Tíminn - 06.07.1990, Side 7
Föstudagur6. júlí 1990
Tíminn 7
VETTVANGUR
Einar Hannesson:
Laxveiðar í sjó eru bannaðar
í íslenskri löggjöf um lax- og silungsveiði eru
ákvæði um að eigi megi veiða lax í sjó. Undan-
tekningar frá banni þessu eru örfáar, þar sem tek-
ið er fram í lögunum að lögbýli eigi rétt til laxveiði
sé slíkra hlunninda getið sérstaklega í fasteigna-
matinu er gilti þegar fyrrgreind lög voru sett 1933.
EIGI MA
VEIjDA
LAX I SJQ
LANOSSAMBAND STANGAVEIÐIFÉLAGA - LANDSSAMBAND VEIÐIFÉLAGA
Miklar umræður um laxveiðar í
sjó hafa farið fram seihustu misseri,
eins og kunnugt er, um laxveiðar í
úthafinu og þá í tengslum við kaup
á úthafsveiðikvóta og um ólöglegar
veiðar á svonefndu „Gráu svæði“ í
Norður-Atlantshafi. Auk þess sem
menn hafa lýst áhyggjum sínum út
af vaxandi ólöglegum veiðiskap á
laxi og göngusilungi við strendur
landsins.
Tvö síðustu ár hafa verið settar af
landbúnaðarráðuneytinu tvær
reglugerðir, annars vegar reglu-
gerð um flutning og sleppingar
laxfiska og vamir og gegn fisk-
sjúkdómum og blöndun stofna sem
sett var árið 1988. Hins vegar regl-
ur um netaveiði göngusilungs í sjó,
sem gildi tóku 2. ágúst 1989, og
endurbætt útgáfa reglnanna frá 4.
maí sl.
Vegna reglugerða þessara er ljóst
að auðveldara verður framvegis en
hingað til að reina sundur löglegan
og ólöglegan veiðibúnað við
strendur landsins. Þá er í fyrr-
greindri reglugerð sett fyrirmæli
um fjarlægð fiskeldiskvía frá ánum
og um staðsetningu hafbeitarstöðva
og lágmarksfjarlægð milli þeirra.
Þessu hvoru tveggja þar að fylgja
betur eftir með auknu eftirliti.
Stóraukin laxgengd á næstu áram
með ströndum frarn vegna vaxandi
fiskræktar og hafbeitar á laxi mun
auka ásókn í ólöglegar laxveiðar.
Auk þess sem aukin friðun á laxi í
úthafinu, sem fyrr var greint frá,
mun skila sér í vaxandi laxgengd
til heimaánna og hafbeitarstöðva.
ísland er víðfrægt meðal laxveiði-
þjóða fyrir þá skynsamlegu lög-
gjöf, að banna laxveiði í sjó, sem
færir því í heimaámar alla stjómun
og nýtingu á laxastofninum, sem
leiðir aftur á móti til þess að margt
er unnt að gera til umbóta á þessu
sviði, eins og reynslan hér á landi
hefur sýnt. Bjartsýnir menn telja
að þess verði skammt að bíða að
allar laxveiðar i úthafmu heyri
sögunni til.
Fari svo, reyndar má segja þegar í
stað, þurfum við að hafa hreinan
Stóraukin laxgengd á
næstu árum með
ströndum fram vegna
vaxandi fiskræktar og
hafbeitar á laxi mun
auka ásókn í ólögleg-
ar laxveiðar. Auk þess
sem aukin friðun á laxi
í úthafinu, sem fyrr var
greint frá, mun skila
sér í vaxandi laxgengd
til heimaánna og haf-
beitarstöðva.
skjöld í þessum efhum og allar
ólöglear veiðar á laxi hér við land
að hverfa. í þessu sambandi má
minna á skipulag um stjómun
veiða á sjávarfiskum og þær tak-
markanir sem þar hafa komið til
sögunnar á seinni áram. Allar lúta
þær leyfum. Okkur sem að lax-
veiðimálum stöndum sýnist að
veiki hlekkurinn í þessum málum
sé nú veiðiskapur utan umráðas-
veiða ánna, í netlögum við sjó og
úti fyrir þeim. Úr þessu þurfi að
bæta. Fyrrgreind reglugerð um
netaveiði göngusilungs er þar til
stórra bóta, þó að fleira þurfi að
koma til, svo sem aukið veiðieftir-
lit, sem unnt sé að sinna í samstarfi
við veiðieftirlit á vegum sjávarút-
vegsráðuneytisins.
