Tíminn - 10.07.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn
ÞriðjudagurlO. júlí 1990
Þriðjudagur ÍO. júlí 1990
Tíminn 9
Eftir
Hermann
Sæmunds-
son
Einu glæsilegasta landsmóti hestamanna til þessa lauk á sunnu-
dagskvöld. Á fimmtánda þúsund manns sótti mótið heim að Vind-
heimamelum í Skagafirði og hross hafa verið á fjórða þúsund. Þar
voru saman komin bestu og glæsilegustu hross landsins.
Á sunnudag var hópreið og helgistund
sem séra Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup sá um. Öll félög sem eiga aðild að
Landssambandi hestamanna tóku þátt í
hópreiðinni og var það gífurlegur fjöldi
manna og hesta. Forseti Islands, Vigdís
Finnbogadóttir, tók þátt í hópreiðinni mót-
inu til heiðurs og sat hún gráan fák að nafhi
Gustur.
Við þessa athöfh fluttu Kári Amórsson,
formaður Landssambands hestamanna, og
Hjalti Pálsson ffamkvæmdastjóri LH
ávörp. Þá gróðursetti forseti íslands tijá-
plöntu í skeifulaga reit sem nefhdur hefur
verið Hóftunga en þar hefur verið plantað
undanfarið nokkur þúsund plöntum. Einnig
afhjúpaði forsetinn stuðlabergssúlu sem er
gjöf hestamanna á Suðurlandi til hesta-
manna á Norðurlandi er sáu um ffam-
kvæmd þessa móts.
Glæsilegir stóðhestar
Mikil spenna hefur ríkt vegna dóma á kyn-
bótahrossum og þess vegna biðu margir
óþreyjufullir eftir niðurstöðu þeirra. Þrír
stóðhestar hlutu heiðursverðlaun fyrir af-
kvæmi og var Hervar ffá Sauðárkróki efst-
ur þeirra. Hervar er í eigu Hrossaræktar-
sambands Skagafjarðar og hlaut hann 131
stig. Hervari fylgdu mörg þekkt afkvæmi;
meðal annars hinn kunni stóðhestur Otur
ffá Sauðárkróki. Þá hlaut Gáski ffá Hof-
stöðum einnig heiðursverðlaun fyrir af-
kvæmi og Ófeigur ffá Flugumýri. Gáski,
sem er i eigu Hrossaræktarsambands Suð-
urlands, hlaut 129 stig fyrir 72 afkvæmi og
Ófeigur fékk 125 stig fyrir 105 afkvæmi.
Þokki frá Garði í eigu Jóns Karlssonar í
Hala gerði góða hluti á þessu landsmóti.
Hann var efstur þeirra stóðhesta sem fengu
fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Þokki fékk
123 stig fyrir þau 23 afkvæmi hans sem
dæmd voru. Aðrir hestar sem fengu fyrstu
verðlaun fyrir afkvæmi voru Viðar frá Við-
vík í eigu hrossaræktarsambanda Suður-
lands, Skagfirðinga og Vesturlands, Garður
ffá Litlagarði í eigu Ármanns Ólafssonar
og Feykir ffá Hafsteinsstöðum í eigu
Hrossaræktarsamband Suðurlands.
Af stóðhestum sex vetra og eldri varð Kol-
finnur ffá Kjamholtum hlutskarpastur en
hann er í eigu Hrossaræktarsambands Vest-
urlands. Kolfmnur fékk 8.45 í aðaleinkunn,
en þá einkunn hlaut einnig Gassi ffá Vorsa-
bæ. Dómnefhd kynbótahrossanna ákvað að
veita Kolfmni fyrstu verðlaunin vegna þess
að þijú afkvæmi hans voru sýnd á þessu
landsmóti sem er óvanalegt með svo ungan
fola. Gassi hlaut því annað sætið en hann er
í eigu Hrossaræktarsambands Eyjafjarðar.
Þriðji stóðhesturinn í þessum flokki var Ot-
ur ffá Sauðárkróki í eigu Sveins Guð-
mundssonar en Otur hlaut 8,37 í aðalein-
kunn. Alls fengu 20 stóðhestar sex vetra og
eldri 1. verðlaunadóm á mótinu.
Af fimm vetra stóðhestum varð Piltur ffá
Sperðli efstur. Hann hlaut 8,33 í aðalein-
kunn en byggingareinkunn hans var 8,53
sem er mjög góð einkunn. Piltur er í eigu
Pilts sf. Það vakti athygli að Toppur ffá
Eyjólfsstöðum, sem hafði fengið eina
hæstu einkunn fimm vetra stóðhesta fyrir
landsmótið, var ekki sýndur á landsmótinu
þrátt fyrir að hann hafi verið kominn þang-
að. I kynningu var sagt að Toppur hafi
fengið hormónasjokk og þess vegna ekki
hægt að sýna hann. Alls hlutu 9 stóðhestar í
þessum flokki 1. verðlaun.
