Tíminn - 06.07.1990, Page 16

Tíminn - 06.07.1990, Page 16
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Trvggvagötu, S 28822 UEHÐBHEFftUffiSKIPTI SAMUINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568 Réttur bíll á réttum stað. Sœvartröföa 2 sfmi 91-674000 LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888 Tíniiiin FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1990 Minnihlutinn gagnrýnir störf sjálfstæðismanna í borgarstjórn: NEFNDARSTORF A NY Minnihluti borgarstjómar hefur hafið þátttöku í nefndar- stjómun, sem fjalla um stjóm fræðslumála Reykjavíkur, á nýjan leik. í bókun, sem borgarfulltrúi Framsóknarflokks Sig- rún Magnúsdóttir flutti á fundi borgarstjómar í gær, em sjálf- stæðismenn gagnrýndir fýrir meðferð þeirra á þessum mál- um. Jafnframt er gerð grein fyrir því, að minnihlutinn muni héðan í frá hafa eftirlit með að farið verði að lögum varðandi verkaskiptingu nefnda. Fulltrúi Framsóknarflokksins, Hallur Magnússon, mun sitja í skólamálaráði fýrir hönd minnihlut- ans. Árið 1986 samþykkti meirihluti borgarstjómar að setja á stofn skólamálaráð við hlið fræðsluráðs Reykjavíkur, sem í bókuninni segir lögum samkvæmt jafhffamt vera skólanefnd. „Allt síðasta kjörtíma- bil áréttuðum við í minnihlutanum gagnrýni okkar á valdníðslu sjálf- stæðismanna í þessum málaflokki með því að taka ekki þátt í störfúm skólamálaráðs. Gagnrýni okkar er enn i fúllu gildi“. Ennffemur segir: „...teljum við það beinlínis hættu- legt fyrir mótun og uppbyggingu skólastarfs í Reykjavik að sjálf- stæðismenn ráðskist einir með þennan mikilvæga málaflokk kjör- timabil eftir kjörtímabil. Við teljum að það forystuhlutverk, sem Reykjavíkurborg hafði í skólamál- um á árum áður í landinu, hafi glutrast niður undir stjóm sjálf- stæðismanna við núverandi að- stæður. Vegna þessa, með tilliti til hagsmuna bama og foreldra þeirra í borginni og til að efla árangurs- rika skólastefnu, munum við fúll- trúar minnihlutans í borgarstjóm taka þátt í nefndarstörfum sem fjalla um stjóm fræðslumála i Reykjavík". Minnihlutinn gerði jafnffamt grein fyrir, að starfað yrði sam- kvæmt niðurstöðum Lagastofnunar Háskóla íslands, er fengin var til að fjalla um málið. En í þeim segir meðal annars að „lögbundin verk- efni einnar nefndar verða ekki frá henni tekin að óbreyttum lögum“. Einnig að skólamálaráð og ffæðsluráð geti ekki starfað hlið við hlið að úrlausn sömu verkefha. „Við munum meðal annars fýlgjast náið með því að meðferð lögbund- inna verkefha fræðsluráðs Reykja- víkur fari samkvæmt lögum“, segir í bókun minnihlutans. „Þetta er verðugt verkefhi og nokkuð sem skiptir alla borgarbúa máli. Eigi að fara að afgreiða einhver mál í skólamálaráði, sem við teljum að lögum samkvæmt heyri undir ffæðslumálaráð, mun þeim verða vísað þangað", sagði Sigrún í sam- tali við Tímann. jkb Hlynur Hafsteinsson heldur á minknum sem hann elti uppi rétt fýrir utan heimili sitt á RrR. Snæfellsjökull í bak- Sýn. Timamynd Ægir Þóröarson Minkur fór flatt á kríuungadrápi Frá Ægi Þórðarsyni fréttaritara Tímans á Hellissandi. í stærsta kríuvarpi landsins, sem er á Rifi á Snæfellsnesi, er krían að mestu leyti búin að unga út. Og þá er ekki að sökum að spyrja um ágang vargsins í það. Undanfarið hefur nokkuð borið á tófu og mink í varpinu og er krían komin í sinn grimmasta ham við að verja ung- ana. Þar sem Rif er inní miðju varpi verpir mikið af kríunni aðeins nokkrum metrum frá íbúðarhúsun- um. Forvitnir