldar litlar líkur á að Stöð 2 og Sýn
gangi í eina sæng, eins og ráðgert var
i vetur. Þessar nýjustu ffegnir af
versnandi afkomu Stöðvar 2 draga
enn úr líkum þess að það gerist.
Talsmenn Sýnar segjast ákveðnir í
að hefja útsendingar á sjónvarpsefni í
nóvember og verði ekki af samein-
ingu stöðvanna má búast við hat-
rammri baráttu á milli þeirra um
áhorfendur. Undanfamar vikur og
mánuði hafa þessir aðilar slegist um
einkarétt á dagskrárefni frá þekktum
erlendum framleiðendum. Svo virð-
ist sem Sýnarmenn hafi orðið ofan á í
þeim slag, en nýja sjónvarpsstöðin
hefur þegar tryggt sér sýningarrétt á
um 3.000 klukkutímum af sjónvarps-
efni. Þar af em margir af vinsælustu
þáttum Stöðvar 2. Nýjasta rósin í
hnappagat Sýnar er þriggja ára samn-
ingur við Walt Disney um einkarétt á
sýningu á þeirra framleiðslu hér á
landi. - ÁG
Rúsínur og rækjur
í pylsuendunum
Nýverið var hafin ffamleiðsla á
tveimur nýjum tegundum af pylsum
hjá Kjötiðnaðarstöð KEA á Akureyri.
Annars vegar er um að ræða pylsur
með rækjum, og hins vegar pylsur
með rúsínum.
Að sögn Óla Valdimarssonar er hug-
myndin komin ffá Hólmvíkingum og
pylsumar sérstaklega lagaðar fyrir
stórveislu, sem Hólmvikingar efna til
í lok júlí í tilefhi af 100 ára verslunar-
afmæli staðarins. Hólmvíkingar hafa
pantað 1/2 tonn af rækjupylsum og
eitthvað álíka af rúsínupylsum.
Starfsmenn Kjötiðnaðarstöðvarinnar
tóku forskot á sæluna og efhdu til
grillveislu þar sem nýju tegundimar
vom smakkaðar. Fulltrúar Hólmvík-
inga mættu á staðinn, ásamt fulltrúum
ffá Raufarhöfh, en Raufarhöfn á stór-
afmæli á næsta ári. Að sögn Óla
brögðuðust pylsumar mjög vel og
mnnu ljúflega niður, að vísu væri
ljóst að gífurlegt magn af rúsínum
þyrfti í hveija lögun til að tryggja að
rúsínur væm i öllum pylsunum. Óli
sagði að rækjupylsumar yrðu settar á
markað eftir affnæli Hólmavíkur, þar
sem þær væm mjög bragðgóðar og
hentuðu vel á grillið. Rúsínupylsum-
ar verða hins vegar ekki settar á
markað af fyrrgreindum ástæðum, en
ekkert er því til fyrirstöðu að laga þær
fyrir sérstök tækifæri. hiá-akureyri.
Avaxtar virðis-
aukaskatt bænda
Ákveðið hefur verið að bjóða bænd-
um, sem leggja afurðir sínar inn hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga, upp á þá
þjónustu að draga virðisaukaskatt af
afúrðainnleggi. Skatturinn verður
síðan ávaxtaður á sérstökum bundn-
um geymslufjárreikningi hjá inn-
lánsdeild, og verður laus til útborg-
unar tvisvar á ári í samræmi við
greiðsludaga virðisaukaskattsins.
Að sögn Ama Magnússonar, fjár-
málastjóra KEA, hafa komið nokkrar
fyrirspumir ffá bændum um þennan
möguleika vegna nýrra laga um virð-
isaukaskatt, og því hefði verið
ákveðið að reyna þessa þjónustu.
Ámi sagði að fyrirkomulagið yrði
þannig að þcir bændur, sem vildu
notfæra sér þessa þjónustu, settu sig í
samband við innlánsdeild og létu
vita hve hátt hlutfall þeir vildu láta
taka af afurðainnleggi.
Virðisaukaskatturinn er 24%, en á
móti kemur ýmis kostnaður. Bændur
ráða sjálfir hve mikið er geymt.
Reikningurinn verður laus til útborg-
unar tvo mánuði i senn, febrúar-mars
og ágúst-september. Að öðm leyti
verður hann bimdinn og ávaxtaður
samkvæmt því. Vextir verða reiknað-
ir út tvisvar á ári, um mitt ár og í árs-
lok, og nemur ársávöxtun um
10.25%. Ámi sagðist vita til þess að
fleiri kaupfélög m.a. Kaupfélag
Skagfirðinga og Kaupfélag Borg-
firðinga hefðu ákveðið að bjóða
bændum upp á þessa þjónustu, og í
ffamtíðinni mætti reikna með að
fleiri kæmu í kjölfarið.
hiá-akureyri.
„Hraðahrottar“
hægja á sér
Samkvæmt upplýsmgum lögreglu
virðist svokölluðum „hraðahrottum“ í
umferðinni nokkuð vera að fækka.