UR VIÐSKIPALIFINU
FRIMERKI
Upphaflegar röksemdir
breskra íhaldsmanna
fyrir einkavæðingu
Breski íhaldsflokkurinn geröi einkavæðingu þjóðnýttra fýrir-
tækja að stefnumáli í ávarpi sínu fyrir kosningamar 1979 og til-
nefndi sérstaklega nýlega þjóðnýttar iðngreinar svo sem flug-
vélasmíði og skipasmíðar og æskti líka hlutdeildar einkaaðila í
National Freight Corporation og fólksflutningum (bus services).
x jOTS
«Vköt sv ^.
u .
90
ORDIA
Lundur 8.-12.águst
1990
°S T
\
NY FRIMERKI
Þann 28. júní komu út tvö ný íslensk
frímerki á vegum Póstmálastofnunar.
Myndefni þeirra er íþróttir: bogfimi
og knattspyma. Með þessari útgáfu
hefst kynning á íþróttagreinum, þar
sem myndefni frímerkjanna er
keppnisíþróttir og munu tvö ffímerki
koma út árlega næstu fimm ár.
Bogfimi er ævagömul. Fundist hafa
örvaroddar sem era um það bil 15.000
ára gamlir. Upphaflega var boginn
veiði- og stríðsvopn en þegar ný og
fullkomnari vopn komu til sögunnar
breyttist hlutverk bogans í íþróttatæki.
Elstu heimildir um bogfimi sem
íþróttagrein má rekja allt aftur til 13.
aldar. Hér á landi er greinin mjög ung
og nánast eingöngu stunduð innan að-
ildarfélaga íþróttasambands fatlaðra.
Opinber umræða hófst hér á landi um
skipulagt íþróttastarf fyrir fatlaða á
íþróttaþingi Iþróttasambands íslands
árið 1972, en 17. maí 1979 varíþrótta-
samband fatlaðra stofnað og varð um
leið fullgildur aðili að íþróttasam-
bandi íslands. í dag era starfandi 16
íþróttafélög fatlaðra víðs vegar um
landið og félagsmenn í þeim eru um
2000 talsins.
Knattspyman er sú íþróttagrein sem
einna flestir stunda og jafhframt ein
sú útbreiddasta. Hingað til lands
barst knattspyman fyrir tæpum eitt
hundrað áram og leið rúmlega hálf
öld þar til stofhað var sérstakt knatt-
spymusamband en Knattspymusam-
band íslands (KSÍ) var stofnað 26.
mars 1947. Yfir 80 félög taka þátt í
hinum ýmsu mótum KSI og 1989
vora leiknir 2332 leikir á þeim mót-
um. Landsleikir Islands era orðnir
fjölmargir og fyrsti landsleikurinn
við Dani árið 1947.
Verðgildi merkjanna er 21 króna
hvors um sig og hönnun þeirra hafa
þeir annast: Astþór Jóhannsson og
Finnur Malmquist. Þau era prentuð
hjá Joh. Enschedé en Zonen í Hol-
landi. Fimmtíu stykki era í hverri
örk.
Sérstimplar
Þá verður flóð af sérstimplum núna
í sumar. Íþróttahátíð ÍSÍ, Æskan og
íþróttir, fær fjóra dagstimpla í
Reykjavík 28.6. til 1.7.
Landsmót skáta að Úlfljótsvatni fær
svo átta dagstimpla, dagana 1.7. til
8.7. og era þeir með merki mótsins.
Einnig halda St. Georgsskátar nor-
rænt þing í Reykjavík og verður því
sérstimpill á pósthúsinu í Reykjavík
þann 16. júlí af því tilefni með lilju
St. Georgsskáta í stimplinum.
Þá verður sérstimpill Frímerkjasöl-
unnar á NORDIA sýningunni f
Lundi, 8.-12. ágúst.