krakkar þurfa því ekki að fara langt til að verða fyrir árás hennar. Sumir fá gat á hausinn, en aðrir sleppa betur og leggja flestir þeirra á flótta undan skerandi gargi og hvössum goggum. En minkurinn og tófan láta þetta ekki á sig fá, virðast ekki taka eftir öllum látunum og gefa sér nægan tíma til að metta sig og til að taka með sér nesti heim í greni. Oft verður græðgin þessum dýrum að bana, því auðvelt er að fylgjast með þeim þar sem krían steypir sér nið- ur á þau. Þá eru sprækir strákar til- búnir að elta þau uppi eins og Hlyn- ur Hafsteinsson gerði um daginn, þegar hann sá hvar minkur var að gæða sér á ungum rétt utan við heimili sitt á Rifi. Tók hann sér þá fiskgogg í hönd og hljóp í átt að minknum og eftir smá eltingaleik tókst honum að deyða dýrið, og jafnframt að bjarga nokkrum ung- um í leiðinni. En krían hefur senni- lega ekki skilið tilgang Hlyns með drápinu. Hann slapp ekki við árás hennar frekar en aðrir óboðnir gest- ir sem hætta sér inní varpið. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATÓ í gær: Takmörkun víg- búnaðar á höfum Steingrimur Hermannsson for- sætisráðherra sagði í ræðu sinni á leiðtogafundi NATÓ í gær, að íslendingar gætu ekki sætt sig við, að ekki yrði samið um samdrátt í vopnabúnaði á höfunum í næsta áfanga sam- komulags um öryggismál í Evr- ópu. Leiðtogafundur Atlantshafs- bandalagsins hófst í Lundúnum í gær. Forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra sitja fundinn fyrir íslands hönd. Tillögur Bandaríkjamanna um tilslökun í hemaðarstefnu NA- TO í ljósi veikari stöðu Varsjár- bandalagsins voru megin umræðu- efni fundarins í gær, en Steingrim- ur lýsti sig sammála tillögunum í megin atriðum. Forsætisráðherra minnti á að bæði hann og Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra hefðu lagt ríka áherslu á að óhjá- kvæmilegt væri að taka fyrir og semja um takmörkun vígbúnaðar í og á höfunum. íslendingar hefðu sætt sig við að svo yrði ekki í fyrsta áfanga samkomulags um öryggis- mál i Evrópu, en legðu ríka áherslu á að í næsta áfanga yrði einnig fjallað um vopnabúnað á höfunum og flotastyrk. í tillögum Banda- ríkjamanna væri hins vegar ekki gert ráð fyrir því, heldur að byggt verði á óbreyttu umboði. „Hvers vegna?,“ spurði Stein- grímur. „Skortir okkur það traust, sem við ætlum okkar fyrri andstæð- inga hafa? Ætlum við okkur að halda áfram vopnakapphlaupinu á hafinu? Það ætla ég engum“. Steingrímur lýsti yfir í lok ræðu sinnar þeirri von að nýtt Atlants- hafsbandalag reyndist traust stoð friðar og frelsis í Evrópu. -ÁG Dótturfyrirtaeki SH: ÞORSKRETTUR VERDLAUNAÐUR itviuuuiv i ■ vv/.uig i lauiðj dótturfyrirtæki SH í Bret- iandi, fékk fyrstu verólauu í keppni breskra samtaka i mat- vælaiönaði fyrir nýjung í gerð tiibúinna rétta, fiskréttinn „Cod En Croute" sem fram- leiddur er undir vðrumerkinu „Marico.“ Verðlaunin eru veitt arlega af samtökum breskra matvæta- framieiðenda, „British Frozen Food Federation“, og er tekið tiilit til útlits, bragðs, umbúða, IVIUUVIIIIU^U Ulll uuuvuu verðs, og eru verðlaunin mjðg eftirsóknarverð og talin mikil viðurkenning. Þetta var i fyrsta sinn sem IFPL tók þátt í þessari keppni. Verðiaunarétturinn er frosinn Oskréttur tilbúinn beint í ofn- inn, þar sem þorskur er aðal- uppistaðan ásamt rækjum i ostasósu. Umbúðir fyrir „Mar- ico“ fiskréttina eru prentaðar hjá Umbúðamiðstöðinni hf. —só

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.