Tíminn - 06.07.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.07.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Föstudagur 6. júlí 1990 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, 110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar Áskrift og dreiflng 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð í lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Húsnæðiskerfið Út af fyrir sig þurfa skoðanir Jóhönnu Sigurðardótt- ur félagsmálaráðherra á húsnæðismálum ekki að koma á óvart. Eigi að síður hljóta yfírlýsingar hennar um að hún steíni að því að leggja niður húsnæðiskerf- ið ífá 1986 að vekja furðu. Félagsmálaráðherra er auðvitað fijálst að segja skoðun sína, en miðað við þá stöðu sem Jóhanna Sig- urðardóttir gegnir í fjölflokkaríkisstjóm hefði hún átt að láta það koma skýrt ffam að hún hefur ekki alræði til þess að ákveða líf eða dauða núverandi húsnæðis- kerfis. Banaráð sín við húsnæðislöggjöfma á hún undir ríkisstjóminni í heild, stjómarstuðningsmönn- um á Alþingi og alþingismönnum yfírleitt. Félags- málaráðherra ætti því ekki að tala eins og sá sem valdið hefur í þessu máli. Jóhanna Sigurðardóttir veit að ekki er samkomulag í þessari ríkisstjóm um að láta húsbréfakerfið leysa al- menna húsnæðiskerfið af hólmi. Um húsbréfakerfið gildir ákveðið samkomulag sem felst í því að slíkt kerfi sé hliðargrein í heildarskipulagi húsnæðismála. Munu flestir geta fallist á að sú skipan sé skynsamleg. Ekki er á neinn hátt tímabært að breyta því megin- skipulagi sem nú er á þessum málum. Hitt er greinilegt að einstök ffamkvæmdaatriði hús- næðiskerfisins standa til bóta. Full ástæða er til að veita orðum ráðherrans athygli að því er varðar fjár- hagshorfur Byggingasjóðs ríkisins. Ráðherrann á að beita sér fyrir skynsamlegum umræðum um úrbætur á fjárhagsstöðu sjóðsins, enda ekki annað að sjá af nefhdaráliti um það efni en að til séu færar leiðir til að koma slíkum úrbótum í kring. Þótt slík leið kunni að vera fólgin í vaxtahækkun að einhverju leyti, er með öllu ástæðulaust að afskrifa hana fyrirffam eða banna umræður um hana. Ef hægt er að sýna ffam á að hög- um sjóðsins sé unnt að bjarga með einhverri vaxta- hækkun er lágmarkið að leyfa umræður um þann möguleika áður en ráðherrann fer að kveða upp dauðadóm yfir almenna kerfmu, en helja húsbréfa- hugmyndina upp sem allsheijarlausn. Á því er m.a. sá galli að engin viðurkenndur samanburður liggur fyrir á þessum kerfum, ef annað væri einrátt en hitt útilok- að. Best er að láta þau vinna saman. Stefna Jóhönnu Sigurðardóttur sætir auk þess mikilli andstöðu í launþegahreyfmgunni og meðal forráða- manna lífeyrissjóða. Hún mætir því bæði pólitískum og faglegum andbyr í þessu stórmáli. Hvað stefnu- breytingu í húsnæðismálum varðar verður aldrei framhjá því gengið að gildandi húsnæðislánakerfi er reist á sérstöku samkomulagi milli ríkisvaldsins og aóila vinnumarkaðarins. Húsnæðislánakerfið í núver- andi mynd varð til sem liður í allsheijarsamkomulagi ríkisvalds og hagsmunasamtaka árið 1986 um efha- hagsþróun og kjaramál. Því sýnist einboðið að breyt- ingar á húsbréfakerfinu verði að ræða við þá sem stóðu aó þessu samkomulagi á sinni tíð. GARRI Ólafur H. Torfason Þjóðvilja- ritstjúri