Tíminn - 10.07.1990, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.07.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn ÞriðjudagurlO. júlí 1990 FRÉTTAYFIRLIT HOUSTON - Bandaríkja- stjórn vill ekki að banda- menn hennar styrki Mikael Gorbatsjov leiðtoga Sovét- ríkjanna með Ijárhagsað- stoð. Á leiðtogafundi sjö stærstu iðnríkja heimsins í Houston er búist við miklum umræðum um þetta. Ljóst er að Bandaríkjamenn munu beita bandamenn sína þrýst- ingi svo þeir hætti við slík áform. Þeir munu líka reyna að fá leiötogana sjö til að fallast á aðgerðirtil að draga úr aðstoð við landbúnað I löndum sínum og efla með því frjálsa samkeppni land- búnaðarvara. MOSKVA - Sovéski komm- únistaflokkurinn greiddi at- kvæði um að breyta stjórn sinni. Útkoma atkvæða- greiðslunnar var álitin mikill sigur fyrir Gorbatsjov. Full- trúar greiddu því atkvæði með miklum mun að 15 leið- togar kommúnistaflokka sovétlýðveldanna skyldu sitja í stjórnarnefnd komm- únistaflokssins, „Politburo". Eftir þessa breytingu er talið að harðlínumenn geti ekki myndað meirihluta gegn Gorbatsjov í stjórnarnefnd- inni. MOSKVA - Stjórnarnefndar- maðurinn Alexandir Yakovlyev varð í gær bitbein vinstri og hægri manna á sovéska flokksþinginu. Yakovlyev er óvinsæll meðal harðlínumanna kommúnista og rússneskra þjóðernis- sinna þar sem hann er helsti höfundur „Perestrojka“-um- bóta Gorbatsjovs. Hann sagði á 28. þingi sovét- kommúnista í gær að hann hefði orðið fórnarlamb lyga og níðskrifa andstæðinga sinna. NAIRÓBÍ - Stjórn Kenýa sakaði bandaríska sendiráð- ið í Nairóbí um að skipta sér af innanríkismálum landsins. Lögreglumenn og andófs- menn tókust á í úthverfi höf- uöborgarinnar í gær, þriðja daginn í röð, en andófsmenn mótmæla „lýðræði eins flokks" í landinu. JÓHANNESARBORG Vopnaðir hægri menn hót- uðu í gær að grípa til ofbeld- is gegn umbótasinnaöri rík- isstjórn landsins ef haldið yrði áfram að handtaka menn grunaða um þátttöku í sprengjutilræðum. FRANKFURT - Vestur- þýsku sigurvegararnir í heimsmeistarkeppninni í fót- bolta héldu heim í gær. Þeim var fagnað innilega en hátíð- arhöld vegna sigursins í Þýskalandi mörkuðust af of- beldi og að minnsta kosti þrír menn létu lífið. MANAGUA - Verkamenn ( verkalýðsfélögum hliðhollum Sandínistum eru nú I verk- falli í Nikaragúa. Þeir reistu vegartálma á götum og tók- ust á við stuðningsmenn rík- isstjórnarinnar. Litið er á þetta verkfall sem mikla ógn- un við ríkisstjóm Viólettu Chamorro. Albanir flýja yfir „múrinn(í Austur-þjóðverjar standa rólegir í biðröð utan við banka fýrír 1. júlí. Biðlund þeirra fér nú minnkandi Austur-Þjóðverjar fá annan skammt af þýskum mörkum: Brúnin þyngist á A-Þjóðverjum Austur-Þjóðveijar stóðu í biðröðum á mánudag til að skipta austur- þýsk- um mörkum fyrir (vestur)-þýsk. Margir létu í ljós reiði vegna verð- hækkana og aukins atvinnuleysis. Þegar Austur-Þjóðverjar skiptu pen- ingum í síðustu viku stóðu þeir þolin- móðir í biðröðum en mannfjöldinn á mánudag var ekki jafn skapgóður og lét í ljós óánægju sína með hrinding- um og blótsyrðum. „Yttu ekki á mig“ hrópaði ungur maður að næsta manni í röðinni utan við Berliner Sparkasse í Austur-Berlín. „Guð, ég þakka fyrir að búa hér ekki lengur -Þetta versnar daglega," sagði Gerd Voss 47 ára gamall slátrari sem fluttist úr landi til Numberg í april. Samkvæmt efnahagssáttmála þýsku ríkjanna mátti hver Austur-Þjóðveiji taka 2000 mörk af bankareikningi sínum í síðustu viku en í gær mátti hver taka út eins og hann vildi. Marg- ir tóku út háar fjárhæðir. „Hátt verð- lag hefúr leitt til þess að marga vant- ar peninga," sagði