Tíminn - 06.07.1990, Síða 5
Föstudágur 6.'juíí 199Ó
Tírriihh 5 '
Dómur fallinn í Hafskipsmálinu eftir fimm ára þjark:
MÚSIN FÆDD EFTIR
JÓÐSÓTT FJALLSINS
Sakadómur Reykjavíkur kvaö í gær upp dóm sinn í Hafskipsmálinu,
eftir fimm ára hildarleik þess í dómskerfinu og í flölmiðlum. Þrír voru
sakfelldir, Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi forstjóri Hafskips var
fundinn sekur um flárdrátt, Páll Bragi Kristjónsson framkvæmdastjóri
flármálasviðs var sakfelldur fýrir skjalafals, og Helgi Magnússon endur-
skoðandi fýrir brot á endurskoðendalögum. Fjórtán voru sýknaðir af öll-
um ákærum, þar á meðal Ragnar Kjartansson stjómarformaður Haf-
skips og bankastjórar Útvegsbankans.
Björgólfur og Páll Bragi voru
dæmdir i fimm og tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi, og Helga
var dæmt að greiða 100 þúsund
króna sekt, sem telst að fúllu greidd
með 20 daga gæsluvarðhaldi. Allir
þrír voru aðeins fundnir sekir fyrir
hluta af ákærunum á hendur þeim.
Fjórtán hinna ákærðu voru sýknaðir
af öllum kröfúm ákæruvaldsins. Af
starfsmönnum Hafskips, auk stjómar-
formannsins, vom sýknaðir þeir Ámi
Ámason, Sigurþór Charles Guð-
mundsson og Þórður Hafsteinn Hilm-
arsson. Þá vom sýknaðir Halldór
Guðbjamason, Láms Jónsson, Ólafúr
Helgason og Axel Kristjánsson,
bankastjórar Utvegsbankans, Ingi R.
Jóhannsson endurskoðandi hans, svo
og bankaráð Utvegsbankans.
Ákæruvaldið hafði krafist óskil-
orðsbundins fangelsisdóms yfir þeim
Björgólfi, Páli Braga, Helga og
Ragnari, en skilorðsbundins dóms
yfir öðmm sem ákærðir vom í mál-
inu. Dómsformaður Sakadóms í gær
var Sverrir Einarsson, og meðdóm-
endur hans vom Amgrímur ísberg og
Ingibjörg Benediktsdóttir.
Hinir ákærðu hafa fjórtán daga
áfrýjunarffest til Hæstaréttar, en
ákæmvaldið, sem er í höndum Jónat-
ans Þórmundssonar, sem var skipað-
ur sérstakur saksóknari i málinu, hef-
ur þijá mánuði eftir að því berst í
hendur dómsgerðin ffá Sakadómi til
ákvörðunartöku um áffýjun.
„Hafskipsmáliö
sem slíkt hruniö“
„Þetta kemur mér ekki á óvart, þetta
er það sem ég hef reyndar vitað í
þessi 5-6 ár, sem allur þessi gassa-
gangur hefúr staðið, og vissi að ef
það kæmist eitthvað mannvit að
þessu máli og það yrði rannsakað, þá
yrði það óhjákvæmilegt að það færi
með þessum hætti. Þannig að Haf-
skipsmálið sem slíkt er hmnið - það
sem aldrei var neitt“, sagði Ragnar
Kjartansson fyrrverandi stjómarfor-
maður Hafskips í samtali við Tímann
i gær eftir að dómur var fallinn í mál-
inu.
Aðspurður sagði Ragnar að hann
teldi að yfirvöld dómsmála gætu
dregið lærdóm af mörgu í þessu máli,
og af því mætti draga ályktanir, sem
gætu stutt og bætt okkar rannsóknar-
kerfi, svo ekki væri talað um vinnu-
brögð ákæmvaldsins sem alltaf væri
þörf á að bæta.
„Á þessari stundu er það í raunvem-
lega það eina sem menn þurfa að
sameinast um, að loka þessari bók,
hætta þessum ljóta leik en sameinast
í velvilja að reyna að læra af þessu
máli og draga af því ályktanir. Þá á
ekki að kasta gijóti í þá menn sem að
þessu komu. Það er nánast eins og
hver góði maðurinn á fætur öðmm
sem tengdist málinu hinum megin
við borðið hafi verið haldinn ein-
hvers konar álögum. Og það var ekki
fyrr en farið var að rannsaka málið
fyrir dómi, þá loksins í vetur sem að
öllum var ljóst sem að því komu þá,
að málið var hrunið, það var ekkert í
því“, sagði Ragnar.
