Tíminn - 10.07.1990, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
-4
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Trvggvagötu,
S 28822
S
tfEBÐBBÉFfltfjflSKIPTI
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
NISSAN
Réttur bíll á
réttum stað.
IMgason M
Sœvartröföa 2
simi 91-€74000
. LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM
Kringlunni 8-12 Sími 689888
Tímimi
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ1990
Spá um hækkun vísitölu fer yfir „rautt strik“ f haust. Forsætisráðherra
átti fund meö aöilum vinnumarkaðarins um verðlagsrriál í gær:
Ríkissjóður mun ekki
taka allt á sig einn
Steingrímur Hermannsson forsaetisráðherra segir að sérstakar að-
gerðir ríkisins til þess að halda verðlagi innan ramma kjarasamninga í
haust hafi veríð ræddar innan ríkissljómarinnar. Það komi hins vegar
ekki til greina að grípið veröi til einhliða aðgerða af hálfu ríkisins heldur
veröi þarfleirí að leggja hönd á plóginn.
Forsætisráðherra átti fund í gær
með aðilum vinnumarkaðarins þar
sem farið var yfir þróun verðlags
og vísitöluspár fyrir næstu mánuði.
Þessi mál verða tekin fyrir á fundi
ríkistjómarinnar á fimmtudag og
aftur strax eftir helgi „Af þeirri
0,7% vísitöluhækkun sem varð í
síðasta mánuði reyndust 0,2%
stafa af opinberum hækkunum,"
sagði Steingrímur í samtali við
Tímann í gær. „0,5% stafa af
mmmmmmmmmmmmmmm
hækkunum einkaaðila sem eru að-
ilar að kjarasamnignunum. Sumar
þessara hækkana eru á bilinu 10 -
12%. Það kemur vel til greina að
ríkissjóður að leggi eitthvað til
málanna en það verða aðrir að gera
líka.“
- Nú bera menn því við að hækk-
anir á vömm og þjónustu stafi af
verðhækkunum erlendis frá?
„Sumt af því er það en sumt ekki.
Vísitala framfærslukostnaðar mið-
að við verðlag í júlíbyijun 1990
reyndist vera 0,7% hærri en í júní
samkvæmt útreikningum kaup-
lagsnefndar. Undanfama 3 mánuði
hefúr vísitalan hækkað um 2,3%
og jafhgildir það 9,6% verðbólgu á
heilu ári. Asmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambands Islands,
segir þessa hækkun setja vísitöluna
í þau mörk sem em viðmiðunar-
mörkin í september og að með
þessari niðurstöðu sé þurrkað út
allt svigrúm sem eftir sé.
Asmundur sagði að ef ekki væri
með einhverjum niðurfærsluað-
gerðum hægt að vinna á móti þeim
hækkunum sem fyrirsjáanlegar em
þá stefndu hækkanir væntanlega í
1% umfram kjarasamninga í sept-
ember.
„Það er hins vegar rétt að leggja
áherslu á það að þrátt fyrir allt er
þetta sjötti mánuðurinn í röð þar
sem verðbólgan er undir 10% á
ársgrundvelli og það verður að fara
æði mörg ár aftur í tímann til þess
að fá þann árangur þannig að við
emm væntanlega með mikið betri
árangur í þessum efhum en ýmsir
hafa búist við,“ sagði Asmundur.
Hann sagði einnig að frávik upp á
hálft eða heilt prósent væri ekki
meira en það sem menn gætu
reiknað með í svona verðbólgu-
spám, það væri eðlilegt frávik.
„En það breytir því ekki að það
verður að taka á þessu ef komast á
hjá því að það valdi því að við for-
um frarn yfir rauða strikið í sept-
ember,“ sagði Asmundur.
Launanefnd ASI og VSI átti fúnd
með ríkisstjóminni í gærmorgun
þar sem fjallað var um niður-
færsluaðgerðir til að komast hjá
því að farið verði fram yfir rauða
strikið í byijun september.
Vfsitala framfærslukostnaðar er
nú 146,4 stig. Hækkun á áfengi og
tóbaki 12. júní síðastliðinn olli
tæplega 0,2% hækkun vísitölunnar
og verðhækkun ýmissa vöm- og
þjónustuliða olli alls um 0,5%
hækkun hennar.
— ÁG/só
Ferjuflugvél fór í sjóinn 250 km. vestan af Reykjanesi:
Árangurslaus leit
að tveimur mönnum
Ferjuflugvél með tvo menn innan-
borðs fór í sjóinn um 250 km. vest-
an af Reykjanesi á laugardagskvöld.