velti þvi fyrir sér í leið- ara s). miðvikudag hvort álfta- stofninn sé nýtanlegur. Þarna varpar fyrrum uppiýsingafull- trúi bændastéttarinnar fram at- hyglisverðri spurningu og tyrír JBugu tímabœrrí. Álftastofninn hér á Jandi er stúr, borðar mikið af iitlum. viðkvæmum griisum á hálendinu og brejTir faiiegum ný- ræktum bænda i múrautt flag á vorin. Þetta hefði ritstjórínn áttað iata sér deUa í hug fyrr, til dæmis þeg- ar hann var í þjúnusíu þeirrar stéttar sem hefur mátt, I gegnum tiðina, gjalda lyrír misvitrar ákvarðanir misviturra inanna. Fyrsta „patent" Fyrir nokkrum árum var bændura skipað að draga saraan framleiðslu sina á kjftti vegua þess að þjúðin hafði ekki undan við að eta það. Þetta var gert Framleiðsian minnkaði, bændum fækkaði, en ekki miliiiíðum. Kjötið varð dýrara og salan : minnkaði og enn varð að minnka framleiðsiuna. Til að vega upp á móti rftskun byggðar var fuudiö upp ,,pateu(“, sem fyrst hét refur og síðan niinkur. Rcfurinn brást og minkurlnn brást og þeir sem þátt tóku eru gjaldþrota. Af hverju datt eng- um þetta fyrr í hug? Þökk sé hugmyndaríkum mftnn- um. Næsta skref i málinu er að finna upp nýtt „patenl“. Átfta- nýtingarhugmynd Þjóðviljarit- stjóraus er gott innlegg í þann hugmyndabanka. Áiftastofninn er stúr og fer stækkandi. Þar fyr- ir utan eru álftir mjðg heppileg nytjadýr að mðrgu leyti. Þær eru hvítar að lit og sjást þar af leið- andi vel á iðngu færi og sé skyggm lélegt má heyra í þeim kvakió laugar Ieiðir. Álftir eru stúrar og kjfttmiklar skepnur og stúrt og gott skotraark fyrir léleg- ar skyttnr. Ef menn eiga ekki hyssu og skot er hægt að drepa álftirnar í sárum (þegar þær eru ófleygar á sumrin), en til þess þarf iíklcga góðan iurk. Bjargar álftin okkur á elleftu stundu? Rúsínan í pylsuendaoum er eft- ir, Þetta kjftt yrði ákaflega ódýrí. Að vísu er kjftt af fuilorðum álft- um óætt og nóg af kjftti hér fyrir, en það er aukaatriði. Álftakjöt mætti til dæmis faakka niður, þurrka og kðggla og markaðs- setja eriendis scm sérstakt heiisu- fóður fyrír gæiudýr grænfrið- unga. Best væri að gera þetta í samráði við Greenpeace til að hafa þá góða, en Þjóðviljarit- stjórinn hendir réttdega á að skefjalaust hvaladráp sé að dæma okkur úr leik sem aivöru friðunar- og umhverfisverndar- Ef þetta tækist vel gætu ísiensk- ir bændur gleymt öllura roltum og refum og snúið sér að arð- bærri útflutniogsframleiöslu. Loksins. Garri. XvtyX-XvtyX 1 VÍTT OG BREITT wm ||;; i|§|n § 11im 1 Fallít up plýsingaauðlind heiti á riti sem Samstarfsnefnd um upplýsingamál gefúr út. Um er að ræða greinasafh sérfróðra manna um öflun upplýsinga, geymslu, úr- vinnslu, notkun þeirra og fleira í þeim dúr. Eins og gefur að skilja er ritið fúllt upp með upplýsingar um upplýs- ingamál og nú á tímum er tölvu- tækni aldrei fjarri umíjöllun um upplýsingar og tengist mjög allri upplýsingatækni ásamt fjarskipta- tækninni og vinnur allt þetta hvað með öðru þegar svo verkast. Því er fjallað um tölvutækni að verðleik- um í ritinu sem ákvarðar að upplýs- ingar séu auðlind. Á sama tíma og lýðum er gert ljóst svart á hvítu hvílík auðlegð felst í upplýsingum og notkun þeirra berst sú frétt að eitt öflugasta upplýsinga- tölvufyrirtæki landsins sé tekið til gjaldþrotaskipta. Fjölmiðlar