Hann sagði einnig að það væri mjög
erfitt fyrir hann að segja til um við-
brögð almennings þegar þetta mál
yrði til lykta leitt.
„Sjálfsagt þarf nú að fjúka af fjós-
haugnum áður en sú staða verður
metin. Og það er nú svona sýnu best,
því það var slíkt hughrifamál í
skammdeginu. Það er svo oft
skammdegi i íslenskri þjóðarsál“,
sagði Ragnar.
„Þessi dómur er réttur,
og hann stendur þó hann
fari upp í hæstarétt!“
„Þetta er mikið fagnaðarefni, og sá
dómur sem maður hefúr alltaf trúað
að kæmi fyrr eða síðar“, sagði Axel
Kristjánsson, lögfræðingur og að-
stoðarbankastjóri í Utvegsbankan-
um. „Ég er afar sæll með þennan
dóm“.
Axel sagðist bera mikla virðingu
fýrir því fólki sem sat í dómarasæti
og treysti sér til þess að dæma í þessu
máli af réttsýni, þrátt fyrir allt mold-
viðrið sem hefði verið í kringum
þetta af hálfú stjómmálamanna og
fjölmiðla þessi ár.
„Þótt ég sé ekki búinn að lesa þenn-
an dóm vandlega, er ég búinn að lesa
það mikið, að ég er sannfærður um
að þetta er réttur dómur og vel unn-
inn“, sagði hann.
Axel sagði að það mætti læra af
þessu máli það sem alltaf væri verið
að gera í þjóðfélaginu og gert var í
þessu máli, að verið væri að dæma
menn á öðrum vettvangi heldur en á
vettvangi dómstóla.
,J>að er harkalegt fýrir þá að þurfa
að bíða í fimm ár eftir að fá svo nið-
urstöðu dómstóla um að þeir séu sak-
lausir af þeim ávirðingum sem búið
er verið að dæma þá fýrir. Ég sam-
gleðst þeim mikið og er mjög feginn
þeirra vegna og náttúrulega sjálfs
míns vegna líka og minnar Qöl-
skyldu", sagði hann um niðurstöðu
dómsins.
Axel sagði að þeir starfsmenn Ut-
vegsbankans, sem voru ákærðir,
hefðu bara verið menn í vondri að-
stöðu með erfitt mál að reyna að gera
sitt besta.
„Við gátum ekki gert meira en við
gerðum og urðum fýrir áfellisdómum
þeirra sem ekki þekktu til málsins,
eins og oft vill vera. En þessi dómur
er réttur, og hann stendur þó að hann
fari upp í Hæstarétt", sagði Axel.
„Þessi 100 þúsund króna
sekt hlægileg“
„Ég fagna þessari niðurstöðu. Hún
er i samræmi við það sem ég átti von
á“, sagði Helgi Magnússon, fýrrum
endurskoðandi Hafskips.
Helgi sagði að þessi 100 þúsund
króna sekt, sem hann var dæmdur til
að greiða, væri slíkt smáatriði, að
honum fýndist hún í sjálfú sér skipta
litlu máli.
„Þama er um að ræða formsatriði
varðandi áritun, sem var einhver
ágreiningur um, og skiptir í raun litlu
í samhengi við þetta stóra mál, Haf-
skipsmálið. Aðalatriðið er það, að
tekið er undir allt sem við höfúm
haldið fram í fjögur ár, og ég hef
haldið því fram allan þennan tíma að
Hafskipsmálið væri ekkert mál. Það
er a.m.k. ekkert svikamál, ekkert
glæpamál og ekkert glæframál. Nú
hefur þetta verið staðfest af Saka-
dómi Reykjavíkur og ég er ákaflega
ánægður með það“, sagði hann.
Helgi sagði feril þessa máls hafa
verið mjög fúrðulegan, og taldi hann
það einstakt, hvemig kerfið hefði
bmgðist aftur og aftur á leiðinni, og
það hefði ekki hlotið faglega og mál-
efnalega umfjöllun fýrr en það barst
Sakadómi Reykjavíkur.
