Tíminn - 13.07.1990, Side 4

Tíminn - 13.07.1990, Side 4
4 Tíminn Föstudagur13. júlí 1990 FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA - Hinn nýi vara- leiötogi sovéska kommún- istafiokksins, Vladimir Iv- ashko, hét að hlusta á öll sjónarmiö og sagði að sigur hans á Ligatsjov hefði verið sigur skynsemi á tilfinning- um. Ivashko er talinn vera hófsamur íhaldsmaður en hann sagðist myndi hlusta á róttæka menn eins og Jelts- in forseta Rússlands. BRINDISI, ftalía - Lítil flota- deild fimm skipa mun leita hafnar I Brindisi á ftaliu á föstudag. Meira en 4500 al- banskir flóttamenn eru um borð í skipunum en þeir hafa dvalist í erlendum sendiráð- um í Tirönu. f Aþenu sögðu yfirvöld að her og floti landsins væri við æfingar nærri landamærun- um við Albaníu. Grikkir sögðu aö gömul söguleg deiluefni væru nú að vakna til nýs lífs á Balkanskaga. WASHINGTON - Rlkissak- sóknarinn Dick Thornburgh sagði að ef sannanir reynd- ust nægar myndi mál verða höfðað gegn syni Georgs Bush Bandaríkjaforseta en hann hefur verið sakaður um að brjóta reglur við stjórn fjármálastofnunar. NAfRÓBÍ - Stjórnvöld I Ken- íu leyfðu að fundur yrði hald- inn til að fagna Nelson Man- dela hetju svartra manna í Suður-Afríku en von er á honum til landsins á föstu- dag. Lögregla hélt I gær áfram aðgerðum til að bæla niður mótmæli almennings gegn alræði eins stjórnmála- flokks í landinu. Mandela hefur náð sér eftir veikindi og mun ávarpa fundinn. MANAGVA - Tíu daga verk- falli stuðningsmanna sand- ínista lauk I gær með undir- ritun samninga. Verkfallið leiddi til mikilla hernaðar- átaka sem stefndu I hættu völdum rlkisstjórnar Violetu Chamorro. GENF - Samningamenn hófu viðræður í Genf um áætlun til að minnka hömlur I viðskiptum milli landa. Leið- togar sjö ríkustu iðnaðar- þjóða heims fólu þeim þetta verkefni á grundvelli mála- miðlunar sem leiötogarnir urðu ásáttir um í Houston. AUSTUR-BERLÍN - Forstjóri þýska seölabankans „Bund- esbank“, Karl Ottó Poehl, hvatti í gær Austur-Þjóðverja til að umbylta ósamkeppnis- hæfum efnahagi sínum ella biði þeirra Ijöldaatvinnuleysi. Þetta sagði Poehl að loknum fyrsta fundi þýska seðla- bankans í Austur-Berlín í byggingu gamla ríkisbank- ans. Poehl var spurður eftir fundinn hvort hann væri móðgaður vegna orða Rid- leys viðskipta- og iðnaðar- ráðherra bresku stjórnarinn- ar um að nýleg heimsókn hans til Bretlands hefði verið þýskt brambolt til að leggja undir sig Evrópu. „Nei mér er alveg sama. Eg þekki Ridley ekki. Af hverju ætti ég að vera reiður?“ Hann sagði þó aö hann teldi ummæli Rid- leys ekki hæfa ráðherra í EB-ríki. í _ m _ __ _ _ UTLOND Breskur ráðherra dregur ummæli sín til baka: „Þjóðverjar ætla sér að ná undirtökum í Evrópu“ Háttsettur breskur ráðherra dró i gær til baka ummæli sín um að V- Þjóðveijar væru að reyna að ná völdum í Evrópu og að það væri sambærilegt að láta breskt fullveldi í hendur Evrópubandalaginu og að gefast upp fyrir Adólfi Hitler. Nik- ólas Ridley sem er iðnaðar- og við- skiptamálaráðherra í bresku ríkis- stjóminni lét hafa þessi ummæli eft- ir sér í tímaritinu „Spectator" en ummælin vöktu strax sterk andmæli víða í Evrópu. Ridley er talinn hugsa líkt og forsætisráðherrann Margrét Thatcher en hún gaf strax út yfirlýsingu um að orð Ridleys lýstu ekki sjónarmiðum bresku rík- isstjómarinnar. Hún sagðist þó ekki ætla að krefjast þess að Ridley segði af sér eins og stjómarandstæðingar og margir þingmenn íhaldsstjómar- innar hafa farið fram á. í viðtalinu sem bar nafnið „Að segja það sem ekki má“ ræddi Ridl- ey um heimsókn vestur-þýska seðlabankastjórans Karls Óttos Poe- hls til Lundúna þar sem hann þrýsti á um gjaldmiðilssamruna Evrópu. , J>etta er alit saman þýskt brambolt sem steínir að því að ná völdum í allri Evrópu" sagði Ridley og bætti því við að innlimun Austur- Þýska- lands gengi of hratt og Frakkar hegðuðu sér eins og kjölturakkar Þjóðveija. Ridley er sonur bresks greifa og að hætti aðalsmanna er hann þekktur fyrir að láta gagnrýni annaira ekki hafa áhrif á sig. Hann sneri síðan gagnrýni sinni að Efna- hagsbandalaginu en Bretar hafa ekki viljað ganga jafn langt og aðrar EB-þjóðir í átt til gjaldmiðilssam- mna og segja þeir að með honum myndu þeir afsala sér fúllveldi landsins. „Þegar ég lýt á þessar stofnanir, sem ætlast er til að fái fúllveldi okkar i hendur, þá fyllist ég hryllingi," sagði hann. „Ég er ekki endilega á móti því að við látum af fúllveldi okkar, en ekki í hendur þessum mönnum. Það mætti eins af- henda það Adólfi Hitler í hreinskilni sagt“. Ritstjóri tímaritsins spurði þá hvort Helmút Kohl væri ekki skárri en Hitler því „hann fleygir þó ekki í okkur sprengjum". Ridley svaraði því: „Ég er ekki viss um hvort ég kysi heldur...sprengjuskýii og möguleika til að beijast frekar en að verða að gefast upp fyrir ... hag- ffæði“. Breska sterlingspundið lækkaði í verði í gær vegna ummæla ráðherr- ans en það hefúr verið mjög sterkt að undanfomu. Ýmislegt fleira kom fram í þessu viðtali sem hneykslaði marga. M.a. kallaði hann stjómendur Efnahags- bandalagsins „afgangs“- stjóm- málamenn sem enga ábyrgð þyrftu að taka á gerðum sínum og hann minntist á hið mörghundmð ára markmið utanríkisstefhu Breta að koma í veg fyrir sameiningu Evr- ópu. ,J>að hefúr aldrei verið mikil- vægara en nú að halda valdajafh- vægi í Evrópu með Þjóðveija jafh uppvöðslusama og þeir em nú“. Hann sagði að þýska markið yrði alltaf sterkasti gjaldmiðill í Evrópu vegna eðlis Þjóðveija en því væri ekki hægt að þröngva upp á Breta. Þingmenn á Evrópuþinginu og talsmenn stjómmálaflokka í Bonn hafa reiðst ummælum Ridleys en emn þeirra sagði að Ridley hlyti að hafa verið fúllur eða orðið svona sár vegna taps Englendinga fyrir Þjóð- veijum í Heimsmeistarkeppninni í fótbolta. Ridley sjálfúr sagðist draga ummæli sín til baka eftir nán- ari umhugsun en ritstjóri tímaritsins Spectator sagðist ekki hafa birt ann- að en það sem Ridley hafi sjálfúr viljað að yrði birt. Hann sagði að Ridley hefði virst hugsa svör sín vandlega og verið ódmkkinn en hlutar viðtalsins væm óbirtir að ósk ráðherrans og yrðu það áfram. Alvarleg bilun í Hubble. Geimskutlur kyrrsettar. Geimstöð of dýr í rekstri: Erfiðleikar hjá NASA Á miðvikudag sagði dagblaðið New York Times frá því að svo dýrt myndi reynast að halda fyrirhugaðri geim- stöð Bandarikjamanna í rekstri að ffamtíð geimstöðvaráætlunar Banda- rikjamanna væri í hættu. Þessar ffétt- ir koma i kjölfar annarra slæmra fregna af bandarísku geimferðastofn- uninni NASA. Galli hefúr komið ffam í stjömu- sjónaukanum Hubble sem nú sveim- ar kringum Jörðina. Vegna gallans em engar líkur taldar á að sjónaukinn geti greint reikistjömur á braut um fjarlægar sólir og myndir af stjömum verða miklu óskýrari en menn höfðu vonað. Að sögn tímaritsins Newswe- ek er líklegasta skýringin á þessum mistökum talin vera villa í forriti sem stýrði ffamleiðslu spegils í sjónauk- anum. Hins vegar hefúr ekki fengist skýring á því hvers vegna spegillinn var ekki athugaður áður en sjónauk- inn var sendur á loft. Þær þrjár geimskutlur sem Banda- rikjamenn eiga nú síðan Challenger- Geimferjumar hafa verið kyrrsett- ar meðan leitaö er skýringa á eldsneytisleka við flugtak. feijan sprakk i flugtaki hafa verið kyrrsettar vegna eldsneytisleka og hefur mörgum geimferðum verið ffestað þeirra vegna. I Bandaríkjun- um er nú leitað að skýringum á þess- um vandræðum og reynt er að finna sökudólga. I yfirheyrslum fyrir öld- ungadeild Bandaríkjaþings sagði háttsettur embættismaður geimferða- stofnunarinnar á miðvikudag að hann teldi líklegt að önnur geimfeija myndi farast á þessum áratugi. „Eg sagði að það liði ekki á löngu þar til annað slys yrði. Það er alveg ljóst að á næsta áratug missum við aðra geimskutlu," sagði James Thopson, aðstoðarstjómandi NASA. Dagblaðið New York Times sagði í gær að í næstu viku yrði birt skýrsla ffá NASA um nauðsynlega viðhalds- tíma sem fyrirhuguð geimstöð Bandaríkjamanna „Frelsi" þyrfti. Geimstöðinni er ætlað að rannsaka Sólarkerfið og á hún að kosta 37 milljarða bandarikjadala. Til saman- burðar má geta þess að Bush banda- ríkjaforseti hafnaði í gær tillögum Kohls kanslara um 15 milljarða dala sameiginlegt ffamlag 7 ríkustu þjóða heims til að rétta af efnahag Sovét- rikjanna. Blaðið segir að samkvæmt skýrslunni þurfi stöðin 75% meira viðhald en áður var ætlað og efúðust menn um að hægt væri að byggja hana eins og fyrirhugað hefði verið. Ligatsjov fékk 776 atkvæði en Ivashko fékk 3109 á sovéska flokksþinginu: Róttækir yfirgefa flokkinn Hópur sem kaflar sig „róttæka lýöræöisgrundvöflinnu tilkynnii að hann hygölst segja skilið við sov- éska kommúnistaflokkinn og stofna nýjan flokk. Aðeins 100 fulltrnar á þingi sovéska kommúnistaflokksins eru í þessum hópi en alls eru 4700 fulltrúar á þínginu. Hins vegar segj- ast talsmeun iýðræðisgrundvaflar- inns eiga miklu fyigi aö fagna meðal óbreyttra flokksmanna. Þcssi til- kynning kom aðeins klukkutíma á eftir yflrlýsingu Boris Jeltsins for- seta Rússlands um að hann hefði ákveðiö að segja sig úr flokknum og verður hann fyrstur Sovétraanna til að gegna opinberri stöðu án þess að vera í sovéska kommúnistaflokkn- um. Jeltsin sem er róttækur um- bótasinni og nýtur mikiliar alþýðu- hylii sagði að hann vildi gæta hags- muna