Tíminn - 06.07.1990, Page 4

Tíminn - 06.07.1990, Page 4
4 Tíminn - Föstudagur 6. júlí 1990 Bush vill að NATÓ sýni Sovétmönnum að kalda stríðinu sé lokið: GORBATSJOV BOÐK) AÐ HEIMSÆKJA NATÓ-FUNDI? Forseti Bandaríkjanna, Georg Bush, vill að NATÓ-fundurinn í Lundúnum sýni Gorbatsjov skýr merki þess, að ástæöulaust sé fýrir hann að óttast hemaðarbandalagið. Hann lagði meðal annars til í gær, að Gorbatsjov yrði boðið á fund með ráðamönnum NATÓ. í opnunanæðu í gær á tveggja daga fundi í Lundúnum með ráðamönnum NATÓ, lagði Bush fram tillögur um aðgerðir sem eiga að laga bandalagið að breyttum tímum eftir lok kalda striðsins. í tillögunum er gert ráð fyrir að „atóm- fælingarstefnu" bandalagsins verði breytt, að kjamahleðslur verði fjar- lægðar úr Evrópu og að einhvers konar griðasáttmáli NATO og rikja Varsjár- bandalagsins verði undirritaður. Mark- miðið með tillögunum var Ijóst. Sýna á Gorbatsjov að hann þuríi ekki að óttast bandalag, sem sameinað Þýskaland á aðild að, og að Sovétríkin þurfi ekki að einangrast heldur geti orðið hluti af gjörbreyttri Evrópu. Margrét Thatcher, forsætisráðherra Breta, hefur reynst vera herskáust leið- toga NATO á fundinum. Hún lagði á það áherslu í gær að engar breytingar mætti gera á NATÓ, sem drægju úr hemaðarmætti þess, og hún hefur haft efasemdir um ágæti þess að breyta „at- ómfælingarstefnunni“. Engu að síður var útlit fyrir það í gær að orðalag um hana yrði samþykkt á fundinum og að NATÓ héti því, að beita ekki kjam- orkuvopnum nema í ýtrustu neyð. Helmut Kohl þrýsti í gær á um að grið- arsáttmáli yrði undirritaður við ríki Varsjárbandalagsins. Hann sagði enn- fremur að ríkistjóm sín í Vestur-Þýska- landi væri reiðubúin að ræða um tak- markanir á stærð þýska hersins eins og Moskvustjóm hefur krafist. Gorbatsjov og Bush takast í hendur á leiðtogafundinum í Washington fýrr á árínu. 28. þing sovéskra kommúnista: Enginn líklegur til að ógna Gorbatsjov í gær virtist Gorbatsjov hafa staðið af sér allar árásir og vera eini maður- inn sem til greina komi í embætti flokksleiðtoga. „Við tölum aðeins um einn frambjóðanda til æðsta embættis kommúnistaflokksins og hann er Míkhaíl Gorbatsjov", sagði formaður lettneska kommúnista- flokksins, Alfred Rubik á frétta- mannafundi í gær. I lok næstu viku verður kosið um stöður í flokknum og þá mun Gorbatsjov ásamt sam- herjum sínum í Sovétsjóminni leita eftir endurkjöri. Hann sagði á mið- vikudag, að hann myndi segja af sér, ef umbætur hans í efhahagsmálum skiluðu ekki árangri innan tveggja ára. Með þessu vísaði hann þó ein- göngu til stöðu sinnar sem flokksfor- manns, en ekki til embættis forseta sem hann var kosinn í til næstu fimm ára í marsmánuði. Rubik sagði að þeir fjölmörgu, sem hafa gagnrýnt Gorbatsjov síðustu fimm árin, heíðu ekki gefið í skyn, að þeir myndu benda á mótframbjóðenda í næstu viku. Stuðningur við Gorbatsjov er mjög víðtækur. Margir íhaldsmenn vilja að hann stjómi flokknum áfram jafnvel þótt þeir séu á móti umbót- áætlunum hans, því að þeir óttast, að án Gorbatjov muni völd kommúnista dvína enn ffekar. Róttækir umbóta- menn eru fáir á þinginu, en þeir hafa mikið fylgi almennra félaga í flokkn- um. Þeir telja margir, að Gorbatsjov sé ekki nógu „vinstrisinnaður" og höfðu fyrir þingið hótað að kljúfa flokkinn. Engu að síður virðist nú Hklegt að flokkurinn haldist í einu lagi því aðeins 80 af 4700 fulltrúum hafa sagt, að þeir muni segja sig úr honum og margir þingfulltrúar segja, að enn sé tími til að jafna ágreining