Tíminn - 06.07.1990, Síða 14

Tíminn - 06.07.1990, Síða 14
14 Tíminn 's.o. Föstudagur 6. júlí 1990 Kínverjar taka menn af lífi með byssukúlu en gæta þess að skotið skaði ekki það líffæri sem sóst er eftir í hvert skipti. Líflátnir Kínverjar líffæragjafar Stjómvöld í Kína hafa hlotið mikla gagnrýni fýrir að hafa stundað aftökur í stórum stíl fýrir pólitísk afbrot síðan þeir brutu á bak aftur lýðræðishreyfinguna með blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar í júníbyijun í fyrra. Nú er það komið fram í dagsljósið að nýru hinna líflátnu hafa verið grædd í þurfandi sjúklinga. Ekki er vitað hvaða öriög hann hefur hlotið ungi andófsmaðurinn sem heríögreglan hefur hér tekið fastan. En kannski eru nýrun hans þegar farin að gagnast einhveijum núlifandi. Kínverskir læknar hafa lagt fram aðstoð sína við því sem næst hveija einustu aftöku síðan í júní í fyrra. Mörg líffæranna hafa verið seld Kínverjum, búsettum erlendis, sem hafa farið til Kína til að gangast undir aðgerðina. LífTæraflutning- amir, sem kosta ailt að einni milljón ísl. kr., hafa hrundið af stað sterkri gagnrýni um að Kínverjar séu með þessari aðferð að afla sér harðs gjaldeyris. Ekki fengið leyfi hinna dæmdu né fjöl- skyldna þeirra Þessi siður hefúr verið stundaður án þess að aflað hafi verið leyfis hinna dæmdu eða fjölskyldna þeirra, í trássi við alþjóðlegan samning gegn pyntingum og öðram grimmdarlegum, ómannúðlegum eða lítillækkandi aðgerðum, sem Kínverjar undirrituðu 1986. Al- þjóðlegar mannréttindastofnanir hafa skorað á Kínveija að leggja þennan sið niður. Kínversk yfirvöld viðurkenna að hafa tekið 700 manns af lífi á und- anfomu ári, en Amnesty Intema- tional álítur þá vera miklu fleiri. Flestir hinna líflátnu vora dæmdir glæpamenn. En Asia-watch, mann- réttindasamtök sem aðsetur hafa í New York, hafa skráð aftökur á 41 þeirra sem tóku þátt í lýðræðismót- mælunum. Auöugir erlendir Kínverjar á biðlista Margir auðugir Kínveijar erlendis, þ.á m. nokkrir ffá Hongkong, era á biðlista hjá kínverskum sjúkrahús- um, fyrst og fremst í Guangdong- héraði, til að fá grædd í sig líffæri. Flestum þeirra er ljóst að nýran sem þeir fá era úr líflátnu fólki. Venjulega lætur kínverska lögregl- an sjúkrahús vita fyrirfram þegar aftaka stendur fyrir dyram. Þá er sjúklingum gert viðvart símleiðis, með telex eða faxi, að fljótlega verði nýra til reiðu, svo að þeir geti verið mættir á sjúkrahúsið í tíma. Nýrun era fjarlægð skv. gamal- grónum siðum. Hefðbundin kín- versk aftökuaðferð er byssuskot í hnakkagrófina sem er kjörin til að gefa læknum tækifæri til að sækja nýtanleg líffæri, s.s, nýra. Aftökurnar skipu- lagðar með tilliti til nýtingar líffæra En þeir sem láta sig mannréttindi skipta segja að aftökumar séu svo nákvæmlega skipulagðar að ef þörf sé fyrir augu séu fangar skotnir í hjartað. Yfirvöldin tryggja líka að þeir sem eiga aftöku yfir höfði sér séu ekki pyntaðir þannig að hætta sé á að líffæri bíði skaða af. Þegar að aftöku lokinni er lík fang- ans flutt í sjúkrabíl af aftökustaðn- um þar sem læknir nemur líffærin brott. Þá fyrst er gengið frá líkinu og líffærin flutt með hraði til sjúkrahússins. Nýmaflutninginn verður að framkvæma innan 12 klukkustunda. Nanfang-sjúkrahúsið í Kanton er annað tveggja sjúkrahúsa í suður- hluta Kína sem er sérhæft í líffæra- flutningum. Á nýliðnum áram hafa a.m.k. 50 nýmaflutningar verið framkvæmdir þar á ári, flestir á er- Iendum Kínverjum. Þar era tvær álmur sem eingöngu era ætlaðar út- lendingum, og skrifstofa í Hong- kong auglýsir þá þjónustu í blöðun- um á staðnum. Kínverskum sendiráð- um uppálagt að þegja Kínversk sendiráð erlendis, sem gera sér ljóst að slíkur siður hlýtur að valda hryllingi erlendra þjóða, einkum og sér í lagi eftir Qölda- morðið á Torgi hins himneska frið- ar, hafa ströng fyrirmæli um að neita að nýra séu tekin úr líflátnum fongum. En fulltrúi Nanfangs- sjúkrahússins í Hongkong segist ekki „sjá neitt ósiðlegt eða hneyksl- anlegt“ við þennan sið. Formaður félags nýmasérfiræðinga í Hongkong, sem vísar sjúklingum með ólæknandi nýmabilun til kín- verskra sjúkrahúsa til að fá ný nýra, hefur staðfest að þau komi frá líf- látnum glæpamönnum. Hann bætir því við að nauðsynlegt sé að sjá þessa venju í samhengi og styðjast ekki við vestrænt siðferði- legt mat. „Þetta era glæpamenn. Af hveiju ætti að fá samþykki þeirra fyrir þessu þegar það á hvort sem er að taka þá af lífi? Það er ekkert verra fyrir þá að gera eitthvað fyrir aðra áður en þeir deyja.“ Þetta er í samræmi við kínverska formið á Búddisma, sem segir að ef einhver deyr öðram til góðs dragi það úr því illa sem hann hefúr gert um ævina.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.