Af fjögra vetra stóðhestum er það að segja
að Kveikur frá Miðsitju í eigu Jóhanns Þor-
steinssonar og fleiri varð efstur. Hann hlaut
í aðaleinkunn 8,06. Tveir aðrir hlutu 1.
verðlaun í þessum flokki en það eru stóð-
hestamir Orri frá Þúfú í eigu Indriða Ólafs-
sonar og Sokki ffá Sólheimum í eigu Valdi-
mars Ó. Sigmarssonar.
Þrjár hryssur
í heiöursverölaun
Þijár hryssur fengu heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi. Efst varð Hmnd ffá Keldudal í
eigu Leifs Þórarinssonar. Hmnd hlaut 8,00
fyrir fimm afkvæmi. Önnur varð Hrafn-
katla ffá Sauðárkróki en hún er i eigu
Sveins Guðmundssonar og hlaut hún 7,99
og þriðja varð Snælda ffá Árgerði og hana á
Magni Kjartansson í Árgerði.
Það vakti athygli að tveir hestar sem
fylgdu Hrafnkötlu höfðu verið lækkaðir ffá
fyrri dómum. Með það var eigandi Hrafn-
kötlu, Sveinn Guðmundsson, ekki ánægður
og af þeim sökum neitaði hann að taka við
verðlaunum fyrir Hrafnkötlu. Munurinn á
hryssunum var aðeins 0,01.
Þá fengu fjórar hryssur fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi. Það vom hryssumar Blesa
ffá Möðmfelli í eigu systkynanna á Hóli,
Hervör ffá Sauðárkróki í eigu Sveins Guð-
mundssonar, Perla frá Reykjum í eigu
Steindórs Amasonar og Björk frá Þverá í
eigu Ingva Eiríkssonar.
Af hryssum sex vetra og eldri varð Gerpla
ffá Högnastöðum efst með 8,25 í aðalein-
kimn. Gerpla er í eigu Magnúsar Torfason-
ar. Önnur varð Fluga ffá Amarhóli sem
hlaut 8,23 og hún er í eigu Valgeirs Jóns-
sonar. Þriðja varð Gná frá Efri-brú, en hana
á Böðvar Guðmundsson og fékk hryssan
8,22 í aðaleinkunn.
Tíu hryssur fengu 1. verðlaun í fimm vetra
flokki. Þar varð hlutskörpust Þrenna ffá
Hólum en hún er í eigu Hólabúsins. Þrenna
fékk 8,46 í aðaleinkunn og er hún því hæst
dæmda hryssan á mótinu.
Tvær Qögra vetra hryssur komust í 1.
verðlaun. Það vom hryssumar Gína frá Vot-
múla í eigu Alberts Jónssonar og Þóra ffá
Hólum í eigu Hólabúsins.
Spennandi gæöingakeppni
Gæðingakeppni á landsmótinu var mjög
skemmtileg og spennandi. í A- flokki gæð-
inga vom tveir hestar sem bættu eldra ein-
kunnamet á landsmóti, en það vom gæð-
ingamir Svartur ffá Högnastöðum sem fékk
8,27 í einkunn og Muni ffá Ketilstöðum
sem fékk 8,26. Margir biðu því spenntir eff-
ir úrslita keppninni og áttu margir von á að
Svartur myndi sigra. Svo fór þó ekki og
lenti Svartur í 3. sæti undir stjóm Sigur-
bjamar Bárðarsonar. Sigurvegari var hins
vegar Muni, en knapi á honum var Trausti
Þór Guðmundsson. Muni er í eigu Svein-
bjöms S. Ragnarssonar. Annar varð Gímir í
eigu Jóhönnu M. Bjömsdóttur. Röðunin á
4. til 10. sæti var: Þorri, knapi Jóhann G.
Jóhannsson; Fengur, knapi Sigurbjöm
Bárðarson; Hugmynd, knapi Bergur Jóns-
son; Sörli, knapi Olil Amble; Mímir, knapi
Einar Öder Magnússon; Dagfari, knapi Að-
alsteinn Aðalsteinsson og Fjölvi, knapi
Hinrik Bragason.
I B-flokki gæðinga var einnig spennandi
keppni og þar bar sigur úr bítum Dimma ffá
Gunnarsholti í eigu Sveins Runólfssonar.
Knapi á Dimmu var Rúna Einarsdóttir.
