Tíminn - 10.07.1990, Page 2
I''
M.IJ.l.l.M.I t. t.
2 Tíminn
c f i m.
Þriðjudagur 10. júlí 1990
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra spáir að á næstu árum hefjist viðræður um út-
víkkunarákvæði íslendinga í lokasamþykkt NATO fundarins:
Innanríkismál Rússa
ráða þróun á höfunum
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segir það velta á
þróun innanríkismála í Sovétríkjunum hvenær pólitískur vilji
verði til þess innan Atiantshafsbandalagsins að semja um tak-
mörkun vígbúnaðar á höfunum.
„Sovétmenn þrýsta mjög á um að
gengið verði til viðræðna um tak-
mörkun og eftirlit vígbúnaðar á höf-
unum,“ sagði Steingrímur í samtali
við Tímann í gær. „Ef ekki verður
bakslag í þróun mála í Sovétríkjun-
um trúi ég því að á næstu árum setjist
stórveldin niður gagngert til þess að
ræða þessi mál.“
Forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra komu til landsins á laugardag
eftir að hafa setið sögulegan leið-
togafund Atlantshafsbandalagsins
þar sem fallist var á stórfellda slökun
í vamarstefnu bandalagsins í kjölfar
breyttra aðstæðna í Austur-Evrópu.
„NATO var með þessu að bregðast
við þeirri byltingu sem hefur orðið í
Evrópu; óvinurinn er eiginlega horf-
inn,“ sagði Steingrímur í samtali við
Tímann. „í ályktun fundarins er boð-
ið upp á ýmislegt til þess að auka
traust á milli austurs og vesturs og
m.a. að það verði fulltrúar frá löndum
Varsjárbandalagsins í Brussel. Síðan
er eftir að ræða hver þarf að verða sú
breyting á Atlantshafsbandalaginu til
þess að það geti staðið við það sem
verið er að bjóða upp á. NATO hefur
verið mjög lokað. Hvemig ætlar það
að starfa? Ætlar það að starfa meira
fýrir opnum tjöldum? Það þýðir ekki
að hafa sendifúlltrúa frá Varsjár-
bandalagslöndunum hjá NATO ef
þeir fá ekki að hafa aðgang að nein-
um upplýsingum. Þessu hafa menn
mjög velt fyrir sér en segja má að því
hafí verið ýtt til hliðar í bili.“
Forsætisráðherra sagði að önnur
stór spuming sem væri ósvarað eftir
fúndinn varðaði tengsl Atlantshafs-
bandalagsins við CCE, Öryggis-
stofnun Evrópu.
-ÁG
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra.
Margir í Þórsmörk um
helgina:
Olvun
ogáflog
Talið er að um 2000 manns hafi
gist í tjöldum í Þórsmörk um
helgina. Ekki var laust við að
fólk fengi sér neðan í því og
þurfti lögreglan á Hvolsvelli að
hafa töluverð afskipti af mann-
skapnum. Ellefú fómarlömb
Bakkusar fengu að dúsa í fanga-
klefum lögreglunnar og þrír vom
teknir fýrir ölvun við akstur.
Nokkuð var um áflog á svæðinu
og vegna þess vom tveir menn
fluttir suður á sjúkrahús. Einn
með áverka á andliti og annar fót-
brotinn.
Sérstaklega var margt um mann-
inn í Húsadal og sáu þar 25
manns um gæslu. Vitaskuld hag-
aði mcginþorri Þórsmerkurgcsta
sér skikkanlega en að sögn lög-
reglu var verslunarmannahelgar-
bragur yfir Þórsmörk um helgina.
GS.
Vigdís forseti heilsar Unni Stefánsdóttur fóstru og föður hennar Stefáni Jasonarsyni frá Vorsabæ. I baksýn
má sjá Ólaf Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
Velheppnuðu landsmóti
skáta lokið:
Forseti,
biskup og
ráðherrar
litu við
Um helgina lauk landsmóti skáta
sem haldið var að Úlfljótsvatni. Tal-
ið er að um 2500 manns hafi tekið
þátt í mótinu síðustu daga þess.
Margir góðir gestir heimsóttu skát-
ana síðastliðinn laugardag m.a. Vig-
dis Finnbogadóttir forseti Islands,
herra Ólafúr Skúlason biskup Is-
lands, Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðhcrra.
Nokkuð kalt var í veðri og hvasst á
mótstað um helgina en skátar létu
það ekki á sig fá. Aðstandendur
mótsins eru ánægðir með hvemig til
tókst og skátamir em ekki síður kátir
eftir skemmtilegt landsmót.
Forseti íslands gróðursetti tré í svo-
kölluðum Vigdísarlundi en það er
lundur sem ber nafn forsetans. Um
700 gestir sem vom viðstaddir gróð-
ursetninguna fylgdu fordæmi Vig-
dísar og gróðursettu tré í lundinn.