og koma á sáttum. TVúuó hjón sek um dauða sonar SERBAR LEYSA UPP ÞINGID í KOSÓVÓ Stærsta lýðveldi Júgóslav- íu, Serbía, leysti í gær upp héraðstjórnina í Kósóvó, en á mánudag lýstu andófs- menn af albönskum uppruna yfir sjálfstæði héraðsins frá Serbíu. Tanjug fréttastofan sagði, að ákvörðun um þetta hefði verið kynnt serbnesk- um fulltrúum frá Kósóvó á þingi í Pristína sem albansk- ir fulltrúar neita að sækja. „Þing hins sósíaltska lýðveldis Serbíu hefur ákveðið að leysa upp þing og héraðstjóm sjálfstjómar- svæðisins Kósóvó“, sagði í tilkynn- ingunni, en á mánudag lýsti meiri- hluti þingmanna frá Kósóvó-héraði því yfir, að Kósóvo væri sjálfstæð eining innan ríkjasambands Júgó- slavíu með sömu réttindin og önnur lýðveldi. Kósóvó hefur jafnan talist vera hluti af Serbíu-lýðveldinu og stjóm þess sagði strax að ályktun þingmannanna væri ólögleg og bryti í bága við stjómarskrá lands- ins. I tilkynningu Serba í gær var sagt, að sérstakar ráðstafanir yrðu gerðar vegna útvarpsstöðvar Al- bana i Kósóvó og vegna dagblaða sem gefin em út á albönsku. Ekki var sagt hvaða ráðstafanir það yrðu. I Kósóvó-héraði em íbúar í yfir- gnæfandi meirihluta af albönskum uppmna. Tilkynningin um afnám sjálfstjómar í Kósóvó var birt um leið og sagt var frá því að yfirgnæf- andi meirihluti íbúa í Serbíu hefði samþykkt ályktun um að fresta frjálsum kosningum í landinu þar til stjómarskrá Serbíu hefði verið breytt, meðal annars á þann veg, að draga enn frekar úr sjálfræði Kó- sóvó-héraðs. 96.8% þeirra 5.7 milljóna, sem greiddu atkvæði, vildu fresta frjálsum kosningum að sögn dagblaða í Belgrad. Frá nágrannaríkinu Albaníu bámst þær fréttir í gær, að flóttamenn hefðust enn við í vestrænum sendi- ráðum og vildu yfirgefa landið. Flugvél, sem Vestur-Þjóðverjar sendu með hjálpargögn til sendir- ráðs síns í Tírana, var snúið frá, en í gær bættist vemlega í hóp þeirra sem leitað hafa skjóls í erlendum sendiráðum í Albaníu. Fyrr í vikuni hófust mótmæli í Tírana vegna þess að Albanir neita andófsmönnum um vegabréfsáritanir til útlanda, en þeir gripu til þess ráðs að brjótast inn í erlend sendiráð. Stjóm Efnahagsbandalagsins sendi í gær Albaníustjórn harðort skeyti og hvatti hana til að refsa ekki andófsmönnum og til að virða mannréttindi þegna sinna. Albanía er eina landið í Evrópu, sem ekki hefur undirritað Helsinkisáttmál- ann, en stjómvöld hafa gefið til kynna að þau íhugi aðild að sátt- málanum, og að samtökum RÖSE- þjóða. I orðsendingu EB sagði að Albaníustjóm yrði að sýna að hún virti mannréttindi ef hún vildi koma á eðlilegum samskiptum við aðrar þjóðir. Hjónin David og Ginger Twitchell í trúarsöfhuðinum, „Kirkju kristinna vísinda" vom í gær dæmd sek um manndráp vegna dauða tveggja og hálfs árs gamals sonar síns. Þau höfðu reynt að lækna son sinn með bænum í stað þess að gefa honum lyf. Dómurinn var kveðinn upp í Boston í Bandaríkjunum. Margir meðdóm- endur létu í ljós samúð sína með tár- um og ekkasogum. Lögfræðingur hjónanna sagði að dómnum yrði áftýjað en hámarksrefsing, sem býð- ur þeirra, er 20 ára fangelsi. Með dómnum lauk tveggja mánaða réttar- höldum sem hafa einkennst af mikilli tilfinningabaráttu. Með réttarhöldun- um hefur verið reynt að komast að því, hvort hjónunum hefði mátt vera Ijóst að sonur þeirra, Robyn var lífs- hættulega veikur vegna iðraveiki. Vegna veikindanna hefði þeim borið skylda til að leita læknishjálpar þrátt fyrir trú þeirra á lækningamátt bæna. Robyn Twitchell dó í fangi föður síns 8. april 