allrn Rússa hvort sem þeir væru i kommúnistaflokknum eða ekki og því vildi hann ekla lúta fyr- irmælum sovéskra kommúnista. Þessar fregnir um klofning i sov- éska kommúnistaflokknum korau i kjðlfar fregna af raikium kosninga- sigri Gorbatsjovs á harðlínumönn- um í gær. Jegor Ligatsjov hehti tals- maður harðlinumanna i sovéska kommúnistaflokknum galt mikið afliroð í kosningu til næstæðsta embættis sovéska kommúnista- flokksins. Hann fékk aðeins 770 at- kvæði í embættið en stuðningsmað- ur Gorbatsjovs Viadimir Ivashko fékk 3109 atkvæði og var kosinu varaleiðtogi flokksins. Fyrir flokksþiug sovéska komm- únistaflokksins, sem hófst 2. júlí, sögðu fréttaskýrendur að Gorbat- sjovs myndi reyna tvennt á þinginu. í fyrsta lagi að verjast árásum harð- línumanna sem höfðu hótað að hrekja hann frá vöidum og í öðru lagi að koma i veg fyrir að róttæidr umbótamenn segðu sig úr flokkn- um en þeir höfðu hótað því ef ekki yrðu samþykktar róttækar iýðræð- isumbætur á starfl hans. Fyrra markmiði sínu virðist Gorbatsjov hafa náö en ekki því síðara. Þó er ekki vitað hversu viðtækur kiofn- ingurinn verður. Mjög mikil þátttaka var i verkfaiii kolanámumanna á miðvikudag en þeir kröfðnst afsagnar sovésku rfk- isstjórnarinnar. Þátttakan i verk- failinu sýnir að kröfur um róttækar lýðræöisbreytingar gerast nú æ há- værari i Sovétrikjunum og telja rót- tækir umbótamenn að Gorbatsjov hafi látið of mikið undan harðlínu- mönnum á sovéska flokksþinginn sem nú er að Ijúka. „Pílu“-maöur- inn handtekinn Lögregla í New York sagðist i gær hafa ákært 33 ára gamlan ntann, Jeome Wright, og sakar hann um að vera Dartman eða nPílu“-raaðuríno. Hann er sak- aður um að hafa skelkað konur með þvi að blása hciniatilbún- um piluin í gegnum rör að aft- urendum þeirra. 52 siíkar skot- árásir hafa veríð kærðar i New York síöustu tvær vikur. Fórn- arlöntbin hafa verið velldæddar konur í pilsum eða kjólum og ha£a þúsundir kvenna í New York farið að ganga í buxum vegna árásanna. Lögreglan seg- ir að „Pflu-maðurínn“ hafi gefið sig sjálfur fram í gær. Hún sagð- ist ekki vita hver hefði veríð tii- gangur manusins sem vinnur sem sendili. Svíar kalla sendiherra sinn frá Bagdad: Svíi hengdur fyrir njósnir Svíar kölluðu sendiherra sinn heim frá Irak í gær eftir að ríkisstjómin í Bagdad sinnti ekki beiðni hennar um að sýna sænskum borgara miskunn. Jalil Mehdi al- Neamy var fæddur í írak en var giftur sænskri konu. Hann átti með henni bam og hafði fengið sænskan ríkisborgararétt. ír- akar sökuðu Neamy um að hafa stundað njósnir fyrir ísraelsku leyni- þjónustuna og dæmdu hann til dauða. Sænski utanríkisráðherrann Sten Andersson sagði að sænska rík- isstjómin hefði reynt að fá lífláts- dómnum breytt hljóðlega en seinna reynt að fá aftökunni frestað. Svíar mótmæltu ekki sakargiftum Neamy en þeir vom á móti dauðadómnum. Andersson sagði að sænska ríkis- stjómin hefði beitt öllum tiltækum ráðum til að bjarga lífi Neamy en ef til vill hefði verið rétt að reka málið fyrir opnum tjöldum og láta fjöl- miðla vita.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.