Röðunin á efstu hestum var: Dimma og
Rúna, Kraki og Unn Krogen, Pjakkur og
Ragnar Ólafsson, Kjami og Sævar Haralds-
son, Ögri og Þorvaldur Kjartansson, Frúar-
Jarpur og Halldór Svansson, Gola og Öm
Karlsson, Vignir og Sigurbjöm Bárðarson,
Bylur og Birgir Ámason, og tíundi varð
Háleggur og knapi Jens Óli Jespersen.
I eldri flokki unglinga sigraði Edda Rún
Ragnarsdóttir á Sörla. Annar varð Reynir
Aðalsteinsson á Dreyra, þriðji Gísli Geir
Gylfason á Ófeigi, fjórði Daníel Jónsson á
Geisla, fimmti var Gríma S. Grimsdóttir á
Sikli, sjötta Theodóra Mathiesen á Faxa,
sjöundi Sigurður Vignir Matthíasson á
Bróður, Edda Sólveig Gisladóttir varð átt-
unda á Janúar, níunda varð Iris Svein-
bjömsdóttir á Þokka og Elín Rós Sveins-
dóttir tíunda á Rispu.
Steinar Sigurbjömsson sigraði í yngri
flokki unglinga á hestinum Glæsi. Næstir í
röðinni urðu Sigríður Theodóra Kristins-
dóttir, Guðmar Þór Pétursson, Victor B.
Víctorsson, Ásta Kristín Briem, Hulda
Jónsdóttir, Sigríður Pjetursdóttir, Svein-
bjöm Sveinbjömsson, Sigríður Ásta Geirs-
dóttir og Vala Björt Harðardóttir.
I töltkeppni úrvals töltara sigraði Rúna
Einarsdóttir á Dimmu ffá Gunnarsholti sem
sigraði einnig i B-flokki gæðinga. Rúna var
kjörinn reiðmaður mótsins og fékk hún fyr-
ir það sérstök verðlaim.
Eitt íslandsmet
í kappreiðum
Eitt Islandsmet var sett í kappreiðum en
það var Guðmundur Jónsson á hestinum
Neista ffá Hraunbæ en þeir kepptu í 300
metra brokki. Neisti hljóp vegalengdina á
30,34 sek. 1250 m. skeiði sigraði Leistur og
knapi á honum var Sigurbjöm Bárðarson.
Leistur skeiðaði á tímanum 22,59. Börkur
sigraði í 150 m. skeiði á 14,39 sek, knapi
Mikill flöldi hesta og manna tók þátt í hópreiðinni enda var hún glæsileg og vakti mikla hrifningu.
var Tómas Ragnarsson.
I 800 m. stökki sigraði Nestor á tímanum
62,16 sek. en knapi á honum var Hjördís B.
Amardóttir. I 250 metra stökki sigraði
Nóta, knapi Magnús Benediktsson og var
tíminn 18,50 sek. Subaru-brúnn sigraði í
350 m. stökki, hljóp vegalengdina á 25,24.
Knapi var Magnús Benediktsson.
Að leikslokum
Þórarinn Sólmundsson, starfsmaður ffam-
kvæmdarstjómar mótsins er ánægður með
þetta 11. landsmót hestamanna. ,JvIótið gekk
ágætlega fyrir sig. Það kerfi sem við vorum
búnir að setja upp stóðst nokkum veginn og
fólk var mjög ánægt.“ Þórarinn kvaðst ósátt-
ur við neikvæðan fféttaflutning af ölvim á
mótinu og sagði að þar hefði skrattinn verið
málaður á vegginn. Bæði lögregla og björg-
unarsveit hefðu verið ánægð með ffamgang
mótsins sem slíks og á Víndheimamelum
Tfmamynd, sá
hefðu engin vandræði orðið sem oft fylgja
útisamkomum. „Þau stóðu sig ffábærlega
hestamannafélögin sem unnu að þessu móti,
hér klikkaði ekki ein einasta vakt allan tím-
ann. Það lögðust allir á eitt að gera þetta mót
sem best. Nú er bara að taka til“ sagði Þórar-
inn að lokum.
Heiðursverðlaunahesturinn Hervar ásamt afkvæmum. Hjörtur Þórarinsson formaður
Stéttasambands bænda afhendir Jóhanni Þorsteinssyni siguriaunin. Tfmamynd gtk
Glatt hestaáhugafólk á góðum degi. Sigríður Waage, Gunnar Jónsson, Sif Knudsen og
Siguriaug Stefánsdóttir. Tfmamynd, sá.
Lerfur Þórarinsson tekur við verðlaunum fyrir heiðursverðlaunahryssuna Hrund ffá Keldu-
dai.