Kurt Loeffler, tals- maður austur-þýskra sparisjóða. Austur-þýsk heildverslun er enn i höndum stórra ríkisrekinna einokun- arhringa og þótt samkeppni eigi að ríkja er verðlag hátt jafhvel þótt mið- að sé við verðlag á Vesturlöndum. Kjöt, grænmeti og brauð kostar mis- mikið í A-Þýskalandi en verðið er allt að tvöfalt hærra en í V-Þýska- landi en þar em meðallaun þrefalt hærri. „Verðlag er almennt of hátt,“ sagði Manfried Ortlieb, deildarstjóri í austur- þýska efhahagsráðuneytinu en ráðuneytið gekkst fyrir könnun í mörg hundmð verslunum í Austur- Þýskalandi í síðustu viku. „Verslun- areigendur neyða með þessu við- skiptavini sína til að fara vestur fyrir landamærin til að versla en það vild- um við koma I veg fyrir“ sagði hann. Opinberar verðlagshömlur em enn á sumum vömtegundum en þær skipta marga neytendur litlu þar sem hið op- inbera verð er líka of hátt. Til marks um það er verkfall leigubílsstjóra I Austur-Berlín á mánudag en þeir kröfðust þess að verð á þjónustu þeirra yrði lækkað. Þeir segja að til- skipun ríkisstjómarinar um tvöfold- un á taxta leigubílsstjóra hafi hrakið frá þeim viðskiptavinina. I Austur- Þýskalandi em verkalýðsfélög óróleg og von er á aðgerðum þeirra til að vemda lífskjör félagsmanna sinna. Félag jámiðnaðarmanna IG í Austur- Þýskalandi hefúr hótað verkfalli ef ekki næst fram mikil kauphækkun og stytt vinnuvika. Stjómvöld hvetja verkalýðsfélög til að sýna biðlund og segja að kaupkröfúr stefni I hættu rekstri margra fyrirtækja og geti auk- ið enn á atvinnuleysið. í júní vom 142.000 menn atvinnulausir og hafði atvinnuleysi aukist um 50% ffá fyrri mánuði. Nú er skemmra en ár ffá því að fjöldaflótti Austur-Þjóðveija varð til að steypa kommúnistastjóm Austur- Þýskalands. Sams konar flótti Al- bana úr landi virðist nú ógna síðustu harðlínustjóm kommúnista I Evrópu. Aldrei áður hefúr orðið vart jafn mikillar óánægju í Albaníu en 6000 Albanir hafa nú „greitt atkvæði gegn stjóminni“ með því að leita hælis I erlendum sendiráðum I höfúðborg- inni Tirana þar sem þeir biða þess að fá hæli á Vesturlöndum. Astandið I sendiráðunum þykir minna á ástand- ið í v-þýskum sendiráðum í Austur- Evrópu á síðasta ári. Þá flúðu 50.000 Austur-Þjóðveijar til Vestur-Þýska- lands og leiddi það til almennrar uppreisnar sem kom a-þýsku komm- únistastjóminni ffá völdum. Flótti Albana úr landi hefúr orðið til þess að umbótamenn hafa eflst í ríkis- stjóm Albaníu. Innanrikisráðherrann Simon Stefani var rekinn á laugar- dag ásamt nokkmm öðmm harðlínu- mönnum og í gær vom kynntar enn ffekari breytingar á ríkisstjóminni en þá vom fjórir ráðherrar sem farið hafa með efnahagsmál reknir úr rík- isstjóminni. Enn er ekki vitað hvort þessar breytingar boða vemleg um- skipti í Albaníu. Albanimir sem nú hafast við í er- lendum sendiráðum óska flestir eftir að flytjast til „öflugs ríkis sem sé langt í burtu“. Þetta land er I hugum flestra Vestur-Þýskaland og hefur Genscher utanríkisráðherra Vestur- Þjóðveijar boðið þá velkomna. Tal- maður utanríkisráðuneytisins í Bonn, Hans Schumacher, sagði að enn hefði ekki fengist leyfi til að senda hjálpargögn til vestur-þýska sendiráðsins í Tirana þar sem flestir flóttamennimir hafast við. Hann sagði að vegna tafa við flutningana hefði reynst erfiðara að aðstoða Al- bani en Austur-Þjóðveija fyrir ári síðan en reynslan af flótta Austur- Þjóðveija kæmi nú að gagni. Helmingur stórra borga nær ekki endum saman á þessu ári: Bandarískar borgir nálgast gjaldþrot Borgir víðs vegar um Bandaríki Norður-Ameriku berjast nú við að ná endum saman. Gert er ráð fyrir að um helmingur borga