Ólafúr Skúlason blessaði laossinn
sem skátar höfðu reist við Ulfljóts-
vatn. Jóhannes Páll páfi blessaði
þennan sama kross á Landakotstúni
þegar hann var hér í heimsókn fýrir
rúmu ári síðan. -EÓ
Óli Kr. í Olís kaupir Skrifstofuvélar
Gísla J. Johnsen h.f.:
Hlutabréfaút-
boð á döfinni
Að sögn framkvæmdastjóra hins nýja fýrirtækis, Friðriks Friðriks-
sonar, stendur vilji til að opna Skrifstofuvélar-Sund hf. fyrir utan-
aðkomandi aðilum með hlutabréfaútboði. Fyrirtækið Skrifstofuvél-
ar-Gísli J. Johnsen hf. var lýst gjaldþrota í síðustu viku og Sund
hf., þar sem Óli Kr. Sigurðsson er stjómarformaður og aðaleig-
andi, keypti helstu eignir Skrifstofuvéla og rekstur af skiptaráð-
anda á sunnudag. Friðrik segir ekki vera hægt að upplýsa kaup-
verð að svo stöddu.
Allir launasamningar 60 til 70 starfs-
manna vora yfirteknir og hið nýja fyr-
iræki hóf störf í gær undir bráða-
birgðanafúi Skrifstofúvélar- Sund hf. í
samningnum fólst að ekki vom yfir-
teknar neinar skuldir þrotabús Skrif-
stofúvéla-Gísla J. Johnsen. Gísli
keypti fyrirtækið fyrir þremur árum
síðan og meðal stærstu kröfúhafa í bú-
ið munu vera fyrrverandi eigendur
vegna vanefúda kaupsamnings.
„Eg vann með Óla Kr. í hlutabréfaút-
boði Olís og okkur fannst sorglegt að
sjá fýrirtæki eins og Skrifstofúvélar
með traust viðskiptasambönd vera rif-
ið niður. En það vill gerast i þrotamál-
um að íyrirtæki em eyðilögð á mjög
skömmum tíma. Okkur fannst því
skynsamlegt að gera þetta tilboð. Ég
verð aðeins ffamkvæmdastjóri tíma-
bundið á meðan á endurreisn stendur
en ætla ekki að vera hér til frambúðar.
Eins og er þá er ég að leita að stjóm-
endum“ sagði Friðrik í samtali við
Tímann.
Hann sagði ekki vera hægt að segja
nákvæmlega til um hvenær hafist yrði
handa við útboð hlutabréfa. „Til að
byrja með skiptir mestu máli að
treysta ímynd fýrirtækisins út á við og
ná sambandi við viðskiptaaðila er-
lendis sem auðvitað em áhyggjufúllir
um sína ffamtíð. Þá er ekki síður mik-
ilvægt að tryggja að það starfsfólk
sem hér er viiji vinna með okkur því i
þeirra þekkingu og reynslu em heil-
mikil verðmæti fólgin,“ sagði Friðrik.
Fyrirtækið hefúr verið umboðsaðili
fyrir IBM/PC á íslandi en sá samning-
ur mun nú allur vera í endurskoðun og
ekki víst um ffamhald. Af öðmm við-
skiptaaðilum má nefna Omm búðar-
kassa, Star prentara og fleira. „Ég hef
hér lista yfir fjörutíu umboð og það er
ekki raunhæft að ætlast til að við höld-
um þeim öllum. En við vonum auðvit-
að að við getum haldið sem flesúim"
sagði Friðrik.
jkb
Gunnar Eyjólfsson skátahöföingi og íslensk böm sýna Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta fsiands mótssvæöið. Tímamyndir Ami Bjama
Sér fyrir endann á þurrkunum á Suðurlandi:
Meta skemmdir
á túnum í dag
Herra Óiafur Skúlason biskup blessar krossinn.
Miklir þurrkar hafa gert sunnlensk-
um bændum lífið leitt undanfarið og í
dag munu ráðunautar ffá Búnaðar-
sambandi Suðurlands fara á stúfana
til að kanna tjón af völdum þeirra.
Að sögn Sveins Sigmundssonar
ráðunauts hjá Búnaðarsambandinu
hafa verið nokkur brögð að því að
bændur hafi hringt og leitað ráða en
tún em víða farin að brenna þar sem
sendinn jarðvegur er undir. Nú sér
hins vegar fýrir' endann á þeim
skemmdum því samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofúnni fer að rigna
sunnanlands og vestan í dag. Norðan-
lands og fyrir austan er spáð úrkomu-
lausu veðri áfram en heyskapur er vel
á veg kominn í Eyjafirði. í Skagafirði
hefur verið þurrt að mestu undanfam-
ar vilcur en bændur þar era misjafn-
lega langt komnir með slátt og spilar
nýyfirstaðið Landsmót hestamanna
þar m.a. inn í. Þrátt fýrir mikla
þurrka er heyskapur á Suðurlandi
víða vel á veg komin og bændur sums
staðar rétt um það bil að ljúka við
fyrri slátt.
- ÁG