Tíminn - 10.07.1990, Page 5
ÞriðjudagurlO. júlí 1990
Tíminn 5
Fyrstu verðlauna stóðhesturinn Blakkur slasaður eftir umferðaróhapp:
Varð fyrir bíl, fótbrotnaði
og verður átta vikur í gipsi
Blakkur 977, fýrstu verðlauna
stóðhestur í eigu hrossaræktarfé-
laga Vesturlands og Suðuiiands,
hefur veríð settur í gips vegna brots
á hægrí framlöpp. Aðgerð sem
þessi er ekki algeng og er þetta
annað tilvikið sem vitað er um að
hestur í þessum gæðaflokki sé
settur í gips. i hinu tilvikinu sem
frægt er orðið var um að ræða
Snældu-Blesa.
Blakkur fótbrotnaði er hann varð fyr-
ir biíreið aðfaranótt sunnudagsins
l.júlí. Hann var geymdur í girðingu
rétt hjá Akranesi en slapp þaðan seint
að kvöldi laugardagsins. I kringum
miðnætti sá bílstjóri til hans þar sem
hann var á beit við þjóðveginn. Bíl-
stjórinn mun hafa flautað á hann með
þeim afleiðingum að hesturinn hrökk
við og stökk fyrir bílinn. Blakkur fékk
talsvert högg og a.m.k. þijú bein
brotnuðu í hné hægri framlappar og
liðband rifnaði. Að sögn Gunnars Am-
ar Guðmundssonar héraðsdýralæknis
er hnéð mjög illa farið. Þetta em mjög
smá bein, samsvarandi við úlnliðabein
í mönnum.
Hesturinn var fluttur á Dýraspítalann
í Víðidal og þar vom teknar myndir af
honum. Tveim dögum síðar, þegar í
ljós kom hvemig brotið var, var hann
fluttur til Hvanneyrar þar sem gert var
að honum. Hann var síðan settur i gips
3.júlí. Auk Gunnars stóðu að aðgerð-
inni þeir Bjöm Steinbjömsson dýra-
læknir í Víðidal og Georg Rettenbac-
her, austurískur dýralæknir sem var
staddur hjá Gunnari vegna landsmóts
hestamanna. Svo heppilega vill til að
Rettenbacher er beinasérffæðingur.
Að sögn Gunnars var aðgerðin ekki
Blakkur hegðaði sér eins og fyrirmyndar sjúklingur þegar Ijósmyndarí Tímans heimsótti hann i gær. Dýra-
læknir hefur ráðlagt Blakk að liggja sem mest meðan fóturínn er að gróa. Timamynd Pjetur
erfið. Ekki þurfti að skera hestinn upp
þar sem brotið var lokað. Þegar um
svona smá bein er að ræða er ómögu-
legt að stilla brotin af heldur er fótur-
inn settur í rétta stöðu og síðan í gips.
Venjulegt gips líkt og notað er við
beinbrotum í mönnum var notað á
Blakk. Gunnar er vongóður um að
beinin nái að brisa saman en hann seg-
ir líklegt að fóturinn verði alveg stífur.
Blakkur verður i gipsinu í u.þ.b. tvo
mánuði ef allt gengur að óskum.
„Það er ljóst að fóturinn verður nátt-
úrulega aldrei samur. Það besta sem
við getum vonað er að hnéð verði stíft.
Hestar eru fljótir að læra að bera sig
um svona. En maður verður að fylgjast
með þvi að hann lýði ekki fyrir þetta
og um leið og hann fer að þjást eitt-
hvað þá verður hann felldur," sagði
Guðmundur Sigurðsson, héraðsráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi Borgar-
fjarðar. Hrossaræktarfélag Vesturlands
hefur Blakk til afnota í sumar og á
hann til helmings við Hrossaræktarfé-
lag Suðurlands.
Blakkur 977 er mjög eftirsóttur og
verðmætur fyrstu verðlauna stóðhest-
ur. Hann er ellefu vetra og er undan
Hrafhi ffá Holtsmúla og Litlu-Venur
ffá Reykjum. Blakkur var sýndur síð-
ast á fjórðungsmóti í Reykjavík.