og bæja með meira en 10.000 íbúum lendi í greiðsluerf- iðleikum á þessu ári. Borgarstjóm höfúðborgarinnar Washington til- kynnti í síðustu viku að hún gæti hvorki greitt 55 milljón dala I lífeyr- issjóð borgarinnar né 30 milljón dali til almenningssamgangna í lok fjár- lagaársins 30. september. „Við höfum fyrr átt í greiðsluerfiðleikum en aldr- ei jafnmiklum og nú,“ sagði talsmað- ur fjármálaskrifstofu borgarinnar, Willy Lynch, í samtali við fréttamann Reuters. „Lausafjárstaða okkar er erfið og það sama á við um margar aðrar borgir í Bandarikjunum, sér- staklega á austurströndinni," sagði hann. í könnun sem „Samband banda- rískra borga“ (National Leage of Cities) birti í þessum mánuði kemur fram að Washingtonborg er ekki ein um að eiga í fjárhagserfiðleikum. Helmingur þeirra 576 borga og bæja sem hafa flciri en 10.000 íbúa býst við að tekjur dugi ekki til að mæta út- gjöldum. Tekjur hafa minnkað þar sem hagnaður fyrirtækja hefur dreg- ist saman og minni söluskattur er inn- heimtur. Kostnaður hefúr aukist til dæmis vegna umhverfisvemdar og við heilbrigðisþjónustu m.a. vegna eyðnisjúkdómsins. í New-York borg var spáð miklum greiðsluhalla en til að mæta honum hafa borgaryfirvöld hækkað tekju- og eignaskatta en dregið úr framlögum til almenningsgarða, bókasafna og annarrar þjónustu við almenning. Talsmaður borgarinnar, Charles Bra- dy, sagðist óttast greiðsluhalla líka á næsta ári. „Þá veit ég ekki hvað ger- ist,“ sagði hann fféttamanni Reuters. „Það er ekki hægt að hækka skatta endalaust en draga úr þjónustu sér- staklega þar sem kröfúr um bætta þjónustu hins opinbera aukast I sí- fellu“. Borgarstjómir kenna ríkisstjóm Ronalds Reagans um ástandið en hann lét skera niður framlög ríkisins til sveitarfélaga um marga milljarða dala. Fang Lizhi segir stjórnina of lina við kommúnista í Kína: Andófsmaður gagnrýnir stefnu Bandaríkjanna Frægasti andófsmaður Kínverja, Fang Lizhi, sagði í gær að stjóm Bandaríkjanna væri of lin í sam- skíptum sínum við harðlínu- kommúnista í Kína. Fang dvaldi ásamt konu sinni rúmt ár í banda- riska sendiráðinu í Peking. Hann sagði í viðtali við dagblaðið Los Angeles Times að hann væri þakklátur bandariskum stjóm- völdum fyrir að hafa veitt sér hæli eftir blóðbaðið á Torgi hins him- neska ffiðar í júm' 1989 en hann sagði að þau gætu gert meira til að auka þrýsting á stjómvöld í Kína. Viðtalið við Fang var tekið i Cambridge háskóla þar sem hann gegnir stöðu gestaprófessors I stjömufræði. Kínveijar leyfðu honum að yfirgefa bandaríska sendiráðið og fara úr landi 23. júni og þá hélt hann til Bretlands. Fang sagði að hann ætti ffelsi sitt að þakka erlendum þrýstingi á kínversku ríkisstjómina. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu átt að beita Klnveija meiri þrýst- ingi. „Kinversk stjómvöld virða aðeins vald og -láta því aðeins undan að þeim sé sýnd harka“. Harrn var spurður nánar um hvað Fang Lizhi og kona hans Ll. Kínverjar sögðu að Fang hefðf heitið þvl að gagnrýna ekki Kína á eríendrí grund. Bandarikjamenn hefðu átt að gera og svaraði hann því að þau hefðu átt að krefjast iausnar fólks sem var fangelsað og þau hefðu átt að biðja um lista með nöfnum þeirra sem vom teknir af lífi. „Þau hefðu getað sagt að meðan beðið væri eftir slíkum lista myndi haldið áffam að beita þá einhveijum efnahagsþvingunum“. Fang sagð- ist ekki telja að andófsöfl í Kina hefðu verið kveðin í kútinn. „Mótmælin vom svo umfangs- mikil að fólk fór að hugsa sjálf- stætt og þótt fólki sé nú bannað að láta I ljós hug sinn þá birgir það

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.