Viðkomandi eru þeir sem valda sjálf-
um sér og öðmm stórhættu með allt of
hröðum akstri. En undanfarið hefur
svo bmgðið við að ökumenn mældir í
kerfisbundnu hraðaeflirliti lögreglu
hafa í auknum mæli reynst aka innan
löglegra hraðatakmarkanna.
Umferðarráð sendi lögreglustjórum
um allt land bréf nýlega þar sem hvatt
var til aukins eftirlits með umferðar-
hraða. Viðbrögð hafa verið mjög góð
og er vonast til að á þennan hátt megi
draga enn úr slysum sem rekja má til
of mikils hraða í akstri.
jkb
Hátíð á Óspakseyri:
gær reistu Samtök um byggingu tónlistarhúss skilti á lóð þeirri sem
Reykjavíkurborg hefur úthlutaö undir húsiö í Laugardal. Með þess-
um viðburði vilja samtökin minna á það að tónlistarhús muni rísa,
þrátt fýrír að hægt hafi miðað. Stefrít er að þvi að húsið verði byggt
fyrir 50 ára afmæli lýðveldisins 1994. Við athöfnina í gær spiluðu Sig-
urður Flosason, saxófónleikarí og félagar hans nokkur lög. GS.
skóla
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
út er eldur varð laus í Hjallaskóla i
Kópavogi seint að kvöldi mánudags.
Eldurinn kom upp í ruslatunnu sem
stóð upp við timburvegg skólans.
Hann læsti sig i vegginn og hafði náð
nokkurri útbreiðslu þegar slökkvilið
kom á staðinn. Bijóta varð niður
hluta af þaki skólans til að auðvelda
slökkvistarf. Talsverðar skemmdir
urðu á húsinu, þá sérstaklega einni
kennslustofu.
Eldsupptök eru ekki kunn, en grun-
ur leikur á að um íkveikju hafi verið
að ræða. GS.
Fimmtíu ára vígslu-
afmæli kirkjunnar
Sunnudaginn 1. júlí sl. var
þess minnst að 50 ár voru
liðin frá vígslu Óspakseyrar-
kirkju á Ströndum. í tilefni af
vígsluafmælinu var efnt til
hátíðarmessu í kirkjunni og
að messu lokinni bauð sókn-
amefnd kirkjugestum til kaffi-
samsætis að Ospakseyri.
Biskup Islands, herra Ólafur
Skúlason, prédikaði við hátíðar-
messuna á Óspakseyri, en prestur
sóknarinnar, sr. Ágúst Sigurðsson á
Prestbakka, og sr. Kristján Bjöms-
son í Breiðabólstaðarprestakalli
þjónuðu fyrir altari. Auk þeirra
tóku þátt í messunni sr. Guðni Þór
Ólafsson, prófastur á Melstað, og
sr. Baldur Rafn Sigurðsson, sóknar-
prestur á Hólmavík.
Við vígslu Óspakseyrarkirkju fyr-
ir hálfri öld voru einnig 5 prest-
vígðir menn. Á þeim tíma þjónaði
Kollafjarðarnesklerkur Óspakseyr-
arsókn og var sr. Jón Brandsson
sóknarprestur á þeim tíma. Enginn
þessara presta var viðstaddur 50 ára
vígsluhátíðina. Meðal gesta á af-
mælishátiðinni var hins vegar
kirkjusmiðurinn, Gisli Gíslason i
Gröf i Bitru.
Kirkjukór Óspakseyrar söng við
athöfnina. Meðal söngmanna i
kórnum var Jóns Sigmundsson á
Einfætingsgili en hann var einnig í
kómum sem söng við vigslu kirkj-
unnar fyrir hálfri öld. Meðal ann-
arra söngmanna nú vom 4 synir
Jóns, en tveir þeirra, Sigmundur og
Gunnar, hafa getið sér gott orð sem
einsöngvarar.
Núverandi organisti Óspakseyrar-
kirkju er Guðrún Kristjánsdóttir á
Reykjaskóla. Auk hennar voru 3
fyrrverandi organistar viðstaddir
afmælishátíðina, þau Ólafia Jóns-
dóttir, Kjartan Ólafsson og Þor-
bjöm Bjamason. Fyrsti organisti
kirkjunnar var hins vegar Guð-
mundur Einarsson í Gröf, en hann
er látinn fyrir allmörgum árum.
Óspakseyrarkirkja hefúr tilheyrt
Prestbakkaprestakalli frá árinu
1951. Á þeim tíma hafa 3 prestar
þjónað kirkjunni, þeir sr. Ingvi Þór-
ir Ámason, sr. Bjami Th. Rögn-
valdsson og núverandi sóknarprest-
ur, sr. Ágúst Sigurðsson. Tveir þeir
fyrmefndu áttu þess ekki kost að
taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni
vígsluafmælisins.
Óspakseyrarkirkja er steinsteypt
með bogadregnum gluggum og
hurðum. Altaristaflan í kirkjunni er
eftir Jóhann Briem listmálara og
sýnir innreið Jesús í Jerúsalem.
Stefán Gíslason