Tíminn - 06.07.1990, Qupperneq 14
14 Tíminn
's.o.
Föstudagur 6. júlí 1990
Kínverjar taka menn af lífi með byssukúlu en gæta þess að skotið skaði ekki það líffæri sem sóst er eftir í hvert skipti.
Líflátnir Kínverjar
líffæragjafar
Stjómvöld í Kína hafa hlotið mikla gagnrýni fýrir að
hafa stundað aftökur í stórum stíl fýrir pólitísk afbrot
síðan þeir brutu á bak aftur lýðræðishreyfinguna með
blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar í júníbyijun í
fyrra. Nú er það komið fram í dagsljósið að nýru hinna
líflátnu hafa verið grædd í þurfandi sjúklinga.
Ekki er vitað hvaða öriög hann hefur hlotið ungi andófsmaðurinn sem heríögreglan hefur hér tekið fastan.
En kannski eru nýrun hans þegar farin að gagnast einhveijum núlifandi.
Kínverskir læknar hafa lagt fram
aðstoð sína við því sem næst hveija
einustu aftöku síðan í júní í fyrra.
Mörg líffæranna hafa verið seld
Kínverjum, búsettum erlendis, sem
hafa farið til Kína til að gangast
undir aðgerðina. LífTæraflutning-
amir, sem kosta ailt að einni milljón
ísl. kr., hafa hrundið af stað sterkri
gagnrýni um að Kínverjar séu með
þessari aðferð að afla sér harðs
gjaldeyris.
Ekki fengið leyfi
hinna dæmdu né fjöl-
skyldna þeirra
Þessi siður hefúr verið stundaður
án þess að aflað hafi verið leyfis
hinna dæmdu eða fjölskyldna
þeirra, í trássi við alþjóðlegan
samning gegn pyntingum og öðram
grimmdarlegum, ómannúðlegum
eða lítillækkandi aðgerðum, sem
Kínverjar undirrituðu 1986. Al-
þjóðlegar mannréttindastofnanir
hafa skorað á Kínveija að leggja
þennan sið niður.
Kínversk yfirvöld viðurkenna að
hafa tekið 700 manns af lífi á und-
anfomu ári, en Amnesty Intema-
tional álítur þá vera miklu fleiri.
Flestir hinna líflátnu vora dæmdir
glæpamenn. En Asia-watch, mann-
réttindasamtök sem aðsetur hafa í
New York, hafa skráð aftökur á 41
þeirra sem tóku þátt í lýðræðismót-
mælunum.
Auöugir erlendir
Kínverjar á biðlista
Margir auðugir Kínveijar erlendis,
þ.á m. nokkrir ffá Hongkong, era á
biðlista hjá kínverskum sjúkrahús-
um, fyrst og fremst í Guangdong-
héraði, til að fá grædd í sig líffæri.
Flestum þeirra er ljóst að nýran sem
þeir fá era úr líflátnu fólki.
Venjulega lætur kínverska lögregl-
an sjúkrahús vita fyrirfram þegar
aftaka stendur fyrir dyram. Þá er
sjúklingum gert viðvart símleiðis,
með telex eða faxi, að fljótlega
verði nýra til reiðu, svo að þeir geti
verið mættir á sjúkrahúsið í tíma.
Nýrun era fjarlægð skv. gamal-
grónum siðum. Hefðbundin kín-
versk aftökuaðferð er byssuskot í
hnakkagrófina sem er kjörin til að
gefa læknum tækifæri til að sækja
nýtanleg líffæri, s.s, nýra.
Aftökurnar skipu-
lagðar með tilliti til
nýtingar líffæra
En þeir sem láta sig mannréttindi
skipta segja að aftökumar séu svo
nákvæmlega skipulagðar að ef þörf
sé fyrir augu séu fangar skotnir í
hjartað. Yfirvöldin tryggja líka að
þeir sem eiga aftöku yfir höfði sér
séu ekki pyntaðir þannig að hætta
sé á að líffæri bíði skaða af.
Þegar að aftöku lokinni er lík fang-
ans flutt í sjúkrabíl af aftökustaðn-
um þar sem læknir nemur líffærin
brott. Þá fyrst er gengið frá líkinu
og líffærin flutt með hraði til
sjúkrahússins. Nýmaflutninginn
verður að framkvæma innan 12
klukkustunda.
Nanfang-sjúkrahúsið í Kanton er
annað tveggja sjúkrahúsa í suður-
hluta Kína sem er sérhæft í líffæra-
flutningum. Á nýliðnum áram hafa
a.m.k. 50 nýmaflutningar verið
framkvæmdir þar á ári, flestir á er-
Iendum Kínverjum. Þar era tvær
álmur sem eingöngu era ætlaðar út-
lendingum, og skrifstofa í Hong-
kong auglýsir þá þjónustu í blöðun-
um á staðnum.
Kínverskum sendiráð-
um uppálagt að þegja
Kínversk sendiráð erlendis, sem
gera sér ljóst að slíkur siður hlýtur
að valda hryllingi erlendra þjóða,
einkum og sér í lagi eftir Qölda-
morðið á Torgi hins himneska frið-
ar, hafa ströng fyrirmæli um að
neita að nýra séu tekin úr líflátnum
fongum. En fulltrúi Nanfangs-
sjúkrahússins í Hongkong segist
ekki „sjá neitt ósiðlegt eða hneyksl-
anlegt“ við þennan sið.
Formaður félags nýmasérfiræðinga
í Hongkong, sem vísar sjúklingum
með ólæknandi nýmabilun til kín-
verskra sjúkrahúsa til að fá ný nýra,
hefur staðfest að þau komi frá líf-
látnum glæpamönnum.
Hann bætir því við að nauðsynlegt
sé að sjá þessa venju í samhengi og
styðjast ekki við vestrænt siðferði-
legt mat. „Þetta era glæpamenn. Af
hveiju ætti að fá samþykki þeirra
fyrir þessu þegar það á hvort sem er
að taka þá af lífi? Það er ekkert
verra fyrir þá að gera eitthvað fyrir
aðra áður en þeir deyja.“
Þetta er í samræmi við kínverska
formið á Búddisma, sem segir að ef
einhver deyr öðram til góðs dragi
það úr því illa sem hann hefúr gert
um ævina.