Hann hefur hlotið 8.21 í aðaleinkunn
og hefur fengið háar einkunnir fyrir
skeið og fyrir gangtegundimar allar.
„Hann er alveg einstakur höfðingi
þessi hestur,“ segir Guðmundur.
Að sögn Guðmundar er horff dálítið í
kostnaðinn þar sem um er að rasða fé-
lagasamtök.
„En maður leggur í dálítinn kostnað
þegar um er að ræða stóðhesta," segir
Guðmundur. „Ef að hann verður til
nota áffam þá er þetta fljótt að boiga
sig.“ Guðmundur bjóst þó ekki við að
aðgerðin yrði kostnaðarsöm þegar upp
yrði staðið.
Það er ekki algengt að hestar séu sett-
ir í gips. Eins og áður segir er þetta
annað tilfellið sem slik aðgerð er gerð
á fyrstu verðlauna stóðhesti. Þó eru til
nokkur dæmi þess að hryssur eða ung-
viði hafi verið sett í gips.
Að sögn Gunnars er aðgerðin á
Blakki töluvert öðmvísi en sú sem
gerð var á Snældu-Blesa um árið. Þá
brotnaði eitt af stóm beinunum sem
halda uppi þunga hestsins. Að því leyti
er aðgerðin á Blakki nokkuð minni en
Blakkur var heppinn því að ekkert slíkt
bein brotnaði. Beinin í hnénu gegna
ekki burðarhlutverki að jafhmiklu leyti
og önnur stærri bein í fætinum.
Blakkur er nú geymdur hjá Snorra
Hjálmarssyni bónda í Syðri-Fossum
rétt hjá Hvanneyri. Að sögn Gunnars
er liðan hans góð og Blakkur tekur
þessu öllu með jafnaðaigeði. „Þetta er
rólegur og yfirvegaður hestur. Hann
hefur étið eðlilega allan tímann og er
farinn að leggjast. Það er alltaf erfitt
fyrir hesta að standa lengi á heilbrigða
fætinum þar sem hann þreytist svo.
Hann getur gengið en notar náttúra-
lega veika fótinn mjög lítið,“ segir
Gunnar og er vongóður um að aðgerð-
in heppnist.
GS.
Austfirskur bóndi verkar hreindýraskinn:
Jakkar saumaðir úr
hreindýraskinnum
Aðalsteinn Aðalsteinsson
bóndi á Vaðbrekku í Jökul-
dalshreppi hefur látið vinna
hreindýraskinn í leður og
sauma upp úr því jakka.
Hann sagði í samtali við
Tímann að hann stefndi að
því að gera þetta að heimil-
isiðnaði þar sem þessi skinn
væru nýtt og flíkur saumað-
ar úr þeim eftir pöntun.
Fram að þessu hafa hreindýrask-
inn ekki verið hirt en mjög lítið
magn á ári fellur til af þessari af-
urð. Aðalsteinn sagðist hafa keypt
200 skinn í fyrra og hefði þegar lát-
ið súta þau.
Hey á tæpar
15 kr. kílóið
Búreikningastofa landbúnaö-
arins hefur áætlað framleiðslu-
kostnað á heyi sumarið 1990. Er
miðað við kostnað undanfariö
ár að viðbættum hækkunum.
Framleióslukostnaðarverö er
þannig áætlaö kr. 14,70-14,90 á
kg. af heyi fuliþurru I hlððu
(12,85 1989). Verð á teignum er
áætlað 10- 15% lægra.
Aðalsteinn sagði að hann hefði
látið sauma örfáa jakka upp úr
hreindýraskinnum og að þeir
hefðu hlotið góðar viðtökur þann-
ig að vel kæmi til greina að gera
þetta að aukabúgrein. Þetta væri
ekki enn komið alveg í gang en
væri að þróast. Hvort einhver al-
vara yrði úr þessu yrði að koma í
ljós.
