Tíminn - 10.07.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 10. júlí 1990
Tíminn 3
Kvenfólkið jsækir á
í Háskóla Islands
Niðurstöður að lokinni innrit-
un nýnema til náms við Há-
skóla íslands sýna svo ekki
verður um villst að fjöldi
kvenna í langskólanámi eykst
frá ári til árs. í sumum grein-
um sem hingað til hafa talist
svokallaðar hefðbundnar
kariagreinar eru nú konur að
komast eða þegar komnar í
meirihluta. Þá hefur jafnframt
fjöldi karimanna aukist í
sjúkraþjálfun en þetta er
fýrsta árið sem tekið er
óhindrað inn í þá deild.
Fjöldi nýnema telur samtals 1580
einstaklinga og eru þar tæp 58 af
hundraði konur. Nemendafjöldi við
Ný staðfræði-
kort af Reykja-
nesskaga
Landmælingar Islands hafa gefið út
níu staðfræðikort í mælikvarðanum
1:25000 af Reykjanesskaga. Áður
hafa komið út í sama mælikvarða
átta kort af Reykjavík og nágrenni.
Kortin eru unnin eftir nýjum sam-
ræmdum reglum um skráningu upp-
lýsinga á kort.
Staðffæðikortin sem nú koma út ná
yfir Reykjanesskagann vestan
Straumsvíkur. Hvert kortblað þekur
168.5 km2 en kortblöðin níu þekja
1516.5 km2. Kortin eru prentuð á
vandaðan pappír og er hver örk 84
cm á lengd og 59,4 cm á breidd.
Staðffæðikortin eru prentuð í fímm
litum. Alls eru 164 tákn notuð á
kortunum, meðal annars eru öll
mannvirki sýnd svo sem byggingar,
vegir, veitur og fleira. Margir aðilar
hafa átt þátt í gerð þessara korta.
Kortin eru seld almenningi í korta-
verslun Landmælinga íslands að
Laugavegi 178, 2. hæð.
Sæmundur Guðmundsson.
Sjávarafurðadeild
Sambandsins:
Sæmundur tekur
við af Benedikt
Sæmundur Guðmundsson, inn-
kaupastjóri Iceland Seafood Corpór-
ation í Bandaríkjumun, hefur verið
ráðinn aðstoðarffamkvæmdastjóri
Sjávarafiirðadeildar ffá 1. september
næstkomandi. Sæmundur mun auk
þess að vera fulltrúi ffamkvæmda-
stjóra hafa yfirumsjón með sölu- og
markaðsmálum.
Starfinu gegndi áður Benedikt
Sveinsson, sem ráðinn var ffam-
kvæmdastjóri deildarinnar þann 1.
júlí sl. GS.
skólann er samtals tæplega 4400
manns. Þar af konur tæp 56 af hveiju
hundraði nemenda. „Fjöldi kvenna
eykst með hveiju ári sem líður,“
sagði Brynhildur Brynjólfsdóttir,
umsjónarmaður nýskráninga við HÍ,
í samtali við Tímann. Hún sagði
starfsmenn hafa tekið eftir því að í
lyfjaffæði, sem hefur verið ein karla-
deildanna, eru konur nú í meirihluta,
57 talsins á móti 28 körlum. Þá sóttu
í tannlæknadeild þrettán konur og
fjórtán karlar. Í lagadeild sóttu 159
manns, þar af 78 konur og 81 karl-
maður. „Munurinn í læknisffæðinni
minnkaði einnig töluvert. Af heildar-
fjölda nemenda eru konur 146 á móti
158 karlmönnum. En af umsóknum
nýnema eru 64 konur á móti 48 körl-
um,“ sagði Biynhildur.
Meirihluti nemenda við raunvísinda-
deild er enn sem komið er karlmenn,
277 samtals, en að sögn Brynhildar
sækja konur á þar sem í öðrum deild-
um og eru nú 152 talsins. „Þetta er
fyrsta árið sem tekið er óhindrað inn í
sjúkraþjálfun en síðan komast tutt-
ugu af umsækjendum áffam á öðru
ári. Af sextíu umsækjendum voru 23
karlmenn og 37 konur,“ sagði Biyn-
hildur. Síðastliðið ár stunduðu aðeins
þrír karlmenn nám í sjúkraþjálfun.
jkb
Um 2.100 atvinnulausir í júni:
Aldrei fleiri
síðan 1969
Fara verður aUt aftur til 1969 tU
að finna fieiri atvinn ulausa í júní-
mánuði heldur en nú. Fjöidi
skráðra atvinnuleysisdaga í júní
svarar því að 2.100 manns hafi
verið atvinnulausir allan mánuð-
inn. Og 2.080 voru á skrá siðasta
virkan dag mánaðarins, þannig
að ástanðið virðist lítið hafa
breyst í mánuðinum. Af atvinnu-
lausum voru um 1.220 konur og
um 900 karlar. Atvinnulausum
fækkaði aðeins um 125 mflli maí
og júni Þar af varð brevtingin
langmest á Austurlandi, en mjög
lítfl annars staðar. Um helmingur
atvinnulausra er á höfuðborgar-
svæðinu. - HEl
ttfliA Ují
- án áfengis
20. LANDSMÓT UMFÍ
Mosfellsbæ 12.-15. júlí 1990
r
A hverjum degi þarft þú bæði að velja og hafna. Miklu máli
skiptir hvað þú velur, því hver ákvörðun getur haft áhrif á það
hvernig líf þitt verður.
Heilbrigt líf er það mikilvægasta sem þú getur valið þér þín
vegna og þeirra sem þú umgengst.
Heilbrigöisráðherra