Hann sagði að þessi niðurstaða væri
mjög þungur áfellisdómur yfir mis-
takamönnum málsins, sem væm
skiptaráðendur í Reykjavík á sínum
tíma, saksóknari, rannsóknarlögregla
og endurskoðendur þessara aðila, þar
sem skýrslugerð þeirra lék mjög stórt
hlutverk í þessari mistakakeðju.
Helgi sagði að hann og lögmaður
hans hefðu ekki tekið neina ákvörðun
um hvort hann muni áfrýja dómnum.
„Þeha er ekki tilefni til neinnar
áfrýjunar. Eftir fjögur ár í þessu máli
og eftir allt sem gengið hefúr á, þá er
þessi 100 þúsund króna sekt í sjálfu
sér hlægileg", sagði Helgi. —só
Gæðingadómar á landsmótinu á Vindheimamelum í gær. Muni sló í gegn í A-flokki. Fékk 9,26::
Hæsta einkunn til þessa
Einkunnir 16 efstu hesta í A-flokki
gæðinga í gær vom eftirfarandi:
62 Muni ffá Ketilsstöðum, brúnstjöm-
óttur, fæddur 1981. Eigandi: Svein-
bjöm Sævar Ragnarsson. Knapi:
Traush Þór Guðmundsson. Einkunn:
9,26
33 Þorri ffá Höskuldsstöðum, Eyjaf.,
brúnn, fæddur 1975. Eigandi: Sigurður
Snæbjömsson. Knapi: Jóhann G. Jó-
hannsson, Akureyri. Einkunn: 8,74
11 Sörli ffá Skjólbrekku, brúnn, fædd-
ur 1982. Eigandi: Sigursteinn Sigur-
steinsson, Skjólbrekku. Knapi: Olil
Amble, Stangarholh. Einkunn: 8,70
29 Hugmynd 5820 ffá Kehlsstöðum,
rauð, fædd 1979. Eigandi/knapi: Bergur
Jónsson. Einkunn: 8,70
93 Mímir ffá Selfossi, móbrúnn, fædd-
ur 1981. Eigandi: Magnús Hákonarson,
Selfossi. Knapi: Einar Öder Magnús-
son, Selfossi. Einkunn: 8,68
18 Dagfari ffá Sogni, Kjós, leirljós,
fæddur 1980. Eigandi: Davið Matthías-
son. Rnapi: Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Einkunn: 8,64
1984. Eigandi/knapi: Baldvin Ari Guð-
laugsson. Einkunn: 8,61
70 Blasr ffá Sauðárkróki, brúnn, fædd-
ur 1977. Eigandi: Sveinn Guðmimds-
son, Sauðárkróki. Knapi: Eiríkur Guð-
mimdsson. Einkunn: 8,60
127 Neisti ffá Gröf, Vatnsnesi, rauður,
fæddur 1978. Eigandi: Tryggvi Egg-
ertsson, Gröf. Knapi: Herdís Einars-
dóttir. Einkunn: 8,58
35 Fáni ffá Hala, Djúpárhreppi, brúnn,
fæddur 1982. Eigandi: Maijolyn Tie-
pen. Knapi: Kristinn Guðnason: Ein-
kunn: 8,57
37 Penni ffá Amarholti, rauðstjömóh-
ur, fæddur 1979. Eigandi: Halldór
Magnússon. Knapi: Albert Jónsson.
Einkunn: 8,57
47 Náttffeyja ffá Höskuldsstöðum,
Eyjaf., brún, fædd 1984. Eigandi/knapi:
Bjami P. Vilhjálmsson. Einkunn: 8,57
17 Kolur ffá Stóra-Hofi, brúnn, fæddur
1981. Eigandi: Gunnar B. Dungal.
Knapi: Atli Guðmundsson. Einkunn:
8,56
104 Glófaxi frá Hólmlátri, rauðblesóh-
ur, fæddur 1978. Eigandi: Högni Bær-
ingsson. Knapi: Lárus Hannesson. Ein-
kunn: 8,56
109 Þróttur frá Tunguhálsi II, brúnn,
fæddur 1981. Eigandi: Hjálmar Guð-
jónsson. Knapi: Erling Sigurðsson.