Tilkynning barst til Landhelgis-
gæslunnar kl.20:20 og fóru þá þrjár
flugvélar og ein þyrla á vettvang til
leitar. Leitað var þangað til myrkur
skall á en án árangurs. Á sunnudag
hélt flugvél Landhelgisgæslunnar
áfram leitinni en hvorki sást til
mannanna né flugvélarinnar. Þó sást
til hlutar sem líktist óuppblásnum
gúmmíbát. Leit hefúr nú verið hætt.
Mennimir tveir vom á leið frá Gæ-
saflóa á Nýfúndnalandi til Reykja-
víkur. Talið er að þeir hafi verið
bandarískir að þjóðemi. Flugvélin
sem þeir vom að ferja var af gerð-
inni Cessna 182, fjögurra sæia, eins
hreyfils og bar einkennisstafina N-
756 MC.
Það var önnur flugvél sem stödd
var á svipuðum slóðum sem til-
kynnti flugstjóminni í Reykjavík að
flugvélin ætti í erfileikum. Skömmu
síðar heyrðist í stutta stund sending
frá neyðarsendi. Ekki er vitað neitt
um orsakir slyssins. GS.
Hagvirki semur við
norrænt fyrirtæki
Hagvirki hf. heldur upp á níu
ára afmæli sitt með undirritun
samnings við norrænt verktaka-
fyrirtæki, NCC A/S Norge
(Nordic Construction Company)
sem er í eigu NCC í Svíþjóð en
það er annað stærsta verktaka-
fyrirtækið á Norðurlöndum.
Fyrirtækin tvö munu vinna
saman að jarðgangagerð og
virkjunum svo eitthvað sé nefnt.
Unnið hefur verið að þessum
samningum frá því í febrúar sl.
og hafa sérfræðingar á vegum
NCC kannað stöðu og starfsemi
Hagvirkis á þessum tíma.
—só
Landsmót
hestamanna:
Tvær stúlkur
kærðu nauðgun
Tvær kærur hafa borist
lögreglunni á Sauðárkróki
vegna nauðgunar á lands-
móti hestamanna sem haldið
var í Skagafírði um heigina.
Málið er nú í rannsókn hjá
lögreglunni á Sauðárkróki
og Rannsóknarlögregiu rík-
tmn fi
Á næstunni verður Strákagöngum lokað og þá verða vegfarendur að
aka yfir SigluQarðarskarð. TimamyndöÞ
Siglufjarðarskarð opnað:
Stráka-
göngum
lokað
í mánuð
Þann fimmtánda næsta mánaðar
verður Strákagöngum lokað vegna
viðgerða. Gert er ráð fyrir að við-
gerðin taki um mánaðartíma en á
meðan á henni stendur verða göngin
opnuð þrisvar á dag fyrir umferð. Þá
verður Siglufjarðarskarð rutt en ekki
er gert ráð fyrir að skarðið verði fært
nema jeppaumferð.
Strákagöng, sem em 793 metra
löng, vom opnuð árið 1967. Að sögn
Þráins Sigurðssonar bæjartæknifræð-
ings Siglufjarðar hefur göngunum
ekki verið lokað síðan nema rétt yfir
blánóttina. Nú stendur til að endur-
nýja slitlag og bæta holræsalögn.
„Við komum til með að ryðja Siglu-
fjarðarskarð og fjarlægja einhveija
steina sem hafa hmnið. En það verð-
ur ekkert borið ofan í veginn þannig
að hann verður ekki fær nema jepp-
um“ sagði Þráinn í samtali við Tím-
ann. Göngin verða síðan opin frá sjö
til átta á morgnana frá hálf eitt til hálf
tvö um miðjan dag og frá sjö til átta á
kvöldin.
Nokkur hætta er talin á erfiðleikum
vegna lokunarinnar en meðaltal bif-
reiða sem fara um göngin yfir sumar-
tímann em 348 bifreiðar hvem dag.
„Það þarf ekki annað en að nefna um-
ferð sjúkrabíla. Við sinnum sveitun-
um héma í kring alveg inn í Fljót.
Það tekur sjálfsagt einhvem tíma að
stöðva ffamkvæmdir ef á því þarf að
halda þannig að það gætu skapast
einhver vandræði. Svo em það veiði-
mennimir sem vilja komast inn í
Fljótá til að veiða. Það er hætta á að
þeir geti tafist," sagði Þráinn. jkb