1986 eftir 5 daga veikindi. Læknar báru fyrir rétti að bamið hlyti að hafa virst vera mjög veikt en Twitchell- hjónin sögðu hins vegar að þau hafi ekki haft neina hugmynd um hversu alvarleg veikindin voru og að iðraveikin hafi stafað af mjög sjaldgæfri vansköpun sem fullmennt- aður læknir hefði átt í erfiðleikum með að greina. Eiginmaðurinn skað- aði málstað sinn með því að gangast við því að hafa notað kvalastillandi lyf þegar tannlæknir rótarfyllti í hon- um tönn. Söfnuður hans „Kirkja kristinna vísinda" (The Christian Sci- ence Church) var stofnuð fyrir 111 árum og boðar að „hugur hafi vald yfir efni“. Söfhuðurinn trúir því að hægt sé að lækna veikindi með bæn- um eingöngu. Yfirmaður kirkjunnar, Nathan Talbot, sagði að dómurinn væri kæra á hendur kirkju hans. „Ég tel að hér hafi andleg lækning verið til umfjöllunnar", sagði hann við fréttamenn. „Mér sýnist dómstóllinn ætlast til þess að andleg lækning heppnist í öllum tilvikum". Stöðva fund eistneskra hermanna úr seinna stríði: Sovéskar hersveitir sendar til Eistlands Sovéskir fallhlífarhermenn vom send- ir inn í lítið eistneskt þorp til að stöðva ftind sem herstjórar fullyrða að sé bar- áttufundur eismeskra uppgjafarher- manna í SS- úrvalssveitum Hitlers. Talsmaður eistneskur ríkisstjómarinn- ar, Sergei Chemov, sagði í gær, að 28 brynvarin ökutæki og 15 hertrukkar hlaðnir fallhlífarhermönnum, hefðu þeyst inn í þorpið Tori á miðvikudags- nótt. Eistnesk stjómvöld vissu ekkert um þetta fyrirffam. „Hermenn ganga um götumar. Þeir komu ffá Pskov (í Norður-Rússlandi). Ég hef ekki heyrt um nein átök. Allt virðist vera með kynum kjörum“, sagði Chemov við fréttamann Reuters í símaviðtali ffá höfuðborginni Tallinn. Eistar ætla að mótmæla þessum herflutningum við sovésk stjómvöld sagði Chemov. Embættismaður í Tori sagði að 3000 íbúar þorpsins vasru reiðir og skyldu ekki hvaða erindi hermennimir ættu. ,JÞeir em að sýna hemaðarmátt sinn“, sagði hann. Yfirmaður í sovéska hemum sendi Eistum skeyti á miðvikudag og krafðist þess, að fundur eistneskra uppgjafar- hermanna í Tori yrði bannaður, vegna þess að þar myndu fasistar koma sam- an. Eistnesk stjómvöld vildu ekki banna fundinn til að sýnast ekki vera ólýðræðisleg, en þau hafa gagnrýnt hann og sagt að hann gæti skaðað mál- stað Eistlendinga. Talsmaður stjómar- innar sagði í gær, að skipuleggjendur fundaruppgjafarhermanna hefðu kom- ið ffam í útvarpi skömmu eftir komu Rússa og afboðað fundinn í Tori og sagt gestum að halda sig fjarri bænum. Skipuleggjendur fundarins „Félag um eistneska arfleifð", neituðu ásökunum um að fundurinn væri mót fasista. „Fundurinn er opin öllum sem börðust, hvort sem er með Sovétmönnum eða Þjóðveijum, gegn fasisma og gegn ein- ræði Stalíns. Sumir gætu ef til vill hafa verið í SS“, sagði talsmaður félagsins. Eystrasaltslöndin voru sjálfstæð ríki milli stríða en voru innlimuð í Sovét- ríkin 1940 eftir að Hitler og Stalín gerðu samning um skiptingu áhrifa- svæða. Þjóðveijar lögðu Eystrasalts- svæðið undir sig í árás sinni á Sovét- rikin 1941. Þjóðveijar stofnuðu SS- sveitir skipaðar Eistum og öðrum Eystrasaltsþjóðum sem börðust með 20. deild Waffen-SS. SS- sveitimar voru úrvalssveitir sem ætlað var að beijast í fremstu víglínu og lutu stjóm Hitlers en ekki þýsku herstjóminni. Sveitimar stóðu fyrir ofbeldisverkum gegn almenningi í herteknum löndum Þjóðverja, þar á meðal í Frakklandi, Sovétríkjunum, Hollandi og Tékkó- slóvakíu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.