Tíminn - 14.07.1990, Page 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001
Halnarhúsinu v/Tryggvagólu,
S 28822
SAI
L ÍBY
SAMVINNUBANKINN
I BYGGÐUM IANDSINS
NÚTIMA FLUTNINGAR
a NISSAIM
Réttur bíll á
réttum stað.
HeSgasonM
Sœvamöfda 2
Simi 91-674000
LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM
Kringlunni 8-12 Sími 689888
Kostnaður við mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíti víkingurinn, er áætlaður 320 milljónir:
Tökur á Hvíta víkingnum
eru að hefjast í Noregi
Undirbúningur á töku nýjustu
myndar Hrafns Gunnlaugsson-
ar, Hvíti víkingurínn, er nú í full-
um gangi í Hellesylt í Noregi, en
myndin er aö verulegu leyti
greidd af framlagi Norræna
sjónvarpssjóðsins. Áætlað er að
verkið í heild kosti um 320 millj-
ónir ísl. króna. Gerð verður
sjónvarpsmynd í flórum hlutum
um hvrta víkinginn, en samhliða
verður gerð bíómynd undir
sama nafni.
Hrafn Gunnlaugsson er þessa dag-
ana önnum kafmn við æfingar með
leikurum og geíur sér ekki tíma í að
ræða við blaðamenn. Aðstoðar-
maður Hrafns, Steve St. Peter,
sagði í samtali við Tímann að æf-
ingar með leikurum stæðu nú sem
hæst og að bygging leiksviðsins
hefði staðið yfir síðan í maí. Hann
sagði Hrafn hefði unnið að hand-
ritsgerð sjónvarpsþáttanna í um
það bil þijú ár, eða allt ffá því að
hugmyndin að þeim kviknaði.
St. Peter sagði að myndin væri
byggð á sögu Olafs Tryggvasonar
Noregskonungs, en inn í hana flétt-
uðust ýmsar sterkar sögupersónur
Islendingasagnanna.
„Þetta er mjög flókin saga að
sumu leyti, en jafnframt er þetta
mjög einföld ástarsaga tveggja
ungmenna. Sagan er mjög falleg —
um ást og strið,“ sagði St. Peter.
Sagan gerist um árið 1000, og
sýnir að miklu leyti kristnitöku á
íslandi. Ein af persónunum í mynd-
inni er Þorgeir Ljósvetningagoði,
sá hinn sami og lagðist undir feld á
Þingvöllum.
St. Peter sagði að þeir myndu end-
urskrifa suma af þessum fjórum
sjónvarpsþáttum og taka upp á nýtt,
svo að hægt yrði að stytta þá niður
í venjulega kvikmyndalengd.
Tökur myndarinnar fara ffam á
tveimur stöðum í Noregi, í Helle-
sylt og Hvaler, og er reiknað með
að þeim ljúki þar í ágústlok. Þaðan
er ferðinni heitið til Islands, en tök-
ur hefjast hér 12. september og lýk-
ur um miðjan október. Heiðmörk
og Straumsvík verða meðal sögu-
sviðs myndarinnar, en þessa dag-
ana er verið að byggja leikmynd í
Straumsvík. Eftir að kvikrnynda-
tökum lýkur tekur við vinna í
vinnsluveri í Noregi til nóvember-
loka. Aætlað er að myndin verði
sýnd í sjónvarpi í árslok 1991.
Pétur Guðfmnsson, ffamkvæmda-
stjóri Ríkissjónvarpsins, sagði að
auk greiðslu ffá Norræna sjón-
varpssjóðnum sem Islendingar eru
ekki aðilar að, þá hlyti Hrafn styrk
fimm sjónvarpsstöðva, þar á meðal
Ríkissjónvarpsins, og er hlutur
hverra um sig 15 milljónir ísl.
króna.
Pétur sagði að Ríkissjónvarpið
ynni ýmsa verkþætti myndarinnar
hérlendis sem verktaki. íslenskir
leikarar starfa við myndina, og að-
alútgáfa hennar verður á islensku.
Hvíti víkingurinn verður sýndur á
öllum norrænu sjónvarpsstöðvun-
um, og er ráðgert að það verði í lok
næsta árs.
Þess má geta að Ágúst Guð-
mundsson kvikmyndagerðarmaður
hefúr fýrir allnokkru skrifað hand-
rit að kvikmynd sem ber nafhið
Krossinn. Sú mynd fjallar um
kristnitökuna árið 1000 líkt og
Hviti víkingurinn. Ágúst fékk á
sínum tíma 10 milljóna króna
ffamlag úr Kvikmyndasjóði til að
gera myndina. Ágúst skilaði
styrknum vegna að honum tókst
ekki að fjármagna myndina, en tal-
ið er að hún muni kosta vel á annað
hundrað milljónir króna.
-só/eó
Nýr flötur á
máli Krossaness
Ákvarðanatöku varðandi málefni
Krossanesverksmiðjunnar var frest-
Tvær þyrlur í sama
sjúkraflugi:
Vinnuslys í
Grundarfirði
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð í sjúkraflug til Grundarfjarðar
á fimmtudagskvöldið til að sækja
slasaðan mann. Maðurinn hafði lent í
vinnuslysi á bænum Hvemár. Ekki
vildi betur til en svo, að þegar þyrlan
var nýlent á slysstað, sogaðist dót í
spaða þyrlunnar og því þótti ekki
ráðlegt að fljúga henni án athugunar.