geta enn sem komið er ekki fengið nein- ar upplýsingar um hvemig í ósköp- unum svo má verða eða vitneskju um stærðargráðu fallítsins. Máttur og dýrð Ekki er það alveg á hreinu, enn sem komið er, hvort upplýsingaöld- in marglofaða er hafm eða hvort hún er að bresta á. Tölvusalar og aðrir sem búa til og selja hugbúnað, veðsetja gagnagrunn og kunna yfir- leitt á nýmóðins upplýsingatækni halda stíft fram, að á upplýsingaöld komist enginn af nema hafa aðgang að upplýsingum og gagnabrunnum í gegnum tölvur og fjarskipti. Þeirra verður mátturinn og dýrðin, og auð- vitað auðurinn. Illa gengur samt að fá upplýst hvaða upplýsingar þetta eru, sem gera eiga handhafa tölva og gagna- grunna að salti jarðar. Kannski maður komist að því með því að lesa bókina um að upplýsingar séu auðlind niður í kjölinn. Eitt af því sem fáfróðan langar til að vita um gildi upplýsinga, gagna- grunna og tölvugeymslu og úr- vinnslu fróðleiks er, hvers vegna öflugasta tölvu- og gagnasölufyrir- tæki landsins er farið á hausinn? Tölvu- og forritasalar ættu að vita öðrum betur hvemig nýta á upplýs- ingar og vinna úr þeim svo til hags- bóta verði, eða einhvers gagns yfir- leitt. Að minnsta kosti liggja þeir aðilar ekki á upplýsingum um hið mikla upplýsingagildi söluvöm þeirra þegar þeir em að kynna vam- ing sinn og selja. Þá er sagt að treysta megi á bók- hald og útreikninga tölvuforritanna og allra þeirra viðamiklu upplýs- inga sem töfratólin galdra fram. En allt í einu em sölumenn upplýs- ingaauðlindarinnar blankir og eng- ar upplýsingar fást um hvers vegna. Kannski hefúr ekki vantað annað en upplýsingar um fólksfjölda á Is- landi og markaðsstærð inn í forrit- in. Það eru þá ekki einu bankamir þar sem farið er með þær stað- reyndir eins og mannsmorð og allar efnahagsstærðir riðlast svo úr verð- ur katastrófa. Göftótt gagnasöfnun Á sama tíma og auðlindaritið kem- ur út og höfúðsölufyrirtæki upp- lýsinagtækni fallerar er birt niður- staða 5 ára upplýsingaöflunar um máleíni skipafélags og úrskurður felldur i Hafskipsmálinu. Rikissjóður hafði 100 þúsundkall upp úr krafsinu í sektarfé, en enginn mun láta tölvutækni reikna út hvað málareksturinn gegn Hafskips- mönnum og bankamönnum kostar ríkissjóð. Ætli sektarféð sé ekki á við sæmi- lega brennivínssekt sem ólátabelg- ur fær fyrir rask á almannaskikk. Tveir skilorðsbundnir dómar eru svo vægir að ekki tekur að nefna að afbrot hafi verið framin. 14 manns em sýknaðir með öllu. Margra ára gagnasöfhun og máls- skjöl í kassavís leiða til svona nið- urstöðu og gaman væri að frétta hvort til sé svo fullkomin tölva að hún geti reiknað út með nokkurri vissu hve mörg ársverk hafa farið í Hafskipsmálin og Útvegsbanka- málin og skyldi vera hægt að búa til forrit sem getur reiknað út hve mik- ið allt fimbulfambið hefúr kostað og hveijir töpuðu og hveijir högn- uðust á öllum skmðningunum sem m.a. snarsneru öllu bankakerfmu. Hefði verið hægt að koma í veg fyrir allt þetta ef upplýsingþjóðfé- lagið hefði verið virkt þegar Haf- skipsfárið upphófst? En vonandi tekst brátt að beisla upplýsingaauðlindina svo að hún fari að minnsta kosti ekki sjálfri sér að voða á hálu svelli fjármála- og viðskiptalífs. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.