„Það er búið að panta hjá okkur
nokkra jakka. Það eru ekki nema
örfá stykki sem hægt er að gera úr
þessu á ári,“ sagði Aðalsteinn.
Hann sagði að ekki væri enn
ákveðið hver kæmi til með að sjá
um snið og sauma á hreindýrask-
innsflíkunum en konan hans hefði
ásamt vinkonu sinni séð um það
fram að þessu.
Aðalsteinn sagði að þetta væri
eitthvað hið besta leður sem hægt
væri að fá og það væri mun
skemmtilegra en margt annað.
Hann sagði að það fengist hvergi
jafngott leður og hér á Islandi því
hér væri engin fluga til að skemma
það. Erlendis er leðrið oft götótt
eða örótt vegna flugna sem púpa
sig undir skinninu á hreindýrun-
um.
Aðalsteinn sagði að hann vildi fá
skinn keypt aftur í haust og að
hann væri þegar búinn að semja
um vinnslu á þeim.
-só
Skipun nýs saksóknara í Hafskipsmálinu:
Dómsmálaráöherra enn
ekki tekið ákvörðun
Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála-
ráðherra segir að ekki hafi verið
tekin nein ákvörðun um hvort nýr
ríkissaksóknari verði skipaður í
Hafskipsmálinu í stað Jónatans
Þórmundssonar sem sagði af sér
því embætti sl. föstudag en það sé
í athugun.
Dómsmálaráðherra sagði að aðr-
ir aðilar hefðu íjórtán daga til
þess að áfrýja og að það væri því í
Halldór Halldórson fýnrverandi
ritstjóri Helgarpóstsins
lagi fyrir ráðuneytið að athuga
þessi mál á þeim tíma.
Jónatan Þórmundsson sendi
dómsmálaráðherra bréf með af-
sögn sinni þar sem hann vísaði til
viðræðna sinna við Þorstein
Geirsson ráðuneytisstjóra fyrr á
þessu ári um að losna undan
skyldum sérstaks ríkissaksóknara
i Hafskipsmálinu strax og dómur
hefði verið kveðinn upp í Saka-
Halldór Halldórsson, fyrrverandi
ritstjóri Helgarpóstsins sagði í
samtali við Tímann í gær að niður-
staða Sakadóms í Hafskipsmálinu
hefði komið honum ákaflega á
óvart en að hans mati myndi málið
örugglega fara fýrir Hæstarétt.
Halldór var kallaður fýrir sem
vitni í málinu er það var tekið til
meðferðar í Sakadómi Reykjavík-
ur vegna skrifa hans um það.
„Dómsniðurstaða er dómsniður-
staða. Þessi niðurstaða þriggja
dómara Sakadóms kom mér ákaf-
lega á óvart eins og flestum sem til
dómi Reykjavíkur.
Aðspurður sagði Óli Þ. Guð-
bjartsson að flest benti til þess að
Jónatan hefði tekið ákvörðun um
afsögn sína áður en dómur féll í
málinu en að hann hefði ekki gert
sér grein fyrir því að það væri svo
fortakslaust þrátt fyrir að hann
vissi af samtali Jónatans við ráðu-
neytisstjóra.
—só
málsins þekkja. Þetta er skrítinn
dómur,“ sagði Halldór.
Halldór sagði ennfremur að
nauðsynlegt væri að vekja athygli
á því að málinu væri ekki lokið.
„Að mínu mati á það öragglega
eftir að fara fyrir Hæstarétt. Þess
vegna ættu menn að halda haus og
bíða niðurstöðu Hæstaréttar. En
dómurinn breytir hins vegar ekki
því að Hafskip fór á hausinn og
Útvegsbankinn í raun líka. Spurn-
ingin sem stendur eftir er: Ber
enginn ábyrgð?" sagði Halldór.
—só
Halldór Halldórsson fyrrverandi ritstjóri
Helgarpóstsins um Hafskipsmálið:
Ber enginn
ábyrgðina?