Einkunn: 8,56
20 Eirill frá Akureyri, brúnn, fæddur
1984. Eigandi: Bragi Ásgeirsson.
Knapi: Hinrik Bragason. Einkunn: 8,55
Ath. 9,26 er hæsta einkunn sem veitt
hefúr verið á móri.
Sumar-
tónleikar
á Norðuh
landi
Sumartónleikar verða haldnir f
þremur kirkjum á Norðurlandi í
júlí og ágúst, og er þetta fjórða
sumarið sem tónleikaferðir af
þessu tagi em famar undir yfir-
skriftinni „Sumartónleikar".
Tónleikamir verða í Húsavíkur-
kirkju á föstudögum kl.20.30,
Reykjahliðarkirkju á laugardög-
um kl.20.30. og Ákureyrarkirkju
á sunnudögum kl. 17.00.
Ymsir tónlistarmenn munu láta
til sín taka á tónleikum þessum,
en nú um helgina munu Kol-
beinn Bjamason flautuleikari og
Guðrún Óskarsdóttir semballeik-
ari hefja ferðina. Næstur í röð-
inni er Rristinn Ámason gítar-
leikari, helgina 20.-22. júlí verða
Elísabet Waage hörpuleikari og
Laufey Sigurðardóhir fiðluleik-
ari á ferðinni. Síðustu helgina í
júlí verða þau Margrét Bóasdóh-
ir sópran, Carola Biscoff sópran
og Heinz Markus Göttsche með
tónleika. Sönghópurinn Hljóm-
eyki mun síðan slá botninn í tón-
leikana fýrstu helgina í ágúst,
undir stjóm Hjálmars H. Ragn-
arssonar.
hiá-akureyri.
74 Dögg frá Akureyri, brún, fædd
Tillaga um vímuvarnarnefnd og herferð í sama tilgangi:
„Átak til ábyrgðar“
Tillögu borgarfulltrúa Fram- starfl í nánu samráði við viðkom- ir verða til umræöu, einn í hverj-
sóknarflokks, Sigrúnar Magnús- andi fagnefndir borgarinnar. um mánuði, eru meðal annars:
dóttur, um kcsningu vimuvarn- En það eru fleiri sem áhuga hafa Fjölskyldan án vímu, útivist án
arnefndar, er hafi það hlutverk fyrir forvarnarstarfi vegna vimu- áfengis, áfengi og ofbeldi og fleirL
að leita leiða i baráttunni gegn efna því fyrir dyrum stendur að Þá verður jafnframt spurt: Er
vímuefnum, var vísað tii umfjöll- hafið verði svokallaó „Átak til víman þess virði? í þeirri um-
unar félagsmálaráðs og íþrótta- ábyrgðar". Verður markmið her- ræðu verða tekin fyrir vandamál,
og tómstundaráðs, Tillagan var ferðarinnar að uppræta ósiði og svo sem eyðni, glæpir, áfengís-
lögð fram á fundi borgarstjórnar hættulegar athafnir er fyl&ja í sjúkdómar, hjónaskilnaðir, sjálfs-
í gær. kjölfar áfenglsneyslu. Megin- vig o.fl..
í greinargerð með tiUögunni áherslan verður iögð á forvarn- Aðalfjármögnunarleið átaksins
segir, að borgaryfirvöld eigi að arstarf og ábyrgð einstaklingsins verður sala á styrktarlínu. Jafn-
gangast fyrir samræmdu for- á sjálfum sér. Eru höfuðástæður framt verður leitað eftir afslátt-
varnarstarfi með þvi að samhæfa fyrir tUurð átaksins þær, að um hjá þeim fyrirtækjum sem
starf skólanna, íþróttafélaganna stuðla að skynsemi í meðferð þjónusta verður keypt af. Þáttur
og annarra frjálsra félagasam- áfengis og vörn gegn fikniefnum. hins opinbera í átakinu er enn
taka, kirkjunnar og starfsmanna Mun átakið ná til eins árs og hefj- sem komið er óljós, en vonast er
félagsmiðstöðvanna í hverfunum. ast í þessuro mánuði, eftir fjárstuðningi rikisins.
Gert er ráð fyrir, að nefndin Einstakir málaflokkar sem tekn- jkb