Ég vildi aðeins skjóta þeirri hug-
mynd að Póstmálastofnun að mikið
mætti spara í gerð sérstimpla með
því að nota sama form og haft er á
stimplum á erlendum sýningum
varðandi dagsetningar. Þar stendur í
stimplinum, sbr. Nordiu, „Lundur 8,-
12. ágúst" og er því sami stimpillinn
notaður allan tímann. Af hveiju
stendur ekki á sama hátt í landmóts-
stimplinum „1.-8. júlí“ þótt stimpill-
inn sé notaður allan tímann? Þá
þyrfti einnig aðeins einn stimpil þar.
Sama um íþróttahátíðina. Þar mætti
standa „28/6-1/7“. Þetta er aðeins
hugmynd sem enginn vill gera neitt
með. En er ekki þess virði að athuga
málið?
Sigurður H. Þorsteinsson
Kunnasta framsetning þessara sjón-
armiða á upphafsskeiði einkavæð-
ingar mun vera ræða John Moore, þá
aðstoðar-fjármálaráðherra, 1. nóv-
ember 1983: „Hann hóf ræðu sína á
því að draga ffam mikilvægi þjóð-
nýttra greina i atvinnulífinu. Þær
legðu til um 10% vergrar þjóðar-
ffamleiðslu og kringum 13% heildar-
fjárfestingar og hefðu 1,5 milljónir
starfsmanna. ... Þær þyrftu að hlíta
rekstrarreglum opinbera geirans, svo
að hömlur væra á lántökum þeirra,
fjárfestingu og mörgum öðram um-
svifum. Ylli það togstreitu í hugum
ffamkvæmdarstjómar þeirra á milli
viðskiptalegra sjónarmiða og al-
mannaþjónustu. Einnig vék Moore
að tilraunum til að kveða nánar á um
markmið þjóðnýttra fyrirtækja í hvít-
bókum 1961, 1967 og 1978. Hélt
hann ekki, að þær hefðu borið tilætl-
aðan árangur." (Endursögn Ezra lá-
varðar í Privatisation, London 1987,
bls. 46-47)
Breskir íhaldsmenn töldu rök sín
styðja, að góð afkoma varð hjá mörg-
um þeirra fyrirtækja, sem í fyrstunni
vora einkavædd. En andstæðingar
þeirra bentu á, að afkoma fyrirtækj-
anna hefði verið allgóð fyrir og að
einkavæðing þeirra hefði einmitt
gengið greiðlega af þeim sökum. Var
hér átt við Cable & Wireless, Associ-
ated British Ports, Amersham og Na-
tional Freight. Þá sögðu íhaldsmenn
einkavæðingu skapa starfsfólki að-
stöðu til hlutdeildar í fyrirtækjum, en
andstæðingar þeirra bentu á, að þvf
máli gegndi aðeins að marki um Na-
tional Freight Corporation.
Þessum umræðum var ffam haldið á
síðari hluta níunda áratugarins. Fara
þær nú ffam nálega um heim allan,
jafnvel á hinum ólíklegustu stöðum.
UBR
Um leið og samfélagsgjald var upp
tekið á Bretlandi í vor var breytt (eða
niður felld) álagning útsvara á at-
vinnufyrirtæki, sem bæjar- og sveit-
arfélög höfðu verið sjálffáð um. I
stað þess kom 1. april „samræmdur
viðskiptaskattur" (uniform business
rate, ÚBR) á Englandi og Wales, og
tekur hann væntanlega til Skotlands
innan tíðar. Jafnffamt var boðað nýtt
mat „atvinnufyrirtækja", en hið síð-
asta er frá 1973, og verða þau hér eft-
ir endurmetin fimmta hvert ár. Skráð
era á Englandi og Wales 1,6 milljón
atvinnufyrirtæki.
Ríkisstjómin hefur heitið því, að
heildarapphæð þessara gjalda á at-
vinnufyrirtækjum hækki ekki við
breytinguna, heldur muni hún nú að-
eins leiða til samræmingar þeirra
landshluta á milli, en útsvör þessi
vora áður mjög mishá. Til dæmis
hefur það undanfarin ár verið liðlega
þrisvar sinnum lægra í Chelsea í
London heldur en í Sheffield. í bæj-
arfélögum þar sem mest hækkun
verður á þessum gjöldum, mun hún
ffam fara á fimm árum, og ekki verða
umffam 20% á ári.
Stígandi