Kalla þurfti út þyrlu vamarliðsins,
sem kom um einum og hálfum tíma
síðar til Gmndarfjarðar og flutti
manninn til Reykjavíkur. Þyrla Land-
helgisgæslunnar reyndist hins vegar
ekki vera biluð þegar að var gáð.
-hs.
Óljóst um
eldsupptök
Ekki er enn vitað um orsök eldsins i
Breiðamerkurskóla s.l. fimmtudags-
kvöld. Þá kom upp eldur í austurálmu
skólans, þar sem er kennslulaug og
búningsklefar. Ekki var um mikinn
eld að ræða, en hins vegar lagði mik-
inn reyk um skólann. Rannsókn
stendur nú yfir.
-hs.
að á fúndi hluthafa í gær. Að sögn
stjómarformanns verksmiðjunnar,
Hólmsteins Hólmsteinssonar, mun
hafa komið fram nýr og athyglis-
verður möguleiki til úrlausna.
„Þessi nýja hugmynd er það áhuga-
verð að ákvörðun var tekin um að
skoða málið nánar yfir helgina og
halda siðan fund að morgni mánu-
dags,“ sagði Hólmsteinn í samtali
við Timann en vildi ekki greina
frekar frá því hvað væri um að
ræða.
Eins og gert hafði verið ráð fyrir
var starfsfólki skýrt frá stöðunni í
gær. Á hvem veg sem málið snýst,
er um töluverðar fjárhæðir að ræða
fýrir bæjarfélagið sem einn aðal-
hluthafa verksmiðjunnar. Sömu-
leiðis verður tekin afstaða til tilboðs
Síldarverksmiðja ríkisins og að öllu
óbreyttu mun endanleg ákvörðun
liggja fyrir strax eftir helgi.
jkb
Pönnukökubakstur á Landsmóti
Það er Ómar Gunnarsson, HSÞ, sem hér
handleikur pönnuna svona fagmannlega í
keppni í pönnukökubakstri á Landsmóti ungmennafélaganna í Mosfellssveit. Þúsundir ungmennafélaga hafa
streymt á mótssvæðið, en leikar standa hæst nú um helgina. Veðrið hefúr hins vegar verið hið leiðinlegasta, og í rok-
inu í gær tókust tjöld á loft. Það skyldi þó ekki vera hægt að bæta fluglengd tjalda inn í keppnisskrána hjá þeim?
Miklar eggjabirgðir
Eggjabændur hafa áhyggur af
því að eggjabirgðir í landinu hafa
vaxið undanfarna mánuöt
Ástæðurnar erum cinkuin þær
að eggjaframleiðslan befur verið
of mikil og einnig hitt að sala hcf-
ur dregist saman.
Hjá Framleiðsluriði landbúnað-
arins fcngust þær upplýsingar að
1. maí í fyrra voru bírgðir af
eggjum 22 tonn, en í. mai í ár eru
birgðir orðnar 170 tonn. Þetta er
mfkil aukning og hefur Félag
eggjaframleiðenda haft af þessu
töluvcrðar áhyggjur.
Eiríkur Einarsson hjá Féiagi
eggjaframleiðenda sagði í samtali
við Tíraann, aö margt hefði haft
áhrif á þessa uppsöfnun birgða.
Einkum er þó um að kenna of
mikilli framleiðslu og of litilli
sölu. „Mér sýnist þessi þróun að
dregur úr eggjaneysiu vera svip-
uð hér á landi og i Evrópu yfir-
lcitt. Hins vegar er erfitt að segja
hvers vegna svo er,“ sagði Eirík-
ur. Hann taldi þó ekki að i óefni
stefni hjá eggjaframleiðendum,
né að verð á eggjum myndi
lækka. „Mér sýnist, að undanfar-
ið hafi gcngiö á birgðirnar hjá
þeim sem eiga mest til af eggj-
um.“
Eirikur var spurður um hvort
eggjaframleiðendur kæmu til
með að óska eftir aðgerðum af
hálfu Landbúnaöarráöuneytis-
ins. „Ég á ekki von á þvL Við hðf-
um hins vegar talið ástæðu til að
benda á þetta, án þess að óskað sé
eftir einhverjum ítrekuðum að-
haldsaðgerðum. Við biðjum
menn um að halda vöku sinni “
sagði Eirikur að lokum.
-hs.
Hafskipsmálið:
Nýrsak-
sóknari
Dómsmálaráðherra, Óli Þ. Guð-
bjartsson, hefúr skipað Pái Amór
Pálsson til að gegna störfúm ríkissak-
sóknara í málum er tengjast gjald-
þroti Hafskips hf. Jafnframt hefúr
Jónatan Þórmundsson verið leystur
frá störfúm. Páll vildi ekki tjá sig um
skipanina er Tíminn hafði samband
við hann í gær.
- hs.